Morgunblaðið - 18.03.1978, Síða 48

Morgunblaðið - 18.03.1978, Síða 48
Ríkissjóður: 16% dregin frá fyr- vegna gengisfellingarinnar færu að koma fram sem kostnaðarauki hjá verzluninni, þyrfti að endur- skoða álagninguna að nýju. Nefna mætti sem dæmi að gengisfelling- in hefði orðið 10. febrúar og vöruverðshækkanir vegna hennar Framhald á bls. 26. V erðlagsdóm- ur hafnar kæru verzlunarinnar „Stl ákvörðun verðlagsnefndar sem Verzlunarráð íslands, Kaup- mannasamtök íslands og Félag ísl. stórkaupmanna hafa kært er byggð á svokallaóri 30%-reglu. Þeirri reglu hefur verðlagsnefnd beitt við nær allar gengisfelling- ar frá árinu 1960 og hefði beiting hennar nú því ekki átt að koma þessum aðilum á óvart,“ sagði Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, í samtali við Morgunblaðið í gær er hann var spurður álits á kæru framangreindra aðila, sem blaðið sagði frá í gær. Georg sagði, að í 30% reglunni fælist það, að þegar vöruverð hækkaði vegna gengisfellingar fengi verzlunin 30% af þeirri krónutöluhækkun, sem hún hefði fengið ef álagning í prósentu hefði verið sú sama og áður. Hér væri því um að ræða lækkun á álagn- ingu í prósentu en hins vegar fengi verzlunin fleiri krónur fyrir hverja einingu sem hún seldi. Þessari krónutalshækkun er verzlunin þannig fengi við gengisfellinguna væri síðan ætlað að standa undir þeim kostnaðarauka sem hún yrði fyrir strax í kjölfar gengisfelling- arinnar og fyrst á eftir. Georg sagði síðan, að þegar hins vegar verulegar launahækkanir Lemendasynirij, 'rrrE*- (Ljósm. Mbl. RAX) Kokkar tóku sér skyndilega stöðu á Lækjartorgi í gær og tóku að útdeila kræsingum til vegfarenda. í ljós kom við athugun að þeir voru með þessu að vekja athygli á sýningu sem Hótel- og veitingaskóli íslands gengst fyrir um helgina en þar verður til sýnis margt hnossgætið. Selskinn héðan falla í verði vegna áróðurs Felldu niður vinnu í tvær klukkustundir DAGSBRÚNARVERKAMENN, sem vinna við Reykjavíkurhöfn, rúmlega 500 manns, hófu ekki vinnu í gærmorgun, er þeir komu til vinnu. fyrr en að loknum kaffitíma um tíu-leytið. Sátu þeir í kaffistofum og spiluðu á spil, unz kaffitíminn var á enda. Þá fyrst hófu verkamennirnir vinnu eins og ekkert hefði í skorizt. Vinnutap vegna þessara aðgerða varð því um 100 mfnútur, ef 20 mínútna kaffitími er talinn með. Eitt þeirra fyrirtækja, sem varð fyrir þessum aðgerðum, er Eim- skipafélag íslands. Morgunblaðið ræddi í gær við Gylfa Ingimundar- son, yfirverkstjóra hjá Eimskip. Hann kvað verkamennina hafa átt að hefja störf klukkan 07.55, en þeir gerðu ekki handtak fyrr en kaffitíma var lokið klukkan 10. Að sögn verkamannanna var hér um að ræða þeirra eigið uppátæki, en ekki félagsleg ákvörðun Dagsbrún- ar. Gylfi sagði að hann hefði ekki orðið var við neinn úr stjórn Dagsbrúnar, þegar þessar aðgerðir fórp fram. Gylfi kvað hins vegar grun læðast að mönnum um að eitthvað væri á bak við, en hann kvað ekki hafa verið unnt að marka hann á neinn hátt. I öllum vöruafgreiðslum og skálum Eim- Framhald á bls. 26. ÁRÓÐURINN gegn sela- drápinu við Nýfundnaland og á Grænlandi hefur einn- ig haft sín áhrif fyrir þá sem veiða seli hér á landi og þá er reynt að selja þessi skinn á erlendum markaði. Að sögn Gunn- laugs Björnssonar, aðstoð- arframkvæmdastjóra bú- vörudeildar, Sambandsins, hefur undanfarið gætt verulegrar sölutregðu á selskinnum á erlendum markaði. Tekizt hefur þó að selja alla framleiðslu selskinna frá síðasta ári en þó fóru hin síðustu ekki fyrr en nú í síðasta mánuði og þá ekki á hagstæðu verði. Verðmæti þessarar framleiðslu skiptir þó tugum milljóna. Að sögn Gunnlaugs er nú svo komið að mjög örðugt er að selja selskinn í útlönd- um, því að í ljós hefur komið að hinn almenni kaupandi hefur orðið fyrir aðkasti ef hann hefur klæðzt fatnaði úr selskinni og að ekki er þá gerður greinarmunur á hvaðan skinnin eru komin. Áróðurinn gegn selskinn- um hefur síðan leitt til þess að selskinnin hafa stöðugt verið að falla í verði og sagði Gunnlaugur, að frá árinu 1976 og fram til þessa dags hefði verð á þessum skinnum fallið um 70% í erlendri mynt — hefði þá verið í 170 mörkum miðað við beztu skinn en væri nú að komast niður í um 100 mörk. Bekkurinn var þétt setínn í einni af kaffistofum Eimskipafélags íslands í gærmorgun. Menn spiluöu á spil eða spjölluðu saman. Eftir kaffitímann var hins vegar tekið til óspiiltra málanna eins og ekkert hefði í skorizt. — Ljósm.. Friðþjófur. Seladráp við Nýfundnaland hefur vakið reiði dýraverndunar manna, sem hafa byrjað baráttu gegn seladrápi og það hefur sín áhrif hér. Sjá grein um seladráp- ið bls 25. ir verkf allsdagana RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að draga skuli frá launum starfsmanna ríkis- ins, er eigi mættu til vinftu 1. og 2. marz síðastliðinn og höfðu eigi gild forföll. Lagaheimildum um frá- drátt vegna þessara Rekstrar- kostnaður Cortinu 1,1 millj. á ári REIKNAO hefur verið út aö rekstrarkostnaður meðalstórrar fjölskyldubifreiðar nemur í dag rúmlega 1 milljón króna. Tölur Þessar byggjast á útreikningum sem Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur látið taka saman og er bar reiknað út frá bifreið af gerðinni Ford Cortina. i afskriftir fara kr. 351.000, bensín 190.400, smurningu 23.800, varahluti 95.000, hjólbarða (2'/2 á ári) 28.000, viögerðarkostnað 130.000, ábyrgðartryggingu 62.541, kaskótryggingu 53.570, bifreiðaskatt 4.328 og ýmsan kostnað kr. 20.000. Alls gerir þetta kr. 958.639. Talan um kostnaö ábyrgðartryggingar er miðuð við núgildandi verð að viðbættri þeirri hækkun, sem tryggingafélög hafa nú sótt um eða 67%. Ekki er gert ráð fyrir hækkun á kaskótryggingu. Síðan er í tölum F.Í.B. bætt við vöxtum kr. 152.960 og er því heildarrekstrarkostnaður á ári kr. 1.111.599. tveggja daga er þó ekki beitt að fullu. Dregin eru 8% af mánaðarlaunum fyr- ir hvorn verkfallsdaginn eða samtals 16% hafi menn eigi sótt vinnu báða dag- ana. í fjórða kafla laga um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins segir í 30. grein m.a.: „Starfsmanni er skylt að vinna án endur- gjalds yfirvinnu allt að tvöföldum þeim tíma, er hann hefur verið frá starfi án gildra forfalla, eða hlíta því, að dregið sé af launum, sem því nemur." Sú regla, sem ríkisstjórn- in tók, var að draga af einföldum launum í stað tvöfaldra eins og lögin heimila og er miðað við föst laun. Sé tekinn miðlungs- taxti í launatöflu BSRB, 13. launaflokkur, 3. þrep, eru mánaðarlaunin 194.254 krónur og nemur frádrátt- urinn báða dagana þá 31.081 krónum. Þá ber að geta þess að Reykjavíkurborg tók þá ákvörðun fyrir skömmu að nýta heimildarákvæði lag- anna að fullu og dregur hún 32% af launum þeirra starfsmanna, sem ekki sóttu vinnu báða dagana og ekki höfðu gild forföll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.