Morgunblaðið - 06.04.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1978
3
Útflutningsbannid:
Þegar frystigeymslur fyll-
ast stöðvast frystihúsin
og verkafólk og sjó-
menn missa vinnuna
LJÓST er að útflutningsbann
það, sem boðað hefur verið,
mun ekki bitna mikið á íslenzk-
um útflutningsfyrirtækjum, ef
það stendur ekki lengi.
Islenzku fiskiðnaðarverk-
smiðjurnar í Bandaríkjunum
eiga þó nokkrar birgðir, sem
endast munu í nokkrar vikur.
Um saltfiskútflutning er það
að segja, að ekki er gert ráð
fyrir miklum útskipunum á
næstunni, en ef bannið verður
lengi getur það spillt fyrir
útskipunum til Spánar.
Morgunblaðið kannaði einnig í
gær hvort mikið af loðnumjöli
ætti að fara utan á næstunni.
Svo mun ekki vera og í
allflestum tilvikum hljóða mjöl-
samningar upp á „óviðráðanleg
atvik“, og verða seljendur því
ekki fyrir beinu tjóni, þótt
afskipunum seinki, en verkföll
teljast til óviðráðanlegra
atvika. Virðist því, sem út-
flutningsbannið muni fyrst
bitna á verkafólki og sjómönn-
um úti á landi, þvi þetta fólk
missir vinnu sína um leið og
geymslur frystihúsanna fyllast
en víða og þá sérstaklega á
smærri stöðum eru geymslur
litlar.
„Boðuð stöðvun á útflutning
bitnar fyrst og fremst á fisk-
vinnslufyrirtækjum, þar sem
annar atvinnurekstur mun yfir-
íeitt geta haldið áfram án
verulegra truflana a.m.k. fyrst
um sinn,“ sagði Eyjólfur Isfeld
Eyjólfsson forstjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við
hann.
„Við höfum séð til þess, að
verulegar birgðir af fiski eru nú
í helztu markaðslöndum okkar,
og sem betur fer mun þetta
verkfall því ekki leiða til
óbætanlegs tjóns á mörkuðun-
um næsta mánuðinn eða tvo.
Þar sem fiskbirgðir eru nú
einnig verulegar í frystihúsun-
um, en geymslurými flestra
þeirra er takmarkað, þá mun
bann á útflutningi hins vegar
leiða til stöðvunar margra
frystihúsa eftir 1—2 vikur. Af
því leiðir þá einnig að starfs-
fólkið verður atvinnulaust og þá
um leið sjómenn á fiskiskipum.
Talað er um að í slíkum
tilvikum gætu einstaka staðir
gefið undanþágu frá út-
flutningsbanni. Því miður eru
litlar líkur til að hægt sé að
skipuleggja afskipanir á fryst-
um fiski til markaðslandanna
með slíku fyrirkomulagi," sagði
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson.
Morgunblaðið hafði samband
við nokkra forráðamenn frysti-
húsa úti um land í gær. Sögðu
þeir að áður en útflutningsbann-
ið skylli á, yrði vafalaust reynt
að flytja eins mikið út og
mögulegt væri. Því miður væri
ástandið víða þannig, að frysti-
geymslur væru litlar og því
myndu frystihúsin stöðvast
fljótlega. Stöðvun þeirra þýddi
einfaldlega, að starfsfólk hús-
anna og sjómenn yrðu atvinnu-
laus. A þessu fólki myndi
útflutningsbannið fyrst og
fremst lenda.
Sumir forráðamenn húsanna
sögðu, að einstaka frystihús
myndu á næstunni aðeins taka
við afla eigin skipa, til að geta
haldið þeim gangandi sem
lengst, og væri því hætt við að
einhver hluti flotans myndi
stöðvast fljótlega. Ennfremur
væri hætt við að handfæra-
veiðar frá méstu handfæra-
verðstöðunum eins og
Neskaupstað, Bolungarvík,
Patreksfirði og Húsavík hæfust
ekki strax vegna útflutnings-
bannsins. Ennfremur væri ljóst,
að frystihúsin gætu ekki tekið
við skólafólki til vinnu á
næstunni vegna bannsins. Allt
leiddi því til þess, aö út-
flutningsbannið myndi fyrst og
fremst bitna á fjölskyldum
verkamanna og sjómanna.
„Mér virðist að boðað út-
flutningsbann muni ekki hafa
alvarleg áhrif á einstaka stöðum
alveg strax, en samt eru til
undantekningar, “ sagði
Sigurður Markússon fram-
kvæmdastjóri sjávarafurða-
deildar Sambandsins, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann.
„Mér er efst í huga hvaða
áhrif útflutningsbannið hefur á
viðskiptasambönd okkar. Á s.l.
ári var yfirvinnubann og verk-
föll í 9 vikur hér á landi. Það olli
miklum óþægindum hér, en þó
jafnvel enn meiri hjá viðskipta-
vinum okkar erlendis. Þegar
svona nokkuð gerist, missum við
tiltrú. Við fáum slæmt orð á
okkur fyrir að afgreiða vörur
aldrei á réttum tíma, eins og
raunar fleiri þjóðir í Evrópu
hafa á sér, “ sagði Sigurður
ennfremur.
Þegar hann var spurður um
hvort útflutningsbannið hefði
mikil áhrif á starfsemi Iceland
Products í Bandaríkjunum sagði
Sigurður, að hann ætti ekki von
á að neinir erfiðleikar yrðu í
rekstri fiskréttaverksmiðjunnar
á næstu vikum. Það væri frekar
annar þáttur í starfsemi fyrir-
tækisins, sem menn hefðu
áhyggjur af. Iceland Products
seldi flök og fleiri fiskafurðir
beint til kaupenda í þeim
umbúðum, sem þau kæmu í frá
Islandi. Ef kaupendur fengju
ekki sínar pantanir afgreiddar á
réttum tíma, þyrftu þeir að snúa
sér annað, og aðalkeppinautar
væru Kanadamenn, Danir og
Norðmenn og jafnvel Færeying-
ar. Þessir samkeppnisaðilar
okkar hefðu ekki orðið fyrir
þeim truflunum sem íslenzku
fyrirtækin hefðu orðið fyrir
síðustu misserin.
Valgarð J. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri hjá Sölusambandi
ísl. fiskframleiðenda sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann,
að í byrjun næstu viku ætti að
skipa út litlu af saltfiski til
Spánar, en hætt væri við að
fresta yrði einhverju af
afskipunum, ef til útflutnings-
bannsins kæmi.
„Allt sem tefur afskipanir
getur komið afar illa við okkur,
því þá hætta kaupendur hrein-
lega að treysta okkur. Þeir bíða
með tugi manns í þurrkhúsun-
um erlendis til að ganga frá
blautfiskinum á markað og
verða því að leita annað eftir
fiski, ef við bregðumst," sagði
Valgarð.
Jón Reynir Magnússon fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins sagði þegar rætt var við
hann, að á tímabilinu frá 15.
apríl til 15. maí ætti að afskipa
5700 lestum af mjöli frá SR, og
færi stærsti hluti þessa mjöls til
Irans og Portúgals. Jón kvað SR
ekki verða fyrir tjóni þótt til
útflutningsbannsins kæmi, þar
sem í samningum væri talað um
„óviðráðanleg atvik“ og flokk-
aðist verkfall, stríð, vélarbilun
skipa, veðurofsi o.fl. undir þessa
klásúlu.
Roskin skipst jórafrú
hlaut D AS-húsið
V
Pétur Sigurðsson alþingismaður afhendir Lovísu Halldórsdóttur DAS-húsið á tröppum þess síðdegis
í gær. — Ljósm.i RAX
Baldvin Jónsson og Pétur Sigurðsson ásamt Lovísu Halldórsdóttur
og dætrum hennar við afhendingu DAS-hússins í gær.
EINS og fram kom
í Morgunblaðinu í
gær hlaut Lovísa.
Ilalldórsdóttir.
Bergstaðastræti
71, DAS-húsið að
Hæðarbyggð 28 í
Garðabæ, er dregið
var í 12. flokki
happdrættisins.
Forráðamenn
Happdrættis
Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna
afhentu frú Lovísu
hið 35 milljón
króna hús síðdegis
í gær og var Lovísa
að vonum ánægð
með vinninginn.
Lovísa er kona
Þórðar Hjörleifs-
sonar togaraskip-
stjóra, sem nú ligg-
ur veikur í sjúkra-
húsi. Að sögn Pét-
urs Sigurðssonar,
formanns Sjó-
mannadagsráðs og
Happdrættis DAS,
er Þórður einn
þeirra skipstjóra
sem hefur verið
heiðraður fyrir sjó-
mennsku á sjó'-
mannadaginn. Var
hann einn þeirra,
sem heiðraðir voru
fyrir nokkrum
árum. Pétur kvað
Þórð vera einn af
fremstu togarasjó-
mönnum landsins,
sem á stríðsárunum
hafði verðið mikið í
siglingum.
Með frú Lovísu,
þegar hún tók við
vinningnum, voru
tvær dætur hennar.