Morgunblaðið - 11.05.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
Weleda-
kynningarvika
25% afsláttur
Weleda jurta snyrtivörurnar óviöjafnanlegu sem fást í Þumaiínu eru unnar úr jurtum og
blómum, sem ræktuð eru á lífrænan hátt. Engin gerfiefni, engin gleymslu, lyktar eöa
litarefni.
f Þumalínu er einnig aö finna mikiö úrval sængurgjafa á góöu veröi og allt fyrir ungbarniö
m.a. landsins ódýrustu bleyjur.
Sjá auglýsingu í þriöjudagsblaöi.
Næg bílastæöi viö búöarvegginn.
Sendum í póstkröfum. Símj 1236. ÞUMALÍNA DOMUS MEDICA.
málaflokk, sem okkur konum
hefur verið eignaður í gegn um
árin, en það eru dagvistunar-
mál. En þau eru að mínu áliti
ekkert einkamál okkar kvenna.
Dagvistunarmálin eru að mínu
mati svo umfangsmikil og marg-
brotin, að ég tel mig þess ekki
umkomna nú að skoða þau niður
í kjölinn og mun því láta það
bíða þar til ég hefi kynnst þeim
betur.
Fram að þessu hefi ég forðast
að setja fram langan óska- eða
loforðalista um allt milli himins
og jarðar Hafnarfirði til handa.
Eg hefi sett mér það markmið
að ganga ekki til samstarfs við
aðra bæjarfulltrúa flokksins
með fyrirfram mótaðar skoðan-
ir á öllum hlutum, eða eins og
ég væri nýr aðili, sem kemur
fram með patentlausnir á öllum
málum, heldur mun ég ganga til
samstarfsins með opnum huga
og jákvæðu viðhorfi, því ég ber
fullt traust til þeirra manna,
sem eru með mér á listanum og
vænti mikils af samstarfi við þá.
Ég vil hvetja konur til auk-
innar þátttöku í starfi flokksins
og að þær taki mikinn og virkan
þátt í kosningabaráttunni sem
hafin er. Verði framboð mitt til
þess að auka áhrif kvenna í
bæjarmálum, umfram það sem
verið hefur, tel ég miklum
áfanga náð, því það hlýtur að
vera okkur konunum mikið
kappsmál að þátttaka okkar
aukist verulega í stjórn bæjar-
ins og að við náum þar fullum
jöfnuði við karlmenn.
HLJÓÐFÆRAVERSLUN Paul
Bernbourg flutti sl. laugardag í
ný húsakynni að Rauðarárstíg
16. Verslunin, sem hefur nú
starfað í sautján ár, var áður til
húsa að Vitastíg 12, en sakir
aukinna umsvifa, voru þrengsli
farin að há starfseminni hin
síðari ár.
Hin nýju húsakynni eru u.þ.b.
180 fermetrar að stærð og eru
innréttingar teiknaðar af Aðal-
steini Richter arkitekt, en yfir-
smiður var Hafsteinn Garðars-
son.
Þegar nýja verslunarhúsnæðið
var tekið í notkun á laugardag-
inn höfðu aðstandendur
verslunarinnar boð inni fyrir
velunnara, viðskiptavini og
blaðamenn og við það tækifæri
var kynnt nýtt rafmagnsorgel,
sem er hið fullkomnasta sem
Yamaha-samsteypan framleiðir
og m.a. búið tölvu. Meðfylgjandi
mynd tók Kristinn af aðstand-
endum verslunarinnar og full-
trúum Yamaha við hið stór-
bortna orgel, sem mun kosta
u.þ.b. átta milljónir króna.
Fyrsti fundur kosningabar-
áttn Sjálfstœdisflokksiris í
Hufnarfiröi, vegna bæjar-
stjórnakosninganna 28. þ.rrt., var
haldinn af Sjálfstæöiskvenna-
félaginu Vorboöi i Sjálfstæöis-
húsinu t Hafnarfiröi síöastliö-
inn mánudag. Húsfyllir var á
fundinum og því sýnilega mikill
áhugi hjá Vorboöakonum aö
gera sigur Sjálfstæöisflokksins í
Hafnarfiröi sem glæsilegastan i
komandi kosningum.
Ávörp fluttu frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins við kom-
andi bæjarstjórnakosningar,
þau Hildur Haraldsdóttir, sem
skipa 5. sæti listans, Jóhann G.
Bergþórsson, sem skipar 6. sæti
listans og Páll V. Daníslsson,
sem skipar 7. sæti listans. Eftir
ávörp frambjóðenda tóku ýmsar
fundarkonur til máls, þökkuðu
góð ávörp og hvöttu konur til
virkrar þátttöku í komandi
kosningabaráttu.
Frú Hulda Sigurjónsdóttir
sem skipaði 7. sæti á framboðs-
lista flokksins í bæjarstjórna-
kosningunum 1974, var fundar-
stjóri og þakkaði hún frambjóð-
endum fyrir ávörpin og bauð
sérstaklega velkomna í ban'ut-
una ungu konuna, Hildi Har-
aldsdóttur, sem skipar 5. sæti
listans og tryggir þar með að
hafnfirzkar konur eignast verð-
ugan fulltrúa í komandi bæjar-
stjórn.
Formaður Vorboðans, Erna I.
Mathiesen, þakkaði Huldu
Sigurjónsdóttur fyrir hennar
góðu störf á síðasta kjörtímabili
í bæjarmálaflokki Sjálfstæðis-
flokksins og tók síðan undir með
Huldu með hvatningu til hafn-
firzkra kvenna að styðja að sem
glæsilegustu kjöri Hildar Har-
aldsdóttur í komandi kosningum
og helzt að gera þann sigur það
góðan að hin ungi fulltrúi
flokksins í 6. sæti, Jóhann G.
Bergþórsson, nái einnig kosn-
ingu.
í ávarpi sínu á fundinum
sagði Hildur Haraldsdóttir m.a.:
Það er vissulega mikil uppörv-
un og hvatning að fá að tala hér
á fundinum í kvöld, sem í
framhaldi af miklum og góðum
stuðningi kvenna, sem ég varð
vör við í prófkjörinu, hefur fært
Ung kona
í 5 sæti
mér sönnur á það að ég á í ykkar
hópi tryggan bakhjarl og góðan
stuðning til að takast á við
verkefnin á næstu árum. Það fer
ekki hjá því, að á þeim tímamót-
um, sem ég stend nú á, væntan-
lega sem einn af bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins, koma upp í-
huga mér margir málaflokkar,
stórir og smáir, sem varða
bæinn okkar, umhverfið, líf
okkar og störf.
Eitt af því sem mér er
sérstaklega hugleikið eru mál-
efni æskunnar. Eins og ykkur er
e.t.v. kunnugt hefi ég tekið þátt
í störfum íþróttahreyfingarinn-
ar og gegnum það hefi ég
myndað mér þá skoðun að
nauðsynlegt sé að bæjarfélagið
-veiti þessu starfi fjárhagslegan
stuðning, en láti félögunum eftir
að starfa á sem frjálsustum
grundvelli, þannig að stuðning-
ur bæjarins verði félögunum og
íþróttamönnum okkar hvatning
til dáða í krafti sinnar eigin
atorku.
Ég er fædd hér í Hafnarfirði
og hefi alist upp í einum elsta
hluta bæjarins, þar sem bygg-
ingar falla vel inn í umhverfi
sitt og náttúrunni hefur ekki
verið raskað um of af manna-
völdum. Þessa þurfum við einnig
að gæta við skipulagningu nýrra
byggða, að séreinkenni lands-
lagsins verði látin halda sér og
byggð ákveðin þannig, að hún
falli vel að staðháttum og veki
með fóki jákvæðar tilfinningar
fyrir umhverfi sínu. I slíku
umhverfi tel ég æskilegt fyrir
framtíð Hafnarfjarðar að börn-
in alist upp til vits og þroska,
því að hvergi fær athafnaþrá
barnsins meiri útrás og getur
enginn tilbúinn leikvangur kom-
ið í staðinn fyrir þann, sem
náttúran sjálf hefur lagt til.
Nú myndi kannski einhver
ykkar segja: Þar sem hún er
farin að tala um börnin, ætlar
hún þá að minnast á þann
Hlutí af fúndarmönnum á fundi Vorboðans f Hafnarfirði.
Fjölmennur fund-
ur Vorboðans
8 milljón kr. orgel