Morgunblaðið - 11.05.1978, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
21
Félagsstarfsemi
í Reykhólasveit
FÉLAGSSTARFSEMI. Allmikil
félaíjsstarfsemi hefur veriö hér aö
undanförnu og halda konur hér
merki hátt á loft. Áhugi þeirra
hefur beinst að ræktunarmálum
og umhverfisprýöi.
Þær nenfjust fyrir kvöldvöku í
Króksfjarðarnesi fyrir nokkru og
hélt þar Þórarinn Sveinsson ráðu-
nautur erindi um matjurtarækt.
Lesiö var erindi eftir frú Ingi-
björjiu Árnadóttur um ræktun
trjáa í skrúðgöröum. Einnig voru
sýndar litskyggnur frá Garðyrkju-
félagi íslands af skrúðgarðablóm-
um.
í gær að lokinni guðsþjónustu
gengust konur fyrir fræðsluvöku á
Reykhólum. Séra Jón Isfeld flutti
fróðlegt og vel gert erindi um
uppeldismál og kom hann inn á
marga þætti þeirra vandamála,
sem uppalendur eiga við að stríða
í fjölþættum þjóðfélögum.
Á eftir erindinu var kvikmvnda-
sýning og var sýnd norsk skrúð-
garöamynd í lit. Einnig litskyggn-
ur úr héraði.
Leikstarf.semi. Nýlega hefur
leikfélagið Skrugga sýnt leikrit
eftir Harald Á. Sigurðsson sem
ber nafnið: „Karólína snýr sér að
leiklistinni“. Búið er að sýna
leikritið tvisvar og er leikstjóri frú
Margrét Ágústsdóttir. Fréttaritari
hefur ekki séð leikritið og verður
því ekki dæmt um það hér hvernig
tekist hefur til með þetta verk. Að
sjálfsögðu verður að gera aðrar og
vægari kröfur til áhugafólks, en
ætíð verður þá að hafa það að
leiðarljósi, að það vinni verkið eins
vel og kostur er á hverju sinni.
SkólamáL Grunnskólinn á
Reykhólum hefur lokið störfum að
þessu sinni.
Skólinn mun starfa í níu bekkj-
ardeildum næsta vetur. Kennarar
eru fjórir og tímakennarar tveir.
Skólastjóri er frú Kolbrún Ingólfs-
dóttir og ráðskona frú Jóhanna
Jóhannesdóttjr.
Sveinn Guðmundsson.
Sauðburður
hafinn nyrðra
Bæ, Höfðaströnd, 10. maí.
EINMUNA tíð er nú og
gróðri skilar mjög ört. ís er
tekinn af Höfðavatni en í
Fljótum er enn nokkur ís á
vötnum. Sauðburður er víð-
ast hvar byrjaður og gengur
vel.
Undanfarið hefur verið
sungið og leikið um hverja
helgi bæði af utansveitar-
skemmtikröftum og heima-
fólki. Leikfélagið á Hofsósi
sýndi „Afbrýðisama eigin-
konu“ við mjög góða dóma og
fyrir fullu húsi hvað eftir
annað. Söngfélagið Harpa
söng í Eyjafirði og Siglufirði
einnig við ágætar undirtekt-
ir. Tónskóli Skagafjarðar
hafði athyglisverða samkomu
á Hofsósi um síðustu helgi,
þar sem fram komu á annað
hundrað börn og unglingar
með söng og hljóðfæraleik.
Þarna komu fram margir
einstaklingar, sem skila hlut-
verkum með ágætum og að
dómi skólastjóra og kennara
eiga framtíð með góðri
kennslu og þjálfun.
Fiskafli er talinn mjög
tregur hér inni á Skagafirði
eins og er. Grásleppuveiði
hefur oft gengið betur. Ann-
ars er blíðviðri nú eins og
bezt verður á kosið. — Björn.
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur.
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árangur af
hagstæðum innkaupum
Kjúklíngar
á sérverði
STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17
lil
Fnuikíiiit
8 á leið lengia
Frankfurt er ekkl aðeins mikil miðstöó vióskipta
og verslunar — heldur einnig ein stærsta flug-
miðstöð Evrópu. Frá Frankfurt, sem er um þaó
bil í miðju Þýskalandi, eru óteljandi
ferðamöguleikar.
Þaðan er stutt til margra fallegra staða í
Þýskalandi sjálfu (t.d. Mainz og Heidelberg) og
Þaðan er þægilegt að halda áfram ferðinni til
Austurríkis, Sviss, Ítalíu, Júgóslavíu, eða jafnvel
lengra.
Frankfurt, einn fjölmargra
staða í áætlunarflugi okkar.
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí
n /SLAJVDS