Morgunblaðið - 11.05.1978, Side 33
33
MORGUNBLAÐJÐ. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
gengí nema greiðslur af áhvílandi
lánum 1500—1900 Mkr. á árunum
1978—83. Til viðbótar koma greiðsl-
ur af lánum sem tekin verða frá og
með þessu ári.
Ef ekkert verður gert til að losa
stofnunina undan hluta af lánabyrð-
inni er ljóst, að gífurlegir rkestrar-
erfiðleikar eru framundan næstu
árin og raunverulega er stofnunin
ófær um að taka á sig frekari
fjárskuldbindingar, nema breyting
komi til.
Ef ætlunin er að Rafmangs-
veiturnar standi að almennum fram-
kvæmdum í jafn ríkum mæli og
undanfarin ár má gera ráð fyrir að
stofnunin geti ekki staðið undir
greiðslum af lánum umfram þá
upphæð sem hún fær af verð-
jöfnunargjaldi nema að litlu leyti.
Framangreindar lántökur til
lausnar aðsteðjandi vanda eru ekki
úrbætur til frambúðar, heldur auka
þvert á móti lánabyrði Rafmangs-
veitnanna á næstu árum, ef ekki eru
gerðar aðrar ráðstafanir samhliða.
Þær ráðstafanir, sem gripið hefur
verið til á undanförnum árum til að
bæta rekstrarafkomu Rafmangs-
veitnanna hafa einkum falizt í
eftirfarandi:
— hækkun gjaldskrár
— álanging og síðar hækkun
verðjöfnunargjalds
— tímabundin og tilviljanakennd
niðurfelling aðflutningsgjalda
— auknar lántökur til lengri og
skemmri tíma.
Þessar ráðstafanir hafa dugað
skammt eins og raun ber vitni og
afleiðingin m.a. orðin sú, að helztu
gjaldskrárliðir í smásölugjaldskrá
Rafmangsveitnanna er nú 80—90%
hærri en hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á meðan vegið meðalverð
allrar smásölu er mjög álíka. Stafar
þetta af því, að um 60% af orkusölu
Rafmangsveitna ríkisins er
samkvæmt húshitunar- og mark-
töxtum, en sú sala skilar eingöngu
um 30%. smásölutekna, miðað við
árið 1977.
Rafmangsveitur ríkisins eru þjón-
ustustofnun fyrir almenning. Þær
hafa það hlutverk að afla, dreifa og
selja raforku, ýmist beint til notenda
eða til rafveitna í eigu sveitarfélaga.
Rafmangsveiturnar afla rafork-
unnar annars vegar með orkukaup-
um, aðallega frá Landsvirkjun og
Laxárvirkjun og hins vegar með
orkuvinnslu í eigin vatnsafls- og
dieselstöðvum. Orkuvinnsla í diesel-
stöðvum er eins og kunnugt er mjög
óhagkvæm, þar sem orkuvinnslu-
kostnaður er margfalt hærri en
söluverð orkunnar og er það því
þungur baggi á rekstrinum.
Einnig er eigin orkuframleiðsia í
vatnsaflsstöðvum um 36%. dýrari en
aðkeypt vatnsorka aðalega vegna
óhagkvæmrar fjármögnunar.
Samanlögð töp í flutnings- og
dreifikerfum Rafmangsveitnanna
eru milli 14 og 15% og á einstökum
stöðum yfir 20%, eins og áður er
getiö.
Sem dæmi má nefna, að árið 1977
varð kostnaöur við orkuöflun um
92% af heildartekjum af orkusölu,
en ef verðjöfnunargjaidinu er bætt
við tekjurnar verður hlutfallið um
74% . Hjá Rafmangsveitu Reykjavík-
ur er þetta hlutfall um 38%, og hjá
öðrum sveitarfélagarafveitum milli
40 og 50% .
Rafmangsveitur ríkisins hafa eins
og aðrar rafveitur einkarétt til
raforkudreifingar á orkuveitusvæö-
um sínum. Þessum einkarétti fylgir
sú skylda að sjá notendum fyrir
nægri og tryggri og helzt sem
ódýrastri raforku eftir því, sem við
verður komið.
Framkvæmdir miðast því t.d. við
tengingu byggðarlaga við samveitur
til þess að draga úr rekstri diesel-
véla. Slík tenging kann að vera
hagkvæmari en áframhaldandi
rekstur dieselvéla, en sá markaður
sem þannig tengist samveitunni
skilar oft ekki nægum orkusölutekj-
um til að standa undir fjármangs- og
rekstrarkostnaði tengilínunnar.
Annað dæmi er bygging aðveitu-
stöðva. Ástæður fyrir slíkum fram-
kvæmdum eru t.d. nauðsynleg
endurnýjun á rafbúnaði vegna ófull-
nægjandi og ótryggs ástands, sem
ekki lengur uppfyllir settar öryggis-
kröfur, endurnýjun á rafbúnaði, þ.á
m. spennum, vegna aukins álags eða
hækkunar spennu á flutningslínum
og loks færsla og nýbygging aðveitu-
stöðva af skipulagsástæðum. Þessar
framkvæmdir eru yfirleitt ekki þess
eðlis, að orkusölutekjur aukist að
mun fyrstu árin. Svipuðu máli gildir
um styrkingu dreifikerfa í sveitum,
uppsetningu dieselvéla sem varaafl
o.fl.
Fyrrgreindar framkvæmdir, sem
og margs konar aðrar aðgerðir eru
engu að síður nauðsynlegar til að
viðhalda raforkukerfinu og veita þá
þjónustu við notendur, sem okkur
ber lögum samkvæmt.
Úrræði til
frambúðar
Vegna þess, sem að framan segir,
ber brýna nauðsyn til þess, að gera
sér grein fyrir því, hve miklum hluta
þessara framkvæmda stofnunin get-
ur staðið undir með tekjum sínum.
Það sem eftir stendur verður að telja
félagslegan eða byggðapólitískan
þátt framkvæmdanna.
Rafmagnsveiturnar hafa þegar
hafið undirbúning að því að leggja
mat á félagslegan þátt í fjárfesting-
um sínum. Til aðstoðar við þetta
verk, hafa þær fengið Verkfræði-
þjónustu Kjartans Jóhannssonar og
Hagvang h.f.
í fyrstu drögum að tillögum er
fjallað um það hvernig skuli meta
hinn félagslega þátt framkvæmd-
anna, en þar segir m.a.:
Athygli verður að vekja á því, að
til þess að meta að hve miklu leyti
framkvæmdir eru arðbærar eða af
félagslegum toga, duga ekki þær
venjulegu samanburðarathuganir,
sem eðlilegt hefur virzt að beita
innan fyrirtækisins við fram-
kvæmdaval. Sem dæmi má nefna að
línubygging til byggðarlags kann að
sýna ábata á samanburði við kostnað
af dieselvinnslu raforku í byggðar-
laginu og þannig að teljast æskileg
samkvæmt hefðbundnum saman-
burði, en sá samanburður segir
ekkert um það, að línubyggingin sem
slík sé arðbær framkvæmd. Þeirri
spurningu er eftir sem áður ósvarað,
hvort línubyggingin standi undir sér.
Til þess að svara þeirri spurningu,
hvort tiltekin fjárfesting sé arðbær,
þarf þannig aðra nálgun, sem felur
í sér einangraða athugun á inn- og
útstreymi fjár tengt fjárfestingunni.
Sé útstreymi meira en útstreymi er
fjárfestingin reist á félagslegum
forsendum og mismunurinn mælir
hinn félagslega þátt.
Almennt séð verður þá nálgun á
fjárfestingarmatinu með tilliti til
arðsemi og félagslegra þátta þessi:
Fundnar eru þær tekjur og þau
gjöld, sem fylgja því á ári hverju yfir
endingartíma framkvæmdarinnar,
að nýta fjárfestinguna og mismunar
tekna og gjalda reiknaður til núvirð-
is á tilteknum vöxtum er borinn
saman við fjárfestingarupphæð. Sé
heildarniðurstaða jákvæð er fjár-
festingin arðbær. Ef heildarniður-
staðan er neikvæð, þá er fjarrfest-
ingin af félagslegum toga og hin
negatíva upphæð gefur til kynna
hinn félagslega þátt. Helztu fjárfest-
ingar, sem hér um ræðir, eru
línubyggingar, bygging aðveitu-
stöðva, styrking kerfiseininga og
uppsetning dieselvéla.
Rafmagnsveiturnar munu vinna
áfram að gerð tillagna um ofan-
greinda skiptingu í arðbærar fram-
kvæmdir annars vegar og óarðbærar
framkvæmdir eða félagslegar fram-
kvæmdir hins vegar og skipta
fjárlagatillögum stofnunarinnar fyr-
tr árið 1979, sem nú er verið að vinna
að ,í samrænti við það, þannig að
fram komi, hve mikill hinn félagslegi
þáttur framkvæmdanna er eða með
öðrrn orðum, hvert framlag ríkisins
þarf að vera samkvæmt gefnum
forsendum.
Sem dæmi um framkvæmdir, sem
reiknaðar hafa verið samkvæmt
ofangreindum aðferðum vil ég nefna
eftirfarandi:
Á fjárlögum 1978 er lagning
háspennulínu milli Þórshafnar og
Bakkafjarðar, sem áætluð er kosta
51 Mkr. Miðað við hgakvæmustu
forsendur, þ.e. orkukaup inn á línuna
miðuð við gjaldskrá Laxárvirkjunar
og orkusala út af henni miðuð við
heildsölugjaldskrá Rafmagnsveitn-
anna, þarf óendurkræft framlag að
nema 43,5 Mkr af 51 Mkr eða sem
svarar um 85% af stofnkostnaði.
Sem dæmi um arðbæra fram-
kvæmd aftur á móti er lagning 66
KV línu milli Grímsár og Reyðar-
fjarðar. Þegar sú lína var tekin í
notkun haustið 197'Jj lækkuðu töp í
flutningskerfi Austurlandsveitu um
allt að 1 MW.
Munurinn er sá, að hér er um að
ræða tengilínu milli orkuvinnslu-
Framhald á bls ;)o
Bypf
Selur PFAFF Jú, reyndar, en svotil eingöngu sauma- vélaborö, sem sum eru eins og fínustu skrifborö. Nú eru fyrirliggjandi nýjar geröir úr eik, teak og litaöri hnotu. Flest boröin henta fyrir allar gerðir töskuvéla, sem hægt er aö hafa í þremur mismunandi hæöarstillingum. Aö sjálfsögöu finnst okkur PFAFF-saumavélar fara best í þessum húsgögn? boröum, en þau eru reyndar einnig hönnuö fyrir aörar saumavélageröir. Ódýrustu boröin kosta kr. 48 þúsund og þau dýrustu kr. 147.500. Afborgunarskil- málar.
”"s"""n (PFAFF)
Timbur er líka
eitt af því sem þú
færð hjá Byko
Móta - og sperruviður í hentugustu
þykktum, breiddum og lengdum.
Einnig smíðaviður.
Þilplötur hvers konar úr upphituðu
geymsluhúsi.
Góð aðstaða til skjótrar og öruggrar
afgreiðslu.
Þar sem fagmennirnir versla er
þér óhætt.
BYKO
BYGGINGAVÚRUVERSLUN KÓPAV0GS SF. SÍMI41000