Morgunblaðið - 01.06.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
3
Bókin um Erró að koma út
- íslenzka útgáfan á vegum Bókaklúbbs AB er uppseld
„ÞAÐ sem mér pykir gleðilegast viö
útkomu Þessarar bókar er að hún
og Það, sem í henni er, verður eftir
hér hjá fólki, Þegar sýningu minni
hefur verið lokað og málverk mín
flutt héðan aftur.“ Svo fórust
listamanninum Erró orð á
blaðamannafundi í gær sem var
haldinn í tilefni útkomu glæsilegrar
og vandaðrar bókar með myndum
af um 59 verka hans. „Útgáfa slíkrar
bókar er og góö leið, ef vel tekst til,
að ná til fólks sem hefur ekki
fjárráð til að kaupa mynd,“ bætti
hann við.
Bókin er gefin út af lceland Review
en Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins keypti hins vegar útgáfu-
réttinn hérlendis og er ekki aö
orölengja aö félagar klúbbsins hafa
sýnt svo mikinn áhuga á bókinni að
upplagið, 4.500 eintök, er uppselt.
Samtímis kemur þó út ensk útgáfa,
2500 eintök, sem verður dreift í
bókaverzlanir á næstunni.
Haraldur Hamar, ritstjóri lceland
Review sagöi á blaðamannafundin-
um að um tvö ár væru liðin frá því
það kom fyrst til tals að vinna þessa
bók. Þaö væri ánægjuefni að hún
kæmi út einmitt nú þegar sýning
hans væri hér á Listahátíö. Haraldur
sagði að ýmsir heföu lagt hönd á
plóginn til að gera bókina sem
vandaðasta, inngangstexta skrifaöi
gamall félagi Errós og vinur, Bragi
Ásgeirsson, og annar vinur hans,
Matthías Johannessen, skrifaöi um
Erró og byggði fyrst og fremst á
samtölum sínum við hann. Sagöi
Haraldur að Matthías hefði og verið
sá sem mest hefði unnið að því í
blaðamennsku að láta íslendinga
fylgjast með ferli Errós gegnum
tíöina. Hönnun bókarinnar var síðan
í höndum Eddu Sigurðardóttur hjá
Auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar
og prentun fór fram hjá Grafica
Gutenberg í Bergamo á ítalíu.
Haraldur sagði aö könnun væri að
byrja á því að koma bókinni víðar á
framfæri og meðal annars heföi veriö
gert samkomulag við bandarískt
forlag um tilraunasölu þar á hluta af
enska upplaginu. Þetta væri þó í
deiglunni, en aö því væri eindregið
stefnt að koma bókinni sem víðast.
Erró sagði blaðamönnum að hann
væri ákaflega ánægður meö það
hvernig tekizt heföi til með þessa bók.
Erró ásamt Þeim ýmsu sem lögóu hönd á útgáfu bókarinnar: Braga Ásgeirssyni, Matthíasi Johannessen,
Haraldi Hamar, Eddu Siguröardóttur, Brynjólfi Bjarnasyni framkv.stj. AB og Gísla B. Björnssyni.
Erró á biaöamannafundinum.
I henni væru 59 myndir sem spanna
tuttugu ár á listferli hans. Hann sagði
að þær ættu að gefa góða hugmynd
um hvernig hann hefði unniö. Hann
sagðist vilja láta í Ijós sérstaka
ánægju meö hversu prentlistin væri
mikil, litgreining mynda væri ekkert
smáræðisverk og hún hefði tekizt
með afbrigðum vel, svo og val á
pappír og flest annað sem að bókinni
sneri.
Hann gat þess síðan aö sérstök
skrá hefði veriö gerð um stærri verk
sín fyrir sýninguna á Kjarvalsstöðum
og væri hún í sama broti og bókin
og mætti hugsa sér að ýmsir hefðu
hug á því aö lesa skýringar um sum
verkanna. Af myndunum í bókinni
eru um 30 þeirra einnig á sýningunni.
Eins og áður segir eru 59 myndir
af verkum listamannsins í bókinni,
einnig nokkrar úr lífi hans. Aftast í
bókinni er síðan skrá yfir verkin.
Eintaksverð er 5,960 kr.
Þess má aö lokum geta að Erro fór
mjög lofsamlegum orðum um frá-
gang allan á Ijóðabók þeirra
Forsíöa bókarinnar um Erró.
Matthíasar Johannessen Morgunn í
maí, sem eingöngu er unnin hér
heima, litgreind og prentuð af
íslenzkum iðnaðarmönnum, en bókin
kom einnig út nú fyrir skömmu.
r
Líklegt að 12 Islend-
ingar tefli á alþjóðlegu
skákmóti í Bandaríkjunum
EF að líkum iætur munu a.m.k.
12 skákmenn tefla á alþjóðlegu
skákmóti, sem hefst í Philadelfíu
í Bandaríkjunum í lok júni og
nefnist World Open. Ilafa ekki
jafn marsir Íslendiniíar farið
utan áður til að taka þátt 1
alþjóðlejíu skákmóti svo vitað sé.
Skákmennirnir sem hér um
ræðir eru Helgi Ólafsson, Haukur
Angantýsson, Margeir Pétursson,
Jón L. Árnason, Jóhann Þórir
Jónsson, Bragi Halldórsson, Leifur
Jósteinsson, Sævar Bjarnason,
Ásgeir Þ. Árnason, Jóhannes
Gíslason, Þorir Ólafsson og Guðni
Sigurbjarnarson.
Þá hefst annað alþjóðlegh skák-
mót í New York 8. júlí og þar verða
þeir Haukur Margeir, Jón og
Sævar væntanlega meðal þátttak-
enda.
14 ára drengur stakk
af úr sveitinni á
bíl hótelhaldarans
SPLUNKUNYRRI Volvo-bifreið
var stolið frá Varmahlíð í
Skagafirði á þriðjudagsmorgun-
inn og fannst hún um kvöldið
við Fossá í Kjós, benzínlaus og
lítið eitt skemmd á hægra
framhorni.
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði hóf rannsókn þessa máls.
Kom fljótlega í ljós, að 14 ára
drengur úr Reykjavík, sem
dvaldi í sveit á bæ skammt frá
Varmahlíð hafði horfið frá
bænum þá um morguninn og
öllum til undrunar hafði stráksa
skotið upp heima hjá sér í
Reykjavík undir kvöldmatinn.
Bárust nú böndin að drengnum
en hann þverneitaði í fyrstu að
kannast nokkuð við bílstuldinn.
En að því kom, að drengurinn
játaði að hafa tekið bílinn og
ekið honum suður allt þar til
hann stöðvaðist vegna benzín-
leysis.
Saga drengsins var á þá leið,
að honum hefði leiðzt mjög í
sveitinni og hefði hann því
ákveðið að fara til Reykjavíkur.
Kvaðst hann hafa ætlað að fá
far með einhverjum bíl suður og
í þeim erindum gengið að
Varmahlíð. Hins vegar hefði
honum snúist hugur þegar
þangað kom og hann sá Volvo
hótelhaldarans á staðnum
standa tilbúna til aksturs. Var
stráksi ekkert að tvínóna við
hlutina heldur settist undir
stýri og ók af stað. í Kjósinni
þraut benzínið og fékk drengur-
inn far með mjólkurbíl síðasta
spölinn til Reykjavíkur.
Á þriðjudaginn var auglýst
eftir bílnum í útvarpinu og gáfu
tveir menn sig fram. Kváðust
þeir hafa veitt bílnum sérstaka
athygli af tveimur ástæðum, í
fyrsta lagi vegna þess hve greitt
bílnym var ekið og í öðru lagi
vegna þess hve þeim þótti
ökumaðurinn grunsamlega
ungur!
fKENWOOD
Utvarpsmagnarinn sem þú hélst
þú gœtir ekki eignast.
Nýr kröftugur KENWOOD KR-4070.
Lágmarks afl við 8 ohm 2 x 40 RMS wött frá 20 - 20000 Hz, bjögun mest 0.1%.
Verö kr. 147.790-
Að eignast þetta reginafl, með hinu víðfræga KENWOOD útvarpi ásamt fjölda
af fágætum eiginleikum, fyrir slíkt verð, er einsdæmi.
Hvernig getur KENWOOD þetta?
Það er nú einmitt það sem Pioneer, Marantz o.fl. velta vöngum yfir.
Nýr kröftugur KENWOOD KR-4070
NÚ FÆRÐ ÞÚ ÞÉR $KEIMWOOD
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
■