Morgunblaðið - 01.06.1978, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
Ilópur nýstúdenta frá Flenshorjíarskólanum.
Flensborgarskólinn:
Útskrifar 37 nýstúdenta
Iðnskóla Isafjarðar slitið:
Þriðja stig vélskóla
starfrækt þar í fyrsta
sinn utan Reykjavíkur
Flensborgarskóla var slitið
laugardaginn 27. maí og við það
tækifæri voru brautskráðir 37
nýstúdentar.
36 útskrifuðust úr 4. bekk, en
hann var starfræktur samkvæmt
hefðbundnu bekkjakerfi. Einnig
var starfrækt áfangakerfi í
skólanum og útskrifaðist þaðan
einn nemandi sem jafnframt er sá
fyrsti sem útskrifast eftir áfanga-
kerfi, en það er nýmæli í skólan-
um.
Stúdentar skiptast þannig eftir
deildum, að úr máladeild útskrif-
uðust 14 nemendur og hlaut
Reinald Brauner hæstu einkunn,
9,2. Úr eðlisfræðideild útskrifuð-
ust 14 nemendur og hlaut Jónína
Rós Guðmundsdóttir hæstu eink-
unn, 8,5.13 nemendur útskrifuðust
úr náttúrufræðideild og hlaut
Hrafnhildur Þórðardóttir hæstu
einkunn þar, 7,7. Einn nemandi
útskrifaðist úr félagsfræðideild og
var það sá hinn sami og útskrifað-
ist eftir áfangakerfinu.
Við athöfnina á laugardaginn
flutti ávarp fulltrúi þeirra sem
luku gagnfræðaprófi fyrir 5 árum.
Einnig tók til máls einn úr hópi
nýstúdenta, Arni M. Mathiesen, og
Þórarinn Sigurbergsson lék einleik
á gítar en hann var einnig í hópi
nýstúdenta.
Á laugardaginn var einnig
útskrifaður frá skólanum, sem er
fjölbrautaskóli, einn nemandi eftir
tveggja ára nám á viðskiptabraut.
IÐNSKÓLA ísafjarðar var slitið
nú fyrir helgina en alls stunduðu
138 nemendur nám f hinum ýmsu
deildum skólans f vetur leið.
Námsbrautirnar eru þessan Bók-
legt iðnnám helztu iðngreina til
lokaprófs, stýrimannaskóli 1.
stig, teiknaraskóli til lokaprófs,
tækniskóli, fjórir áfangar frum-
greinadeildar og vélskóli 1., 2. og
3. stig en það cr í fyrsta sinn sem
3. stigið er starfrækt utan
Reykjavíkur.
Valdimar Jónsson skólastjóri
flutti ræðu við uppsögnina og kom
fram þar að 69 nemendur voru í
iðnnámi og luku 13 bóklegu námi.
Sagði hann ástæðuna fyrir svo
litlum hópi vera þá, að mjög erfitt
væri fyrir væntanlega iðnnema að
komast á samning hjá meistara og
undirstrikaði það þörf þess að
koma á verknámi við skólann í
tengslum við iðnfyrirtæki á ísa-
firði. Nám í tækniteiknun stund-
uðu 11 nemendur og útskrifaðist
einn. Fjórtán nemendur voru í
tækniskóladeildinni og luku þrír
fullgildu raungreinadeildarprófi,
sem gefur þeim rétt til framhalds-
náms í tæknifræði við háskóla.
Eru nú 5 tæknifræðingar sem hófu
nám sitt í skólanum starfandi á
ísafirði og í Bolungarvík. Fyrsta
stig stýrimannaskóla stunduðu 5
nemendur.
„Það sem er þó markverðast er
að nú var starfrækt hér í fyrsta
sinn þriðja stig vélskóla," sagði
Valdimar. „Er það í fyrsta sinn
sem boðið er uppá slíkt nám utan
Reykjavíkur og fer auðvitað vel á
því að slíkt gerist á Isafirði, sem
er miðpunktur mikillar togaraút-
gerðar og fiskvinnslu, en skóla-
sókn til Reykjavíkur er kostnaðar-
söm.“
Alls stunduðu 40 nemendur nám
á hinum þremur stigum vélskólans
og sagði Valdimar að aukning
starfsemi hans byggðist mjög á
bættum tækjakosti og annarri
aðstöðu síðustu misseri. Fastráðn-
ir kennarar við skólann eru nú
fimm og tvær stöður hafa verið
auglýstar til viðbótar og kom fram
í ræðu skólastjóra að gera yrði þá
kröfu til rekstraraðila skólans,
ríkis og bæjarfélags, að sambæri-
leg fyrirgreiðsla varðandi húsnæði
væri veitt kennurum Iðnskólans og
við kennara annarra skóla bæjar-
ins. Stundakennarar hafa verið
6—10 eftir þörf hverju sinni.
Nemendafélag skólans og starfs-
lið stóðu að skólakynningu á
liðnum vetri og sagði Valdimar
hana hafa verið fjölsótta og hefði
hún ótvírætt borið þann árangur
að fleiri gerðu sér nú grein fyrir
nauðsyn skólahalds af þessu tagi á
ísafirði. Var kynningin í því fólgin
að stillt var upp kennslubókum og
tækjum og sýnd voru húsakynni
skólans. Leystu nemendur og
kennarar úr spurningum gesta.
Þakkaði Valdimar Jónsson nem-
endum fyrir samstarfið og kvaðst
vona að framhald yrði á því næsta
vetur, en nemendur lögðu auk
þessa fram sjálfboðavinnu við
endurbætur á hinni verklegu
aðstöðu skólans.
63 stúdentar brautskráðir frá
Menntaskólanum í Kópavogi
MENNTASKÓLANUM í Kópavogi
var slitið við hátíðlega athöfn í
Kópavogskirkju föstudaginn 26.
maí. Athöfnin hófst kl. 14. 63
stúdentar brautskráðust frá skól-
anum 33 stúlkur og 30 piltar.
Fjölmenni var við athöfnina.
Skólameistari, Ingólfur A. Þor-
kelsson, flutti skólaslitaræðuna,
afhenti stúdentum skírteini og
verðlaun fyrir ágætan árangur í
einstökum greinum. Skólakórinn
söng undir stjórn John Speight,
tónlistarkennara. Einn stúdenta,
Þórdís Kristleifsdóttir flutti ávarp
og árnaði skólanum allra heilla.
Hæstu einkunnir, sem gefnar
voru í skólanum hlutu: Þórunn
Guðmundsdóttir 2. bekk M. 9,2.
Eydís Ólafsdóttir 2. bekk X. 9,1.
Kristín Þórisdóttir 2. bekk Y. 9.0.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlutu þessir stúdentar: Helga
Þorvaldsdóttir 4. bekk E.
(eðlisfræðideild) 9,1 og Sigurður
Hjaltason 4. bekk E. (eðlisfræði-
deild) 9,1.
í ræðu sinni skýrði skólameist-
ari m.a. frá því, að byggingarnefnd
hefði samið tillögur um framtíðar-
skipulag skólans, ýtarlegt álit, í 44
blaðsíðna bók, sem afhent var
menntamálaráðherra 5. des. 1977.
Samkvæmt tillögunum verður
M.K. fjölbrautaskóli, sem á að
veita upprennandi kynslóð í Kópa-
vogi fjölbreytta framhaldsmennt-
un á samstilltum en mismunandi
námsbrautum.
Félagslíf nemenda var öflugt og
stóðu nemendur að vanda fyrir
skammdegishátíð 1. desember,
sem var vel sótt af Kópavogsbúum.
Einn stúdenta, Þórdís Kristleifsdóttir, flytur ávarp.
Valdimar Jónsson skólastjóri afhendir hér einum nemanda verðlaun
fyrir góðan námsárangur.
íslenzku piltamir í 5.
sæti í vélhjólakeppni
ALÞJÖÐLEGRI keppni á
vélhjólum og reiðhjólum lauk
19. maí s.l. og mættu að þessu
sinni keppendur frá 18 þjóð-
um. Sigurvegarar í hjólreiða-
keppninni urðu Spánverjar, í
öðru sæti Portúgalir og þriðj-
ir urðu Frakkar. íslenzku
piltarnir urðu í 10. sæti,
næstir á eftir Norðmönnum.
Fyrstir Norðurlandabúa í
hjólreiðakeppninni urðu
Danir, en þeir urðu í 6. sæti.
I vélhjólakeppninni báru
heimamenn, Portúgalir, sigur
úr býtum. Næstir urðu Ung-
verjar, Frakkar, Luxemborg-
arar og í 5. sæti og efstir
Norðurlandabúa urðu ís-
lenzku piltarnir. Næstir urðu
Finnar og Þjóðverjar.
Portúgalir, sem stóðu að
keppninni, sýndu mikla gest-
risni og fór mótið vel fram.
Framboð SFU bls. 13 sama
mál gústa
Fundur um
málefni
þroskraheftra
LANDSSAMTÖKIN þroskahjálp
halda almennan fund um málefni
þroskaheftra í Norræna húsinu í
kvöld klukkan 20.30. Á fundinum
verða flutt þrjú framsögyerindi,
sem þau Margrét Margeirsdóttir,
Jóhanna Kristjánsdóttir og Sig-
urður Magnússon flytja. Þá verður
og fyrirspurnum svarað, segir í
frétt frá Landssamtökunum
þroskahjálp.