Morgunblaðið - 01.06.1978, Side 13

Morgunblaðið - 01.06.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978 13 Hinir nýútskrifuðu stúdontar frá Öldungadeildinni. 45 nýstúdentar útskrifað- ir f rá Öldungadeildinni ÖLDUNGADEILD Mennta- skólans við Hamrahlíð var slitið laugardaginn 27. maí og við það tækifæri voru braut- skráðir 45 nýstúdentar. Stúdentar skiptust þannig á svið að frá nýmálasviði útskrifuðust 12, félagssviði 21, náttúrufræðisviði 12, eðl- isfræðisviði 1 og frá tónlist- arsviði 1. Af hinum nýstúdentunum 45 sem nú útskrifuðust voru átján karlar og tuttugu og sjö konur. Þrettán voru eldri en fertugt, tólf voru á bilinu þrjátíu til fjörutíu ára og tuttugu undir þrítugu, en lágmarksaldur til inngöngu í deildina er tuttugu og eitt ár. Framboð SFV á Vestfjörðum: Ekki á vegum kjör- dæmisráðs heldur framkv æmdast) órnar — segir í yfirlýsingu kjördæmisráðsins VEGNA frétta um framboð Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á Vestfjörðum til alþingiskosninga í júní nk., vill stjórn Kjördæmis- ráðs SFV á Vestfjörðum taka eftirfarandi fram: Á kjördæmisráðstefnu SFV á Vestfjörðum, sem haldin var í ágúst sl., var einróma samþykkt að bjóða ekki fram í Vestfjarðakjör- dæmi til alþingiskosninga í júní nk. Var sú samþykkt í fullu samræmi við reglur kjördæmisráðs og flokkslaga SFV en þar segir: „Kjördæmisráðið tekur ákvarðanir um framboð við alþingiskosningar að lokinni svo víðtækri könnun á vilja flokksmanna og fylgismanna sem við verður komið hverju sinni.“ Að ofansögðu má því ljóst vera, að framkomið framboð SFV á Vestfjörðum er ekki á vegum kjördæmisráðs. SFV-framboð á Vestfjörðum er framboð á vegum fram- kvæmdastjórnar flokksins í Reykjavík. F.h. kjördæmisráðs Hendrik Tausen. Frá brautskráninKU nýstúdenta á ísafirði. 29 nýstúdentar frá ísafirði Tuttugu og níu stúdentar brautskráðust frá Mennta- skólanum á ísafirði s.l. laugar- dag og er það fimmti árgangur sem brautskráist frá M.í. og eru stúdentar frá skólanum þá 157 alls. Eru 42% þeirra ísfirðingar, 28% annars staðar að af Vestfjörðum og 29% lengra að. Jón Baldvin Hannibalsson skólameistari flutti ræðu við skólaslitaathöfnina eftir að Kammersveit Vestfjarða hafði leikið. Rakti skólameistari nokkuð starfsemina s.l. vetur og afhenti síðan skírteini og verðlaun. Á liðnu hausti inn- ritaðist 171 nemandi í skólann og voru 70 í 1. bekk, 40 í 2. bekk, 31 í 3. bekk og 30 stúdentsefni í 4. bekk. „Það er athyglisvert," sagði Jón Bald- vin, „og segir sína sögu um þær breytingar sem orðið hafa á inntökuskilyrðum í mennta- skóla og undirbúningsnámi nemenda, að alls höfðu 27 nemendur hætt námi, horfið úr skóla eða orðið veikir, áður en próf hófust, eða um 14% nemenda. Þar af var lang- stærsti hópurinn í 1. bekk eða alls 16 manns. í fyrsta bekk höfðu 23% nemenda hætt námi áður en próf hófust." Síðar sagði skólameistari: „Stúdentahópurinn sem nú verður brautskráður telur 29 manns. Fjórtán útskrifast af félagsfræðikjörsviði, 15 af raungreinakjörsviði, sem er tvískipt til náttúrusviðs og eðlissviðs. Sautján þeirra eru ísfirðingar, 3 annars staðar að af Vestfjörðum, 9 koma utan Vestfjarða. I hópnum eru 16 stúikur og 13 piltar. Dúx skólans að þessu sinni er Rúnar Helgi Vignisson með fullnaðareinkunnina 8,78.“ Teppin eru afrafmögnuð eldföst og þola rúllustóla. Voracel-botninn hefur yfirburði hvað varðar endingu og notagildi límbundinna gólfteppa. Helztu eiginleikar Vora- cel-botnsins: • Auöveldur í sníöslu og lögn. • Viö skurö haldast sárin hrein og teppið hvorki trosnar né raknar á brúnun- um. • Rennur ekki til, þótt hann sé ekki festur meö lími eöa límböndum. • Algerlega lyktarlaus og teppiö lætur ekki á sjá undan þungu fargi eða húsgögnum (vegna fjaör- andi eiginleika botnsins). • Myglar ekki eða rýrnar vegna lífrænna áhrifa. • Þolinn á alla hreinsun. • Teþpi meö Voracel-botni halda útliti sínu frábærlega vel. • Með Voracel-botni situr garniö í teppinu „pinnfast“, lykkjur og þræðir losna ekki, jafnvel þótt teppiö sé burstaö. í stuttu máli sagt, er Því á boðstólum teppi, sem auðvelt er að leggja, polir mikinrt átroðning, auðvelt að skeyta saman til frambúðar, heldur vel upprunalegu útliti sínu, taka má af gólfi, sníöa má uppá nýtt og leggja aftur ef menn vilja. Biðjið um Voracel-botninn, Því gæðin eru örugg. lEPPfíLfíND Grensásvegi 13, símar 83577 — 83430

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.