Morgunblaðið - 01.06.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
19
Vinstri menn
unnu meiri-
hluta í
Hveragerði
SÍJ BREYTING varð á skipun
hroppsncíndar í Ilveragerði við
sveitarstjórnarkosninKarnar á
sunnudaR, að sjálfstæðismenn
misstu meirihluta sinn. Úrslit
kosniniíanna nú urðu þau að
D-listi sjálfstæðismanna fékk 2
menn kjörna, G-listi Alþýðu-
bandalagsins fékk einn mann og
H-listi jafnaðar- og samvinnu-
manna fékk 2 menn. Við síðustu
kosningar fékk Sjálfstæðisflokk-
urinn 3 og samvinnumcnn 2.
Sjálfstæðismenn hafa haft meiri-
hluta í hreppsnefnd í Hveragerði
frá 1966 en við kosningarnar
1962 komust vinstri menn að, en
upp úr samstarfi þeirra slitnaði
1964 og gengu sjálfstæðismenn
þá inn í meirihlutann. Áður eða
frá 1954 til 1962 höfðu sjálfsta'ð-
ismenn meirihluta í hreppsnefnd-
inni.
Hafsteinn Kristinsson, efsti
maður á D-listanum, sagði í gær,
að vissulega væru hans menn ekki
ánægðir og úrslitin hefðu orðið sér
vonbrigði, því meirihluti Sjálf-
stæðismanna hefði unnið vel að
málefnum sveitarfélagsins. „Á
síðasta kjörtímabili lögðum við
áherzlu á að vinna að ýmsum
framkvæmdum sem eru undirbún-
ingur fyrir stærri verk í framtíð-
inni, t.d. 5 gatnageiö. Verk okkar
hafa því ekki verið jafn sýnileg og
þau gætu orðið á næstu árum.
Landsmálin hafa hér ráðið úrslit-
um. Fólk hrópar á breytingu og þá
bara einhverja breytingu. Ég tel
eðlilegt að vinstri menn komi sér
nú saman um myndun meirihluta,
því þeir báru sigurorð af okkur í
þessum kosningum," sagði Haf-
steinn.
Alþýðubandalagið bauð nú fram
sérstakan lista í Hveragerði og
fékk einn mann kjörinn, en það er
Auður Guðbrandsdóttir. Hún
sagði í samtali við blaðið, að
ástæðan fyrir því að Sjálfstæðis-
flokkurinn missti meirihluta sinn
væri fyrst og fremst vinnubrögð
stjórnarflokkanna, bæði í lands-
málum og sveitarstjórn. Lands-
málin hefðu tvímælalaust styrkt
stöðu G-listans. Ekki sagðist
Auður geta fullyrt neitt um
hvernig staðið yrði að myndun
meirihluta í hreppsnefnd næsta
kjörtímabil og þá hvort vinstri-
menn, þ.e. G-listinn og H-listinn,
stæðu saman að myndutj meiri-
hluta.
Gerðahreppur:
félagsins”
í GERÐAIIREPPI vann I-listinn,
sem borinn var fram af óháðum
kjósendum, meirihluta í hrepps-
nefnd af H listanum, sem borinn
var fram af sjálfstseðismönnum
og öðrum frjálslvndum kjósend-
um. I-listinn fékk nú 3 menn
kjörna en H-listinn 2 menn. Við
síðustu kosningar fékk IHistinn
4 menn og frjálslvndir kjósendur
1. Undanfarin ár hafa sjálfstæðis-
menn og aðrir frjálslyndir kjós-
endur haft meirihluta í hrcpps-
ncfnd.
Finnbogi Björnsson, efsti
maður á IHistanum, sagði að
úrslit kosninganna hefðu að
töluverðu leyti ráðist af landsmál-
unum. „Ég trúi því ekki að fólk
sé að hefna fyrir mesta framfara-
tímabil í sögu bæjarfélagsins,"
sagði Finnbogi.
Olafur Sigurðsson skipaði efsta
sætið á I-listanum og sagði hann
í gær að sjálfsagt kæmi í þessum
kosningum fram óánægja með
störf H-listamannanna en H-list-
inn hefði þó unnið sýslunefnd-
armanninn og því benti allt til
þess að kosið hefði verið milli
einstakra manna.
„Trúi ekki að
fólkséaðhefna
fyrir mesta
framkvæmda-
tímabil í
sögu bæjar-
Söfnuðu
fyrir lita-
sjónvarpi
SJÚKLINGAR á skurðdeild
Borgarspítalans í Reykjavík
ákváðu fyrir skömmu að hefja
söfnun til kaupa á nýju litsjón-
varpstæki fyrir deildina. Einn
þeirra sem fyrir þessu stóðu,
Bjarni Árnason, sagði í viðtali
við Mbl. að þetta hefði allt
tekið mjög skamma stund.
Ákveðið var um þrjúleytið
eftir hádegi að gangast í þessu,
en klukkan hálf sjö sama dag
voru menn frá Radíóbúðinni
mættir með tæki af beztu gerð
án þess að við værum byrjuð
að borga krónu og ekki nóg
með það heldur var okkur
veittur verulegur afsláttur eða
úr 450 þúsundum í 320 þúsund-
ir króna og erum við Halldóri
í Radíóbúðinni sérstaklega
þakklát.
Söfnunin sjálf gekk alveg
skínandi, en í henni tóku þátt
allir sjúklingarnir á deildinni,
öll tryggingafélögin í Reykja-
vík og Lionsklúbbur Reykja-
víkur. Söfnunin gekk svo vel að
um 100 þúsund krónur urðu
afgangs en þeim fjármunum
verður varið til kaupa á
litasjónvarpi þar sem áhugi er
fyrir hendi að hefja söfnun
sem þessa, sagði Bjarni að
síðustu.
Nú er að vísu sumar, en ekki er ráð
nema í tíma sé tekið. Væri ekki viturlegt
að hugsa núna um fyrirhugaðar
framkvæmdir í vetur? Margir hyggja
t.a. á utanianasferð með fjöiskyiauna
um næstu jól eða einhvern tíma í
vetur. Til sólarlanda eða á skíði. Og
sjaldnast eru auraráðin of mikil þegar
ætlunin er að gera góða reisu.
Við segjum aðeins þetta: Fyrirhyggja
léttir framkvæmdir. Fyrirhyggjan
felst í því að eiga kost á IB láni.
Meðreglubundnum sparnaði og IB-láni
geturðu tryggt þér nægiiegt ráöstöf-
unarfé.
Leitið upplýsinga um IB-lán, fáið
bækling.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Aðalbanki og útibú