Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Fólk óskast
til starfa viö hreinlegan iönaö. Framtíöar-
vinna, gott kaup.
Upplýsingar í síma 16638 og 18840 frá kl.
10.00 til 3.00.
Mælingamaður —
sumarstarf
Keflavíkurbær vill ráöa mælingamann til
starfa í sumar viö framkvæmdaeftirlit meö
gatnagerö og veitulögnum og skildum
verkefnum.
Nánari uppl. eru veittar á tæknideild
Keflavíkurbæjar aö Mánagötu 5, Keflavík.
Bæjartæknifræðingur
Ábyggilegur
innflytjandi
óskast
í boöi eru allar geröir af stimpilklukkum, >.
skráningar og eftirlitsklukkum fyrir breyti-
legan vinnutíma, og hugsanlega einnig
skrifstofu- og verkstæöisúr, handa ábyrg-
um einstaklingi eöa fyrirtæki, sem selur
vörur til skrifstofa, iönaöarfyrirtækja eöa
verkstæða. Hér er um aö ræöa virta
gæöaframleiöslu, sem er á samkeppnis-
bæru veröi.
Skrifiö um aöstæöur yöar, á dönsku eöa
ensku, og þá veröa strax sendar nánari
upplýsingar.
Pegasus Tid-System
Box 3, DK-3460 Birkeröd
Danmörk
Matreiðslumaður
Óskum að ráöa röskan og ábyggilegan
matreiöslumann. Góöur vinnutími.
Upplýsingar í síma 84939.
Verslunarstörf
Starfsmaöur óskast til afgreiöslu í vara-
hlutaverslun.
Upplýsingar í versluninni aö Reykjanes-
braut 10 eöa í síma 20720.
ísarn h.f.
Tvær
kennarastöður
eru lausar til umsóknar viö Klébergsskóla
Kjalarnesi.
Góö íbúö fyrir hendi.
Umsóknarfrestur er til 6. júní.
Upplýsingar gefa Ólafur Kr. Magnússon
skólastjóri og formaöur skólanefndar, Jón
Ólafsson Brautarholti.
Bifvélavirkjar
óskast til starfa nú þegar.
Góö vinnuaöstaöa og kaup.
Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 81225.
Bílaborg h.f.,
Smiöshöföa 23.
Olafsvík
Umboösmaöur óskast til aö annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaöiö í
Ólafsvík. Uppl. hjá umboösmanni Erlu
Gunnarsdóttur Grundarbraut 7 og hjá
afgreiöslunni í Reykjavík sími 10100.
flfacstmlilfifeife
Okkur vantar
tvær konur til afgreiöslu nú þegar.
Upplýsingar á staönum.
Nýja kökuhúsiö
v/Austurvöll.
Húshjálp óskast
Húshjálp óskast tvisvar í viku.
Húsmóöirin vinnur utan heimilisins.
Upplýsingar í síma 11515.
Viljum taka
3—4 lærlinga í danskennaranám.
Upplýsingar veröa veittar föstudaginn 2.
júní kl. 1—6 í Brautarholti 4, og í síma
20345.
Heiöar Ástvaldsson
— Minning
María
Framhald af bls. 34.
Hún var mjög mild í viðmóti
gagnvart öllum og umburðarlynd.
Heyrði ég aldrei njóðsyrði hrjóta
af vörum hennar í garð nokkurs,
þótt ástaeða hefði verið til. Hún
hafði mikil og góð áhrif á
umhverfi sitt og er kvödd með
söknuðu af öllum, sem til hennar
þekktu og getur María lagst til
hvíldar róleg eftir langt og farsælt
æviskeið.
Kolbeinn Kristófersson.
- Seljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum lax í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax
til reykingar.
Sendum í póstkrötu —
Vakúm pakkað et óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hafnarfirði Simi: S1455
— Minning
Sigurgeir
Framhald af bls. 35
bæjarstjóri í Garðabæ, og Þor-
varður, bifreiðasmiður í Reykja-
vík.
Fyrir um tuttugu árum lá svo
leið hans heim til æskustöðvanna,
sem hann var traustum böndum
tengdur, heim í Varmadal. Þar
dvaldi hann um árabil á því ágæta
heimili Óskars bróður síns og konu
hans Guðbjargar Sigurgeirsdótt-
ur. Miklir kærleikar voru með
þeim bræðrum og var dvöl hans
þar því bæði mikilvæg og kær og
vann hann að búskaparstörfum af
áhuga og kostgæfni eftir því sem
heilsan leyfði, en hann var þá
þegar orðinn nokkuð heilsuveill.
Óskar lézt um vorið 1970, en
nokkru eftir það þurfti Sigurgeir
að dveljast í Reykjavík til lækn-
inga á þrálátum húðsjúkdómi, sem
hann svo um síðir fékk bót á, en
eftir það ílengdist hann í Reykja-
vík þar til hann lézt skyndilega af
hjartasjúkdómi, sem hann hafði
iengi 'kennt, en íarið dult meö.
Sigurgeir var gjörvilegur
myndarmaður ásýndum svo at-
hygli vakti, gæddur mjög góðri
greind, víðlesinn og fróður um
margt. I viðræðum var hann
rökfastur og kunni á mörgu skil.
Gleðinnar maður var hann í góðu
lagi og gjarnan hrókur alls fagn-
aðar í góðra vina hópi, þegar því
var að skipta, enda gæddur góðri
kímnigáfu og því hvarvetna au-
fúsugestur. Hjartalagið var gott
og hændust börn ósjálfrátt að
honum. Um það get ég borið, þar
sem í hlut eiga barnabörn mín,
sem sakna hans mjög, en hann var
tíður gestur á heimili okkar hjóna
og ávallt hinn mesti aufúsugestur.
Hans er því sárt saknað af okkur
hjónunum, börnum okkar og
barnabörnum fyrir órofa vináttu
og tryggð sem hann sýndi okkur
öllum til hinstu stundar.
Minningin um drengskapar-
manninn Sigurgeir Bogason verð-
ur okkur ávallt björt og kær.
Gylfi Gunnarsson.
— Fólk á að
forðast...
Framhald af bls. 28.
um góð hótel lítið eitt í burtu sem
væru á hæglátum og góðum
stöðum, en þaðan væri síðan mjög
fljótlegt að aka inn í miðbæinn.
Fólk fengi þar algeran frið fyrir
því mikla amstri sem óneitanlega
einkenndi miðborg London.
— Það er því aðeins okkar von
að við fáum íslendinga til að
reyna hótel okkar, þá kvíðum við
ekki framtíðinni. Því ef fólk einu
sinni kemst út úr hringiðu
Lundúnaborgar, fer það ekki
þangað aftur.
Að síðustu kom fram hjá Hajdu
að fyrirtækið ræki um 50 matsölu-
staði í London og fjöída bjorkráa.
— Hægri -
vinstri
Framhald af bls. 17.
lýðræðissinnaða frjálshyggju-
menn úr röðum
verkalýðshreyfingarinnar,
Alþýðubandalag, án kreddu-
keoninga um alræði „öreig-
anna“, byltingu „kúgaðra" og
fleiri slík, sem ekki eiga heima
á íslandi og hafa aldrei átt.
Óraunhæft er að reikna með
öðrum flokkum, sem einhverjum
teljandi öflum aðeins reikulum
hópum tækifærissinna er stöku
sinnum skytu upp kollinum
þegar þannig viðraði.
— Réttarríkið
verður að
verja sig
Framhald af bls. 32.
þinginu, þar sem hann eggjaði
flokksbræður sína og aðra hugs-
andi Spánverja til að bregðast
hraustlega við til varnar réttar-
ríkinu og frelsinu. Að ræðu hans
lokinni kvað við froðufellandi
blóðöskur: „Þú hefir flutt þína
síðustu ræðu!“
Það var ófreskja í kvenlíki,
sem öskraði: Dolores Ibarruri,
er um árabil hafði heimtað lík
andstæðinga vinstrimennsku.
„Nýjar vörur", sögðu vinstri-
menn, þegar morðaldan fyllti
líkhúsin.
Soleto hafði að sönnu hlotið
dauðadóm sinn.
Aðfararnótt hins 13. júlí,
tæpum tveimur sóiarhringum
eftir að Senora Iburrari hafði
heimtað lík hans, var Calvo
Sotelo numinn á brott af heimili
sínu, pyntaður, kvalinn og myrt-
ur á leið á lögreglustöð, og
líkinu síðan misþyrmt á hroða-
legan hátt. Handlangari Iburr-
ari, sem stjórnaði morðsveit-
inni, var höfuðsmaður í lög-
regluliðinu, Fernando Condes að
nafni. Sá, sem einna lengst gekk
í þorparaskapnum og þakkaði
sér „heiðurinn" af að hafa
hleypt af banaskotinu af (sem
vinstralið við útvarp og sjón-
varp á íslandi myndi að líkind-
um hafa nefnt aftöku að undan-
gengnum alþýðudómi) hét
Victoriano Cuenca, „og var
nákvæmlegá það“, segir
Hellmut Andics (í „Der grosse
Terror", Wien 1967), sem Spán-
verjar nefndu „Pistolero", þ.e.
leigumorðingi."
Sagan ^endurtekur
sig á Ítalíu
Ýmislegt bendir til að sagan
sé að endurtaka sig á Ítalíu.
Einnig . þar eru vinstrimenn,
sérstaklega kommúnistar, orðn-
ir mikils ráðandi í her og
lögreglu, enda lögðu kommún-
istar á ekkert meiri áherzlu allt
frá stríðslokum en að gera
lögregluna óhæfa til að gegna
skyldum sínum. „Á síðustu
árurn", segir „Die Welt“ (10.
f.m.), „lamaði linnulaus vinstri-
áróður siðferðisþrek lögreglunn-
ar og afvopnaði hana þannig í
raun. I þeim efnum gengu
kommúnistar, sem nú krefjast
aga, sérstaklega hart frarn."
Jafnvel biblía vinstrimanna,
„Der Spiegel" (17. apríl sl.)
neyðist til ab játa: „En Komm-
únistaflokkur Ítalíu og verka-
lýðsfélög undir áhrifum hans
áttu hlut að hinum miklu
þrengingum ríkis og efnahags-.
lífs. Auk þess ýtti hann undir
óeirðaöflin með því að heita
byltingu árum saman, án þess
að gera hana.“
Pólitískt heimilisfang morð-
ingja Moros er vel þekkt. Það
staðfestir a.m.k. Rossana Ross-
anda. Og hún hlýtur að þekkja
sitt heimafólk; hún var um
árabil þingfulltrúi kommúnista,
en er nú stödd í flokki einhverra
annarra vinstrimanna.
Við samanburð á flugritum
Rauðu morðsveitanna og yfir-
lýsingum Kommúnistaflokks
Italíu frá árinu 1950 mælti hún:
„Manni finnst maður véra að
fletta fjölskyldualbúmi."