Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978 Jón Þ». Arnason: Lífríki og lífshættir XVI „Blessun ríkisins felst í því, að það er skjöldur réttarins.“ — Jacob Burckhardt. Vinstrimenn íá „nýja vöru“i Calvo Sotelo eftir vinstriverk. ítalskir kommúnistar vilja líka „nýja vöru“i Lík Aldo Moros. Réttaníkið verð- ur að verja sig Vinstrimennska er þjódfélagsóþrif Manuilski kenndi, Berlinguer lærdi Spánn 1936 = Ítalía 1978 Jafnræði dauðans Göfugmennið heimsþekkta, Albert Schweitzer (1875—1965), doktor í þremur fræðigreinunr, heimspeki, guðfræði og læknis- fræði, benti þegar fyrir áratug- um á þá staðreynd — og lagði áherzlu á — að ein mesta eyða í siðfræði liðins tíma væri sú, að hún fengist aðeins við sammannlega lífshætti. Trúlegt er, að hinn margvísi öðlingur hafi einkum haft samtímasið- fræði Vesturlanda í huga, því að ólíklegt er, að honum hafi verið ókunnugt um að sum frumstæð samfélög höfðu og hafa með- fædda tilfinningu fyrir því, að þau eru ekki eiungis mannlegar sambúðarheimildir, heldur ekki síður „lífsbýli", sem allar mann- eskjur, dýr og jurtir, yfir höfuð allt lifandi, átti réttborna hlut- deild í. Dularfull eðlishvöt hafði gætt hin nægjusömu náttúru- börn þeirri lífsvizku, að náttúru- ríkið hvorki var né er skapað sovézkt hernámssvæði, ofurselt arðráns- og áníðsluhneigðum óseðjandi tvífætlinga, sem halda sig vera eftirmyndir Guðs og hans dýrustu perlur, heldur garður að léni, er sköpunarverk- ið trúði hugsandi fólki fyrir til aðhlynningar og ræktunar. Þessi „frumstæöa" lífsspeki er nú á hröðu undanhaldi um nálega allan heim, útdauð að kalla má víðast hvar. A þeím fáu stöðum, þar sem örvænting- arfullar tilraunir eru gerðar til að blása lífsanda í hana á ný og vekja athygli á þeim örlögum, sem bíða veraldar undir vinstri- mennsku, er gert hróp að framherjum hennar og fylgis- mönnum. Þeir eru ýmist nefndir heimsendaspámenn eða vanda- málasmiðir, alveg eins og eitt- hvað ljótt og ámælisvert hljóti að vera í því fólgið að draga lærdóma af fortíðinni, gaum- gæfa nútíðina og leitast við að rýna í framtíðina. Slík viðbrögð eru á engan hátt óvænt eða óeðlileg og því afsakanleg. Skraf ókkar og skrif um náttúruvernd og mengun rista ekki alltaf sérlega djúpt, og manneskjan er nú einu sinni þannig af Guði gerð, að hversu mjög þröngt henni er skorinn stakkur, rígheldur hún í hina ljúfu taumleysisþrá og dreymir stöðugt um að sér hljóti að takast að slíta af sér fjötra náttúrulögmálanna. Henni er öndvert farið við sögupersónu franska skáldsagnahöfundarins Henry Bordeaux (1870—1963), sem „játaði, að af náttúrunnar hendi væri líf sitt hlekkjað fortíð og framtíð eins og allt annað mannlegt líf, því að frjáls manneskja er ekki til, en það er — ásamt dauð&num — einasta jafnræðið með mönnum." Forsenda sátta Af framangreindu verður sú ályktun helzt dregin, að löng, mjög löng bið hljóti að verða eftir viðunandi sáttmálagerð á milli mannsins og umhverfis hans, ef af henni getur þá nokkru sinni orðið; til þess eru áskapaðar vinstrihvatir alltof ríkulegar í fari yfirgnæfandi flestra. Ástæður eru þess vegna fjölmargar til að óttast, að slíkt geti hugsanlega ekki gerzt fyrr en af afstöðnum löngum og þungbærum ógnaöldum. Enda þótt líkur bendi til að þannig fari, má aldrei sleppa von og trú, því að enginn getur vitað nema forsjónin rétti ráðvilltum lýð líknarhönd fyrr eða síðar. Ótti raunsýnismanna um að áminnzt sáttmálagerð líti ekki dagsins ljós í fyrirsjáanlegri framtíð styðst við ástand og horfur, sem sérhver manneskja kennir á sjálfri sér daglega, og eiga fyrst og fremst rætur að rekja til þess, hversu hræmu- lega hefir til tekizt við að koma þolanlegu skipulagi yfir sam- búðar- eða lífshætti mannanna sjálfra sín á milli. En án lífshátta, sem vitibornu fólki geta talizt sæmandi, er vita- skuld óhugsandi að mannkyninu auðnist að ná sáttum við lífríkið og aga sjálft sig til undirgefni við hin frávikalausu lögmál þess. Mörgum mætum mönnum hefir verið ljóst allt frá upphafi torsóttrar vegferðar mannkyns- ins um óravíddir rúms og tíma, að skelfingin hlyti að innsigla örlög þess, ef samskipti þess yrðu látin ráðast af óbeizluðum, meðfæddum og óendanlega ein- staklingsbundnum eðlishvötum og ástríðum. Samt sem áður beita þjóðaleiðtogar og ríkis- stjórnir sér nú á síðari helmingi 20. aldar, þegar hlé verður á; stjani þeirra við peningasjúkl-. inga, sem sífellt eru að karpa um verðlag og vinnulaun, að því er virðist einhuga, að því meginmarkmiði að losa um þær hömlur, sem framsýnustu lög- gjafar fortíðarinnar töldu lífs- nauðsyn að grunnmúra. Til- gangur löggjafarstarfa þeirra var, að hindra eitrun andrúms- lofts þjóðfélaga sinna af völdum vinstra böls eins og ágirndar, öfundar og sjálfsdýrkunar og halda í því lágmarki, sem heilbrigð bjartsýni sagði þeim að unnt myndi reynast. Móses (um 1225 f. Kr), mót- takandi opinberunar Guðs síns og kynnir lögmálsins (Boðorð- anna tíu), taldi sínu fólki ekki nægja minna en 365 boð og 248 bönn. Nýir herrar með nýja siði En aldir hinna framsýnu löggjafa eru hnignar í tímans skaut. Jóhannes páfi (1958-1963) XXIII. virtist hafa mikla trú á, að kommúnista- böðlar Mið- og Austur-Evrópu myndu fúsir til að auðsýna sínu fólki „skilning" og „umburðar- lyndi“, og arftaki hans, Páll páfi VI. biður hina vinstrióðu kval- ara og morðingja Aldo Moros „á hnjánum" um að sýna miskunn, alveg eins og menn en ekki meindýr ættu hlut að máli. Sú var þó tíðin, og ekki ýkjalangt að baki, þegar kirkjan kunni skil góös og ills, og kenndi „illt að hata“. Frelsi er ætlað mönnum, ekki meinvættum Enski stjórnmálamaðurinn og rithöfundurinn, Edmund Burke (1729—1797), skrifaði löngu áð- ur en tilvistarkreppan varð veruleiki og glæpaverk vinstri- manna urðu heimsplága: Dolores Iburrarii Hana þyrsti í blóð. „Hæfni mannanna til þess að fara með hið borgaralega frelsi samsvarar nákvæmlega viljastyrk þeim, sem þeim er gefinn til að leggja siðferðileg bönd á eigin girndir. Þjóð- félagið fær ekki staðizt, án þess að hinni taumlausu löng- un og þrá verði einhvers staðar reist skorða, og því veigaminni ögun, sem maður- Enrico Berlingueri „Við einir getum!“ inn býr yfir innra með sér, þeim mun sterkari verður hún að koma utan frá. Hið eilífa lögmál lífsins hefir mælt svo fyrir, að manneskjur með hömlulausa skapgerð geta ekki verið frjálsar." Nú erum við hins vegar frædd um, að allt, sem hefir eitthvað í líkingu við mannsandlit, eigi ekki bara skilyrðislausan rétt á að leika lausum hala og láta eins og því bezt líkar, heldur sé því í þokkabót ekkert að vanbúnaði til að taka skynsamlegar ákvarðanir um eigin heill — og samborgara sinna að auki, svona eins og í hjáverkum. „Frjálshyggjumenn", er margir eiga erfitt með að þekkja frá illa dulbúnum stjórnleysingjum, skulda okkur síðan skýringu á því, hvers virði þeir telja það „frelsi" verða, sem fylgja hlyti eftir að hryðjuverkalýður vinstrimanna hefir leikið réttar- ríki Vesturlanda þannig, að leiðtogar kommúnista geta með sanni sagt, eins og forsprakkar ítalskra kommúnista gera nú dag eftir dag: „Við einir getum tryggt öryggi borgaranna." Sér til skilningsuppbótar gætu þeir og gjarnan rifjað upp kafla úr leiðarvísi, er einn helzti leiðtogi komjntern og meðlimur Framkvæmdanefndar Komm- únistaflokks Ráðstjórnarlýð- veldanna, Dimitri Manuilski, gaf skósveinum sínum, þ. á m. ítölskum kommúnistum, árið 1931: „Stríð til síðasta blóðdropa er óhjákvæmilegt á milli komm- únisma og kapítalisma. Eihs og sakir standa, erum við ekki nógu öflugir, okkar tími kem- ur eftir tuttugu til þrjátíu ár., Tímann þangað til verðum við að nota til þess að vagga borgarastéttinni í ró. Við munum hleypa stórkostleg- ustu friðarsókn allra alda af stokkunum. Kapítalistarnir, heimskir og úrkynjaðir, munu með ánægju reynast sam- vinnuþýðir við eigin útrým- ingu. Þeir munu, hvað eftir annað, láta blekkjast af vináttutilboðum okkar.“ Ekki skorti hann sáttfýsina Aldo Moro lét blekkjast af vináttutilboðum Enrico Berlinguers og félaga hans. Hinn 9. þ.m. skiluðu óþreyjufull- ir lærisveinar Berlinguers mis- þyrmdu líki Aldo Moros af sér eftir 54 sólarhringa ógnarmeð- ferð á honum lífs. Og Berlinguer og kumpánar hans hrópuðu sigurglaðir: „Við erum þeir einu, sem getum stöðvað ógnaröldina. Við eigum heimtingu á völdum'!" Ástand og atburðir á Ítalíu nú, minna um ákaflcga margt á Spán fyrir röskum 40 árum. Einnig þar, eins og á Ítalíu nú, voru kommúnistar komnir hálfa leið upp í valdastólana; auðvitað vegna þess að ýms „skilnings- rík“ sáttaöfl höfðu rutt braut- ina, neitað að kæra sig hót um muninn á réttu og röngu, góðu og illu. Þau hafði skort kjark til þess að dæma — af ótta við að kannski kynnu andstæðingarnir að dæma þau. En dómgreindar- laus sáttfýsi hefndi sín á Spáni eins og hún reyndar hlýtur alltaf og alls staðar að gera. Vinstrimenn hikuðu ekki við að | dæma „skilningsríku" mála- miðlunarmennina alveg undan- bragðalaust. Þeir höfðu komið sér þægilega fyrir í góðum stöðum í her og lögreglu. Einn glæsilegasti leiðtogi þjóðhollra Spánverja, Calvo Sotelo, er ekki taldi þjóð sinni hollt að elska kommúnisma jafn heitt og sjálfa sig, kvað sér hljóðs. Hinn 11. júlí 1936 flutti hann tilfinningaþrungna ræðu í Framhald á bls. 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.