Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 37
ffclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
37
Lögðu
blómsveig
á minnis-
varða
franskra
sjómanna
ÞRIÐJUDAGINN 23.
maí kl. 10.00 f.h. fór
fram minningarathöfn í
gamla kirkjugarðinum
við Suðurgötu. Skipherra
og áhöfn franska haf-
rannsóknaskipsins
d'Entrecasteaux lögðu
blómsveig á minnisvarða
franskra sjómanna, bæði
til þess að minnast landa
sinna, sem farist hafa
við Islands strendur, og
einnig til þess að færa
íslensku þjóðinni þakkir
fyrir að hafa reist þenn-
an minnisvarða.
+ Erfingjar listmálarans fræga Pablos
Picassos ætla sannarlega að hafa upp úr
verkum hans það sem hægt er. Nýlega
seldu þeir bandarísku fyrirtæki réttinn
til að framleiða á teppi eitt af frægustu
málverkum hans. Þetta heppna fyrir-
tæki er Pacific Home Products, dóttur-
fyrirtæki eins af stærstu vefnaðarfyrir-
tækjum Bandaríkjanna, Wamsutta
Mills. Og munu teppin um það bil að
koma á markaðinn. Höfundarrétturinn
til erfingjanna er ein milljón dollara.
Tísku-
sýning
Föstudag kl. 12.30—13.30.
Sýningin, sem verður i Blómasal Hótels Loftleiða er
haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilisiðn-
aðar og Hótels Loftleiða
Sýndir verða sérstakir skartgripir og nýjustu gerðir fatn-
aðar, sem unnin er úr íslenskum ullar- og skinnvörum.
Módelsamtökin sýna.
Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boðstólum.
Verið velkomin.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR