Morgunblaðið - 03.06.1978, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Frímerkjasýning í Hafnarfirði:
HAFNEX 78
í GÆR kl. 17 var opnuð í
Víðistaðaskóla fyrsta frí-
merkjasýning, sem haldin
hefur verið í Hafnarfirði, og
nefnist hún Hafnex 78. Er
sýningin haldin í tengslum við
11. þing Landssambands
íslenzkra frímerkjasafnara,
og setti forseti þess, Sigurður
H. Þorsteinsson, hana að
viðstöddum fjölmörgum frí-
merkjasöfnurum og gestum.
Hafnia 78 var opnuð al-
menningi kl. 18 í gær og
stendur til kl. 19 á sunnudag.
Félag frímerkjasafnara í
Hafnarfirði og Garðabæ
stendur að þessari sýningu í
samvinnu við L.I.F.
Á sýningunni er 51 rammi
með margvíslegu efni, bæði
landasöfnum, tegundasöfnum
og sérsöfnum. Er enginn efi á,
að frímerkjasafnarar og aðrir
áhugamenn um frímerki geta
haft bæði ánægju og gagn af
að skoða sýninguna. Einkum
eru unglingar hvattir til að
sjá hana, enda er hún fyrst og
fremst kynningarsýning og
aðgangur því ókeypis.
Pósthús er á sýningunni,
sem notar sérstimpil. Hefur
sýningarnefnd látið útbúa
sérstök umslög með merki
sýningarinnar og eins prenta
minningarörk. Er þetta hvort
tveggja til sölu á Hafnex 78.
29555
Opiö 13—17
í dag
Höfum kaupanda að
2. eða 3. hæð í Norðurbænum
Hafnarfirði, 4 svefnherb. Gott
útsýni skilyrði. Möguleikar á
skiptum á einbýlishúsi í
Hafnarfiröi.
í skiptum
Austurberg 2ja herb. með
kjallara 2x65 fm í skiptum fyrir
4ra herb. íbúð í Reykjavík, ekki
Breiðholti.
Eskihlíö
2ja herb. 2. hæð í fjölbýlishúsi
65 fm í skiptum fyrir sér hæð
140 til 160 fm ásamt bílskúr.
Til sölu
Sumarbústaöur viö Vatnsenda
og Þingvallavatn.
Hlíðarvegur 70 fm
3ja herb. 1. hæð. Sér inngang-
ur. Sér hiti. Útb. 6.5 til 7 millj.
Hverfisgata 2x70 fm
Tvær 3ja herb. hæð og ris.
Eignarlóð. Verð tilboö.
Hjallavegur 96 fm
3ja til 4ra herb. kjallari ósam-
pykktur í tvíbýlishúsi. Verð
tilboð.
Vitastígur HF. 80 fm
3ja herb. á 1. hæð. Góðar
geymslur. Verð 8 millj. Útb. 6
millj.
Blikahólar 120 fm
4ra til 5 herb. í fjölbýlish.
Frábært útsýni. Verð 14.5 til 15
millj. Útb. 9.5 til 10 millj.
Grettisgata
Tvær íbúðir, hvor 4 herb. 105
og 120 fm. Hagkvæmt verð og
útb. Skipti á gömlu einbýli í
Hafnarfiröi.
Kaplaskjóls-
vegur 97 fm
4ra hb. 3. hæð. Sér geymsla og
sameiginleg. Verð 14.5 millj.
Útb. 9.5 til 10 m.
Ljósheimar 100 fm
4 hb. 8. hæð. Vélapvottahús.
Skipti á 5 herb. sér hæð í tví-
eða þríbýli eða bein sala. Verð
tilboð.
Bugðulækur ca. 130 fm
5 hb. 2. hæð. Verð tilboð.
Matvöruverzlun í
Vesturbænum
Mikill fjöldi eigna á skrá.
EIGNANAUST
LAUGAVEGI 96
(vió Stjörnubíó)
SÍMI 29555
Lárus Helgason sölum.
Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.
E
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
Hamraborg 1.
s. 43466 — 43805
Opiö i dag 10—16
Kríuiiólar 55 fm
2ja herb. íbúö á 4. hæö. Verö
7.5—8 m. Útb. 6 m.
Ásbraut Kóp. 100 fm
3_4 herb. Útb. 8.5—9 m.
Kjarrhólmi ca 85 fm
3ja herb. mjög góö íbúö, sér
þvottahus, mikiö útsýnl. Útb. 8
m.
Lækjargata Hafj. 70 fm
3 herb. 1. hæö. Útb. ca 5.5 m.
Þverbrekka 70 fm
3 herb. íbúð. Útb. 7—7.5 m.
Ásbraut . 102 fm
4 herb. góö íbúö. Útb. 9 m.
Drekavogur 90 fm
4 herb. góö íbúö, fallegur
garður. Verð 11 m.
Hlégerði 100 fm
4 herb., bílskúrsréttur, góð
íbúö. Útb. 8.5—9 m.
Krókahraun
Hafj. 100 fm
4 herb. sérlega falleg (búö, sér
þvottahús, bílskúrsréttur. Verö
16 m. Útb. 12 m.
Kóngsbakki 163 fm
6 herb. glæsileg íbúð 4 svefn-
herb. + húsbóndaherb. 40 fm
stofa. Verð tilboö.
Birkihvammur
Einbýli
145 fm 6-7 herb. íbúð 70 fm
bílskúr. Verö tilboð. Útb. 15,5
m.
Lóöir Einbýli
Góð við Selás, byggingarhæf
1979.
Akranes 97 fm
4 herb. ágæt íbúð. Verö 7.5 m.
Útb. 4.5 m.
Mjög fjársterkur
kaupandi
aö vandaöri 4—5 herb. íbúö í
Espigerði 4.
Fjársterkur kaupandi
aö góðri sérhæð í Rvík,
Hafnarfj., Kópavogi.
Fjársterkur kaupandi
að góöu einbýli.
Höfum kaupendur
aö eldra einbýii á stór-Rvíkur-
svæöinu. aö 2ja herb. íbúðum
hvar sem er.
Höfum góða kaupendur
aö húseign meö tveim 4ra herb.
íbúöum + góður bílskúr.
Til leigu eru 800 m2
Skrifstofuhúsnæöi viö Hlemm.
Tilboðum sé skilaö merkt: „Hlemmur — 4990“ fyrir
9. júní.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins f Reykjaneskjördæmi. Frá vinstrii Hannes Ilólmsteinn Gissurarson,
Axel Jónsson, Sigurgeir Sigurðsson, Asthildur Pétursdóttir, Eiríkur Alexandersson, Ólafur G.
Einarsson, Salóme Þorkelsdóttir, Matthías Á. Mathiesen, Oddur Ólafsson, Ellert Eiríksson.
Kaffifundir um atvinnu-
mál í Reykianeskiördæmi
Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjaneskjördæmi ákvað fyrir
nokkru að efna til svonefndra
kaffifunda um atvinnurekstur-
inn í kjördæminu. Var ætlunin
að fá sem flesta áhugamenn,
forvígismenn og starfsmenn í
atvinnurekstri í kjördæminu til
þess að koma til fundar við
frambjóðendur flokksins til Al-
þingis í nk. kosningum og
nýkjörna bæjar- og sveitar-
stjórnarfulltrúa hans, spjalia
við þá yfir kaffibollum um
vandamál atvinnurekstrarins og
skiptast á skoðunum við þá.
Fyrsti fundurinn var í gær í
Ytri-Njarðvíkum. Þar voru þeir
Oddur Ólafsson alþingismaður
og Eiríkur Alexandersson, sem
skipar 4. sætið á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins til Alþing-
is, og nýkjörnir bæjar- og
Hitaveita Suðurnesja er eitt
mesta þjóðþrifamál Reyknes-
inga og sparar þeim hundruð
milljóna. Myndin er af fram-
kvæmdum við hana.
sveitarstjórnarfulltrúar af
Suðurnesjum. Þrír fundir verða
i dag, allir kl. 3 sd. Einn verður
i Hlégarði í Mosfellssveit. Á
hann koma Salóme Þorkelsdótt-
ir og Axel Jónsson alþingismað-
ur auk nýkjörinna sveitar-
stjórnafulltrúa úr Kjósarsýslu.
Annar fundur verður í Sjálf-
stæðishúsinu í Kópavogi
(Hamraborg 1). Á honum verða
þeir Matthías Á. Mathiesen
fjármálaráðherra og Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri og ný-
kjörnir bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi og á
Seltjarnarnesi. Þriðji fundurinn
verður í Sjálfstæðishúsinu í
Hafnarfirði (Strandgötu 29). Á
hann koma Ólafur G. Einarsson
alþingismaður, Ellert Eiríksson,
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son og nýkjörnir bæjarfulltrúar
i Hafnarfirði og Garðabæ.
Samningur við Austur-Þjóðverja:
Vísinda- og tæknisamvinna
á sviði sjávarútvegs
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
utanríkisráðuneytinu:
I dag var undirritaður samning-
ur milli íslands og Þýska Alþýðu-
lýðveldisins um vísinda- og tækni-
samvinnu á sviði sjávarútvegs.
Samninginn undirritaði fyrir Is-
lands hönd Ólafur Jóhannesson
dómsmála- og viðskiptaráðherra,
sem gegnir störfum utanrikisráð-
herra í fjarveru Einars Ágústsson-
ar, og fyrir hönd Þýska Alþýðulýð-
veldisins Werner Buschmann var-
ráðherra fyrir matvælaiðnaðar-
mál o.fl., formaður austur-þýsku
samninganefndarinnar.
Gert er ráð fyrir að samningsað-
ilar hafi samvinnu og samráð og
skiptist á upplýsingum um vís-
indarannsóknir er snerta Iifandi
auðævi hafsins og einnig um
veiðiaðferðir, eiginleika fiskiskipa
og tækniatriði er varða veiðarfæri
og geymslu, flutning og vinnslu
sjávarafurða.
Stofnuð verður samstarfsnefnd
sem mun fjalla um framkvæmd
samningsins og gera áætlanir um
samvinnu.
Tekið er fram í samningnum að
hann skuli ekki hafa áhrif á
afstöðu aðila í málum sem til
meðferðar eru á Hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
Samningurinn tekur strax gildi,
en hvorum aðila um sig er heimilt
að segja honum upp með 6 mánaða
fyrirvara.
Viðræður við Austur-Þjóðverja
fóru fram í gær. í íslensku
samninganefndinni voru Pétur
Thorsteinsson sendiherra, formað-
ur, Jón Arnalds ráðuneytisstjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, Már
Elísson fiskimálastjóri, dr. Björn
Dagbjartsson forstjóri Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins,
Jakob Jakobsson aðstoðarforstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar,
Guðmundur Eiríksson aðstoðar-
þjóðréttarfræðingur utanríkis-
ráðuneytisins og Benedikt
Ásgeirsson fulltrúi í utanríkis-
ráðuneytinu. I austur-þýsku samn-
inganefndinni voru auk formanns-
ins W. Buschmann vararáðherra,
G. Spitzl sendifulltrúi Þýzka
Alþýðulýðveldisins á íslandi, S.
Seifert frá matvælaiðnaðrráðu-
neytinu, J. Suhrbier frá úthafs-
fiskveiðisambandinu og dr. A.
Peck, E. Glöckner og G. Hager frá
utanríkisráðuneytinu.