Morgunblaðið - 03.06.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
19
Stuttar umsagnir
HAFNARBÍÓ: JUNIOR BONNER
Það er vel þess virði að benda fólki á þessa
endursýningu, svo ólík sem hún er öðrum Sam
Peckinpah myndum (en hann leikstýrir). Hér er um
að ræða hljóðláta, ljóðræna sveitalífsmynd sem er
víðs fjarri því að skilja eftir í munninum vörumerki
Peckinpahsblóðbragðið.
Á NÆSTUNNI
LAUGARÁSBÍÓ.
SLAP SHOT
Ilcr er á ferðinni nýjasta
mynd þeirra George Roy Hill
og Paul Newman, en áður unnu
þeir saman að ekki ómerkari
myndum en BUTCH CASSIDY
AND THE SUNDANCE KID og
THE STING. Bakgrunnur
hennar cr íshokkí-knattleik-
urinn, en Newman fer með
hlutverk ófyrirleitins þjálfaja
sem lætur sér fátt fyrir brjósti
brenna tii að ná marki sínu.
BUTCH AND SUNDANCE.
THEEARLYDAYS
a dxnthkon- wujuam ijolpmak
A HiOrtAWÓ USSTSR FíÞM
BWPCÍi AND SUNDANCK. TUK WVfílX l'tfíYS
'•^ .^sfWU.UAMIvAT'i' -.TXtM
. vGABMBUKAWA S'CEVUN 8ACH RíCHAHDUSBT
Cannes 78
ÞAÐ má með sanni
segja að það hafi verið
Italir sem stóðu með
pálmann í höndunum
að nýlokinni kvik-
myndahátíðinni í Can-
nes í ár, því að mynd
hins heimskunna
ítalska leikstjóra,
Ermanno Olmi,
KLOSSATRÉ, hlaut
æðstu verðlaunin —
gullpálmann.
Norður-ítalskir bændur
fara með aðalhlutverk-
in, en myndin fjallar
einmitt um hlutskipti
þeirra á öldinni sem
leið. Heiðursverðlaunin'
hlaut einnig ítölsk
kvikmynd, APA-
DRAUMUR, með hin-
um geysivinsælu (á
meginlandinu) leikur-
um Gerard Depardieu
og Marcello Mastroi-
anni. Leikstjórinn,
Marco Ferreri — sem
er bandaríkjamaður af
itölskum ættum, hcfur
áður gert myndir sem
slægur er í. Skemmst
er að minnast myndar-
innar Átveislan mikla
(LE GRANDE
BOUFFE), sem
hneykslaði landann í
Háskólabíói fyrir örfá-
um árum.
Breska kvikmyndin
ÓPIÐ hlaut einnig sér-
stök verðlaun, en henni
stjórnaði pólverjinn
Jerry Skolimowski.
Með aðalhlutverkið fer
Alan Bates.
Nýjasta mynd Hal
Ashby (HAROLD AND
MAUDE, THE LAST
DETAIL, BOUND FOR
GLORY, SHAMPOO),
HEIMKOMAN (COM-
ING HOME), hefur
Ihlotið lofsámlega dóma
ög þá einkum Jon Voigt
fyrir leik sinn í aðal-
hlutverkinu. Það færði
honum verðlaun sem
besta karlleikara árs-
ins, en á móti Voight
leika þau Jane Fonda
og Bruce Dern.
Tvær leikkonur, hin
bandaríska Jill Clay-
burgh (THE SILVER
STREAK), og franska
Isabella Huppert,
deildu með sér verð-
launum fyrir besta leik
i kvenhlutverki í ár; sú
fyrrnefnda fyrir túlkun
sína í nýjustu kvik-
mynd Paul Mazurkys
(HARRY OG TÖNTO,
NEXT STOP, GREEN-
WICH VILLAGE), AN
UNMARRIED
WOMAN. Isabella
Huppert fer aftur á
móti með hlutverk
átján ára stúlku sem
fremur það ódæði að
myrða föður sinn. Er
það í nýjustu mynd
franska hryllings-
meistarans Claude
Chabrol, sem nefnist
Framhald á bls. 25.
að sjálfsögðu í nafni
Guðs Almáttugs.
Tónlist myndarinnar
er sér kafli út af fyrir
sig, mörg laganna kom-
ust á vinsældalistann
(einkum titillagið) og
urðu þau til þess að
auka mjög hróður
myndarinnar og gerat
hana eina af mest sóttu
myndunum í Banda-
ríkjunum á árinu sem
leið. Ásamt svarta-
markaðsbröndurunum,
teða hinum sérstaka
orðaforða sem þeldökk-
|ir hafa tamið sér og
málvenjum er þeir
virðast leggja mikla'
rækt við að „full-
komna“. Því miður
byggjast orðaleikir
þeirra fullmikið á of-
notkun ósköp hvers-
dagslegra orða eins og
cool, babe, man, svo
maður tali nú ekki um
þeirra langstærsta inn-
blástur — shit—.
Sumar myndir erul
einkanlega ætlaðar
hvítum, aðrar svörtum.
CAR WASH flokkast
auðveldlega með þeim
síðarnefndu. En dagur
líður að kvöldi og þegar
upp er staðið er engin
ástæða til þess að sjá
eftir þeim eina og hálfa
tíma sem fór í að sjá
myndina. Hitt er svo
annað mál að brandar-
arnir hefðu að ósekju
mátt vekja fleiri hlátra
en bros.
Brooke Shields í hlutverki hinnar barnungu
gleðikonu í mynd Louis Malle, PRETTY
BABY.
Plakat myndarinnar BUTCH AND
SUNDANCEi THE EARLY DAYS.
Tæpast úr þvottastöðinni Blika.
Dagur í lífi bíla-
þvottamanna (I.L.A.)
LAUGARÁSBÍÓ:
CARWASH
CAR WASH Fjallar
um vinnudag á þvotta-
stöð í Los Angeles. Þar
puða daglangt menn af
misjöfnu sauðahúsi,
þrátt fyrir að velflestir
þeirra séu reyndar hör-
undsdökkir. Leikstjór-
inn, Michael Schultz, er
kunnastur fyrir svarta-
markaðs-eftiröpun
myndar George Lucas,
AMERICAN GRAF-
FITI. CAR WASH er
leiðinlega lík því að
vera enn önnur útgáfa
frummyndarinnar, og
öllu lakari.
Ekki þar fyrir að
Schultz gengur margt í
haginn. Manngerðirn-
ar, svo ólíkar sem þær
eru, eru margar hverj-
ar hinar broslegustu og
fá nokkra dýpt, t.d.
náunginn með þvag-
prufuna; leigubílstjór-
inn í vændiskonuleit-
inni; mannfígúran sem
heillar „stelpuna á
kassanum", og er það,
jafnvel eitt skoplegasta
atriði myndarinnar.
Richard Pryor á frá-
bært atriði sem hans er
von og vísa. Það er
kannski ekki eins bros-
legt og það virðist á
yfirborðinu, því upp á
síðkastið hefur verið
flett ofan af fjölmörg-
um gervispámönnum
sem tekist hefur að
draga að sér lygilega
mikið úr vösum fátækl-
inganna vestur þar, og
Aftur á stjá...
Einn frægasti vestri
sem gerður hefur verið,
og sá sem ^yað mestum
tímamótum hefur vald-
ið í sögu þeirra, er hin
tíu ára gamla Butch
Cassidy And The
Sundance Kid. Áhrifa
hennar gætir jafnvel
enn þann dag í dag,
hetjuparið eða kannski
öllu heldur anti-hetju-
parið er enn í tísku.
Það lá jafnvel við að
þeir félagarnir Paui
Newman og Robert
Redford gerðu kvik-
myndaleikkonur þar
vestra hálfatvinnulaus-
ar um árabil.
Þetta er rifjað upp í
tilefni þess að fram-
leiðendum myndarinn-
ar, 20th Century —
Fox, hefur nú hug-
kvæmst að gera fram-
hald hennar, og nefnist
það einfaldlega Butch
And Sundance: The
Early Days. Allmikið
er vandað til myndar-
innar; framleiðandi er
hinn kunni höfundur
frumhandritsins.
William Goldman, tón-
listina semur Jerry
Goldsmith, handritið
Alan Burns og kvik-
myndatökuvélinni
stjórnar hinn tékk-
nesk-ættaði Laszlo
Kovacks. Valdir menn í
hverju rúmi.
Með aðalhlutverkin
fara tveir efnilegir, en
lítt kunnir leikarar,
þeir William Katt og
Tom Berenger. Nú er
bara að bíða og sjá
hvort þessi mynd gerir1
þeim jafn gott og hin
fyrri þeim Robert og'
Paul...