Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978
21
Sakharov
fær sekt
Moskvu. 2. júní. AP.
SOVÉSKUR dómstóll dæmdi í
dag, föstudag, Andrei A.
Sakharov og konu hans til að
greiða 90 rúblur sem er um þa'ð
Sakharov
bil jafnvirði um 34 þús. króna í
sekt fyrir að slá til lögregluþjóns
í sl. mánuði úti fyrir réttarsal í
Moskvu. þar sem réttarhöld stóðu
yfir í máli Yuri Orlovs.
Sakharov sagði vestrænum
fréttamönnum að hann hefði verið
dæmdur í sem svaraði tæplega
nítján þús. króna sekt og kona
hans ögn minna eða um fimmtán
þúsund. Hann sagði að þau ættu
ekki annarra kosta völ en greiða
sektina og myndu gera það, „við
getum ekki áfrýjað dóminum til
neins,“ eins og hann komst að orði.
Auk þess voru þau ákærð fyrir
að hafa uppi hróp gegn Sovétríkj-
unum og hefðu þau hvatt fólk til
að brjóta lögin. Tass-fréttastofan
greindi einnig frá „undirróðurs-
iðju“ Sakharovs.
Spá Kissingers:
Argentína—V-Þýzka-
land leika til úrslita
Buenos Aires 2. júní AP.
HENRY Kissinger, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem kemur til Argentínu síðar í
þessum mánuði til að fylgjast með
leikjum í heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu, sagði að færi svo að
Argentína og Brazilía lékju til
úAlita, myndi enda með því að
hvort liðið hefði þrjá menn inni á
velli — hinum hefði þá öllum verið
vísað af leikvelli. Kissinger talaði
glaðlega um komu sína til Argent-
ínu og sagðist hafa fylgzt með
tveim síðustu keppnum, 1974 og
1970 og teldi mikilsvert að hann
gerði það og nú. Hann mun koma
með Nancy konu sinni og syni
sínum til Argentínu. Hann sagðist
einnig mundu hitta Videla forseta
Argentínu og sig fýsti og að eiga
fund með Jorge Luis Borges,
hinum fræga rithöfundi.
Aðspurður um hverju hann
spáði úm úrslit sagðist hann telja
að það yrðu Argentína og Vest-
ur-Þýzkaland sem lékju úrslita-
leikinn þann 25. júní, en treysti sér
ekki til að kveða upp úr með hvort
færi með sigur.
Belfast:
Gífurlegt eigna-
tjón í sprengingu
Bclfast. 2. júní. Rcutcr.
ÞRJÁR sprengjur, mjög öflugar,
sprungu í miðborg Belfast aðfar-
arnótt föstudags og ollu gífurlega
miklum skemmdum en ekki er
vitað til að manntjón hafi orðið.
Lögreglan skýrði frá þessu í
morgun og sagði að þá stæði yfir
vinna við að gera tvær sprengjur
til viðbótar óvirkar. Ein spreng-
inganna olli því meðal annars að
eldur kom upp í aðalstöðvum
gasiðnaðar Norður-írlands og eins
og fyrr segir varð tjón mjög mikið.
Sprengjurnar tóku að springa
skömmu eftir að símaviðvörun var
V-Þýzkaland:
Enn minnkar
atvinnuleysi
NiirnbcrK. 2. júní. AP.
ATVINNULEYSI í Vestur-Þýzka-
landi minnkaði í maí og er nú
aðeins fjögur prósent atvinnu-
bærra manna, nánar tiltekið er
þarna um að tefla 913 þúsund
manns. Hafði þá dregið úr at-
vinnuleysi sem svaraði um 87
þúsund manns frá því í apríl að því
er sagði í tilkynningu Atvinnu-
málastofnunar Vestur-Þýzka-
lands.
send lögreglu og þar sagt að sjö
sprengjum hefði verið komið fyrir
í miðborginni.
Enn fær
Irina
McClellan
neitun
Charlottesville, Virginia.
2. júní AP.
SOVEZKIR embættismenn neita
enn beiðni Irinu McClellan um að
fá að flytjast frá Sovétríkjunum
og til Bandaríkjanna til eigin-
manns síns. í gær, föstudag, fékk
hún enn einu sinni neitufl á
vegabréfsskrifstofunni í hverfi
sínu og var henni aðeins sagt að
koma aftur á mánudag og myndi
málið þá verða athugað. Hefur
hún fengið svcr á þessa lund nú
um langa hríð, en hún hefur gert
ýmislegt til að vekja athygli á máli
sínu, svo sem að hlekkja sig við
grindverkið á bandaríska sendi-
ráðinu í Moskvu o.fl. í þeim dúr
eins og frá hefur verið sagt hér í
blaðinu.
Lögrelgumenn skoða lík Basir Balcioglu, mágs sendiherra Tyrkja í Madrid. en hann var drepinn þar
í borg í gær. (Símamynd AP).
Madrid:
Tyrkneskt sendi-
ráðsfólk drepið
Madrid. 2. júní. AP. Rcuter.
ARMENSKIR hryðjuverkamenn
eru grunaðir um að vera valdir að
drápi á eiginkonu tyrkneska
sendiherrans á Spáni í morgun,
en þá var einnig drepinn mágur
sendiherrans og bflstjóri. Sendi-
herrann, Zeki Kuneralp, var
sagður hafa sloppið ómeiddur.
Réðust hryðjuverkamennirnir
sem munu hafa verið þrír ungir
menn, klæddir sem verkamenn,
að bfl sendiherrans með hrika-
legri skothríð í miðborg Madrid
í morgun.
Juan Carlos, konungur Spánar,
hefur fordæmt árásina og kallað
hana glæpsamlega atlögu við
saklaus fórnarlömb. Sendi hann
samúðarskeyti til tyrkneska for-
setans Koruturk og Suarez for-
sætisráðherra Spánar sleit ríkis-
stjórnarfundi er hann frétti um
atburðinn til að taka þátt i
skipulagningu leitar að hryðju-
verkamönnunum. Bulent Ecevit,
forsætisráðherra Tyrkja, sagði að
stjórn hans myndi íhuga til hvaða
ráða yrði gripið til að reyna að
tryggja öryggi diplómata sinna
erlendis.
Víðtæk leit stóð yfir bæði í
höfuðborginni Madrid og víðar um
landið, en dregið var í efa að
hrvðjuverkamönnunum hefði tek-
izt að komast úr borginni, þar sem
spánska lögreglan brá við mjög
skjótt og lokaði öllum útgönguleið-
um frá henni. Talið er að armensk-
ir hryðjuverkamenn hafi verið
Ná einkvæntir
betri árangri
í starfi?
New York, 2. júní. — Reuter.
NÍUTÍU og fimm prósent manna
sem sitja í æðstu stöðum hundrað
mestu áhrifafyrirtækja Banda-
ríkjanna eru enn giftir sömu
konunni og hafa ekki haft nein
skipti. Kemur þetta fram í könnun
sem bandarískt tímarit efndi til og
dregur þá ályktun af niðurstöðun-
um að einkvæntir menn nái meiri
árangri í starfi en þeir sem iðulega
skipta um konur.
valdir að morðum á fimm
tyrkneskum sendiherrum síðan
árið 1972. Lögreglan sagði þó að
ekki væri gengið út frá því sem
gefnu að Armeníumenn ættu hlut
að máli en flest benti til þess og
aðili sem vitanlega gaf ekki upp
nafn sitt sagði að árásin væri verk
hóps sem kenndi sig við baráttu
fyrir tilverurétti Armeníumanna.
Væri þetta hefndarverk fyrir
hryðjuverk Tyrkja á Armeníu-
mönnum í Tyrklandi.
Atburðurinn gerðist ekki ýkja
langt frá tyrkneska sendiráðinu.
Sendiherrafrúih og bróðir hennar
voru að fara í hið fræga Pradosafn
og síðan hugðust þau fara í
verzlanir.
VEÐUR
Amsterdam 27 sól
Apena 28 bjart
Berlín 28 sót
BrUstel 30 sól
Chicago 30 skýjaó
Kaupmannah. 26 sól
Frankfurl 28 bjart
Genf 23 sól
Helsinki 18 sól
Jóhannesarb. 15 sól
Lissabon 26 sól
London 27 skýjaó
Los Angeles 23 akýjaó
Madrid 25 sól
Miami 30 skýjaó
Montreal 20 skýjaó
Moskva 19 skýjaó
Nýja Delhi 43 bjart
New York 30 pungbúió
Ósló 28 sól
París 26 pungbúió
Rómaborg 24 pungbúíó
San Francisco 33 sól
Stokkhólmur 25 sól
Tel Aviv 25 skýjaó
Tókíó 28 skýjaó
Toronto 22 skýjaó
Vínarborg 26 SÓI
í fyrra lýstu leynisamtök sem
kölluðu sig „frelsisher Armeníu"
yfir stríði á hendur Tyrklandi.
Armenía sem er í vesturhluta Asíu
er nú skipt milli Tyrklands,
Sovétríkjanna og íran. Tyrkir
fyrirskipuðu fjöldabrottflutning á
armenska minnihlutanum í Tyrk-
landi, sem litið var á sem ógnun,
í heimsstyrjöldinni fyrri. Rösklega
hálf önnur milljón Armeníumanna
voru drepnir og þúsundir ^óru
látnir deyja drottni sínum úr
hungri og vesöld eftir að þeir
höfðu verið fluttir nauðungar-
flutningi til norðurhluta sýrlenzku
eyðimerkurinnar. Tyrkneski
sendiherrann í Páfagarði var
skotinn til bana í júní sl. og
sendiherrar Tyrklands í Frakk-
landi og Austurríki voru myrtir í
október 1974. Aðalræðismaður
Tyrklands í Los Angeles og
aðstoðarmaður hans voru myrtir
1973 og lægra settur tyrkneskur
diplómati í Beirut var drepinn
1976.
Olíutankur
sprakk
Good Hope, Louisiana, 2. júní
AP
HRÁOLÍAN gusaðist eins og
stórrigning yfir 200 íbúðarhús og
hundruð bifreiða eftir að áttatíu
þúsund gallona olíutankur sprakk
í morgun í Good Hope í Louisiana,
að því er lögreglustjóri staðarins
sagði frá i morgun. „Það rigndi
yfir okkur olíu,“ sagði Wallace
Frilou lögreglustjóri við frétta-
menn. „Með þeim orðum verður
þessum atburði bezt lýst,“ bætti
hann við og sagði að enn vissi
hann ekki um áætlað tjón af
völdum þessa en vitað væri að
enginn hefði slasast og sem betur
fer hefði enginn eldur komið upp.
Ekki er vitað um ástæðuna fyrir
því að olíutankurinn rifnaði svo
skyndilega.
Good Hope er í St. Charles sem
er við Missisippi, um það bil 30
mílur frá New Orleans.