Morgunblaðið - 03.06.1978, Síða 23

Morgunblaðið - 03.06.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978 Arngrímur Sigurðsson: Þessa daga er þess minnst að 50 ár eru liðin síðan reglubundið áætlunarflug innanlands hófst. Hinn 4. júní 1928 var fyrst flogið með farþega og póst samkvæmt fyrirframgerðri áætlun. Dr. Alexander Jóhannesson hafði gengist fyrir stofnun flugfélags til þess að vinna að bættum samgöngum á Islandi enda var þess brýn þörf — og er enn. Hér verður sagan ekki rakin í smáatriðum enda til á prenti að hluta. Hinsvegar verður litast um í nútímanum og horft til framtíðarinnar. Þegar mið er tekið af öðrum þáttum samgöngumála á ís- landi, eru flugmálin nokkuð vel sett. Þó eru flugmálin verr komin að því leyti að þau hafa ekki þær tekjulindir sem t.d. vegamál hafa, þó svo að úr þeim lindum renni í aðrar kirnur en til er ætlast. A okkar tímum er það ofur eðlilegt að vegfarendur geri miklar kröfur um bættar samgönguleiðir á landi, en ráðamenn mættu gjarnan hugsa til þess, hve stórbæta mætti t.d. flugsamgöngur til margra staða fyrir það fé sem fer í að moka eina af háheiðum landsins einn dag. Þegar þess er gætt, eftir samanburð á fjölda allra íslend- inga og heildarfarþegafjölda innanlands, að hver íbúi lands- ins fer a.m.k. einu sinni á ári leiðar sinnar í lofti, er greinilegt að þjóðin hefur tekið flugsam- göngutækin í þjónustu sína. Þetta er ánægjulegur vottur þess, að þeim, sem að flugmál- unum hafa starfað, hefur tekist að opna augu almennings og fá hann til að hagnýta sér fljótasta og þægilegasta ferðamátann. Það er heldur ekkert vafamál að flugvélin er hvað áhrifarík- asta tækið til að halda jafnvægi í byggð landsins. Þess vegna væri æskilegt að allir sem til forsjár hafa valist á sviði sveitarstjórnar-, bæjarstjórnar- og samgöngumála almennt geri sér glögga grein fyrir því, að góður flugvöllur með afgreiðslu- húsi og helst flugskýli er jafn nauðsynlegur og vegakerfi byggðarlagsins. Af rannsóknum mínum á sögu flugsamgangna og viðgangi ýmissa bæja dreg ég fíug- má/ íslands þá ályktun, að bættar samgöng- ur — og þá einkum flugsam- göngur — eru einhver sú mesta lyftistöng sem byggðarlagi get- ur hlotnast. Ef litið er til þeirra aðila, sem flugrekstur stunda, verður að viðurkenna að þeir eru á réttri leið. Mörgum þykir sem stefni til samkeppnileysis, en á meðan fólkið er ekki fleira í landinu — mál sem vissulega er að taka á sig uggvænlega mynd — þá er það affarasælast að efla heldur og auka samvinnuna en hitt. Samkeppnin hefur jafnan komið við vissar aðstæður. Það er hægur öldugangur í flugmálum sem öðrum málum, en eins og nú háttar erum við í dal. Hinsvegar er það almennings — með hjálp stjórnvalda — að halda flug- rekstursaðilum við efnið og Arngrímur Sigurðsson leiðarljós sem handhafar fjár- veitingavalda geta tekið mark á. Stefnan er gefin. Flugvellir hafa verið flokkaðir með hliðsjón af þörfum hvers byggðarlags. Verkefnum hefur verið raðað með tilliti til öryggis og arð- bærrar fjárfestingar. Fjöldi framkvæmda hefur verið tak- markaður í samræmi við skyn- samlegt mat á aðstæðum og þróun uppbyggingar og fólks- fjölda hvers svæðis. Öll þessi atriði munu auðvelda bæði stjórnvöldum og flugreksturs- aðilum að byggja upp hagkvæm- ar flugsamgöngur með hentug- um flugvélum og tæknilega fullkomnum öryggistækja- búnaði, sem hvort tveggja eykur traust almennings á þessum þætti samgöngumála og, síðast en ekki síst, getur aukið tíðni ferða. Innanlandsflug 50 ára krefja þá af sanngirni um góða þjónustu. Tækin til þess að veita hana eru til í landinu, og vegna þess hve tækin eru góð er við stjórnendur og starfsfólk að eiga ef eitthvað fer úrskeiðis, að ógleymdum veðurguðunum. Á þessum tímum eiga íslendingar hin ágætustu flugtæki, á hvaða grein flugsins, innanlands eða utan, sem litið er. Megi öllum sem í þeim starfa vel farnast og allir sem með þeim ferðast heilir í höfn koma. I framtíðinni þarf að hyggja mjög að hinum ytri skilyrðum flugsamgangna, þ.e.a.s. flugleið- sögukerfi, flugvöllum og aðbún- aði farþega og flugvéla á hinum ýmsu stöðum. Þessa hefur auð- vitað alltaf verið þörf, en nú er von um að úr þessu rætist og að skipulega verði að þessum mál- um staðið. Þeir sem hafa kynnt sér skýrslu flugvallarnefndar 1976 sjá að þar er um raunsæa starfsáætlun að ræða. Skýrslan með þeim tillögum sem þar eru gerðar leysir ekki ein sér vandamál flugreksturs á ís- landi. Hún er þó merkilegt Þegar fólk talar um flugmál hættir mörgum til að einblína á stærðina eina. Stærri flugvél hlýtur að vera betri en lítil. Þetta er því aðeins rétt að flutningaþörfin og reksturs- kostnaðurinn réttlæti stærðar- aukninguna. Eins og áður var vikið að er fólksfjölgun á íslandi lítil. Aukin nýting og þar með hagkvæmni í rekstri verður því ekki að ráði nema landsmenn noti flugvélar meira. Hin aukna notkun er því forsenda fyrir bættri þjónustu. Flugfélög hafa eðlilega ekki treyst sér til að fjölga ferðum þegar nýtingin hefur ekki leyft það. Verði tllögur flugvallanefndar og flug- málastjórnar framkvæmdar er ekki að efa að hægt verður að auka ferðatíðni til muna. Mikil ferðatíðni er sameiginlegt hags- munamál flugfarþega og flug- félaga. Vöruflutningar með flugvél- um þurfa að aukast verulega, bæði innanlands og milli landa. Hinir miklu kostir vöruflutn- inga í lofti eru löngu viður- kenndir og þyrftu framleiðend- ur og ráðamenn fyrirtækja í miklu ríkara mæli að senda vörur sínar með flugvélum. Hér að framan var lauslega minnst á flugvélakost lands- manna. Hann á vafalaust eftir að batna, þótt góður sé. Flug- tæknin hefur tekið sífelldum framförum alla öldina. Þotu- hreyflar verða æ kraftmeiri og sparneytnari. Seinustu árin hef- ur flugtæknin staðið í einskonar átökum við stóraukinn elds- neytiskostnað sem um tíma hafði lamandi áhrif á flugrekst- ur. Flugtæknimönnum hefur tekist að bæta hér mikið úr svo að nú er ástæða til að vera bjartsýnn. íslendingar nota nú þotur á millilandaleiðum og því velta menn því eðlilega fyrir sér hvenær þotur verði algengar á innanlandsleiðum. Því verður ekki svarað með neinni vissu, en það er þó háð mörgum af þeim atriðum sem getið hefur verið hér að framan, s.s. flutningaþörf og hagkvæmni í rekstri. Flug- vélakosturinn helst í hendur við þróun flugmálanna í landinu í heild, og því má hugleiða hvaða aðilar það eru sem þar hafa mest áhrif og hver sé í rauninni æskileg þróun. Það liggur í augum uppi að þróunin má og á að vera hröð hvað öryggi og þægindi varðar. Allir farþegar og þeir sem flugrekstur stunda eru sammála um það. Flugfélög kaupa nú aðeins þær bestu flugvélar sem völ er á. Sá aðili sem hinsvegar hefur bolmagnið til að gera nýtingu hinna fullkomnu flug- tækja mögulega er hið opinbera. Það er sá aðili sem getur gert draum okkar um enn betri flugsamgöngur til eins og ann- ars, og víða er réttilega þörf á miklum stuðningi. Á þessum tímamótum er það ósk mín til handa öllum sem að flugmálum vinna, að þeir eigi á næstu árum sterkan bakhjarl í stjórnendum bæjar- og sveitarfélaga og svo ekki síst í forsjármönnum ríkis- búskaparins. Góðar flugsam- göngur auka hagsæld og vel- sæld. Góðar flugsamgöngur eru einnig mikilsverður liður í menningarlífi þjóðarinnar. Gef- um því flugmálum Islands byr undir báða vængi. Arngrímur Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.