Morgunblaðið - 03.06.1978, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Þotukeppn-
in í golfi
HIN árlega Þotukeppni í golfi
verður í dag og á morgun á
golfvelli Keilis í Hafnarfirði. Ræst
er út til keppni kl. 8 og kl. 1.30.
Leiknar eru 36 holur með og án
I forgjafar.
Keppni þessi gefur stig til
I landsliðs og allir fremstu golfleik-
arar landsins taka þátt í keppn-
Iþrótta-
og leikja-
námskeið
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
hófst í Rcykjavík íþrótta- og
leikjanámskeið fyrir börn 6—9
ára og 10 — 12 ára. Námskeiðin
munu fara fram á níu stöðum í
borginni. Þeir aðilar sem standa
fyrir námskeiðinu eru Í.B.R.
Leikvalianefnd Reykjavíkur,
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
íþróttaráð Reykjavíkur.
! Kennsla fyrir 6—9 ára er á morgnana á
eftirtöldum stöðumi
j Melavelli kl. 9.00-10.15
| VíkinKssvæði við IlæðarKarðkl.
9.00—10.15 Leikvelli við
Fellaskóla kl.9.00-10.15
Leikvelli við Árbæjarskóla kl. 9.00 — 10.15
Leikvelli við Álftamýrarskólakl.
10.30-11.45 Leikvelli
FossvoKsskóla
10.30-11.45 íþróttavelli
Sæviðarsund
10.30-11.45
Breiðholtsskóla
10.30-11.45 Kennsla 10
við
kl.
Þróttar við
kl.
Leikvelli við
kl.
12 ára barna fer
fram eftir hádegi á eftirtöldum stöðumi
Melavelli kl. 13.30-15.00
LauKardalsvelIi kl. 13.30—15.00
íþróttavelli við Fellaskóla kl. 13.30—15.00
Innritun fer fram á kennslustöðum.
I>átttökuKjald er kr. 300.-
Meistaramót í
frjálsum í dag
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
um íþróttum hefst í dag á
Laugardalsvelli og einnig verður
keppt á sunnudag. Keppt verður í
tugþraut karla, fimmtarþraut
kvenna, 3000 m hl., 10 km hl. og
4x800 m boðhlaupi karla. Keppnin
í tugþrautinni ætti að geta orðið
skemmtileg, alls eru 13 keppendur
skráðir til leiks og þar á meðal
allir okkar bestu tugþrautarmenn.
|Kappleikja-
bók G.S.f.
ÍJT ER komin kappleikjabók
G.S.Í. 1978. Hefur Golfsambandið
vandað mjög til útgáfunnar og er
i bókinni mikinn fróðleik að
finna bæði um mótshald í sumar
og annað.
íbróttlr
Kristinn Jörundsson skorar sigurmarkið í leiknum í gærkvöldi, eftir mikinn einleik Péturs Ormslevs.
ÍSmmMimS
FRAM I ANNAÐ SÆTI
EFTIR SIGUR YFIR KA
FRAMARAR komust í 2. sætið í 1. deild í gærkvöldi, þegar þeir
sigruðu KA á Laugardalsvellinum 1.0. Hafa Framarar hlotið 6 stig
úr fyrstu 4 leikjunum og er það betri byrjun en flestir spáðu. Það
var talað um það f blöðum eftir tvo síðustu leiki Fram að liðið hefði
unnið heppnissigur gegn Þrótti og Breiðablik en hafi svo verið' verður
ekki það sama sagt um leikinn í gærkvöldi. Fram vann mjög
sanngjarnan sigur yfir KA og hefði sigurinn getað orðið stærri.
Veður var með eindæmum gott Þorbergur markvörður KA hirti
til að leika knattspyrnu í gær-
kvöldi, logn og mátulega heitt. En
eins og svo oft vill verða var
knattspyrnan ekki í samræmi við
aðstæðurnar, sérstaklega þó hjá
leikmönnum KA, sem náðu sér
aldrei almennilega á strik. Var það
mest tilviljunum háð hvert boltinn
Fram-KA 1:
Texti.
Sigtryggur Sigtryggsson
Mynd.
Friðþjófur Helgason
lenti þegar KA-mennirnir voru að
byggja upp sóknarlotur og alltof
oft voru hlutirnir unnir á erfiðasta
hátt þegar miklu auðveldari lausn
blasti við úr vandanum. Framarar
náðu mun betur saman úti á
vellinum og í framlínunni höfðu
Framararnir bezta mann vallar-
ins, Pétur Ormslev, sem hvað eftir
annað kom vörn KA í vanda með
hraða sínum og leikni. Framliðið
væri ekki búið að fá þessi sex stig
ef hans nyti ekki við frammi.
Ef litið er á minnisbókina sést
að Framarar fengu fyrsta tæki-
færið á 5. mínútu þegar Sigurberg-
ur Sigsteinsson komst einn inn
fyrir, en • hann var of seinn og
boltann af tám hans. Tíu mínútum
síðar bjargaði Gunnar Gíslason
bakvörður KA tvívegis á marklínu
í sömu sókninni. Áfram héldu
Framarar að sækja og á 35.
mínútu einlék Pétur Ormslev
laglega upp allan völl og skaut
þrumuskoti að markinu sem Þor-
bergur varði laglega. Akureyring-
arnir fengu eitt tækifæri í fyrri
hálfleik. Jóhann Jakobsson átti
gott skot að marki Fram, sem
Guðmundur markvörður varði
mjög vel.
Á 8. mínútu seinni hálfleiks kom
sigurmarkið. Pétur Ormslev fékk
boltann á miðju vallarins, lék
síðan hratt upp að marki KA.
Hann lék á hvern varnarmanninn
eftir annan og renndi síðan
boltanum á Kristin Jörundsson
dauðafrían í vítateignum og
Kristinn gat ekki annað en skorað,
svo gott var færið.
Nokkru síðar var Pétur aftur á
ferðinni með frábært skot neðst í
markhornið eftir að hafa platað
vörn KA illilega en Þorbergur sá
við honum og varði meistaralega.
Á 26. mínútu seinni hálfleiks
komst Kristinn í gott færi og
skaut að markinu. Þorbergur varði
en hélt ekki boltanum og Sigur-
bergur fékk boltann einn fyrir
opnu marki en á óskiljanlegan
hátt missti Sigurbergur af boltan-
um og hættunni var bægt frá.
Sigurbergur fær nú varla svona
gott tækifæri í bráð. Tvö færi til
viðbótar fengu Framarar, fyrst
bjargaði Þorbergur mjög vel þegar
Kristinn hafði skallað að markinu
og síðan átti Pétur skalla rétt
framhjá.
Varla getur heitið að Akureyr-
ingarnir hafi átt umtalsvert tæki-
færi í seinni hálfleik. Þeir reyndu
að senda háa bolta inn í vítateig-
inn þar sem varnarmenn Fram
voru þéttir fyrir og Guðmundur
markvörður mjög öruggur.
Pétur Ormslev var bezti maður
vallarins ásamt Eysteini dómara,
sem dæmdi óaðfinnanlega. Líklega
hefur enginn leikmaður íslenzkrar
knattspyrnu komið jafn mikið á
óvart í vor og Pétur og hann hlýtur
að koma alvarlega til greina í
landslið. í heild átti Framliðið
sinn bezta leik í mótinu.
Hins vegar voru KA-menn slak-
ir að þessu sinni, baráttan var lítil
hjá liðsmönnum og þeir náðu
einfaldlega ekki saman í þessum
leik. Þorbergur var bezti maður
liðsins og hann bjargaði KA frá
stærra tapi.
í STUTTU MÁLI.
íslandsmótið 1. deild, Laugar-
dalsvöllur 2. júní,
Fram — KA 1.0 (0.0).
Mark Fram. Kristinn Jörundsson
á 53. mínútu.
Áminningar. Þorbergi Atlasyni
sýnt gula spjaldið í s.h.
Áhorfendur. 349.
Einkunnagjöfin
FRAM. Guðmundur Baldursson 3, Trausti Haraldsson 2, Gústaf
Björnsson 3, Gunnar Guðmundsson 2, Kristinn Atlason 2,
Sigurbergur Sigsteinsson 2, Rafn Rafnsson 2, Kristinn
Jörundsson 2, Pétur Ormslev 4, Ásgeir Eliasson 2, Knútur
Kristinsson 2.
KA. Þorbergur Atlason 3, Steinþór Þórarinsson 2, Gunnar
Gíslason 3, Guðjón Ilarðarson 2, Ilaraldur Haraldsson 1, Elmar
Geirsson 2, Sigurbjörn Gunnarsson 1, Eyjólfur Ágústsson 2,
Gunnar Blöndal 1, Jóhann Jakobsson 2, Ármann Sverrisson 1,
Gunnar Gunnarsson (v.m.) 2.
Dómari. Eysteinn Guðmundsson 4.
Sjá einnig íþrótta-
fréttir á blaðsíðu 30
Wigan upp - Southport niður
WIGAN Athletic var í gær kosið í fjórðu deild ensku knattspyrnunnar
og tekur stöðu Southport. Árlega koma félögin 92 í ensku deildunum
saman og ákveða með sér hvort hleypa eigi aftur upp í fjórðu deild þeim
4 liðum sem úr henni falla. Southport féll á síðasta keppnistímabili
ásamt York, Rochdale og Hartlepool, en var eina liðið sem ekki náði
endurkjöri og var fellt með 29 atkvæðum gegn 20 sem Wigan fékk. Þetta
er fjórða árið í röð, sem Southport hafnar í einu af fjórum neðstu sætum
fjórðu deildar.
'1 OoOjVvjVÍfcSLAV 0»S>OKA
Be^VS»U\M.feKJvj chílhSSjum
lakjct 'I
ep!rTl^ öpÁfsJ-- - -
H ÞA3 B\VCCv