Morgunblaðið - 20.07.1978, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 20. JÚLÍ 1978
11
Góður afli í Vestfirð-
ingafjórðungi í júní
AFLABRÖGÐ í Vestfirðinga-
fjórðungi voru óvenjulega mis-
jöfn í júní-mánuði s.l. að því er
segir í yfirliti skrifstofu Fiski-
félags Islands á ísafirði um
sjósókn og aflabrögð í fjórð-
ungnum. Heildaraflinn í mánuð-
inum var 6.356 lestir, en var 5.071
iest á sama tíma í fyrra. Er aflinn
á sumarvertíðinni þá orðinn
9.384 lestir, en var 6.601 lest í lok
júnímánaðar í fyrra. Bátaaflinn
var nú 2.338 lestir, en afli
togaranna 4.018 lestir.
Vestfjarðatogararnir voru al-
mennt með góðan afla í mánuðin-
um, svo og línubátar, sem voru á
grálúðuveiðum, en hjá dagróðrar-
bátum var aflinn lakari.
Dragnótaaflinn var almennt góður
og handfæraafli þokkalegur, sér-
staklega síðari hluta mánaðarins.
I yfirlitinu segir að í lok júní
hafi verið gerðir út 147 (102) bátar
til bolfiskveiða frá Vestfjörðum,
111 (69) með handfæri, 16 (19) með
línu, 3 (3) með dragnót og 12 (11)
með botnvörpu. Af togurunum var
aflahæstur i mánuðinum Gyllir
frá Flateyri, sem landaði 469,3
lestum úr 4 veiðiferðum.
Þinguðu um andleg-
ar þarfir sjúklinga
UMRÆÐUFUNDUR um andleg-
ar þarfir sjúklinga var haldinn í
Hjúkrunarskóla íslands dagana
25. og 26. maí. Þátttakendur voru
nemar, sem eru að ljúka öðru
námsári, kennarar skólans,
hjúkrunarfræðingar af heil-
brigðisstofnunum og fleiri.
Fyrri daginn voru flutt nokkur
erindi og fluttu þau María Finns-
dóttir hjúkrunarfræðingur, Helga
Hannesdóttir geðlæknir og séra
Jónas Gíslason.
Síðari daginn komu sjúklingar
og aðstandendur og sögðu frá
reynslu sinni. Eftir það voru
hópumræður um málefnið og að
lokum voru niðurstöður kynntar.
Samdóma álit allra var, að
hjúkrunarferlið væri mikilvægt
tæki til að ná viðunandi árangri í
hjúkrun og bæri að nota það á
öllum sjúkradeildum. Til þess að
hjúkrunarfræðingar séu færir um
að axla þá ábyrgð, sem hjúkrunar-
starfið krefst, taldi hópurinn
nauðsynlegt, að aldursstakmark í
hjúkrunarnám væri hækkað, en nú
er 18 ára lágmarksaldur til
inngöngu í Hjúkrunarskóla ís-
lands.
A umræðufundinum kom fram
tillaga þess efnis, að unnið yrði að
því að fá alla hjúkrunarfræðinga
landsins til að sameinast í eitt
félag. Þessi tillaga var einróma
samþykkt og niðurstaða umræðu-
fundarins varð sú að fagna bæri
möguleikum til aukinnar mennt-
unar hérlendis. Hjúkrunarstétt-
inni væri sómi að vel menntuðu
fólki, þar sem annars staðar væri
„mennt máttur".
(Frétt frá Hjúkrunarskóla
Islands.)
Miklar framkvæmd-
••
ir á vegum Olfus-
hrepps í sumar
I>orlákshöfn 18. júli
FRAMKVÆMDIR á vegum Ölfus-
hrepps í sunvar eru þessari
Unnið er að hitaveitufram-
kvæmdum. Verið að leggja að-
veituæð frá Bakka í Ölfusi til
Þorlákshafnar, sem eru 10,8 km.
Aætlaður kostnaður eru 240
milljónir króna. í þeirri áætlun á
allt að vera tekið með, bætur
fyrir land og fieira. Að sögn
Þorsteins Garðarssonar sveitar-
stjóra gengur verkið eftir áætlun
en því á að vera lokið í haust.
Næst stærsta verk er bygging
áfanga við grunnskólann í Þor-
lákshöfn. Áætlaður kostnaður er
24 milljónir. Hann fer að nálgast
það að vera tilbúinn undir tréverk
og því verki á að vera lokið fyrir
kennslu í haust. Þá verður í fyrsta
skipti kenndir allir bekkir grunn-
skólans hér á Þorlákshöfn en
undanfarin ár hefur nemendum 9.
bekkjar verið ekið daglega til
Hveragerðis og 6 ára börn hafa
enga kennslu fengið.
Þá er ákveðið að malbika þrjár
götur, Skálholtsbraut, Hafnarberg
og Sandbyggð, sem eru 800 metrar
samtals. Undirvinna er vel á veg
komin. Kostnaðaráætlun er 19
milljónir. Verkinu á að vera lokið
1. september.
Þá er næsta verk bygging
áhaldahúss fyrir hreppinn. Húsið
er 500 fermetrar á einni hæð.
Kostnaðaráætlun er 16 milljónir.
Þar á slysavarnadeildin að fá inni
með sína starfsemi og einnig
slökkviliðið á staðnum.
Þá er neyzluvatnsveita næsta
mál en það er bygging vararaf-
stöðvar. Þegar rafmagnið fer af er
þorpið vatnslaust, þar sem vatni er
dælt hingað með rafmagni og er
það að sjálfsögðu óviðunandi með
tilliti til fiskvfnnslu og bruna-
hættu svo eitthvað sé nefnt.
Kostnaðaráætlun er 6 milljónir.
Heilsuverndarstöð var tekin í
notkun á þessu ári eða nánar
tiltekið í apríl s.l. og er það til
mjög mikilla hagsbóta fyrir íbúa
hér. Heimild er einnig fengin fyrir
því að læknir hafi hér búsetu og
er alveg óhætt að segja að það er
von manna hér að það verði sem
allra fyrst. Kostnaður við heilsu-
verndarstöðina var 5 milljónir.
Þá er unnið að réttarbyggingu í
Ölfusi og endurbótum á félags-
heimili þar.
Eins og sjá má á upptalningunni
eru miklar framkvæmdir hér í
sumar og í mörg horn að líta.
— Ragnheiður
28311—28311
Eignavör
fasteignasala
Til sölu 5 herb. íbúð við
Miklubraut. 4 svetnherbergi,
bílskúrsréttur.
4ra—5 herb. íbúð við Álfa-
skeið. Bílskúr í byggingu mjög
góð eign.
4ra herb. sér jaröhæð við
Álfhólsveg.
3ja herb. íbúð við Rauðarár-
stíg.. Nýstandsett.
3ja herb. íbúð við Karfavog.
Falleg lóð.
3ja herb. risíbúð í tvíbýli við
Kópavogsbraut. Stór lóð.
Kvöldsímar 41736 Einar
Óakarason.
Pétur Axel Jónsson, lögfr. 74035.
Gasbirgd-
irnar end-
urnýjadar
LJÓSBAUJURNAR í innsigling-
unni til Reykjavíkur þurfa sífellt
eftirlit og einu sinni á ári er skipt
um gasbirgðir í þeim. Venjulega
annast skipverjar á Arvakri
þetta verk. en þar sem Árvakur
hefur verið í viðgerð. unnu
skipverjar á Ægi þetta verk í
sumar. Myndina tók Ingóifur
Kristmundsson þegar verið var
að skipta um gasbirgðir í einni
baujunni.
16.LANDSM0T
UMFI
SELF0SSI
21-23. JÚLl 1978
FYRIR ALLA FUÖLSKYLDUNA
FYRIR ALLT LANDIÐ
Á SELFOSS
Landsmót Ungmennafélags íslands eru áhugaverö fyrir ýmsar sakir. Þau
eru:
Allsherjarhátíö ungmennafélaganna. Þar gefst áhorfendum kostur á aö
kynnast starfi þeirra í reynd.
Fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Sambland keppni, sýninga og skemmtana.
Stærsta og fjölbreyttasta íþróttahátíö sem haldin er hérlendis. Þar fer
fram keppni í knattspyrnu, — sundi, — körfubolta, — frjálsum íþróttum,
— glímu, — borötennis, — blaki, — handknattleik, — júdó, — skák
og starfsíþróttum.
Þar sýna sýningarflokkar fimleika og þjóödansa.
Haldnar eru kvöldvökur og fjölskylduskemmtanir. Og síöast en ekki síst,
stuödansleikir veröa öll kvöldin, hljómsveitin K A K T U S sér um aö
allir skemmti sér.
Enginn heildarmiði — Ókeypis fyrir 10 ára og yngri.
TJALDIÐ Á SELFOSSI UM HELGINA.
Fjölskyldutjaldbúðir — Almenningstjaldbúðir —
SKJÓTIST Á SELFOSS.
Ungmennafélag íslands.