Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 16 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 157. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Soares tapaði þhignieirihluta Lissabon. 24. júlí. AP, Reuter. FLEST benti til að örlög ríkis- stjórnar Mario Soaresar væru ráðin í Portúgal í dag. er íhaldsflokkur Miðdemókrata ákvað að hætta stuðningi sínum við stjórnina og draga þrjá ráðhcrra sína til baka. Ríkis- stjórn Soaresar er sex mánaða gömul og er önnur stjórn hans síðan ný lýðræðisleg stjórnarskrá tók gildi 1976. Talsmaður íhaldsmanna skýrði frá því, að þrír flokksfélagar, sem sæti áttu í samstjórn íhalds- manna og jafnaðarmanna, hefðu sagt af sér störfum á hádegi. Þeir eru utanríkisráðherrann Victor Sa Machado, viðskiptaráðherra Basilio Horta og ráðherra fyrir endurbætur á ríkiskerfi Rui Pena. Það var miðnefnd Miðdemókrataflokksins, sem tók þessa ákvörðun og bar því við í tilkynningu að jafnaðarmcnn hefðu unnið með kommúnistum í framkvæmd landbúnaðarstefnu og snúist á sveif með sameignar stefnu á kostnað einkaframtaks. íDróltir1 Glæsilegt Landsmót 16 síðna íþróttablað fylgir Morgunblaðinu í dag. Er það að mestu leyti helgað 16. landsmóti UMFÍ, sem fór fram á Selfossi um helgina og þótti mjög vel heppnað. Bretum dýrkeypt að vera íEBE Brussel, 24. júlí. Reuter, AP. AÐILD að Efnahagsbandalagi Evrópu hefur reynzt Bretum dýrkeypt í sjávarútvegi og hefur kostað þjóðina meira en helming hugsanlegs veiðiafla að sögn brezka sjávarútvegs- ráðherrans Johns Silkins í dag. Ráðherrann skýrði frá því á blaðamannafundi, að sextíu og tvo hundraðshluta alls fisks, er Efnahagsbandalagsþjóðirnar ættu aðgang að, væri að finna á hafsvæðum Breta. Benti hann á að Bretar fengju aðeins tuttugu og sex hundraðshluta af heildarafla bandalagsins eða fjörutíu og tvo af hundraði þess afla, er þeir gætu veitt einir sér. Til samanburðar gat Silkin þess að Danir fengju tvö hundruð og áttatíu hundraðs- hluta miðað vð það sem þeir gætu haft út af fyrir sig, Belgar Framhald á bls. 47 Leiðtogi flokksins, Siogo Freitas do Amaral, lýsti því yfir að ákvörðunina bæri ekki að túlka svo sem miðdemókratar hefðu snúið baki við jafnaðarmönnum. Hann vonaðist þvert á móti til að atburðir þessir ættu eftir að verða til þess að flokkarnir samrýmdu sjónarmið sín. Tilgangurinn með afsögnum ráðherranna mun eink- um hafa verið að knýja Soares til að reka landbúnaðarráðherrann, Luis Saias, úr stjórninni og gera aðrár breytingar á stjórnarliðinu. Jafnaðarmenn sjálfir líta svo á að íhaldsmenn hafi reynt að brjóta stjórnarsáttmála þann, er gerður var eftir tveggja vikna þóf á síðasta vetri. Fréttáskýrendur eru ásáttir um að Soares eigi nú nokkurra kosta völ og sé einn þeirra að leggja fram afsagnarbeiðni fyrir ráðu- neyti sitt við Antonío Eanes og efna til nýrra kosninga. Einnig Framhald á bls. 47 „Þetta hundsspott,“ mætti halda að Begin hugsaði er Dayan víkur máli sínu að Peres. leiðtoga stjórnarandstöðunnar. á ísraelsþingi á mánudag. Dayan sést ekki á myndinni. en Peres glottir að baki Begins. Begin lumar á gagntilboðum Jerúsalem — Kaíró, 24. júlí, AP, Reuter. MENACHIM Begin, forsætisráð herra ísraels. gaf í skyn í dag að ísraelsstjórn kynni að gera Egyptum ný friðartilboð. þrátt fyrir að hann hafi hafnað að verða við beiðni Sadats, Egypta- iandsforseta, um að láta Egyptum eftir viss svæði á Sinai-skaga. Einnig lýsti Begin því yfir að hann myndi leita eftir óformleg- um vinarsamskiptum við ná- grannaríki næðu friðarsamning- ar fyrir botni Miðjarðarhafs ekki fram að ganga. „Við látum ekki eftir svo mikið sem eitt sandkorn af Sinai-eyði- mörk að gjöf,“ sagði Begin í Dollar ekki lægri eftir seinna stríð London, 24. júlí, Reuter — AP. DOLLAR hrundi í verði á gjald- eyrismörkuðum í Evrópu í dag eftir að hafa fallið niður fyrir 200 ycna markið í Tókýó í fyrsta skipti cftir heimsstyrjöidina síð- ari. Eins og ævinlega þegar óreiða ríkir á gjaldeyrismarkaði hækkaði verð á gulli snarlega. í kjölfar þcssara atburða voru kaffi og sykur skráð á lægra verði á verðbréfamarkaði í Lond- on cn tíðkast hefur um árabil. Þrátt fyrir að Japansbanki keypti um 400 milljónir dollara í dag til að sporna við frekara falli gjaldmiðilsins kom allt fyrir ekki og var dollar skráður á 197.9 yen á hádegi í London í dag, en það er lægsta verð hans í meira en 30 ár. Verð dollars hefur fallið jafnt og þétt undanfarnar vikur, en þetta er þó í fyrsta skipti að það sem kaupsýslumenn hafa nefnt hið „sálfræðilega skilrúm" við 200 yen er rofiö. Fréttin vakti gífurlega athygli í japönskum blöðum í dag og létu sérfræðingar í ljós áhyggj- ur yfir áhrifum atburðarins á japanskar efnahagsúrbætur. Bankayfirvöld og talsmenn fjár- málaráðuneytis hafa þó lýst yfir að ósennilegt sé að dollarinn tefji lengi undir 200-yena borðinu. Það kom fram hjá talsmanni japönsku ríkisstjórnarinnar, Shintaro Abe, á blaðamannafundi í dag að hann teldi að fall dollars væri tímabundið viðbragð kaup- sýslumanna við þeim orðrómi að samtök olíuútflutningsríkja hygð- ust binda verð olíu framvegis við gengi mismunandi gjaldmiðla annarra en dollars. Aðrir sérfræð- ingar hafa bent á að skýra megi hrakfarir dollars í ljósi nýafstað- inna stórfunda um efnahagsmál svo sem fundar Efnahagsbanda- lagslandanna í Bremen og sjö- veldafundarins í Bremen. Þannig var haft eftir verðbréfasala að fundurinn í Bonn hefði nákvæm- lega komið engu til leiðar í þá átt að styrkja stöðu bandaríska gjald- miðilsins í framtíðinni. Framhald á bls. 37 5hæða húshrundi írúst Kaíró, 24. júlí AP FIMM hæða sambýlishús hrundi til grunna í fátækra- hverfi i miðborg Kaíró á mánudag og varð fjörutíu og tveimur að fjörtjóni. Stórtjón varð einnig á tveimur háhýsum í grenndinni. Samkvæmt upplýsingum leit- armanna er enn verið að grafa lík úr rústunum og er talið að áðurnefnd tala geti hækkað. Að sögn lögreglu bjuggu um 50 manns í háhýsinu, þrátt f.vrir að grunur leiki á að íbúar hafi verið helmingi fleiri. Fjölbýlishúsið mun hafa hrunið um kl. sex að morgni meðan flestir íbúa voru enn í fastasvefni. argvítugum orðasamskiptum stjórnar hans og andstæðinga um stefnu í utanríkismálum í dag. Á hinn bóginn sagði Begin að ef Sadat riði á vit sín og samþykkti að leiða friðarumræður við Isra- elsmenn á ný eftir tvær vikur myndi hann gera gagntillögur á móti því að Egyptar fengju el-Aarish og Santa Kater- ínu-klaustur á Sinai-fjalli. Aftur á móti kom ekki frani hjá forsætis- ráöherranum hvers Israelsmenn kynnu að vænta í staðinn. en blöð i lsrael hafa ýjað að því að stjórnin fari þess e.t.v. á leit að Egyptar fallist á landnám og hernaðaraðstöðu Israelsmanna í Sinai. „En komi það á daginn," bætti Begin við, „að friðarsamningar reynist ógerlegir munum við fallast á að stuðla að friðsamleg- um samskiptum. Sígilt dæmi þess konar stefnu er Þýzkaland í Evrópu. Þjóðverjar undirrituðu enga friðarsamninga við lok heimsstyrjaldarinnar síðar, en búa nú í sátt og samlyndi við alla nágranna sína.“ Begin var iðulega truflaður í Framhald á bls. 17 Vargöldin nær til Salisbury Salisbury, 24. júlí Reuter SLEGIÐ hefur í brýnu með þjóðernissinnuðum hlökkumönn- um og öryggissveitum í úthverf- um höfuðborgar Rhódesi'u í fyrsta sinn síðan borgarastyrjöld- in hófst fyrir sex árum að siign lögreglu í dag. Þrír uppreisnar- menn létu lífið og tveir sa>rðust og voru teknir hiindum. Vopnaviöskipti áttu sér stað í úthverfunum Mufakose og High- Framhaid á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.