Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
5
Viðskiptaviðræður íslands og Sovétríkjanna:
Rússar kaupa
peysur fyrir
160 milljónir
Þessi mynd var tekin af hreindýrahópi á Vesturöræfum, þegar hreindýrin voru talin um miðjan mánuðinn.
Ljósm. Egill Sigurðsson.
Hreindýrum hefur á 2
árum fækkað um 1000
TALNING á hreindýrum, sem
framkvæmd var dagana 14. og 15.
júlí sl. sýndi að hreindýrum heíur
fækkað verulega sl. tvö ár. Venja
er að telja hreindýrin með loft-
myndatöku og sýndi talning. sem
framkvæmd var sumarið 197f> að
dýrin væru um 4000 en í fyrra var
ekki hægt að telja hreindýrin
vegna mikilla snjóa á hálendinu.
Nú i sumar komu aðeins 2576 dýr
fram á loftmyndunum og er því
áætlað að hreindýrastofninn sé
nú um 3000 dýr.
I ljósi þessa hefur menntamála-
ráðuneytið samþykkt að heimila
veiði á nokkru faerri dýrum en
áður. Verður nú leyft að veiða 1025
dýr en í fyrra var heimilað að
veiða 1500 dýr. Að sögn Birgis
Thorlacíus ráðuneytisstjóra í
menntamálaráðuneytinu hefst
veiðitími hreindýranna 1. ágúst
n.k. og stendur til 15. september og
er veiðileyfunum skipt niður á 31
hrepp á Austurlandi.
UNDANFARNA daga hafa farið fram í Reykjavík viðræður
um viðskipti íslands og Sovétríkjanna með hliðsjón af 5 ára
viðskiptasamningnum, sem gildir árin 1976—80. Sovéska
viðskiptanefndin var undir forystu Jakobs Volkovs,
skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu í Moskvu, en
formaður íslenzku nefndarinnar var Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri.
Báðir aðilar voru sammála um,
að viðskipti landanna hefðu yfir-
leitt gengið vel, þótt talsverðár
sveiflur hafi átt sér stað. Var rætt
um ráðstafanir til að tryggja
jafnari sölu á íslenzkum ullarvör-
um. Meðan sovézka nefndin dvaldi
hér var gengið frá samningi um
kaup á 51.000 ullarpeysum frá
Sambandi ísl. samvinnufélaga.
Hjörtur Eiríksson hjá Sam-
bandinu sagði við Mbl. að verð-
mæti þessara peysa væri í kring-
um 160 milljónir og yrðu þær
afgreiddar á þriðja ársfjórðungi.
Hjörtur sagði ennfremur, aö ekki
yrði um að ræða framleiðsluaukn-
ingu á þessu ári en ráðgert væri
að gera samninga um sölu
snemma á næsta ári. Aðrir
samningar sambandsins ganga
sinn vanagang að sögn Hjartar.
íslenzka nefndin lagði áherzlu á
nauðsyn þess að greiða fyrir
frekari sölu á ullarvörum og
iagmeti og ennfremur að flýta
fyrir því, að samningar um aukin
kaup á saltsíld gætu hafizt.
1. ágúst eru liðin 25 ár síðan
fyrsti almenni viðskiptasamning-
urinn milli íslands og Sovétríkj-
anna var gerður.
Heyfengur verð-
ur mun minni
Bæ. 24. júlí.
FYRSTU bamdur eru nú hyrjaðir
heyskap og sumir búnir að na inn
töluverður heyjum með góðri
verkun. Sýnilegt er að heyfengur
verði miklu mun minni en verið
hefur sérstaklega vegna mikilla
kuida og kals í túnum.
Byrjað er nú að bora eftir heitu
vatni að Reykjum í Hjaltadal
vegna hitaveitu á Hólum og
nágrenni. Enn þá er ekki árangur
kominn enda boranir ný hafnar.
Ogrynni er nú af fugli við
Drangey og eru menn nú frammi
við eyna í háfveiði og gengur
ágætlega. Handfæraveiði smábáta
hefur verið treg en togskip hafa
aflað ágætlega og er því næg
atvinna. Björn.
Tengingu Vatns-
veitu Stykkis-
hólms að ljúka
Stykkishólmi
21. júlí 1978
NÚ ÞESSA dagana er verið að
leggja seinustu hönd á teng-
ingu Vatnsveitu Stykkishólms
og með þeim áfanga, sem nú
er að ljúka, er búið að
Færeying-
ar hingað
í hópf erð
Á VEGUM „Strandferðslunar“ í
Færeyjum verður 14 daga hópferð
frá Færeyjum hingað til lands
dagana 11.—26. ágúst n.k. Þetta er
fyrsta hópferð hingað á vegum
Strandferðslunnar og verður á
hálfum mánuði ekið hringinn um
landið, en hópurinn kemur með
Smyrli. Færeyskur léiðsögumaður
verður fyrir hópnum og verða
flestir helztu ferðamannastaðirnir
heimsóttir og dvalið í Reykjavík í
3 daga.
endurnýja hana alla um 12 tii
13 km veg, þ.e. að leggja nýjar
leiðslur f rá Svelgsárhrauni og
niður í Stykkishólm. Verkið
hefir verið unnið undanfarin
ár og með þessum seinasta
áfanga á vatnsþörf Stykkis-
hólms að vera borgið að
minnsta kosti í nánustu
framtíð.
Upphaflega var vatnsveitan
byggð árið 1946—48, og var
vatnið tekið úr vatnsbóli úr lind
sem streymir frá Drápuhlíðar-
fjalli. Síðar reyndist það ekki
nóg og var þá tekið æð úr
Vatnsdalsvatni, en það reyndist
ekki sem best og þá var leitað í
uppsprettulindir í Svelgsár-
hrauiti og er það vatn ágætt.
Einnig voru vatnsrörin stækkuð
og valið betra efni. Með þessum
seinasta áfanga hefir Stykkis-
hólmur fengið ágæta vatnsveitu.
Verkið hefur í alla staði
gengið vel.
Fréttaritari.
allt húsið.
A/klæðning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru inn-
brenndir og þarf aldrei að rnála.
A/klæðning er seltuvarin og hrindir frá sér óhreinindum.
Fáanlegir eru ýmsir fylgihlutir með A 'klæðningu sem hefur þurft að
sérsmíða fyrir aðrar klæðningar, auk þess er hún þykkari og þolir
því betur hnjask. A/klæðning hefur sannað yfirburði sína,
og reynst vel í íslenskri veðráttu.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar.
Sendið teikningar og við tnunum reikna út efnisþörf og gera verð-
tilboð yður að kostnaðarlausu.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASfMI 71400.