Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 17 ENGINN vafi leikur á því að 16, landsmót UMFÍ, sem haldið var á Selfossi um helgina, er eitt hið glæsilegasta í sögu landsmótanna. Þátt- takendur voru nú fleiri en nokkru sinni fyrr eða um 1100 talsins og árang- ur f einstökum íþrótta- greinum hefur aldrei ver- ið jafn góður. Var það mjög áberandi að íþrótta- fólkið kom nú betur undirbúið og æft til móts- ins en fyrri landsmóta UMFÍ. Vegna þess hve þátt- takan var mikil varð að hefja keppnina einum degi fyrr en venjulega eða á föstudag. Mótið var síðan sett sama kvöld af Hafsteini Þorvaldssyni formanni UMFÍ en meðal gesta voru forsetahjónin. Var síðan keppt frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld bæði iaugardag og sunnudag og mótinu slitið á sunnu- dagskvöld. 10-15 ÞÚSUND GEST- IR Landsmótin eru stærstu íþróttahátíðir ís- lenzkrar æsku og fylgist jafnan mikill fjöldi áhorfenda með því sem fram fer. Talið er að 10—15 þúsund gestir hafi sótt landsmótið að þessu sinni og er það nokkru færra en forráða- menn mótsins höfðu reiknað með. Er enginn vafi á því að veðrið hefur haft hér mest að segja því þótt sól hafi skinið á laugardag og sunnudag var mjög hvasst báða dagana og skemmdi það fyrir annars ágætlega heppnuðu móti. GLÆSILEG ÍÞRÓTTAKEPPNI Um íþróttakeppnina sjálfa er það að segja að hún tókst í alla staði mjög vel þrátt fyrir óhag- stætt veður. Frjáls- íþróttakeppnin vakti eins og áður mesta at- hygli og hún var sú glæsilegasta, sem um get- ur á landsmóti. Keppnin var mjög skemmtileg og árangur sérlega góður. Landsmótsmet voru sett í flestum greinum og ís- landsmet í einni grein. Sundkeppnin var sömu- leiðis sérlega giæsileg og þar voru sett landsmóts- met í flestum greinum. í stigakeppni mótsins hafði Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) al- gera yfirburði en sigur- vegari síðasta móts, UMSK varð nú í öðru sæti. Þetta 16. landsmót UMFÍ sannaði það áþreifanlega að mikil gróska er nú í íþrótta- starfi UÍA og HSÞ og segja má að keppnisfólk þessarra tveggja íþrótta- sambanda hafi stolið sen- unni á landsmótinu. SKIPULAG Ef á heildina er litið má segja að skipulag mótsins hafi verið gott. Að vísu gekk þetta ekki hnökralaust frekar en á fyrri landsmótum enda enginn leikur að skipu- leggja svona stórmót í sjálfboðavinnu og með stuttum fyrirvara. Tíma- setningar stóðust að mestu og það hefur vafa- laust gert starfsmönnum auðveldara fyrir að öll íþróttaaðstaða er mjög góð orðin á Selfossi og íþróttamannavirki þar hver öðrum glæsilegri. NÆSTA LANDSMÓT í EYJAFIRÐI Næsta landsmót UMFÍ verður á svæði Ung- mennasambands Eyja- fjarðar árið 1981. Mótinu hefur ekki verið valinn staður ennþá en það verður gert bráðlega. Blaðamenn Morgun- blaðsins fylgdust með mótinu og hér í þessu rður þess freistað að gera mótinu jafn rækileg skil og frekast er kostur. Landsmótin eru ómót- mælt stærstu íþrótta- viðburðir íslenzkrar æsku hverju sinni og þau verðskulda rækilega og nákvæma umfjöllun fjöl- miðla. - SS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.