Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 25 'AKEPPNIN SÚ \NDSMÓTANNA ikki sérlega vel upp að þessu sinni ig hún varð að sjá af titlinum til únnar sigursælu þingeysku stúlku lergþóru Benónýsdóttur, sem >arna vann sinn annan landsmóts- ligur sama daginn. Fyrr þennan lama dag, þ.e. laugardaginn hafði íún unnið yfirburðasigur í 100 netra grindahlaupi. Þá setti hún andsmótsmet en í langstökkinu itóð met Hafdísar frá landsmótinu 975 óhaggað. Metið er 5,54 metrar >n Bergþóra stökk 5,30 metra. lergþóra hefur að sögn lagt litla •ækt við langstökkið en greinilegt ;r að hún á alla möguleika á því ið ná langt í þessari grein ef hún eggur við hana rækt í framtíðinni. Jllum á óvart varð önnur þingeysk itúlka í öðru sæti, Laufey Skúla- lóttir. Hún stökk 5,22 metra. rvöfaldur þingeyskur sigur og lýrmæt stig til HSÞ í stigakeppn- nni. JRSLIT, m 1. Bergþóra Benónýsd. HSÞ 5.30 2. Laufey Skúladóttir HSÞ 5.22 3. Hólmfrfður Erlinxsd. IIMSE 5.21 4. íris Grönfeldt UMSB 5.20 5. Hafdís InKÍmarsd. UMSK 5.16 6. Ásta B. Gunnlaugsd. UMSK 5.15 7. Oddný Árnadóttir UNÞ 5.12 8. Hulda Laxdal USÚ 5.10 9. Ingibjörg fvarsd. HSK 4.98 10. Anna Alfreðsd. HSK 4.97 11. Björg Eysteinsd. UMSK 4.91 L2.-13. Guðrún Geirsdóttir USVS 4.68 12.-13. Kristjana Skúlad. HSÞ 4.68 14. Sólborg Steinþórsd. USVS 4.65 15. Steinunn Hannesd. HSK 4.64 16. -17. Arney Magnúsd. UÍA 4.61 16.-17. Lilja Stefánsd., HSH 4.61 18. Dagný Hrafnkelsd., UÍA 4.60 19. Ilclga Halldórsd.. HSH 4.56 20. Svala Vignisd.. HVÍ 4.51 21. Hólmfrfður Guðmundsd. UMSS 4.42 22. -23. Anna Bjarnadóttir HVÍ 4.30 22.-23. Þuríður Árnadóttir UMSE 4.39 24. Helga Gfsladóttir UDN 4.32 25. Ásta Helgadóttir USVS 4.17 26. Kristfn Einarsdóttir HVÍ 4.08 KÚLUVARP Eins og vitað var fyrirfram hafði Guðrún Ingólfsdóttir gífur- lega yfirburði í þessarri grein og hún gerði sér lítið fyrir og setti nýtt glæsilegt Islandsmet, varpaði kúlunni 13 metra slétta. Jafnframt bætti hún landsmótsmetið um hvorki meira né minna en 2,36 metra. Gamla metið átti Oddrún Guðmundsdóttir úr Skagafirði, 10,64 metrar, sett á Laugum 1961. Varð það elzta landsmótsmetið í kvennagreinum. ÚRSLIT, m 1. Guðrún Ingólfsd. USU 13.00 2. Sigurlína Hreiðarsd. UMSB 10.98 3. Katrfn Vilhjálmsd. HSK 10.74 4. Halldóra Ingólfsd. USU 10,42 5. Helga Jónsdóttir HSÞ 9.83 8. Guðný Sigurðard. USVS 9,69 7. Sólveig Þráinsd. HSÞ 9,62 8. Erla Oskarsdóttir UNÞ 9,44 9. Hulda Laxdal USÚ 9,24 • Hlaupagarpar frá Austfjörðum sem gerðu garðinn frægan á landsmótinu. Frá v. Pctur Eiðsson. Björn Skúlason og Steindór Tryggvason. sigurvegari í 800 metra hlaupi. 10. Þuríður Einarsd. HSK 9.12 11. Unnur Pétursdóttir HSÞ 9.10 12. Elín Gunnarsdóttir HSK 9,06 13. Hjördís Harðardóttir HVf 9.04 14. -15. Alda Helgadóttir UMSK 9.02 14.-15. Elfn Ragnarsdóttir HSS 9,02 16. Brynja Guöjónsdóttir USVS 8.82 17. Guðný Jónasdóttir UfA 8.24 18. Þórhildur Jónsd. USVS 8.15 Bergþóra aldrei verið betrí BERGÞÓRA Benónýsdóttir, tví- tug stúlka frá Hömrum í Reykjadal í Suður-Þingeyjar- sýslu, var ein skærasta stjarna landsmótsins. Hún sigraði í þeim þremur greinum, sem hún mátti taka þátt í, 100 metra hlaupi, 100 metra grindahlaupi og langstökki. „Ég byrjaði fyrst að keppa í frjálsum íþróttum þegar ég var 13 ára gömul. En þetta er í fyrsta skipti sem ég æfi af fullum krafti allt frá áramót- um,“ sagði Bergþóra þegar Mbl. ræddi við hana á sunnudaginn. „HSÞ-hópurinn hefur æft vel fyrir þetta mót. Guðmundur Þórarinsson kom norður til Húsavíkur í vetur og lét okkur fá æfingaprógramm. Síðan kom Höskuldur Goði Karlsson til HSÞ í vor og hann hefur þjálfað hópinn undanfarnar vikur og höfum við haft mjög gott af því að fá hann til okkar.“ Bergþóra býr á Húsavík og þar býr einnig Jón bróðir hennar, en þau systkinin hafa verið í fremstu röð í frjálsum íþróttum innan HSÞ undanfarin ár. Reyndar tók Bergþóra sér hvíld frá keppni tvö síðustu sumur þar sem hún átti barn seint á árinu 1976 en í ár hefur hún stundað íþróttirnar af kappi og dugnaði og árangurinn lætur ekki á sér standa. Berg- þóra er nú komin í fremstu röð frjálsíþróttakvenna á íslandi og hún hefur verið valin í landslið- ið. Enginn vafi er á því að Bergþóra getur náð enn lengra ef hún heldur áfram að æfa af krafti. Sigurinn í hlaupunum kom kannski ekki á óvart en hitt kom meira á óvart að Bergþóra skyldi vinna langstökkið. Það duldist líka engum að hún var ekki vön að keppa í langstökki. „Þetta var í fjórða skipti sem ég stekk langstökk og ég viður- kenni það fúslega að stíllinn er ekki upp á það bezta hjá mér. Ég viðurkenni það líka fúslega að ég átti alls ekki von á því að verða með þeim fremstu í langstökkinu hvað þá vinna. Það væri gaman að spreyta sig svolítið meira á þessari grein en það eru nú ekki hæg heimatökin, því það er engin langstökks- gryfja til á Húsavík." MPM ■m • Systkinin og afreksfólkið Bergþóra Benónýsdóttir og Jón Benónýsson IISÞ. 19. Katrín Guðmundsd. HVf 8.00 20. Jóhanna Konráðsd. UMSB 7.86 21. Guðný Snorrad. UMSS 7.82 22. Harpa Róbertsd. UÍA 7.36 KRINGLUKAST Eins og vænta mátti hafði Guðrún Ingólfsdóttir íslandsmet- hafi gífurlega yfirburði yfir stöllur sínar í kringlukastinu. Kastaði hún kringlunni rúmum 8 metrum lengra en næsti keppandi og helzta spennan við keppnina var sú, hvort Guðrúnu tækist að kasta yfir 40 metra. Tvívegis kastaði Guðrún kringlunni rúma 39,50 metra og einu sinni 39,96 metra en ekki vildi kringlan yfir 40 metra markið í þetta sinn. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að árangur Guðrúnar er nýtt glæsilegt landsmótsmet. ÚRSLIT, m 1. Guðrún Ingólfsdóttir USU 39.96 2. Þuríður Einarsdóttir HSK 31.72 3. SÍKurlina Hreiðarsd. UMSE 31.02 4. Elín Gunnarsdóttir HSK 30.58 5. Elín RaKnarsdóttir HSS 28.30 6. SólveÍK Þráinsd. HSÞ 26.40 7. Dröfn Guðmundsd. UMSK 27.06 8. Anna Bjarnadóttir HVÍ 26.92 9. borbjörK Aðalsteinsd. HSÞ 26.26 10. Svava Arnórsdóttir USÚ 25.08 11. Halldóra Jónsdóttir UÍA 24.90 12. Ingibjörg Pálsdóttir IISK 24.48 13. íris Jónsdóttir UMSK 24.20 14. InKÍbjörK Kristjánsd. USAH 23.28 15. Kristjana Skúlad. HSÞ 23.08 17. Þórhildur Jónsd. USVS 22,54 18. Guðný Jónsdóttir UÍA 22.12 19. Þórdís Guðmundsd. USAII 20.54 20. Jóhanna Konráðsd. UMSB 19.82 21. Guðrún Snorrad. UMSS 18.21 22. Erla Óskarsdóttir UNÞ 18,10 23. Brynja Guðjónsd. USVS 15.74 24. IlelKa Halldór.sd. HSH 15.36 SPJÓTKAST Það var aldrei neinn vafi á því hver yrði sigurvegari í spjótkast- inu. María Guðnadóttir kastaði fljótlega í keppninni 37,28 metra og bætti þar með landsmótsmet Öldu Helgadóttur um 23 senti- metra. Þetta reyndist sigurkast keppninnar. Fyrri methafi, Alda Helgadóttir, varð að láta sér nægja þriðju verðlaun og íris Grönfeldt, sem margir höfðu spáð sigri í þessari grein hreppti annað sætíð. ÚRSLIT, m 1. María Guðnadóttir HSil 37.28 2. Iris Grönfeldt UMSB 34.82 3. Alda Helgadóttir UMSK 32.44 4. Sólveig Þr&insdóttir HSÞ 31,76 5. Anna Alfreðsdóttir HSK 29.98 6. Hafdis Iniíimarsd. UMSK 29.88 7. Þórhildur Jónsd. USVS 28.82 8. Ásta B. Gunnlauitsd. UMSK 26.88 9. Helsra HallKrfmsd. HSK 26.32 10. Guðrún Geirsdóttlr USVS 25.04 11. HelKa Jónsdóttir HSÞ 24.08 12. Laufey Skúladóttir HSÞ 22.90 13. Katrín Guðmundsd. HVÍ 22.10 14. ElínborK Jónsdóttir UÍA 21.50 Karlar 100 METRA HLAUP Úrslitahlaupið var haldur betur sögulegt, því tveir af sterkustu hlaupurunum hættu við í startinu, töldu að unt þjófstart hefði verið að ræða. Ræsir gerði aftur á móti enga athugasemd og því misstu þessir tveir menn raunverulega af lestinni. Sigurvegari varð Hilmar Pálsson á 10,8 sekúndum, sem er betra en gildandi landsmótsmet Guðmundar Vilhjálmssonar UIA, sett 1952 en meðvindur var of mikill í hlaupinu til þess að árangurinn teldist löglegur. Til úrslita hlupu þeir Hilmar Pálsson, Jakob Sigurólason, Aðal- steinn Bernharðsson og Jón Sverrisson. Kapparnir þjófstört- uðu einu sinni og voru þeir þá ræstir aftur af ræsi mótsins, Guðmundi Þórarinssyni íþrótta- þjálfara. I seinna startinu var greinilegt að Hilmar fór fyrstur úr startholunum. Aðalsteinn fór næstur af stað en bæði Jón og Jakob hikuðu, töldu að um þjóf- start hefði verið að ræða hjá Hilmari. Tóku þeir ekki við sér fyrr en þeir sáu Hilmar og Aðalstein skeiða frá sér. Tóku þeir þá mikinn sprett en þeir áttu aldrei neina möguleika á því að ná Hilmari, sem kom fyrstur í mark, öruggur sigurvegari. Upphófust nú ntiklar umræður um þetta atvik og voru margir félagar í UMSK reiðir mjög, þar sem þeir töldu að ræsir hefði átt að flauta og kalla hlauparana í Framhald á næstu opnu UMFÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.