Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25' JÚLÍ 1978 hala í þessum leik, var allt of laus því allt spil liösins á upptök sín hjá Árna ásamt Karli. Meö þessum góða sigri halda Skagamenn enn í vonina um sigur í deildinni, þar sem ekki má mikið fara úrskeiðis hjá Val til þess að Skagamenn séu komnir með for- ystu í deildinni. Það er raunar Ijóst að þessi tvö lið, Akranes og Valur eru yfirburðalið í deildinni og önnur lið standa þeim talsvert langt að baki. Lið KA er óþekkjanlegt frá léik til leiks. Það má nær bóka að eigi liðið þokkalegan leik, sem þó er ailt of sjaldan, verði nsesti leikur iangt fyrir neðan það sem sóma- samlegt getur talist af 1. deildar liði. I leiknum gegn Akranesi gleymdu KA-menn varnarskyldum sínum framan af leiknum og því fór sem fór. Enginn leikmanna KA var nálaegt sínu besta og jafnvel þeirra styrkustu stoðir, svo sem Þorbergur, voru úti að aka. Valur Benediktsson dæmdi leik- inn og var frammistaða hans neðar en fyrir neðan allar hellur. í STUTTU MÁLIi Akuroyrarvöllur 1. dcild. Lau^arda^ur 22. julí 1978. KA lA 0,5 (0,1) MÖHKIN, Hétur I’étursson 7. mín.. 20.. 27. «k 82. mín. Matthías IlallKrímsson 25. mín. ÁMINNINÍi, Eniiin. ÁIIORFENDUR. 090. 4 mörk ÍA á 27 útum afgreiddu SKAfiAMENN unnu stórsigur á KA norður á Akureyri á laugardag. Fimm sinnum máttu KA-menn sjá á eftir boltanum í net sitt. en KA tókst aldrei að skora. Pétur Pétursson. hinn ungi og bráðefnilegi sóknarmaður Skagamanna var hetja leiksins. skoraði fjiigur mörk. Hið fimmta gerði hin markamaskinan. Matthías IlaHgrimsson. Skagamenn byrjuðu leikinn af þar var Matti á réttum stað og miklurn krafti og ekki voru liðnar nema sjö mínútur þegar fvrsta markið var staðreynd. Árni Sveinsson sendi þá langa sendingu fram á Pétur og hann var ekkert að tvínóna við hlutina, smeygði sér fram hjá tveimur varnarmönnum KA og skaut föstu og hnitmiðuðu skoti í hornið án þess að Þorbergur kæmi nokkrum vörnum viö. Á tuttugustu mín. juku Skagamenn forskotið. Árni Sveinsson brunaði upp og skaut föstum jarðarbolta í átt að markinu. Miðvörður KA, Haraldur Haraldsson lét boltann fara í stað þess að hreinsa og Pétur stakk sér inn á milli varnarmanna KA og renndi bolt- anum í netið af stuttu færi. Á tuttugustu og fimmtu mín. var komið að Matta að skora. Karl Þórðarson splundraði þá vörn KA algerlega, lék á hvern varnar- manninn á fætur öðrum og renndi boltanum út frá endamarkalínu og honum var eftirleikurinn auðveld- ur. Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin fjögur gegn engu. Karl tók þá hornspyrnu, sendi lágan bolta fyrir markið og Pétur stakk sér inn í þvöguna og skoraði örugglega. Texti: Gunnar Gunnars- son Eftir þetta slökuðu Skagamenn heldur á og það sem eftir lifði gerðist harla lítið í leiknum, utan það^ helst að Skagamenn bættu sínu fimmta og síðasta marki við. Það var á 82. mín. Árni Sveinsson óð þá upp kantinn sem oftar og sendi fyrir markið. Þorbergur markvörður missti boltann klaufa- lega milli handa sér og Pétur var mættur eins og fyrri daginn og skallaði auðveldlega í markið. Það var aðeins einu sinni sem mark Skagamanna komst í upp- nám. Það var á 80. mín. að dæmd var aukaspyrna á Skagamenn skammt f.vrir utan vítateig. Eyj- ólfur Ágústsson skaut skemmti- legunt snúningsbolta (bananna) sem lenti innan á stöng marksins og rann f.vrir markið og síðan var bjargað. Segja má með sanni að Skaga- menn hafi gert út um leikinn á fyrstu þrjátíu mínútunum með ágætum leik. Eftir það virtust þeir ekki leggja sig verulega fram, þar sem sigurinn var í höfn. Karl Þórðarson átti mjög góðan leik að þessu sinni, öruggur í sínum gerðum eins og fyrri daginn. Þá mun leikur Péturs Péturssonar vart gleymast þeim sem sáu, enda orðið fremur fátítt í hinni hörðu keppni 1. deildar að sami leik- maður skori fjögur mörk. Árni Sveinsson fékk og að leika lausum min- KA • Pétur Pétursson skoraði íjög- ur mörk gegn KA. • Páll Pálmason markvörður Eyjamanna horfir á eftir knettinum sigla yfir markið. eftir markskot FH-inga. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem skot FIFinga geiguðu og ekki í síðasta skiptið heldur. ísiandsmðtlð 1. delld FH TAPAÐI, EN ÁTT1BETRASKIUÐ STAÐA FIl í fyrstu deilt batnaði ekki er liðið fékk ÍBV í heimsókn á Kaplakrika á laugardaginn. Eyjamenn sigruðu með tveimur mörkum gegn engu. en sú markatala gefur alranga mynd af gangi leiksins. jafntefli hefði verið sanngjarnara og lokatölurnar hefðu auðveldlega getað orðið eitthvað í likingu við 5—5 eða citthvað svoleiðis. Þetta var nefnilega hörkuskemmtilegur og opinn sóknarleikur og þeir 290 áhorfendur. sem borguðu sig inn. fengu að sjá góðan leik fyrir aurana sína. Ekki virtust þó allir skemmta sér. þarna var dálítill hópur fyllirafta sem voru yfirgengilega leiðinlegir með háreysti sinni. Beindist hún einkum að dómaranum Sævari Sigurðssyni sem dæmdi ekki eftir þeirra höfði. Fuku fjölbreytilegar hótanir svo ekki sé minnst á klámið úr börkum raftanna og voru þeir vægast sagt þreytandi. Tónninn var gefinn þegar á fyrstu mínútunum, er Valþór skaut hörkuskoti rétt fram hjá marki FH. En það voru FH-ipgar sem voru mun hættulegri framan af, Ólafur Danivals skapaði oft hættu með skemmtilegum sprett- um niður kantana og flestir leikmanna FH voru með á nótun- um. Viðar átti hörkuskot sem fór fram hjá af varnarmanni og Pálmi átti fallegan skalla rétt yfir hornspyrnu. Eyjamenn höfðu ver- ið daufir til þessa, en á 20. mínútu fékk Sigurlás knöttinn út á vinstri Texti: Guðmundur Guö- jónsson Mynd: Emilía Björnsdóttir vænginn frá Oskari Valtýssyni, SigurláS lék upp að endamörkum og renndi þaðan knettinum út í teiginn á Ómar Jóhannsson sem sendi hann í netið með viðstöðu- lausu hörkuskoti. Það tók FH-inga 10 mínútur að rakna úr rotinu og á meðan voru Eyjamenn tvívegis nærri því að skora, Sigurlás skaut rétt fram hjá og FH-ingar björg- uðu á línu frá Sveini Sveinssyni eftir mikinn darraðardans í víta- teignum. Leikurinn komst í jafn- vægi á ný og var hætta við bæði mörkin. Magnús Teitsson og Janus höfðu næstum skorað fyrir FH og Valþór fyrir ÍBV, en rétt fyrir hlé sendi Þórir Jónsson laglegan stungubolta inn fyrir vörn IBV á Ólaf Danivals, sem lék á Pál Pálmason í marki ÍBV, en skaut síðan í hliðarnetið. Ólafur meidd- ist við þetta tækifæri og á óvart kom þegar Sævar dómari dæmdi rangstöðu á Ólaf, línuvörðurinn hafði að vísu gefið merki strax, en úómarinn gerði enga athugasemd fyrr en löngu síðar. Hefði snör dómgæsla í þessu tilviki sparað Óla eins og ' einn marblett og nokkurra daga helti. Síðari hálfleikur var framan af svipaður þeim fyrri, þ.e.a.s. opinn og skemmtilegur sóknarleikur, en þó full grófur á köflum. Friðrik markvörður FH varði snemma tvívegis frá Sveini og hinu megin varði Páll Pálmason vel frá Janusi og Ólafi Danivalssyni. Rétt áður en Eyjamenn gerðu út um leikinn með öðru marki sínu, fengu FH-ingar eitt besta færi sitt í leiknum, er frábær samleikur Þóris, Ólafs og Janusar endaði með skoti naumlega fram hjá úr opnu færi. Nokkrum mínútum síðar varði -Friðrik vel frá Óskari Valtýssyni og síðan kom markið sem hjó á slagæðar FH-inga. Markið var glæsilegt, aukaspyrna rétt utan vítateigs og Örn Óskars- son sendi knöttinn efst í mark- hornið fjær með fallegu snúnings- skoti. Eftir þetta, dofnaði svo yfir leiknum að hann gerðist beinlínis leiðinlegur á að horfa, þó komu Ijósir punktar, er Páll varði hjólhestaspyrnu Ólafs Dan og Friðrik varði meistaralega skalla frá Óskari. En leikurinn smá fjaraði út og markið, sem lá í loftinu að FH m.vndi skora, liggur þar enn, því að þeir töpuðu með núlli þrátt fyrir mörg ágæt færi. All margir leikmenn áttu góðan dag að þessu sinni, hjá FH má t.d. nefna þá Friðrik Jónsson, Gunnar Bjarnason, Janus Guðlaugsson, Loga Ólafsson, Ólaf Danivals og Þóri Jónsson. Hjá ÍBV var Karl Sveinsson bestur, en einnig stóðu þeir Örn, Friðfinnur, Sveinn og Ómar vel fyrir sínu. í STIJTTU MÁLI. Kaplakrikaviillur 1. deild FII — ÍBV 0-2 (0-1) MÖRK ÍBV. Ómar Jóhannsson (20. mín.) uk Örn Óskarsson (05. mín.). ÁMINNINGAR. Ómar Jóhannsson sá Kult. DÓMARI. Sa’var SÍKurðsson. ÁIIORFENDUR. 290.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.