Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 19 Hvað segja mótsgestir? Eiríkur Þorvaldsson símvirki. Ég hef eingöngu haldið mig hér á íþróttavellinum og horft á knattspyrnuna og frjálsar íþróttir. Knattspyrnan hefur verið frekar léleg, en mikil keppni í frjálsu íþróttunum. Mér sýnist öll aðstaða hér góð, en ég vil taka undir það sem einn ræðumaður sagði áðan, ég held að það hafi verið Jóhannes Sigmundsson, að þeir mega gæta sín á því, að mótið þenjist ekki það út, að félög treysti sér ekki til að halda þau. Jón Sigurðsson, Reykjalundi. Hinn kunni hlaupari Jón Sigurðsson frá Útihlíð í Biskups- tungum sat í bifreið sinni og fylgdist þaðan með frjálsíþrótta- keppninni. Það var í febr. á s.l. ári, að Jón varð fyrir alvarlegu slysi, sem batt enda á íþróttaferil hans, þar sem hann lamaðist upp að öxlum, en með fádæma þraut- seigju og viljastyrk, eins og hann sýndi á hlaupabráutinni, hefur honum tekizt að ná umtalsverðum bata og ekur hann nú bifreið og getur meira að segja gengið lítillega með hækjum. Jón keppti á landsmótunum á Laugavatni 1965, Eiðum 1968, Sauðárkróki 1971 og á Akranesi 1975. Hann keppti aðallega í 1500 og 5000 m. hlaupum og hefur unnið góða sigra. Mörgum er minnistætt er hann sigraði í 5000 m. hlaupi á Sauðárkróki nærri hring á undan næsta manni, slíkir voru yfirburð- ir hans. — Veðrið hefur stórskemmt fyrir, sérstaklega í hringhlaupun- um en að öðru leyti er ég ánægður með það sem hér hefur farið fram. Sérstaklega er ég hrifinn af því hve félögin út um landið standa sig vel og eiga góðu afreksfólki á að skipa, sem hefur gert það að verkum að keppnin verður öll mun skemmtilegri, sagði Jón. Aðstaðan á Selfossi er góð eða réttara sagt glæsileg til íþrótta- iðkana, sagði Jón að lokum. Úlfar Norðdal vinnumaður að Helgafelli í Mosfellssveiti Ég kom hingað í dag, sunnudag, og hef haft mjög gaman af því að fylgjast með hlaupunum og sýningargreinunum. Sérstaklega þykja mér fimleikastúlkurnar frá Gerplu góðar. Nei, ég hef aldrei komið á landsmót áður og eins og ég sagði þá finnst mér gaman að koma hingað, en veðrið mætti kannski vera svolítið betra, en það er erfitt að ráða við það. farið fram. Ég er sérstaklega ánægður með sundkeppnina og þá glæsilegu aðstöðu í sambandi við sundið, sem búið er að koma hér upp. Það var glæsibragur yfir verðlaunaafhendingunni í sund- inu, þar sem blásið var í lúður, en síðan gengu sigurvegarar í röð að verðlaunapalli og þar var einhver íþróttafrömuður, sem afhenti verðlaunin. Þetta var til fyrir- myndar og minnti mann á Olympíuleikana. Það, sem ég hef séð, finnst mér mótinu hafa verið rösklega stjórn- að og framkvæmd í heildina góð. Þá verð ég að minnast á fimleikastúlkurnar frá Gerplu, sem sýndu á skemmtuninni í íþróttahúsinu. Þær voru hreint frábærar, það bezta sem ég hef séð til íslenzks fimleikafólks. Gylfi Scheving, ólafsvfk. — Ég er hér sem liðsstjóri með knattspyrnuliði HSH og við ætlum okkur að reyna að vinna Blikana í úrslitunum. Mér hefur líkað vel dvölin hér og íþróttaaðstaðan' er til fyrirmyndar, og ég held að framkvæmd mótsins hafi tekizt vel, allténd það sem ég hef séð. Þá vil ég geta þess, að tjaldsvæðið er til mikillar fyrirmyndar. En nú erum við að byrja úrslitaleikinn í knattspyrnunni, rétt bráðum og ég þarf að huga að mínum mönnum. Ingvi Guðmundsson, Garðabæ Það hefur verið of lin stjórn á þessu móti og margt gerzt, sem hefur skapað vandamál. Það þarf að endurbæta reglugerðina fyrir mótið. Ég er ekki að gagnrýna stjórnendur, heldur hitt að við þurfum að huga betur að reglum varðandi ýmsar greinar. Ef vanda mál koma upp hættir mönnum of mikið til að leysa þau á annan hátt en reglur segja. Aðstaða hér er góð og ekkert nema gott um það allt að segja, sagði Ingvi að lokum. Björn Gíslason íþróttafrömuð- ur á Selfossi. Ég held að framkvæmd mótsins hafi tekizt vel, þegar á heildina er litið, sagði Björn, en að sjálfsögðu má eitthvað að öllu finna. Ég er mjög ánægður með það sem gert hefur verið hér í sambandi við alla aðstöðu til íþrótta og ég er viss um að það á eftir að skila sér í auknu starfi • íþróttafólks og betri árangri. Þá vona ég, að þetta mót hafi vakið Selfyssinga almennt til að gefa íþróttum meiri gaum og að þeir fái meiri metnað fyrir sínu íþróttafólki, en á það hefur skort hér, að mínum dómi. Hallur Gunnlaugsson íþrótta- kennari á Akranesi. Ég hef reynt að fylgjast með sem flestu af því, sem hér hefur • UMFK fékk þrjá fyrstu í borðtenniskeppni karla. frá vinstn Jon Sigurösson sigurvegari. Sigurjón Sveinsson annar og Árni Gunnarsson þriðji. Islandsme istar- inn tapaði dvænt KEPPNI í borðtennis fór fram í hinu nýja og glæsilega íþrótta- húsi Selfoss. Útsláttarfyrirkomu- lag var á keppninni. þannig að sá sem tapaði leik var þar með úr keppninni. I karlaflokki mættu 20 til leiks. Strax í upphafi mátti sjá að nokkrir skáru sig úr hvað leikni og getu snerti. I úrslit komust þeir Jón Sigurðs- son UMFK og Sigurjón Sveinsson sama félagi. Jón hafði í undanúr- slitum sigrað Árna Hannesson HSK, eftir harða og tvísýna keppni. Úrslitaleikur þeirra félaga í UMFK var hinn skemmtilegasti á að horfa og mikið um góð tilþrif á báða bóga. Sérstaklega vöktu stunur og hróp Jóns mikla kátínu hjá áhorfendum. Fyrstu lotuna vann Sigurjón 21—17, en Jón hinar tvær 21—17, 21—14. Hafði hann undirtökin í Báðum þessum lotum og var hann vel að sigri kominn í þessari nýju landsmóts- grein. Um þriðja og fjórða sætið léku Árni Hannesson HSK og Árni Gunnarsson UMFK. Lengi vel var um mikla keppni að ræða en svo fór þó að Árni Gunnarsson tryggði sér þriðja sætið. Sigur UMFK var því stór, þrír fyrstu menn. Góð uppskera það. Hjá kvenfólkinu var ekki siður hart barizt. Smátt og sinátt féllu stúlkurnar úr keppninni og svo fór að að til úrslita í kvennaflokki léku núverandi Islandsmeistari í greininni, Ragnhildur Sigurðar- dóttir UMSB og Guðrún Einars- dóttir UMSK. Var úrslitaleikur þeirra sá mest spennandi leikur er fram fór í öllu mótinu. Jafnframt var hann vel leikinn hjá þeim báðum. Fyrstu lotuna vann Guðrún og kom hún Ragnhildi virkilega á óvart með getu sinni. Endaði fyrsti leikurinn 21—19. Voru það hörku- miklir skellir Guðrúnar sem réðu úrslitum. Strax í annarri hrinu sýndi Ragnhildur hvers hún er megnug og sigraði hún nú örugg- lega 21—12. Nú var úrslitahrinan eftir og mikil eftirvænting hjá áhorfendum sem hvöttu stúlkurn- ar ákaft áfram og fögnuðu hverju stigi sem vannst. Guðrún byrjaði hrinuna vel og náði 3 stiga forvstu, Ragnhildur jafnaði og komst yfir 6—3, Guðrún var samt ekki á þeim buxunum að gefa sig og náði forystu á ný 9—6. Enn jafnaði Ragnhildur, og fékk Guðrún nú nokkur ódýr stig á sig, lokakaflinn var mjög jafn og vart mátti á milli sjá hvor hreppti sigur. Guðrún reyndist vera sterkari á loka- kaflanum og stóð uppi sem sigur- vegari, hrinan endaði 21—14. Ragnhildur varð því að sætta sig við annað sætið. Um þriðja sætið léku þær Sigrún Bjarnadóttir og Sólveig Sveinbjörnsdóttir, sigraði Sigrún og hreppti því þriðja sætið. í heild fór borðtenniskeppnin vel fram, framkvæmdin var með ágætum. Sæmir borðtennis sér vel sem landsmótsíþrótt. Lokaröð í borðtennis á 16. lands- móti UMFÍi KVENNAFLOKKIIR. 1. (>uórún Einarsdóttir UMSK 2. Rattnhildur SÍKurðard. UMSB 3. Siiírún Björnsdóttir UMSB 4. Sólveit? S. Sveinhjiirnsd. UMSK 5. -8. Jóhanna JóhannsdóttirllMFK 5.-8. Erna Sinuröardóttir UMSB 5.-8. Eva B. Erlendsdöttir HSK 5.-8. Guðný SÍKurðardóttir IIMFK KARLAFLOKKUR. 1. Jón Sitturðsson UMFK 2. Sieurjón Sveinsson UMFK 3. Árni Gunnarsson UMFK 1. Arni M. Ilannesson HSK 5.-8. Gunnar Gunnarsson UMSK 5.-8. Jakoh Þorsteinsson UMSK 5.-8. Siiíurður T. Maitnússon HSK ÚRSLIT. Karlaflokkur. Jón SÍKurðsson — i SÍKurjón Sveinsson 17 — 21. 21 —17. 21-11. Kvennaflokkur. Guðrún Einars- dóttir — Ragnhildur SÍKurðardótt- ir 21-19. 12—21. 21-11. Sigurvegarinn í borðtennis kvenna Guðrún Einarsdóttii UMSK. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.