Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 31 OVÆNTUR SIGUR REYNIS LEIK Austra og Reynis, sem íór fram í ausandi rigningu síðastlið- inn laugardag lauk með sigri Reynis 2—0. Jafnvægi var með liðunum lengst af, þó voru Reynismenn öllu ákveðnari og virtist rigningin hafa betri áhrif á þá heldur en Austrastrákana. Austri átti sinn lélegasta leik á sumrinu og virtust leikmennirnir sakna miðherja síns Bjarna Kristjánss. sem var í leikbanni þennan leik. Léku þeir því ekki af sama krafti og undanfarna leiki! í byrjun sótti Austri meir, en síðan jafnaðist leikurinn og í hálfleik var staðan 0—0. Sama sagan var í seinni hálfleik og er 15 mínútur voru liðnar, fengu Reynismenn hornspyrnu, sem endaði með því að Ara Arasyni tókst að skalla í markið og var það bæði ódýrt og óheppnis- mark fyrir Austra. Austri sótti stíft næstu mínúturnar, en tókst ekki að jafna metin og síðan 2 mínútum fyrir leikslok náðu Reyn- ismenn að skora aftur og enn var það mark af ódýrari gerðinni, var það Hjörtur Jóhannesson sem markið skoraði. Reynismenn börð- ust vei og uppskáru eftir því, en Austri átti sinn slæma dag og því fór sem fór. Jafntefli hefði trúlega verið réttlát úrslit, en það eru mörkin sem gilda. Hjá Austra stóð Björn Árnason helst upp úr, en atkvæðamestur Reynismanna fannst mér Júlíus bakvörður. Dómarinn Arnþór Ósk- arsson hefur eflaust oft dæmt betur en að þessu sinni. Ævar. NULL - NULL Á NORÐFIRÐI STAÐAN í 2. deild eftir leiki helgarinnar er nú þessii Fylkir — Þór 0,1 Þróttur - Ármann 0.0 ÍBÍ — Haukar 1,1 Austri — Reynir 0,2 KR 10 7 2 1 25,3 16 Þór 11 5 3 3 10,9 13 Haukar 11 4 4 3 14,10 12 ÍBÍ 11 4 4 3 15,13 11 Austri 11 4 3 4 8,9 11 Þróttur 11 3 4 4 12,17 10 Reynir 12 4 2 6 12,17 10 Ármann 11 4 2 5 13,18 10 Fylkir 11 4 1 6 10,14 9 Völsungar 10 2 2 6 9.20 6 Markhæstu leikmenm Sverrir Herbertsson KR 6 Stefán Ö. Sigurðsson Klí G Þráinn Ásmundsson Árm. 6 ÞRÓTTUR og Ármann skildu jöfn á Neskaupstaðarvelli á laug- ardaginn. Hvorugu liðinu tókst að skora, og leikurinn, sem fór fram í norðaustan strekkingi og rigningu, var heldur tilþrifalítill. Leiknum seinkaði til klukkan 7 vegna þess að flugvél Ármenn- inga gat ekki lent og einnig vegna þess að sama dómaratríó dæmdi á Eskifirði og Norðfirði. Þróttarar voru ágengari í fyrri hálfleik, en þeir fengu þó engin sannkölluð dauðafæri. Engu að síður voru þeir klaufar að skora ekki mark í hálfleiknum. í síðari hálfleik var síðan um einstefnu að ræða hjá Þrótti að marki Ármenninga, sem vörðust vel. Þó hefðu Þróttarar átt að skora er einn af varnarmönnum Ármenninga sló knöttinn með hendi innan vítateigs, línuvörður- inn flaggaði, en lagði flaggið strax aftur. Enginn var afgerandi í li Þróttar, en hjá Ármanni v markvörðurinn Finnbjörn Hí mannsson þeirra besti maði einnig átti miðvörðurinn Gunn Andrésson góðan leik. Dómari var Hjörvar Jensson hefur hann oft dæmt betur. hb. STAÐAN HARKA OG LÉLEG DÚMGÆSLA ER ÍB( OG HAUKAR SKILDU JÖFN ÍSFIRÐINGAR og Haukar deildu með sér stigum á fsafirði á laugardaginn. Eru þá ísfirðingar með 12 stig í þriðja sæti, en þeir hafa leikið einum leik meira heldur en KR sem hefur hlotið 16 stig. Leikurinn á ísafirði var afar harður og í heildina séð ekki vel leikinn. Lélegur dómari hafði engin tök á leiknum og leyfði allt of mikið. ísfirðingar sóttu þó mun meira og þeir náðu forystunni á 30. minútu með fallegu skoti Örnólfs Oddssonar, sem skoraði með við- stöðulausu skoti í stöngina og inn. Aðeins fimm mínútum síðar tókst Ólafi Jóhannessyni að jafna með marki af stuttu færi eftir auka- spyrnu. Staðan var því 1—1 í leikhléi. Isfirðingar sóttu sem fyrr mun meira í síðari hálfieik, en þá sóttu þeir undan nokkrum vindi. Þeir áttu m.a. stangarskot, en að skora tókst þeim ekki og þegar aðeins fimm mínútur voru til leiksloka, var Haraldi Stefánssyni ÍBÍ vísað af leikvelli fyrir gróft brot. Léku því ísfirðingar einum færri síð- ustu mínúturnar, en það kom ekki að sök, staðan breyttist ekkert og liðin deildu stigum. Sprenghlægilegt mark færði Þór sigurinn ILLA gengur nú hjá Fylki og töpuðu þeir sínum þriðja leik í röð, er Þór frá Akureyri flaug suður og tók í þá. Leikurinn var slakur og eina mark leiksins var eins ódýrt og möguleiki er á. Það skoraði Guðmundur Skarphéðins- son um miðjan síðari hálfleik. Leikurinn var frekar jafn í fyrri hálfleik, Fylkismenn voru þó heldur meira með knöttinn, en Þórsarar voru hins vegar hættu- legri uppi við markið. Dauðafæri voru þó af skornum skammti, en Ögmundur varði tvívegis vel frá þeim Jóni Lárussyni og Óskari Gunnarssyni snemma í hálfleikn- um og síðan skot frá Nóa Björns- syni skömmu fyrir leikhlé. Fylkis- menn, sem sóttu gegn nokkrum strekkingi, áttu aðeins tvívegis sæmileg færi, fyrst Hilmar Sig- hvatsson, sem komst í gott færi, en skaut naumlega fram hjá. Síðara færið fékk Baldur Rafnsson á síðustu mínútum hálfleiksins, en skot hans var máttlaust og um leið hættulaust. 0-0 í leikhléi. Fylkir hafði goluna með sér í síðari hálfleik og byrjuðu þeir með miklum hamagangi og léku þá oft og tíðum skínandi fótbolta. Fyrstu mínúturnar komst mark Þórs tvívegis í mikla hættu, fyrst er Grettir Gíslason átti þrumuskalla eftir hornspyrnu Harðar Antons- sonar, en Eiríkur Eiríksson í marki Þórs varði þá eftirminni- lega. Síðan átti Hörður gott skot rétt yfir markið. Þórsarar ógnuðu af og til og á 15. mínútu skoruðu þeir eina mark leiksins. Og hvílíkt mark, er hornspyrna barst fyrir markið, datt knötturinn inn í markteiginn af höfði Jóns Lárus- sonar og þar var Guðmundur Skarphéðinsson fyrir og potaði boltanum í gegn um klofið á Ögmundi markverði sem allt fram að því hafði staðið sem límdur við marklínuna. Eftir markið mæddi töluvert á vörn Þórs, en hún stóð sig með prýði með Eirík markvörð sem langbestan mann auk Árna miðvarðar. En sókn Fylkis var mjög þung síðasta stundarfjórð- unginn og tvívegis voru þeir nærri því að skora, Hörður átti gott skot rétt fram hjá og á 35. mínútu skaut Hilmar beint úr auka- spyrnu, þrumuskoti sem hæfði þverslána svo að undir tók í fjöllunum. Inn vildi knötturinn ekki og flugu Þórsarar því aftur heim með tvö dýrmæt stig. — gg- • Einar Guðnason afhendir Óskari Sæmundssyni verðlaunin fyrir sigurinn í Opna íslenska golfmótinu. Úskar Sæmundsson vann Opna íslenska g#| mótið annað árið í röð OPNA íslenzka golfmótið fór fram á Akureyri á fimmtudag og föstudag og þvi lauk síðan á sunnudaginn. Keppendur voru 27, þar af 7 frá Luxemburg, en ekki einn eins og áður var skýrt frá. Tveir þeirra komust í átta manna úrslit og þeir höfnuðu síðan í G. og 8. sæti. í undanúrslitum léku fyrst Óskar Sæmundsson og Óttar Yngvason, báðir GR, og hafði Óskar betur. Síðan léku Gunnar Þórðarson og Sigurður A. Ring- sted og varð Gunnar sigurvegar- inn í þeirri rimmu. Á sunnudaginn vann Óskar síðan Gunnar 2—1 í vel spiluðum úrslitaleik. Er þetta þá annað skiptið sem Óskar vinnur í keppni þessari. Keppnin gaf stig til landsliðs og fékk Óskar 57 V-i stig og Gunnar 46 stig. Það má segja um flesta leikina, að þeir hafi verið jafnir og skemmtilegir, Óskar hafði þó nokkra yfirburði í leikjum sínum, ef frá er talinn sjálfur úrslitaleikurinn gegn Gunnari. — gg- Fyrsta landskeppni í golfi hériendis lauk með sigri íslands ÍSLENDINGAR unnu sætan sigur í landskeppni í golfi gegn Luxemburg, fyrstu keppni sinnar tegundar hérlendis, sem fram fór á Akureyri á sunnudaginn. Fyrir hádegi var leikin nokkurs konar tvenndarkeppni, þar sem léku saman tveir og tveir og var skiptst á höggum. Fyrst léku Björgvin og Gunnar gegn Schu- man og Schoch, leikurinn var jafn, með Islendinganna í forystu fram- an af, en Lúxemburgurunum tókst að jafna á 18. holu og þar við sat. Síðan léku Óskar og Þorbjörn gegn Goergen og A. Graas. og var endurtekinn gangur fyrri leiksins, þ.e.a.s. jafntefli á 18. holu. Þá gengu fram Eirikur og Hálfdán og léku þeir gegn N. Graas og Delvaux. íslendingunum gekk illa og Luxemburgararnir unnu örugg- lega. Luxemburg hafði því forystu, 2—1 eftir fyrri hluta mótsins. Holukeppni fór fram eftir há- degið og voru þá gerðar tvær breytingar á íslenska liðinu, Magnús Halldórsson og Sigurður Hafsteinsson komu inn fyrir Hálfdán og Eirík. Fyrst léku Magnús og Schuman og vann Magnús góðan sigur, 2—0. Síðan lék Sigurður gegn Alex Graas og vann Sigurður þar yfirburðasigur 5—4. Þá tapaði Björgvin fyrir Schouck, 2—4 og Goergen vann Gunnar 2—1 í jafnri viðureign. Þorbjörn vann því næst öruggan sigúr yfir Delveux, 3—1 og Öskar vann Norbert Graas 6—5. íslend- ingar unnu því síðari V' a keppn- innar 4—2 og því sar: ,.gt 5—4. • -gg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.