Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 „Stormurinn í skyrdósinni helaur áfram BaKuio 24. iúlí — AP. ..STORMURINN í skyrdósinni“ heldur áfram ad hrjá aðstandend- ur heimsmeistaraeinvígisins í skák í Baguio á Filippseyjum og í dag vísaði heimsmeistarinn. Anatoly Karpov. á bug tillögu um að hann fcngi fsskáp og eldurnar- aðstiiðu í sérstöku hvíldarher- bergi sem hann hefur. Áskorandinn. Viktor Korchnoi, mótmælti því að rússneska sendi- nefndin fengi að senda Karpov jógúrt f dós upp á sviðið af því Veður víða um heim Amsterdam 16 skýjaó Apena 30 heióskírt Berlin 24 skýjaó Brdssel 17 heiðskírt Chicago 25 heióskírt Frankfurt 23 heiöskírt Genf 24 heiöskírt Helsinki 20 heiðskírt Jóhannesarborg 19 -heiðskírt Lissabon 37 heiðskirt London 18 skýjaó Los Angeles 28 heiðskírt Madríd 32 heióskírt Malaga 27 heiðskírt Moskva 21 skýjaó New York 35 heíóskirt Osló 19 rigning Palma, Mallorca29 heióskírt Part's 26 heióskírt Reykjavík 16 heiðskírt Róm 26 heiðskírt Stokkhólmur 20 skýjaó Tel Aviv 28 skýjaó Tokyo 33 heiöskírt Vancouver 28 heióskírt Vínarborg 23 heíóskírt þeir gætu notað tækifærið til að koma til hans leyniorðsendingum. Dómararnir í einvíginu gerðu það að tillögu sinni í dag að hvor keppandi um sig fengi ísskáp og eldunaraðstöðu og að þeir fengju að panta mat frá veitingahúsi samkomuhússins þar sem einvígið fer fram. Hugmyndin með þessu var sú að þar með yrði komið í veg fyrir að keppendurnir og sendi- nefndirnar gætu haft samband sín á milli meðan á leik stæði. Viktor Baturinsky, formaður Karpov-nefndarinnar, kvaðst vilja ræða tillöguna við heimsmeistar- ann. Tveimur klukkustundum síð- ar sagði Lothar Schmid yfirdóm- ari að Karpov hafnaði báðum hugmyndunum. Schmid tilgreindi enga ástæðu fyrir neituninni. Hann sagði að dómararnir kæmu aftur saman á morgun „og ég held að við finnum góða lausn“. í þriðju umferðinni spurði Schmid Petru Leeuwerick, for- mann Korchnoi-nefndarinnar, hvort Karpov mætti fá jógúrt. Framhald á bls. 37. Hugmynd um fána fyrir Grænland. Fáni fyrir Grænland GRÆNLENDINGAR hafa á prjónunum áform um að taka upp grænlenzkan þjóðfána þeg- ar þeir fá heimastjórn í maí á næsta ári. Tvær hugmyndir um græn- lenzkan fána hafa komið fram. Önnur er um hvítan fána með löngum láréttum bláum streng og svörtum sel í vinstra horni. Hin tillagan er um fána með hvítum krossi á bláum feldi. Eskimóar í Kanada sem Grænlendingar eiga mikið sam- starf við hafa þegar tekið sér sérstakan fána sem er dreginn að húni við hliðina á kanadíska þjóðfánanum við opinberar byggingar. Rússar sigla áfram í norsku landhelginni Ósló 24. júlí. AP. Reuter. SOVÉZK skip halda áfram ólög- legri siglingu innan norsku fjögurra mílna landhelginnar Hergagnafram- leiðsla eykst Washington, 23. júlí. Reuter. FJÁRFRAMLÖG til hergagna- framleiðslu hafa aldrei verið meiri og standa Sovétmenn þar fremstir í flokki samkvæmt frétt frá eftirlitsnefnd með hergagna- framleiðslu Bandaríkjamanna. — í fréttinni kemur fram, að á árinu 1976 hafi heildarfjárfram- lög til hergagnaframleiðslu í heiminum vcrið 100 milljarðar dollara. eða 104000 milljarðar íslenzkra króna. Þá segir að þetta sé um 20% aukning á tíu ára tímabili, sé miðað við raungildi gjaldmiðla. Einnig kom fram að um stöðugan stíganda hefur verið að ræða allt frá stríðslokum. Sovétmenn eru fremstir í flokki þjóða heims, eins og áður sagði, með 126 milljarða dollara eyðslu á móti 90 milljörðum dollara hjá Bandaríkjamönnum. Þá Kínverjar 33 milljarða dollara, Vestur-Þjóð- verjar 15 milljarða dollara og Frakkar með 14 milljarða dollara. nálægt herstöðvum NATO í Norð- urNoregi og nú hafa Aust- ur-Þjóðverjar farið að dæmi Rússa. Um helgina sást til sovézku fiutningaskipanna Istra og Lichoya og austur-þýzka vöru- flutningaskipsins Mansfeld tals- vert langt fyrir innan fjögurra mflna mörkin undan strönd Finn- merkur. Skipin voru öll á svæði þar sem hefjast munu á morgun flotaæf- ingar Norður-Atlantshafsflota NATO með þátttöku sjö herskipa frá Kanada, Hollandi, Bandaríkj- unum, Bretlandi, Vestur-Þýzka- landi, Portúgal og Noregi. Síðan 27. júní hafa að minnsta kosti níu sovézk skip siglt ólöglega í fjögurra mílna landhelginni og eitt þeirra var tekið í síðustu viku og fært til hafnar þar sem skipstjórinn var dæmdur til að greiða sekt að upphæð 20.000 norskar krónur. Hin skipin hafa getað forðað sér. Norskir fiskimenn hafa skýrt frá því að þeir hafi séð að kössum var fleygt úr sovézka skipinu Istra og að það hafi verið með víra og reipi í sjónum. Á einum fiskibát var tekin kvikmynd af einu sovézku skipanna og hún verður afhent yfirvöldum. Bollalagt hefur verið hvort Rússarnir séu annaðhvort að koma fyrir njósnabúnaði á hafsbotni til þess að fylgjast með siglingum á þessum slóðum eða að leita að tækjum sem þeir vilja fjarlægja. Johan Holset aðstoðarlandvarna- ráðherra dregur þetta hins vegar í efa. „Þetta er ekkert fyndið lengur. Þetta minnir mig á gamaldags fallbyssubátapólitík," sagði yfir- maður norska heraflans, Sverre Hamre hershöfðingi, áður en hann Framhald á bls. 36 Andspyrna skipulögð gegn stj órn Bólivíu La Paz 24. júlí. Reuter. AP. LEIÐTOGI vinstrisinnaðra stjórnarandstæðinga í Bólivíu, dr. Hernan Siles Zuazo. hefur tilkynnt að flokkur hans. UDP, muni beita sér fyrir friðsam- legri andspyrnu ef Juan Pereda Asbun, sem tók völdin með stjórnarbyltingu á föstu- daginn. neitar að efna tafar- laust til kosninga. Dr. Siles setti stjórninni þessa úrslitakosti í viðtali við Reuter í gáerkvöldi og það var fyrsta yfirlýsingin sem hann hefur látið frá sér fara síðan Pereda hershöfðingi vann embættiseið sinn. Síðan byltingin var gerð hefur dr. Siles farið huldu höfði og viðtalið var haft við hann í' aftursæti jeppa sem stuðnings- maður UDP ók. Upphaflega átti að hafa viðtalið í húsi þar sem dr. Siles taldi sig öruggan en þegar hann nálgaðist það komst hann að raun um að það hafði verið umkringt. Dr. Siles sagði, að fyrsta verk hans yrði að skipuleggja áskor- un stjórnarandstöðuflokka, verkalýðsfélaga og stúdenta- félaga um að nýjar kosningar færu fram þegar í stað. Hann sagði að Pereda hershöfðingi hefði beðið ósigur í kosningun- um 9. júlí. Úrslitin voru ógilt á miðvikudag í kjölfar ásakana um kosningasvik. Leiðtogi UDP sagði, að tak- mörk væru fyrir því hve lengi almenn andspyrna sem byggðist á verkföllum sem hugsanlega gætu leitt til allsherjarverkfalls gæti verið friðsamleg. Hann kvaðst vona að herinn skildi þetta áður en of seint yrði að afstýra bræðravígum. Pereda hershöfðingi ætlaði að birta ráðherralista sinn seinna í dag og er talið að stjórn hans verði aðallega skipuð herfor- ingjum og embættismönnum. Pereda kvaðst hafa gert bylting- una á föstudag til stuðnings úrslitum kosninganna 9. júlí því "* hann hefði unnið hreinan meiri- hluta í kosningunum. Carlos Andres Perez, forseti Venezúela og baráttumaður aukins lýðræðis í Rómönsku Ámeríku, hefur harmað atburð- ina í Bólivíu og stjórn Venezúela hefur hafið viðræður við aðrar ríkisstjórnir í álfunni um ástandið í landinu. Bandaríkjamenn og Venezú- elamenn lýstu yfir eindregnum stuðningi við þá ákvörðun Hugo Banzers fráfarandi forseta í fyrra að efna til kosninga. Bandaríkjamenn tóku skýrt fram að þeir yrðu óánægðir ef engar kosningar færu fram. Margir sérfræðingar töldu kosningarnar prófstein á bar- áttu stjórnar Carters fyrir mannréttindum. Banzer ætlaði upphaflega að verða sjálfur í framboði en aðrir herforingjar komu í veg fyrir það svo að hann lýsti yfir stuðningi við Pereda. 63 bað- strandar- gestir drukkna Tokyo, 23. júlí — Reuter TALIÐ er að a.m.k. 63 bað- strandargestir hafi drukknað í Japan í gær og hafi mikil örtröð og öngþveiti á bað- ströndunum átt sinn þátt í því, að því er fréttir frá lögreglunni herma. — Einnig kom fram, að um 1600 hafi drukknað það sem af er árinu og er það einhver hæsta tala sem um getur. Fréttamenn fá frest Moskva, 23. júlí — AP BANDARÍSKU fréttamennirn- ir tveir, Whitney og Pipe, sem fyrir skömmu voru fundnir sekir fyrir rétti í Sovétríkjun- um um óhróður, hafa nú fengið frest til 2. ágúst til að draga ummæli sín til baka í blöðum sínum, eða sæta að öðrum kosti fjársektum, allt að 114 þúsund krónum auk þess sem þeim var gert að greiða alian máiskostn- að- „ , ,JSörmungar bíða okkar” Los Angeles, 23. júlí - AP VIÐ KOMU sína til Los Angei- es sagði Avital Shcharansky, kona andófsmannsins fræga, að ef þjóöir heims sameinuðust ekki í baráttu sinni fyrir frelsun manns hennar og ann- arra í sömu aðstöðu „muni hörmungar bíða okkar allra“. — Meðal þeirra, sem tóku á móti, frú Shcharansky var ríkisstjóri Kaliforníu, Edmund G. Brown, og sagði hann m.a. við þetta tækifæri, að Banda- ríkjamenn myndu aldrei láta af aðstoð sinni við alla friðelsk- andi menn og þá sem berðust fyrir almennum mannréttind- um, eins og Shcharansky. Vikiðtír embœtti Santiago, 24 júlí — AP GUSTAVO Leigh, herforingja, æðsta manni flughers Chile og einum ráðherra í herforingja- stjórn landsins, var vikiö úr báðum embættum í síðustu viku eftir að hann hafði opin- berlega gagnrýnt þann mikla seinagang sem ríkir varðandi það að mynda lýðræðislega stjórn í landinu með þátttöku almennra borgara. — Talið er að þessi brottvikning Leighs úr embætti muni hafa mjög alvar- legar afleiðingar í för með sér, sérstaklega innan hersins. Hitabylgja í Bandaríkjunum New York, 23. júlí — AP MILLJÓNIR manna streymdu til baðstranda í Austurríkjum Bandaríkjanna um helgina, þegar mikil hitabylgja gekk þar yfir. Hitastigið náði hámarki á hádegi þegar það komst í 38 gráður á Celsíus. — Talið er að yfir 1 milljón manna hafi verið á baðströnd New York borgar einnar. Slíkt var ástandið, að þeir sem ekki megnuðu að komast til strandar vegna öngþveitis- ins, sem varð lögðu til atlögu við brunahana borgarinnar og „fengu sér bað“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.