Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JULI 1978
11
Arne Solhaug
störf presta við messugjörðir,
kæmi fram stuðningur við rit
Marteins Einarssonar.
Höfund handritsins sagðist
Arne telja Gísla Jónsson biskup
í Skálholti 1558-1587, eftir-
mann Marteins Einarssonar.
Það væri möguleiki að hans
mati, og því til stuðnings sagði
hann, að með konungsbréfi 1585
hefði sú skipun verið gefin að
samræma skyldi kirkjugerðir á
Islandi. Handritið væri þá unnið
um 1585—1587 og það prentað á
Hólum. Ólíklegt væri að höfund-
ur þess væri Guðbrandur Þor-
láksson biskup á Hólum eða
Oddur Einarsson, þar sem þeir
hefðu látið vinna fyrstu prent-
uðu bókina 'þessa efnis hér á
landi, en hún væri mjög ólík
handritinu að efni. Að sjálf-
sögðu væri ekki hægt að segja
um það með neinni vissu, en það
væri hans skoðun, að handritið
væri unnið fyrr en sú prentun.
Magnús Már Lárusson hefði
sett fram þá skoðun að handrit-
ið væri eftir Guðbrand Þorláks-
son biskup á Hólum, en Arne
kvaðst telja það líklegra að það
væri unnið í Skálholti.
Aðspurður um ástæðuna
nefndi hann m.a. hversu margt
væri líkt með handritinu og
bókum Marteins Einarssonar og
Gísla Jónssonar. Verkið væri að
hans áliti unnið á timabilinu á
milli 1573 þegar bók Nils
Jespersonar var fullunnin og
1589 þegar prentunin á Hólum
var gerð. Hann kvaðst ekki telja
það mögulegt að Nils Jesperson
hefði stuðzt við þetta handrit
við gerð bókar sinnar m.a. vegna
þess að hann hefði haft mikla
möguleika á að kynna sér slík
verk á hinum Norðurlöndunum.
Þetta handrit væri augljóslega
mjög áhugavert frá sögulegu
sjónarmiði.
Arne hefur sett fram þá
tilgátu að handritið hafi komizt
í eigu Arna Magnússonar og
hafi frá honum farið í
Suhm-safnið í Kaupmannahöfn
og þaðan í nýju konungsbók-
hlöðuna. I handritinu væri
nafnið Bjarni Bjarnason prestur
skrifað á spássíu einnar síðu, en
prestur með því nafni var vigður
á Brjánslæk 1672 þar sem hann
gegndi embætti til 1690. Utan á
kápu handritsins væri ártalið
1705 skrifað, og það er tilgáta
Solhaug að það hafi á þeim tíma
komizt í hendur Arna Magnús-
Framhald á bls. 37.
Ljós-
rit aí
einni
síðu
hand-
rits-
ins
Ragnar Kjartansson.
Björgólfur Guðmundsson
Framkvæmdastióm
hjá Hafskip hf efld
SÚ skipulagsbreyting hefur ný-
lega átt sér stað hjá Hafskip h.f.
að framkvæmdastjórn félagsins
hefur verið efld, segir í frétt frá
fyrirtækinu. Framkvæmdastjór-
ar félagsins eru nú tveir. Björg-
ólfur Guðmundsson, áður fram-
kvæmdastjóri Dósagerðarinnar
h.f., gegnir framkvæmdastjóra-
starfi markaðs- og rekstrarsviðs
en Ragnar Kjartansson, áður
aðstoðarframkvæmdastjóri Olíu-
félagsins Skeljungs h.f., er fram-
kvæmdastjóri fjármála- og
skipulagssviðs.
Hafskip h.f. gerir nú út 5 eigin
skip auk leiguskipa. Skip félagsins
sigla vikulega á skandinavisku
hafnirnar Fredriksstad, Gauta-
borg og Kaupmannahöfn. A 12
daga fresti eru skip félagsins í
Ipswich í Englandi, Hamborg og
Antwerpen. Að auki stundar félag-
ið reglulegar siglingar til Finn-
lands og Póllands, auk einstakra
leiguflutninga með eigin skipum
og leiguskipum.
Hjá félaginu vinna nú reglulega
um 150 manns, auk starfa þjón-
ustu- og umboðsaðila. Velta fé-
lagsins er nokkuð á þriðja milljarð
króna.
Stjórnarformaður Hafskips h.f.
er Magnús Magnússon og varafor-
maður Ólafur B. Ólafsson.
Elín Pálmadóttir:
Röksemdafærslan
um minnkun óvissu
fellur um sjálfa sig
Davíð Oddsson kvaddi sér hljóðs
á fundi borgarstjórnar 20. júlí
vegna tillögu fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í fræðsluráði eigi alls
fyrir löngu. I tillögunni segir:
„Menntamálaráðuneytið lagði til
fyrir fáum vikum að stofnaður
yrði sérstakur Fjölbrautaskóli
Austurbæjar sem tæki til Ármúla-
skóla og Laugalækjarskóla.
Fræðsluráð neitaði að samþykkja
þessa tilhögun fyrir sitt leyti, þar
sem líkur bentu til, að þess mati,
að umsóknir nemenda yrðu færri
en ráðuneytið virtist ganga út frá!
Nú er komið í ljós, að þessi
niðurstaða fræðsluráðs var alfarið
á rökum reist. Fræðsluráð vill
taka fram, að það telur, að engar
forsendur hafi breytzt frá því að
fræðsluráð gerði samþykktir sínar
um mál þetta þann 10. apríl sl. sbr.
11. lið fundargerðar og þann 22.
maí er fræðsluráð gerði samhljóða
samþykkt um mál þetta sbr. 15. lið
fundargerðarinnar, þar sem álykt-
að er að nemendur framhalds-
deilda útskrifist frá skóla, sem
veiti þeim full réttindi. Hvað
snertir óskir ráðuneytisins um
nýtingu húsnæðis í Ármúlaskóla í
þágu a'nnarra skóla telur ráðið rétt
að verða við þeim eftir þvi sem
frekast má.“ Davíð sagði, að komið
hefði fram, að umræddir tveir
skólar skyldu settir undir Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, sem
útibú. Þetta sætti furðu ekki sízt
með tilliti til þess, að sá skóli hafi
Framhald á bls. 37.
(ÖIVIIC) 312 PO
312 Pog
Reynsta SkrKstotuvéia h.f. og ósklr v»ð-
OMIC:
Vlð lögðum áhersiu á
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
k, j
Við byggjum
1 7 8 9
4 S ©
1 2 3
O OO
fl