Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 Á þeytingi miili SeHbss og IsaQarð- JÓN Oddsson er tvítugur Is- firðingur, sem vakið hefur athygli fyrir fjölhaefni í iþróttum. Hann er í hópi fremstu frjálsíþróttamanna landsins enda þótt hann leggi litla rækt við þá íþróttagrein og hann er einn marksæknasti leikmaður meistaraflokks ísfirðinga í knatt- spyrnu, sem staðið hefur sig vel í 2. deildinni í sumar. Enda þótt Jón æfi frjálsar íþróttir ekkert að marki þykir honum gaman að keppa á frjáls- íþróttamótum og hann lagði á sig alveg ótrúlegt erfiði núna um helgina til þess að geta verið með bæði í frjálsíþróttunum og knatt- spyrnunni. Á föstudaginn keppti hann í langstökki á landsmótinu og vann þar sigur eftir skemmti- lega keppni. Á laugardagsmorgun keppti hann í hástökki landsmóts- ins en síðan lá leiðin til Reykjavík- ur, þar sem Jón hoppaði upp í flugvél til þess að ná deildarleik gegn Haukum klukkan 16. Strax eftir leikinn fór hann í loftið aftur því hann þurfti að vera jnættur tímanlega í þrístökkskeppnina á sunnudagsmorguninn. Og í kvöld, þriðjudag, verður hann aftur í eldlínunni með knattspyrnuliði Isfirðinga. „Það hefur einhvern veginn æxlast þannig að fótboltinn hefur orðið númer eitt hjá mér,“ sagði Jón í spjalli við blaðamenn. „Allir mínir félagar eru í fótboltanum og enginn þeirra æfir frjálsar íþrótt- ir. Ég hef stundað nám í Mennta- skólanum heima á ísafirði og því ekkert getað æft á veturna. Nú breytist þetta hjá mér því ég er innritaður í sjúkraliðanám í læknadeild Háskólans í haust og hver veit nema ég æfi frjálsar í vetur.“ Um langstökkskeppnina hafði Jón það að segja að hann taldi Pétur Pétursson sinn hættulegasta keppinaut, þar sem hann hafði stokkið 6.91 metra rétt fyrir keppnina. „Ég vissi að ég myndi verða með þeim fremstu þar sem ég hafði stokkið 7.08 metra á 17. júnímótinu. En það var vissulega skemmtilegt að vinna sigur á sínu fyrsta landsmóti. • ísfirðingurinn knái Jón Oddsson til vinstri og Sigurður Hjörleifsson. Stökk nú jafnlangt og fyrir ellefu árum „ÉG SÉ óskaplega eftir öllum þessum árum sem ég hef ekki æft frjálsar íþróttir," sagöi Sigurður Hjörleifsson HSH í spjalli eftir langstökkskeppnia, en Siguröur varð þar í öðru sæti með 6.48 metra stökk, sem er jöfnun á hans bezta árangri. Það eru liðin hvorki meira né minna en 11 ár síöan Sigurði tókst að stökkva sömu lengd en þaö var á Norðurlandameistara- móti unglinga í Stafanger í Noregi 1967. Siguröur byrjaöi aö keppa í frjálsum íþróttum 14 ára gamall og nú, 31 árs gamail, keppti Siguröur á sínu fimmta landsmóti. Hann var fyrst með á Laugarvatni 1965 og varð hann þá einnig annar, stökk 6.62 metra. Sigurvegari varð Gestur Þorsteinsson UMSS. Siguröur þótti ákaflega efnilegur stökkvari á sínum yngri árum en hann hætti alveg að æfa um tvítugt og hefur ekkert æft síöasta áratug- inn. Hann hefur þó alltaf verið með á landsmótunum en ekki unnið til verðlauna. „Nú er ég fluttur til Reykjavíkur og ég hef æft vel síðasta einn og hálfa mánuöinn. Þetta er smám saman að koma hjá mér en ég átti ekki von á svona löngu stökkl aö þessu sinni. En fyrst ég gat stokkiö þetta núna á ég alveg eins von á því að stökkva yfir 7 metra seinna í sumar," sagöi Sigurður. Siguröur sagöi aö þaö heföi haft mest aö segja aö enginn annar heföi æft frjálsar íþróttir í Stykkishólmi á sínum tíma og því heföi hann tekiö körfuboltann framyfir. En hann tók upp þráöinn í vor eftir áratugs hvíld og árangurinn hefur ekki látið á sér standa, Siguröur varö islands- meistari í langstökki í fyrsta og eina skiptið á Meistaramóti íslands á dögunum og nú krækti hann sér í önnur verðlaun á landsmótinu eftir hinum fjölhæfa íþróttamanni Jóni Oddssyni. „Ætli ég spreyti mig ekki eitthvaö á þessu áfram, þaö verður gaman aö sjá hvað maöur nær langt svona á gamalsaldri," sagöi Sigurö- • Úrslit í 100 metra hlaupi. Sigurvegarinn Hilmar Pálsson HVÍ er lengst tii hægri, næst honum kemur Aðalsteinn Bernharðsson UMSE sem varð annar. þá kemur Jón Sverrisson sem hafnaði í þriðja sæti og síðan Jakob Sigurólason. Framhald af fyrri opnu startholurnar aftur. Töldu þeir að sigurinn hefði verið tekinn af félaga þeirra Jóni Sverrissyni, sem álitinn var sigurstranglegastur. Guðmundur sagði eftir hlaupið að Hilmar hefði verið alveg kyrr þegar skotið reið af og því hefði hann ekki þjófstartað. Jón Sverrisson sagði aftur á móti að hann hefði séð Hilmar þjóta af stað áður en skotið reið af og því hefði hann talið að startið yrði dæmt ógilt. En hvað um það, þetta atvik setti óneitanlega ljótan blett á þessa keppnisgrein, sem jafnan er sú skemmtilegasta á hverju landsmóti. Og það er rétt að taka það fram að Hilmar hljóp ákaflega vel-og ekki ólíklegt að hann hefði sigrað hvort sem var ef þetta leiðindamál hefði ekki komið upp: ÚRSLIT. sek 1. Hilmar Pálsson HVÍ 10,8 2. Aðalsteinn Bernharðss. UMSE 11,0 3. Jón Sverriss. UMSK 11,2 4. Jakob Sigurólas. HSÞ 11,3 5. Angantýr Jónass. (annar riðill) HVÍ 11,0 6. Sigurður Jónsson (annar riðill) HSK 11,2 400 METRA HLAUP Það átti enginn von á því að landsmótsmetið myndi falla í 400 metra hlaupinu því aðstæður voru ekki eins og bezt verður á kosið á laugardaginn, þegar hlaupið fór fram. En Aðalsteinn Bernharðs- son úr Eyjafirði lét ekki vindinn á sig fá heldur hélt jöfnum og góðum hraða út hlaupið, jafnvel síðustu 100 metrana, þegar hann hafði vindinn í fangið. Og lands- mótsmetið féll, Aðalsteinn hljóp á 51,0 sekúndu en gamla metið var 51,1 sekúnda. í næstu sætum komu tveir Þingeyingar. ÚRSLIT. sek 1. Aðalsteinn Bernharðss. UMSE 51.0 2. Jakob Sigurólas. HSÞ 51.8 3. Kristján Þróinss. HSÞ 52.2 4. Jón Sverrisson UMSK 52.3 5. Egill Eiðsson UÍA 55.4 6. Arnþór Erlingss. HSÞ 55.3 7. Þórður Gunnarss. HSK 55.9 8. Þórarinn Sveinss. HSK 56.1 9. Bjarni Árnason UMSB 56.5 10. Guðmundur Hallgrímss. UÍA 57.0 11. Guðmundur Jenss. UMSS 58.2 12. Ragnar Sigfússon UNÞ 58.5 13. Óskar Guðmundss. USAH 59.0 14. Guðni Sigurjónss. UMSK 60.3 800 METRA HLAUP Keppt var í tveimur riðlum í þessu hlaupi. í lakari riðlinum tók Austfirðingurinn Pétur Eiðsson strax forystuna og hélt henni í markið. Hann fékk tímann 2.06.7 mínútur en þegar til kom dugði það honum aðeins í 7. sætið því seinni riðillinn var miklu sterkari. Þegar seinni riðillinn fór af stað tóku hlaupararnir mikinn sprett og voru fyrri 400 metrarnir hlaupnir á ca. 54 sekúndum, sem er afbragðsgott. Austfirðingarnir Steindór Tryggvason og Björn Skúlason tóku fljótt forystuna og héldu henni í mark en undir lokin var nokkuð af þeim dregið, enda byrjun hlaupsins nánast sprett- hlaup. 800 metra hlaup karla og kvenna, sem fram fóru með stuttu millibili á föstudagskvöldið voru enn eitt dæmið um þá miklu grósku, sem virðist vera um þessar mundir í frjálsum íþróttum á Austurlandi. Ekki hefur verið keppt í þessari grein á landsmóti áður svo árangur Steindórs er landsmótsmet. ÚRSLIT mín 1. Steindór Tryiftcvas. UÍA 1.59.4 2. Björn Skúlason UÍA 2.00.9 3. ÁKÚst Þorstoinss. UMSB 2.01.3 4. Jón Illugason IISÞ 2.04.8 5. Bjarki Bjarnason UMSK 2.05.4 6. Sighvatur Þ. GuðmundsHon HVÍ 2.06.4 7. Pétur Eiðsson UÍA 2.06.7 8. Markús ívarsson HSK 2.09.2 9. Þórarinn Sveinss. HSK 2.09.4 10. Lúðvík Björgvinss. UMSK 2.10.1 11. Sigurður Leifsson HVÍ 2.10.2 12. Arnór Erlingss. HSÞ 2.11.1 13. Bjarni Ingibergss. UMSB 2.12.3 14. Gunnar Snorras. UMSK 2.17.6 155 METRA HLAUP Sjómaður frá Borgarfirði eystra, Björn Skúlason, kom öllum á óvart með því að sigra í þessari grein. Björn er tiltölulega nýbyrj- aður að æfa frjálsar íþróttir og hann hefur ekki æft af neinni alvöru fyrr en í vor. Lengi vel leit út fyrir að barátta myndi standa milli þeirra Ágústs Þorsteinssonar og Steindórs Tryggvasonar, sigurvegarans i 800 metra hlaupinu. Þeir tóku strax forystuna og héldu henni allt þar til 200 metrar voru í markið. Þá tók Björn geysimikinn endasprett, reif sig framúr þeim Ágústi og Steindóri og kom í markið sem öruggur sigurvegari. Var honum vel fagnað af félögum sínum því fáir eða engir áttu von á því að Björn myndi bera sigur úr býtum í þessari grein. Úrslitin hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir Ágúst Þorsteinsson, sem álitinn var öruggur sigurvegari í þessari grein þar eð Jón Diðriksson gat ekki keppt vegna meiðsla. ÚRSLIT. mín 1. Bj.irn Skúlasun UÍA 1.16.9 2. Ájfúst Þurstoinss. UMSB L18.6 3. Stfindór TryKífvas. UÍA l«26.r> 1. Brynjólíur llilmarsson UÍA L29.Ö 5. Jón IlluKason IISÞ 1,30.5 6. Gunnar Snorras. UMSK 1,31.8 7. Björn Halldórss. UN1> 1,31.0 8. Bjarni InKÍborKss. UMSB 1,39.1 9. Bjarki Bjarnas. UMSK 1,10.2 10. Markús ívarss. IISK 1,10.8 11. Einar Ilermundss. IISK 1,11.9 5000 METRA HLAUP Loks kom að því að Ágúst Þorsteinsson ynni. Greinilegt var • Bergþóra Benónýsdóttir lengst til hægri. sigrar 1 grindahlaupinu. Ekki skortir hana einbeitnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.