Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBÉAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 Ludvig Storr, aðalrœð- ismaður — Minning Fæddur 21. okt. 1897. Dáinn 19. júlí 1978. Ludvig Storr hafði lifað langan, starfsaman dag, kominn yfir áttrætt, þegar hann andaðist 19. þ.m. Hann’var danskur, en fluttist til Reykjavíkur fyrir meira en hálfri öld (1922) og hóf hér atvinnurekstur. Hann rak bygg- ingarvöruverslun og einkum gler- verslun og slípun. Faðir hans var „glermeistari" í Kaupmannahöfn, og fjölskyldan stundar og hefur lengi stundað þessa atvinnu, vel og vandlega að sögn. Sjálfur var Ludvig Storr áhugasamur og vandvirkur í þessum efnum og fyrirtæki hans efldust og urðu vinsæl. Hann var verslunarmennt- aður og vel að sér um þau fræði, sem kaupsýslu varða. Storr var ötull forgöngumaður í ýmsum félagsmálum. Hann gekkst t.d. fyrir stofnun Rotaryklúbbs Reykjavíkur 1934, en það var fyrsta félag Rotary- manna hér á landi. Um árabil síðar var hann heiðursfélagi klúbbsins. Annars voru það ýmis félagsmál Dana og samvinna Dana og íslendinga, sem Storr lét mest til sín taka. Storr var lengi danskur ræðis- maður, síðast í rúmlega 20 ár aðalræðismaður, og gegndi starf- inu af skörungsskap, hjálpsemi og gestrisni. Sérstaka athygli vakti fyrirgreiðsla hans og konu hans, þegar Grænlendingar áttu í hlut, enda áhugi þeirra á grænlenskum málum og menningu mikill. Heim- ili þeirra á Laugavegi 15 er stórt og fallegt og rekið með glæsibrag, sem fágætur er hin síðari ár. Þarna sátu vinir hans oft í góðum fagnaði og rausnarsamlegum. Storr var gleðimaður meðai vina sinna, en skyldurækinn og dug- mikill í daglegri önn. Hann var bókamaður og átti merkilegt safn gamalla rita. Sérstaka rækt lagði hann við að safna bókum Jóhanns Sigurjónssonar og ýmsum heimildum um hann, en fyrri kona hans, Elín Sigurðardóttir, var af Laxamýrarætt. Á heimilinu er einnig ágætt málverkasafn og margt annarra góðra og sjaldséðra muna. Seinni kona Storr er Svava Einarsdóttir, sem mjög hefur sett mark sitt á fegurð og fjölbreytni heimilisins, gestrisni þar og glað- værð. Ludvig Storr var dugnaðar- og drengskaparmaður. Hann átti sér margvísieg og skemmtileg áhuga- mál og naut vinsælda og virðingar. Vilhjálmur Þ. Gislason. Minningu um látinn góðan vin, Ludvig Storr aðalræðismann, verður eigi gerð full skil án þess að minnst sé með þakklátum hug þess þáttar, sem hann átti með afskipt- um sínum og einlægum áhuga á endurreisn Skálholtsstaðar, og þá einkum á listrænni mótun í gerð þeirrar nýju dómkirkju, er þar reis af fornum grunni. Tvær færustu listakonur Isiands, þær Gerður Helgadóttir og Nína Tryggvadóttir sköpuðu hvor um sig glugga og kórvegg kirkjuhússins, og þegar þeirri einstæðu og fögru listsköp- un lauk gerðist Ludvig Storr milliliður og beinlínis hvati þess, að listskreyting kirkjunnar öll var gefin af dönskum velunnurum Islands úr vinahópi hans, og var þar einnig framariega bróðir Ludvigs, Edvard Storr, er frá unga aldri hafði bundist traustum vináttuböndum við land okkar og þjóð. Meðal annarra gjafa þeirra bræðra til Skáiholts var ein af kirkjuklukkum þeim er bárust frá Norðurlöndunum fjórum, og sam- hringir á hátíðarstundum klukknagjöfum frændþjóðanna. Nöfn einstakra góðra styrktar- manna kirkjunnar úr vinahópi þeirra Storr bræðra verða ekki tíunduð hér. Þau eru skráð og vel geymd í byggingarsögu Skálholts- kirkju. Meðal verðmætra gjafa, sem þannig bárust, var meðal annars sérhannað orgel kirkjunn- ar, gert af fremstu orgelsmiðum Danmerkur, kirkjubekkir og fleiri munir. Án innri búnaðar og listskreytinga kirkjuhúsa, — allt eftir eðli og umfangi verkefnis, er verkið naumast meir en hálfnað. Svo var einnig um Skálholtskirkju. Ludvig Storr átti þannig ríkan þátt í því að á vígsludegi kirkjunn- ar stóð húsið fullbúið hið innra eigi síður en hið ytra, og dýrmæt listskreyting og kirkjumunir höfðu skapað hið rétta andrúmsloft, og þá helgi sem því fylgir. Verðmætasköpun er nam milljónum króna, var þannig með óeigingjörnum hætti látin af hendi rakna fyrir milligöngu Ludvigs Storr og af hálfu hans sjálfs, en hugurinn, sem að baki var, verður eigi metinn til fjár, og á þeim tíma hefði verið erfitt sjálfum byggjendum kirkjunnar að full- ljúka kirkjusmíðinni með slíkri rausn og myndarskap sem að var staðið af hálfu norrænna vina. Ludvig Storr var einn þeirra, er þar var í fararbroddi. I sambandi við endurreisn Skál- holtsstaðar, og þá fyrst og fremst kirkjunnar, á íslensk þjóð Ludvig Storr mikla þakkarskuld að gjalda, er halda mun nafni hans í heiðri um ókomin ár. Blessuð sé minning hans. Frú Svövu Storr og nánustu ættingjum eru sendar innilegar samúðarkveðjur. Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins. Við fráfall Ludvigs Storr, aðal- ræðismanns Dana á Islandi, sem andaðist skyndilega hinn 19. þ.m., er fallinn í valinn einn þekktasti Dani, sem búsettur hefur verið hér á landi á þessari öld. Ludvig Storr fluttist til íslands árið 1922, þá 25 ára að aldri, og gerðist fljótlega umsvifamikill kaupsýslumaður hér í borg. Allt frá upphafi búsetu Ludvigs á íslandi tók hann virkan þátt í félagsstarfsemi Dana og dansk- ættaðra hér og var Ludvig t.d. þannig í stjórn Dansk—Islenzka Félagsíns frá 1939—1976. Á aðal- fundi félagsins vorið 1976 — en þá var félagið jafnframt 60 ára — var Ludvig gerður að heiðursfélaga D.Í.F., enda hafði félagið, hinir ýmsu samstjórnarmenn Ludvigs og formenn félagsins um margra áratuga skeið, notið starfskrafta hans, hjálpsemi og fyrirgreiðslu við hin margvíslegu verkefni, sem félagið gekkst fyrir. Ludvig Storr var ennfremur L stjórn Det Danske Selskab hér í Reykjavík um árabil og formaður þess í mörg ár. Hinn 21. okt. 1977, á 80 ára afmælisdegi sínum, var Ludvig Storr gerður að heiðursféiaga Det Danske Selskab. Eins félagsskapar Dana, sem Ludvig sýndi hinn mesta áhuga, er þó enn ógetið en það er Dansk Samvirke (félag Dana búsettra erlendis), en í því var Ludvig ævifélagi frá 1932. Hafði Ludvig ávailt mikinn áhuga fyrir vei- gengni þess félags hér á landi og sem dæmi má nefna að síðast, þegar fundum okkar Ludvigs bar saman fyrir um háifum mánuði, ræddi hann við mig hugmyndina að bjóða aðalritara Dansk Sam- virke — en sá sem þetta ritar, hefur verið fulltrúi Dansk Sam- virke á íslandi síðan 1974 — til íslands í haust í því skyni að efla enn meir tengsl hér búsettra Dana við félagið og bauðst hann jafn- framt til þess að standa straum af Qllum kostnaði í því sambandi. Félagið Dansk Samvirke, sem fram til 1919 nefndist foreningen De Danske Atlanterhavsöer en síðan tók til Dana um víða veröld, varð 75 ára í desember í fyrra og í því tilefni voru afhentir heiðurs- peningar til þriggja félagsmanna fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsins. Fóru tveir peninganna til St. Croix annarsvegar og Brússels hinsvegar en sá þriðji til Reykjavíkur, til Ludvigs Storr. Áf framanskráðu má glögglega sjá að störf Ludvigs Storr í þágu hinna ýmsu félaga landa sinna hérlendis voru metin að verðleik- um og er óhætt að fullyrða að við fráfall Ludvigs hafa félög þessi misst þann félagsmann sem hvað mestan svip hefur sett á starfsemi þeirra undanfarin mörg ár og áratugi og verða fundir þeirra framvegis ekki hinir sömu, án hans. Ég hef hér að framan reynt að nokkru að gera stuttlega grein fyrir aðild Ludvigs Storr að starfsemi hinna ýmsu félaga Dana á íslandi. Ég vii þó ekki ljúka þessum fáu orðum án þess að minnast annars þáttar í kynnum okkar Ludvigs, en það eru þau persónulegu kynni og síðan vin- átta, sem skapaðist með Svövu og Ludvig Storr og okkur hjónunum hin síðari ár. Kynni okkar hófust ekki fyrr en veturinn 1965—66 er ég, þá nýkominn aftur til íslands eftir nokkurra ára dvöl erlendis, gerðist félagi og jafnframt meðstjórnandi í stjórn Dansk—íslenzka Féiags- ins og síðan formaður þess árin 1972—1976. Kynntumst við þá af eigin raun hinni frábæru gestrisni þeirra hjóna og höfum við átt því láni að fagna að eignast fagrar og óútmáanlegar endurminningar um ótal margar gleðistundir í hópi góðra vina þeirra Svövu og Lud- vigs á hinu glæsilega heimili þeirra að Laugavegi 15. Við slík tækifæri og reyndar alltaf var Ludvig hrókur alls fagnaðar og svo hress og glaður að enginn leiddi hugann að þeim aldursmun, sem reyndar var á okkur. Maður getur varia óskað sjálf- um sér né öðrum betra en að fá að lifa fram yfir áttrætt, jafn líkam- lega og andlega hress og Ludvig var og síðan — að fá að deyja eins og hann, snögglega og án þjáninga. Því segja má að Ludvig hafi dáið eins og hann lifði. Ég vil að lokum fyrir sjálfan mig og hönd hinna dönsku félaga á íslandi þakka Ludvig fyrir samfylgdina og fyrir hans mikla framlag til starfsemi þeirra, framlag, sem skráð hefur nafn hans í sögu þeirra um ókomna tíð. Við hjónin vottum Svövu Storr og einkadóttur Ludvigs og barna- börnum hans okkar dýpstu samúð við fráfall hans. Torben Friðriksson. _Eitt bros getur dimmu í dagsljAs breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúizt við atorð eitt. Aðgát skal hbfð f nærveru sálar.” Á áttugasta og fyrsta aldursári er vinur minn, onkel Ludvig látinn. Að morgni sólríks dags 19. júli s.l. hné hann niður örendur við skrifborð sitt, að hefja enn einn starfsdag, en honum féll aldrei verk úr hendi. Það er á einskis manns færi að tíunda í stuttri minningargrein, hvert gagn Ludvig vann íslenzkri þjóð, Dönum, Grænlendingum og fjölda vina sinna, enda setti hann sig aldrei úr færi að gera öðrum greiða. Það er virðingarverður maður, sem lifir slíka ævi, mörg hlý ósk hlýtur að fylgja honum, þegar hann hverfur úr þessari veröld. Ludvig Storr var fæddur 21. október, 1897 í Kaupmannahöfn. Hann fluttist til íslands árið 1922. Sama ár, hinn 16. júlí, kvæntist hann fyrri konu sinni, Elínu Sigurðardóttur Storr og áttu þau eina dóttur, Önnu Dúfu. Árið 1944 missti Ludvig fyrri konu sína, en kvæntist eftirlifandi konu sinni, Svövu Einarsdóttur Storr, árið 1948. Hjá mínu fólki var onkel Ludvig „the grand old man“ og börnin, sem uxu úr grasi a.m.k. þrjár kynslóðir, fundu einnig í honum góðan vin og ráðgjafa. Menn, sem eru fordæmi og standa föstum fótum í hefð síns tíma, eru tákn beztu mannlegra eiginleika og víkja aldrei fyrir einskisverðu dægurþrasi, þannig var Ludvig „primus inter pares", fremstur meðal jafningja. Frá Laugavegi 15, heimili móðursystur minnar og Ludvigs, á ég margar beztu bernskuminning- ar mínar; á uppvaxtarárum mín- um þraut aldrei vináttuna á heimili Ludvigs og Svövu, einkum ef eitthvað blés á móti. Mælgi í tali og langhundar í skrifum voru Ludvig ekki að skapi, þess vegna læt ég þessi fáein fátækleg orð vera kveðju mína til hans. Ég hygg ég mæli fyrir munn alls míns fólks og votta vinkonu minni, Svövu, og frænku minni, Önnu Dúfu, samúð okkar allra. ' Ég óska kærum vini, onkel Ludvig, góðrar ferðar til annars heims, til allra ástvina sinna þar. Við hinir, sem dveljumst hér enn um stund, hugsum til hans með trega minnugir allra gleðistund- anna með honum. Knútur Bruun. Vinur minn Ludvig Storr, aðal- ræðismaður Dana, lézt að morgni 19. júlí. Hann dó með þeirri sömu reisn og hann hafði lifað alla ævi. Hann dó í skrifborðsstólnum sínum, þar sem hann var að bíða eftir gestum frá Grænlandi, Siriuspatruljen, en á móti þeim hafði hann tekið árum saman, eins og hann hefir greitt fyrir öllum málum Grænlands og Grænlend- inga, ég þori að segja meir en nokkur annar, og ég veit af persónulegri reynslu, að það hefir verið og er mjög mikils metið í því landi. Ludvig var einn af 8 systkinum. Hann var aðeins fárra ára, er hann missti föður sinn, en hann átti mjög dugmikla móður, sem kom öllum börnum sínum vel til manns. Hennar minntist Ludvig alltaf með mikilli ást og virðingu. Ludvig flutti til íslands 1922 og hóf þá að reka fyrirtæki sitt í byggingarvöru, glerslípun og speglagerð, en í gleriðnaði hefir fjölskyldan Storr starfað í um 400—500 ár. Það getur ekki hafað verið auðvelt fyrir erlendan mann að koma sér áfram hér á þeim árum. Ludvig hefir sagt mér, að þegar hann frétti af einhverjum, sem voru að reisa hús, fór hann á tal við þá og spurði, hvort hann mætti ekki gefa þeim tilboð í glugga. Þessi fáu kveðjuorð um vin minn eru ekki til að skrifa ævisögu hans. Til þess dygði ekki minna en heil bók, og hún löng. Ludvig vann mikið að dansk-ís- lenzkum samskiptum og miklu meira en flestir vita. Hann vann t.d. mikið bak við tjöldin að því að Danir afhentu okkur handritin. Ludvig hafði til síðustu stundar ákaflega mikið starfsþrek. Það er ógleymanleg minning þegar maður sat á Laugavegi 15 og beið eftir að hann kæmi heim frá skrifstofu sinni kl. kannski 18—19 og hann kom blístrandi inn, fullur af fjöri. Aldrei man ég eftir honum þreytt- um, aldrei í slæmu skapi. Hann var alltaf gleðigjafi hvar sem hann fór. Það var gaman að vera með Ludvig á rjúpnaveiðum, gæsaveið- um og laxveiðum. Minnisstæður var hlátur hans og gleðisvipur þegar Svava dró af honum blaut stígvélin og færði hann í þurra sokka eftir velheppnaðan laxveiði- dag, enda mat hann að verðleikum mikla umhyggju hennar fyrir sér. Andlát Ludvigs bar að á þann hátt, sem ég veit að var honum mest að skapi: í fullu fjöri og í fullu starfi. En okkur vinum hans finnst mikið skarð fyrir skildi og söknum hans mikið. Ingeborg og ég sendum Svövu, hans trygga lífsförunaut, innilegar samúðarkveðjur. Friðrik Einarsson. Afmœlis- og minn- ingar- greinar AF GEFNU tilcfni skal það enn ítrekað, að minningar- greinar, sem birtast skulu í Mbl., og greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag, verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en árdegis tveim dögum fyrir birtingar dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.