Morgunblaðið - 25.07.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 16 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
157. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Soares tapaði
þhignieirihluta
Lissabon. 24. júlí. AP, Reuter.
FLEST benti til að örlög ríkis-
stjórnar Mario Soaresar væru
ráðin í Portúgal í dag. er
íhaldsflokkur Miðdemókrata
ákvað að hætta stuðningi sínum
við stjórnina og draga þrjá
ráðhcrra sína til baka. Ríkis-
stjórn Soaresar er sex mánaða
gömul og er önnur stjórn hans
síðan ný lýðræðisleg stjórnarskrá
tók gildi 1976.
Talsmaður íhaldsmanna skýrði
frá því, að þrír flokksfélagar,
sem sæti áttu í samstjórn íhalds-
manna og jafnaðarmanna, hefðu
sagt af sér störfum á hádegi. Þeir
eru utanríkisráðherrann Victor
Sa Machado, viðskiptaráðherra
Basilio Horta og ráðherra fyrir
endurbætur á ríkiskerfi Rui
Pena. Það var miðnefnd
Miðdemókrataflokksins, sem tók
þessa ákvörðun og bar því við í
tilkynningu að jafnaðarmcnn
hefðu unnið með kommúnistum í
framkvæmd landbúnaðarstefnu
og snúist á sveif með sameignar
stefnu á kostnað einkaframtaks.
íDróltir1
Glæsilegt Landsmót
16 síðna íþróttablað fylgir
Morgunblaðinu í dag. Er það
að mestu leyti helgað 16.
landsmóti UMFÍ, sem fór
fram á Selfossi um helgina og
þótti mjög vel heppnað.
Bretum
dýrkeypt
að vera
íEBE
Brussel, 24. júlí. Reuter, AP.
AÐILD að Efnahagsbandalagi
Evrópu hefur reynzt Bretum
dýrkeypt í sjávarútvegi og
hefur kostað þjóðina meira en
helming hugsanlegs veiðiafla
að sögn brezka sjávarútvegs-
ráðherrans Johns Silkins í dag.
Ráðherrann skýrði frá því á
blaðamannafundi, að sextíu og
tvo hundraðshluta alls fisks, er
Efnahagsbandalagsþjóðirnar
ættu aðgang að, væri að finna
á hafsvæðum Breta. Benti hann
á að Bretar fengju aðeins
tuttugu og sex hundraðshluta
af heildarafla bandalagsins eða
fjörutíu og tvo af hundraði þess
afla, er þeir gætu veitt einir
sér.
Til samanburðar gat Silkin
þess að Danir fengju tvö
hundruð og áttatíu hundraðs-
hluta miðað vð það sem þeir
gætu haft út af fyrir sig, Belgar
Framhald á bls. 47
Leiðtogi flokksins, Siogo Freitas
do Amaral, lýsti því yfir að
ákvörðunina bæri ekki að túlka
svo sem miðdemókratar hefðu
snúið baki við jafnaðarmönnum.
Hann vonaðist þvert á móti til að
atburðir þessir ættu eftir að verða
til þess að flokkarnir samrýmdu
sjónarmið sín. Tilgangurinn með
afsögnum ráðherranna mun eink-
um hafa verið að knýja Soares til
að reka landbúnaðarráðherrann,
Luis Saias, úr stjórninni og gera
aðrár breytingar á stjórnarliðinu.
Jafnaðarmenn sjálfir líta svo á
að íhaldsmenn hafi reynt að
brjóta stjórnarsáttmála þann, er
gerður var eftir tveggja vikna þóf
á síðasta vetri.
Fréttáskýrendur eru ásáttir um
að Soares eigi nú nokkurra kosta
völ og sé einn þeirra að leggja
fram afsagnarbeiðni fyrir ráðu-
neyti sitt við Antonío Eanes og
efna til nýrra kosninga. Einnig
Framhald á bls. 47
„Þetta hundsspott,“ mætti halda að Begin hugsaði er Dayan
víkur máli sínu að Peres. leiðtoga stjórnarandstöðunnar. á
ísraelsþingi á mánudag. Dayan sést ekki á myndinni. en Peres
glottir að baki Begins.
Begin lumar á
gagntilboðum
Jerúsalem — Kaíró,
24. júlí, AP, Reuter.
MENACHIM Begin, forsætisráð
herra ísraels. gaf í skyn í dag að
ísraelsstjórn kynni að gera
Egyptum ný friðartilboð. þrátt
fyrir að hann hafi hafnað að
verða við beiðni Sadats, Egypta-
iandsforseta, um að láta Egyptum
eftir viss svæði á Sinai-skaga.
Einnig lýsti Begin því yfir að
hann myndi leita eftir óformleg-
um vinarsamskiptum við ná-
grannaríki næðu friðarsamning-
ar fyrir botni Miðjarðarhafs ekki
fram að ganga.
„Við látum ekki eftir svo mikið
sem eitt sandkorn af Sinai-eyði-
mörk að gjöf,“ sagði Begin í
Dollar ekki lægri
eftir seinna stríð
London, 24. júlí,
Reuter — AP.
DOLLAR hrundi í verði á gjald-
eyrismörkuðum í Evrópu í dag
eftir að hafa fallið niður fyrir 200
ycna markið í Tókýó í fyrsta
skipti cftir heimsstyrjöidina síð-
ari. Eins og ævinlega þegar
óreiða ríkir á gjaldeyrismarkaði
hækkaði verð á gulli snarlega. í
kjölfar þcssara atburða voru
kaffi og sykur skráð á lægra
verði á verðbréfamarkaði í Lond-
on cn tíðkast hefur um árabil.
Þrátt fyrir að Japansbanki
keypti um 400 milljónir dollara í
dag til að sporna við frekara falli
gjaldmiðilsins kom allt fyrir ekki
og var dollar skráður á 197.9 yen
á hádegi í London í dag, en það er
lægsta verð hans í meira en 30 ár.
Verð dollars hefur fallið jafnt og
þétt undanfarnar vikur, en þetta
er þó í fyrsta skipti að það sem
kaupsýslumenn hafa nefnt hið
„sálfræðilega skilrúm" við 200 yen
er rofiö. Fréttin vakti gífurlega
athygli í japönskum blöðum í dag
og létu sérfræðingar í ljós áhyggj-
ur yfir áhrifum atburðarins á
japanskar efnahagsúrbætur.
Bankayfirvöld og talsmenn fjár-
málaráðuneytis hafa þó lýst yfir
að ósennilegt sé að dollarinn tefji
lengi undir 200-yena borðinu.
Það kom fram hjá talsmanni
japönsku ríkisstjórnarinnar,
Shintaro Abe, á blaðamannafundi
í dag að hann teldi að fall dollars
væri tímabundið viðbragð kaup-
sýslumanna við þeim orðrómi að
samtök olíuútflutningsríkja hygð-
ust binda verð olíu framvegis við
gengi mismunandi gjaldmiðla
annarra en dollars. Aðrir sérfræð-
ingar hafa bent á að skýra megi
hrakfarir dollars í ljósi nýafstað-
inna stórfunda um efnahagsmál
svo sem fundar Efnahagsbanda-
lagslandanna í Bremen og sjö-
veldafundarins í Bremen. Þannig
var haft eftir verðbréfasala að
fundurinn í Bonn hefði nákvæm-
lega komið engu til leiðar í þá átt
að styrkja stöðu bandaríska gjald-
miðilsins í framtíðinni.
Framhald á bls. 37
5hæða
húshrundi
írúst
Kaíró, 24. júlí AP
FIMM hæða sambýlishús
hrundi til grunna í fátækra-
hverfi i miðborg Kaíró á
mánudag og varð fjörutíu og
tveimur að fjörtjóni. Stórtjón
varð einnig á tveimur háhýsum
í grenndinni.
Samkvæmt upplýsingum leit-
armanna er enn verið að grafa
lík úr rústunum og er talið að
áðurnefnd tala geti hækkað. Að
sögn lögreglu bjuggu um 50
manns í háhýsinu, þrátt f.vrir
að grunur leiki á að íbúar hafi
verið helmingi fleiri.
Fjölbýlishúsið mun hafa
hrunið um kl. sex að morgni
meðan flestir íbúa voru enn í
fastasvefni.
argvítugum orðasamskiptum
stjórnar hans og andstæðinga um
stefnu í utanríkismálum í dag. Á
hinn bóginn sagði Begin að ef
Sadat riði á vit sín og samþykkti
að leiða friðarumræður við Isra-
elsmenn á ný eftir tvær vikur
myndi hann gera gagntillögur á
móti því að Egyptar fengju
el-Aarish og Santa Kater-
ínu-klaustur á Sinai-fjalli. Aftur á
móti kom ekki frani hjá forsætis-
ráöherranum hvers Israelsmenn
kynnu að vænta í staðinn. en blöð
i lsrael hafa ýjað að því að
stjórnin fari þess e.t.v. á leit að
Egyptar fallist á landnám og
hernaðaraðstöðu Israelsmanna í
Sinai.
„En komi það á daginn," bætti
Begin við, „að friðarsamningar
reynist ógerlegir munum við
fallast á að stuðla að friðsamleg-
um samskiptum. Sígilt dæmi þess
konar stefnu er Þýzkaland í
Evrópu. Þjóðverjar undirrituðu
enga friðarsamninga við lok
heimsstyrjaldarinnar síðar, en
búa nú í sátt og samlyndi við alla
nágranna sína.“
Begin var iðulega truflaður í
Framhald á bls. 17
Vargöldin nær
til Salisbury
Salisbury, 24. júlí
Reuter
SLEGIÐ hefur í brýnu með
þjóðernissinnuðum hlökkumönn-
um og öryggissveitum í úthverf-
um höfuðborgar Rhódesi'u í
fyrsta sinn síðan borgarastyrjöld-
in hófst fyrir sex árum að siign
lögreglu í dag. Þrír uppreisnar-
menn létu lífið og tveir sa>rðust
og voru teknir hiindum.
Vopnaviöskipti áttu sér stað í
úthverfunum Mufakose og High-
Framhaid á bls. 17