Morgunblaðið - 25.07.1978, Page 2

Morgunblaðið - 25.07.1978, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 Hús Kaupfélags ísfirðinga á ísafirði, en þjófurinn fór inn f húsið um glugga á bakhlið þess. Ljósm Mbl. Úlfar. Hér fór þjófurinn upp á svaiir og inn um gluggann, sem örin vísar á. Stal tveimur milljón- um króna á skrifstofu Kaupfélags ísfirðinga ísafirði, 24. júlí BROTIST var inn í skrifstofur Kuapfélags ísfirðinga aðfarar nótt sl. sunnudags og stolið þaðan tveimur milijónum króna. Ekki hefur enn tekist að upplýsa neitt um hver þarna hefur verið að verki en í gær, sunnudag. komu hingað vestur tveir menn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins til að vinna að rannsókn málsins. Þjófurinn mun hafa klifrað upp á svalir á annarri hæð kaupfélags- hússins og komist þaðan inn um opinn glugga inn á aöalgang hússins. Þannig háttar til á hæðinni, sem þjófurinn hefur komist inn á, að allar hurðir þar eru með glergluggum. Mölvaði þjófurinn glugga og komst inn á skrifstofu umboðsmanns Ríkis- skips og á skrifstofu bæjargjald- kera, sem þarna er einnig til húsa. Þar hafði þjófurinn ekkert upp úr krafsinu, en á skrifstofu kaupfé- lagsins braut hann upp skúffur í skrifborði og fann þar lykla að peningaskáp fyrirtækisins. Opnaði hann skápinn og hafði á brott með sér tvær milljónir króna í reiðufé og ávísunum. - Úlfar. ÁKVEÐIÐ hefur verið að stöðva loðnuveiðarnar í eina viku frá og með deginum í dag að telja og hefjast þær ekki á ný fyrr en kl. 24.00 þann 31. júlí n.k. Þessi ákvörðun var tekin á sameigin- legum fundi Loðnunefndar, full- trúa verksmiðjueigenda og full- trúa útgerðarmanna. Veiðibannið var ákveðið vegna þess hve illa hefur gengið að vinna loðnuna síðustu daga, en hún hefur verið full af átu. Eftir því sem Morgun- blaðið kemst næst eru nú um 40 skip komin til loðnuveiða. Fundi ofangreindra fulltrúa lauk um miðnæturskeið í gær- kvöldi og þá var eftirfarandi fréttatilkynning send út: „Á sameiginlegum fundi Loðnu- nefndar og fulltrúa útgerðar- manna og verksmiðjueigenda í kvöld var ákveðið vegna þess hve loðnan sem nú veiðist er erfið í vinnslu að stöðva loðnuveiðar til kl. 24. 31. júlí. Undanskildir þessu veiðibanni eru þó þeir loðnubátar sem nú eru á miðunum og ekki hafa lagt afla á land s.l. sólar- hring, þ.e. 24. júlí. Þeir bátar sem þannig geta lokið veiðiferðum og reynt verður að finna löndunar- rými fyrir eru: Bjarni Ólafsson, Fífill, Hilmir, Óskar Halldórsson, Pétur Jónsson, Sandafell, Súlan, Sæbjörg, Þórshamar og Örn. Ákvörðun þessi er tekin í framhaldi af samkomulagi Félags fiskmjölsframleiðenda og Lands- sambands ísl. útvegsmanna um það að fela Loðnunefnd að annast stjórnun á veiðunum meðan loðnan er í því ástandi sem nú er. Er gert ráð fyrir því að þegar veiðar hefjast aftur, væntanlega að viku liðinni, ákveði loðnunefnd hve mörg og hvaða veiðiskip megi hefja veiðarnar og verður þá tekið tillit til þess m.a. hverjir nú fá að ljúka veiðiferðum sínum og mót- tökurýmis ioðnuverksmiðjanna." Veiði böirnuð í Mývatni — nema bændur mega haf a tvö net yfir eina nótt í viku Vilmundur svarar ekki KOMIÐ hefur fram í blöðum. að Alþýðuflokkurinn hafi ákveðið að tefla Vilmundi Gylfasyni ekki fram í þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem fram fara og í grein Indriða G. Þorsteinssonar í dagblaðinu Visi sagði hann, að Vilmundur hefði verið frystur úti. Morgunblaðið bar þessi ummæli undir Vilmund. en hann vildi ekkert um þau segja. Björk, 24. júlí. Á FUNDI í Veiðifélagi Mývatns, sem haldinn var á Skútustöðum sl. laugardagskvöld, var sam- þykkt að banna allar veiðar f Mývatni frá og með 25. júli til 27. september 1978. Þó samþykkti fundurinn aö hverjum veiðirétt- arhafa væri heimilt að leggja tvö net fyrir sínu landi frá sunnu- dagskvöldi til mánudagsmorg- uns. Allgóð silungsveiði hefur verið í Mývatni það sem af er sumri. Árið 1977 var netafjöldi mjög takmarkaður í vatninu. Var þó hverjum veiðiréttarhafa heimilaö að veiða í aðeins fjögur net. Að undanförnu hefur Jón Kristjáns- son fiskifræðingur unnið að rann- sóknum á silungsstofninum i Mývatni. Benda þær rannsóknir til að nú sé þörf enn frekari friðunar með því meðal annars að tak- marka netafjöldann frá því sem verið hefur um skeið, ef tryggt á að vera að stofnunin- verði við haldið. Og sem fyrr sagði hefur Veiðifélag Mývatns nú þegar samþykkt slíka friðun um tíma. Kristján. 220 hval- irkomn- ir á land ALLS VORU í gær komnir á land 220 hvalir í Hvalstöðinni í Hval- firði og þá voru tveir hvalbátar á leið til Iands og báðir með tvo búrhvali. Þessir 220 hvalir skiptast þann- ig að 167 langreyðar hafa veiðst og 53 búrhvalir. Er þetta verulega meiri veiði en í fyrra en þesS ber þó að geta, að hvalvertíðin í fyrra hófst þremur vikum seinna en nú. Um miðjan júlí í fyrra voru komnir á land um 100 hvalir. — Veiðin er alveg ágæt og við gerum ráð fyrir að verða að eins og venjulega fram í miðjan septem- ber eða til loka þess mánaðar, sagði starfsmaður Hvalstöðvar- innar, sem blaðið ræddi við. Jens F. Magnússon íþróttakennari látinn LÁTINN er í Reykjavík Jens F. Magnússon íþróttakennari. Hann var fæddur 5. september 1915 á Bíldudal og eftir að hafa lokið Jens F. Magnússon þar unglingaprófi fór hann til náms við Gymnastikhöjskolen, Ollerup á Fjóni og var þar 1935 til 1936. Jcns tók kennarapróf með íþróttir sem sérgrein árið 1938 og var það sama ár á íþróttanámskeiði á vegum Oslo Turnforening. Jens var fimleikakennari við ýmsa skóla en kennslu hóf hann við barnaskólann í Skildinganesi 1936—40, St. Jósefssk., Landakoti, 1938—40, gagnfræðaskóla Vestur- bæjar frá 1942, Verzlunarskólann frá 1944 og Samvinnuskólann 1948 til 1955. Frá árinu 1957 kenndi hann við Landakotsskóla og barnaskólann á Seltjarnarnesí, Mýrarhúsaskóla. Eftir að hann lét af kennslustörfum starfaði hann sem húsvörður við íþróttahús Hagaskóla. Jens vann mikið að fimleika- íþróttum og kenndi fimleika bæði hjá Glímufélaginu Ármanni og KR. Eftirlifandi kona Jens er Guðrún Guðmundsdóttir. Utskipun í skip frá Panama 8töðvuð vegna vangreiddra launa: Útgerðin varð að leggja fram um 35 millj. króna tryggingu FULLTRÚAR Sjómannasam- bands (slands fengu á laugar- dagsmorgun hafnarverkamenn f Hafnarfirði til að leggja niður störf við útskipun f flutninga- skipið Fortuna Carrier, sem hér tekur loðnuafurðir. Skipið siglir undir fána Panama en eigendur þess eru japanskir. Við athugun fulltrúa Sjómannasambandsins á skjölum skipsins kom f ljós að skipverjar, sem fyrir utan skip- stjóra og tvo japanska vélstjóra eru Filipseyingar, voru ekki ráðnir samkvæmt kjarasamning- um, sem Alþýðasamband flutn- ingaverkamanna viðurkennir. Voru mánaðarlaun hásetanna 130 dollarar á mánuði og þar af um 30% í yfirtíð eða um 33 þúsund krónur á mánuði. Alþjóðasam- band flutningaverkamanna viðurkennir hins vegar ekki lægri mánaðarlaun sjómanna en 567 dollara. Var skipstjóra og útgerðaraðilum skipsins gerð grein fyrir því að skipið yrði ekki fermt fyrr en lögð yrði fram trygging fyrir greiðslu á því sem vantaði á laun skipverja. Var þessi trygging lögð fram af hálfu útgerðaraðila skipsins og nam hún rúmlega 136 þúsund dollur- um eða um 35 milljónum ís- lenzkra króna. Þegar þessi trygg- m*' -1 '* »•*< .»**« C5-“ J FIutninKaskipið Fortuna Carrier lá í gær í Hafnarfjarðarhöfn en á einnig eftir að lesta f Keflavfk. Hér tekur það loðnuafurðir. Ljósm. Emilía. ing lá fyrir hófst útskipun um borð í skipið á ný í gærmorgun. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambandsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að Fortuna Carrier hefði komið til Reykjavíkur fyrir einum 10 til 12 dögum og sigldi skipið undir fána þjóðar, sem mjög væri illa séð af öllum sjómönnum og löglegum útgerðarfélögum, vegna þess að Panama leyfir skipum að sigla án þess að eðlilegar launagreiðslur séu viðhafðar eða öryggisbúnaður skipanna og tryggingagreiðslur skipverja séu eins og reglur gera ráð fyrir. — Gegn slíkum út- gerðarmáta berst Alþjóðasam- band flutningaverkamanna ITF, og okkur þótti því ástæða til að Framhald á bls. 47 MorKunblaösmenn fóru í gær um borð í skipið í Hafnarfjarðarhöfn, þegar upp- skipun var nær lokið. Þegar til kom, viidu fulltrúar skipverja sem minnst um launamálin segja, og fékkst sú skýring, að þeir vildu ekki stofna atvinnu sinni f hættu með yfirlýsingum um kjörin. Ekki náðist f skipstjórann. Loðnuveið- ar stöðv- aðar í viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.