Morgunblaðið - 25.07.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
3
Jón Dan selur
í Þýzkalandi á
miðvikudaginn
Minningarathöfn var í Dalvíkurkirkju á sunnudag um piltana
fjóra sem fórust á Eyjafirði 17. júní sl. Að lokinni athöfn í
kirkjunni var lagður krans á Minnismerki um drukknaða sjómenn
við kirkjuna á Dalvík. Ljósm. Júlíus Snorrason.
Fjölmenni við
minningarathöfn-
inaáDalvík
Á SUNNUDAG fór fram í
Dalvíkurkirkju minningarat-
höfn um piltana fjóra, sem
fórust á Eyjafirði þann 17. júní
sl.
Fjölmenni var við athöfnina
og varð hluti mannfjöldans að
standa utan kirkjudyra en talið
er að nær 400 manns hafi verið
saman komnir við athöfnina.
Piltarnir fjórir hétu Stefán
Ægisson, Símon Hilmarsson,
Egill Antonsson og Gunnar
Jónsson.
Krans frá foreldrum piltanna
var lagður við Minnismerki um
drukknaða sjómenn úti fyrir
Dalvíkurkirkju.
Við athöfnina í Dalvíkur-
kirkju flutti séra Stefán Snæv-
arr minningarorð og kirkjukór
Dalvíkurkirkju söng undir
stjórn Gests Hjörleifssonar en
einnig söng Garðar Cortes
einsöng við athöfnina. p£]agar
úr Skátaféagi Dalvíkur stóðu
fyrir kirkjudyrum með íslenska
fána og að athöfninni í kirkj-
unni lokinni báru skátar krans
úr kirkjunni að minnismerki um
drukknaða sjómenn ur Svarfað-
ardal og frá Dalvík. Var krang
frá foreldrum piltanna lagður
við minnismerkið. Kirkjukórinn
söng við athöfnina utan kirkj-
unnar.
Hækkunarbeiðnir bíða afgreiðslu:
Hitaveitan um 25% - Lands-
virkjunum 35% og Rafmagns-
veita Reykjavíkur um 22,3%
SKUTTOGARINN Jón Dan
GK er nú á leið til Þýzkalands
í söluferð og selur þar á
miðvikudag. Það hefur aldrei
komið fyrir að íslenzkt skip
hafi selt ísfisk í Þýzkalandi
yfir sumartímann, en ástæð-
an fyrir því að Jón Dan fer í
þessa ferð er sú, að skipið gat
hvorki landað á íslandi, í
Færeyjum né í Englandi.
Fiskurinn, sem Jón Dan er
með, er að mestu leyti þorskur
og fást aðeins 94 pfenningar
fyrir kílóið af þorskinum í
Þýzkalandi um þessar mundir
eða aðeins rösklega 100 kr. Þá
er skipið með nokkuð af karfa
og ufsa og er búist við mun
300 til 400
manns á Skál-
holtshátíð
SKÁLHOLTSHÁTÍÐ var haldin á
sunnudag og sóttu miili 300 og
400 manns messu og samkomu í
Skálholtskirkju þá um daginn.
Ilófst hátíðin með messu kl. 14
þar sem biskupinn, hr. Sigur
björn Einarsson, prédikaði og
Skálholtskórinn söng.
Seinna um daginn var haldin
samkoma í kirkjunni og flutti
Björn Þorsteinsson, prófessor, þar
erindi um sögu Skálholts. Hinn
kunni organisti dr. Finn Videro lék
á orgel kirkjunnar. Þá var flutt
tónverk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og voru það kór Háteigskirkju
undir stjórn Marteins Friðriksson-
ar og félagar úr Sinfóníuhljóm-
sveit Islands sem fluttu verkið.
NíelsP.Sig-
urdsson heim til
starf a í utanrík-
isráduneytinu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Pétur
Eggerz taki við starfi sendi-
herra íslands í Bonn frá 1.
október 1978 að telja.
Níels P. Sigurðsson, sem gegnt
hefur sendiherrastörfum í Bonn
síðan á öndverðu ári 1976, mun
flytjast til starfa í utanríkisráðu-
neytinu.
hærra verði fyrir þær tegund-
ir.
Skuttogarinn Engey seldi
hluta af farmi í Hull í gær, alls
135 lestir fyrir 31,3 millj. kr.
og var meðalverð fyrir aflann
232 kr.
Þá seldi Mánatindur í Fleet-
wood 824 kassa fyrir 9.6 millj.
kr.
Lektor í ísl-
lensku í Ósló
AUGLÝST hefur verið laust til
umsóknar starf lektors í íslensku
við Háskólann í Ósló og er
umsóknarfrestur um starfið til 1.
ágúst n.k.
Starfið verður veitt frá 1. janúar
n.k. og er veitt til þriggja ára en
heimilt er að endurráða viðkom-
andi einu sinni. Að sögn Bjarna
Einarssonar hjá Árnastofnun er
tekið fram í auglýsingunni að
starfið sé ætlað íslendingi en því
hefur gegnt að undanförnu dr.
Ivar Orgland.
Reikningar
Sirkussins
hjá ríkis-
endurskoðun
Menntamálaráðuneytið
hefur enn til meðferðar
hvort skemmtanaskattur
verður felldur niður af
sýningum Gerry Cottle
sirkussins, sem hingað kom
á vegum Bandalags ís-
lenskra skáta.
Að sögn Birgis Thorlacíus ráðu-
neytisstjóra hefur ráðuneytið
fengið í hendur reikninga sirkuss-
ins og sent þá áfram til ríkis-
endurskoðunar. — Ríkisendur-
skoðun er hlutlaus aðili, sem
annast alla reikningslega endur-
skoðun fryir ráðuneytið og við
óskuðum eftir því að hún yfirfæri
reikninga sirkussins og þegar
niðurstaða þeirrar endurskoðunar
liggur fyrir tekur ráðuneytið
ákvörðun í málinu, sagði Birgir.
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur
nú til meðferðar beiðnir um
hækkun á töxtum Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og fleiri rafveitna í
landinu og Hitaveitu Reykjavík-
ur. Að sögn Kristmundar Ilall-
dórssonar, deildarstjóra í iðn-
aðarráðuneytinu. liggur einnig
fyrir í ráðuneytinu beiðni írá
Landsvirkjun um 35% hækkun á
rafmagni í heildsölu og er sú
beiðni nú til athugunar hjá
Þjóðhagsstofnun.
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti nýverið að óska eftir 25%
hækkun á gjaldskrá Hitaveitunnar
og hefur sú beiðni ekki enn verið
afgreidd. Rafmagnsveita Reykja-
víkur hefur farið fram á 8,3%
hækkun á töxtum sínum en verði
Landsvirkjun heimiluð hækkun á
verði rafmagns í heildsölu, þarf
Rafmagnsveita Reykjavíkur alls
að fá 22,3% hækkun á sínum
töxtum til að mæta þeirri hækkun
og sinni fyrri hækkunarbeiðni.
Kristmundur sagði, að einnig
lægju fyrir beiðnir frá öðrum
rafmagnsveitum í landinu s.s.
Rafmagnsveitum ríkisins um
hækkun á töxtum og væri þar gert
ráð fyrir hliðstæðum hækkunum
og hjá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur.
■Um það hvenær mætti búast við,
að þessar hækkunarbeiðnir fengju
afgreiðslu, sagði- Kristmundur að
hann gæti ekkert fullyrt. Hins
vegar hefði í tengslum við samn-
inga aðila vinnumarkaðarins um
kaup og kjör í fyrra verið gert um
það samkomulag að opinber þjón-
usta hækkaði ekki nema á þriggja
mánaða fresti og í samræmi við
það þyrftu þessar hækkanir að ná
samþykki fyrir 1. ágúst n.k. eða að
þær kæmu ekki til framkvæmda
fyrr en að þremur mánuðum
liðnum nema þessu samkomulagi
yrði breytt. — Tæknilega séð er
orðið mjög tæpt á því að þessar
beiðnir geti farið í gegn fyrir 1.
ágúst en ég get ekkert sagt til um
hvort það verður eða ekki, sagði
Kristmundur.
Skemmtiferðaskipið World Discoverer kom til Hafnar í Hornafirði sl. sunnudag. Er þetta fyrsta
skemmtiferðaskip sem kemur til Hafnar og jafnframt stærsta skip, sem þar hefur lagst að bryggju
fyrir utan ameríska innrásarpramma. Ljósm. Mbl. Elías.
Fyrsta skemmtiferðaskipið til Hafnar:
Barþjónninn ætlaði að sigla á ís-
jaka en fékk kalt bað í Jökulsá
Skemmtiferðaskipið World
Discoverer kom hingað til Hafn-
ar í Hornafirði klukkan níu
árdegis á sunnudag og voru með
því 89 farþegar en áhöfn skipsins
skipa 79 manns. Er þetta stærsta
skip, sem komið hefur til Hafnar
fyrir utan amerfska innrásar
pramma en skipið er 3153 tonn
og er jafnframt fyrsta skemmti-
ferðaskipið, sem hingað kemur.
Farþegar skipsins fóru meðal
annars í skoöunarferð í Skaftafell
og að Jökulsá en einnig fóru
nokkrir í styttri ferðir um ná-
grenni Hafnar. Það bar helst til
tíðinda í skoðunarferð farþeg-
anna, að einn af barþjónum
skipsins hafði hug á því að fá sér
smásiglingu á einum isjakanum á
Jökulsárlóni en ekki var jakinn þó
. nógu stór til að bera barþjóninn
og sökk jakinn undan honum og
barþjónninn varð að synda í land.
Koma skipsins hingað vakti
mikla athygli íbúa Hafnar og er
hald manna að sjaldan eða aldrei
hafi jafn margir Hafnarbúar verið
saman komnir niðri við höfnina og
þegar skipið lagði frá um kl. 9 á
sunnudagskvöldið. Héðan fór skip-
ið til Vestmannaeyja.
-Elías.