Morgunblaðið - 25.07.1978, Side 18

Morgunblaðið - 25.07.1978, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 Hafsteinn Þorvaldsson# formaður UMFÍ: „Landsmótri mega ekki vaxa okkur yf ir höf uð' HAFSTEINN Þorvaldsson formaður UMFÍ sagði í viðtali við Morgunblaðið að landsmótinu loknu á Selíossi, að mótið hefði tekist vonum framar og verið mun auðveldara í framkvæmd heldur en landsmótið á Laugarvatni 1965. — Eg tel að landsmótið hafi verulegu uppeldis- og menningar- legu hlutverki að gegna í íslensku þjóðlífi. Aldrei fyrr hafa forystu- menn í félagsstarfi á hverjum stað lagt jafn mikið að sér á öllum sviðum við undirbúning fyrir landsmót. Enda var staðreyndin sú að afrek íþróttafólksins voru glæsileg. Landsmótið fór nú fram við bestu hugsanlegar aðstæður, og ungmennafélagshreyfingin stendur í mikilli þakkarskuld við þá aðila sem á elleftu stundu tóku að sér framkvæmd þessa móts, eftir að sýnt var að UMSE gat ekki að þessu sinni haldið mótið. Ég vil nota tækifærið á að þakka sveitungum mínum sem gerðu það kleift að HSK gat með svo stuttum fyrirvara haldið svona glæsilegt og vel skipulagt landsmót og raun ber vitni um. Hið félagslega átak sem liggur á bak við mótshaldið er liðlega þrjú þúsund íbúum Selfoss til mikils sóma. Áhuginn á mótinu er alltaf að aukast, hér voru mættir til leiks 1200 íþróttamenn í keppnisgreinar og sýningar- flokka frá 20 héraðssamböndum, sýningarflokkur frá Danmörku og svo mætti lengi telja. Allt hefur gengið eins vel og kostur er á, hvað meira er hægt að óska sér. — Ég óttast að vísu að mótin séu að verða of stór í sniðum, og ég tel að bú séu fáir staðir sem geti orðið haldið mótin svo að sómi sé af. Mótin eru orðin svo mikil að vexti að við megum passa okkur á því að þau vaxi okkur ekki yfir höfuð. Samt verðum við ávallt að muna að mótið má ekki missa þá miklu reisn sem það hefur haft yfir sér svo lengi. Þetta landsmót sem nú er lokið ber fagurt vitni þeirri hugsjón sem U.M.F.I. hreyfingin berst fyrir. Andi vináttu var ríkjandi, og uppskeran er allri auðlegð meiri fyrir það æskufólk sem sótti landsmótið sagði formaðurinn að lokum. • Frá setningu Landsmótsins á Selfossi. A myndinni eru m.a. Hafsteinn Þorvaldsson, formaður UMFÍ, Jóhannes Sigmundsson, formaður lands- mótsncfndar, Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráð- herra, dr. Kristján Eldjárn forseti íslands og frúr þeirra. • Talið er að gestir á landsmótinu hafi verið 10—15 þúsund og kepp- endur voru um 1100 að tölu og hafa aldrei verið fleiri. Fólk fylgdist almennt mjög vel með því sem fram fór og eins og vænta mátti voru jafnan flestir áhorf- endur við íþróttavöllinn. Myndin hér til hliðar sýnir einmitt mannfjölda fylgj- ast með því sem fram fer á íþróttavellinum. Sól skein í heiði flesta mótsdagana þótt hvasst væri og notuðu margir tækifærið til þess að sleikja sólskinið. Þessar yngismeyjar á myndinni að ofan hittum við fyrir í heitu pottunum hjá sund- höllinni og er ekki annað að sjá en vel hafi farið um þær. ItVan Guðm. Jónsson framkvæmdastjóri: Miklarfram- Þegar litið er á hversu stórt þetta mót er í sniðum og kcppnisgreinar eru margar er ekki hægt að segja annað en að mótið hafi gengið mjög vel fyrir sig, sagði framkvæmdastjóri landsmótsins Guðmundur Jónsson er við ræddum við hann á Selfossi í gærkvöldi í þann mund sem mótinu var að ljúka. — Það var gífurlega mikil undirbúningsvinna sem fram- kvæma þurfti fyrir mótið, og öll sú mikla vinna virðist hafa skilað sér vel. Þá má ékki gleyma öllum þeim sjálfboðaliðum sem störfuðu við mótið, þeir munu hafa verið í kring um 600 talsins, og vinna þeirra var ómetanleg. Það er í raun og veru orðin spurning hvort áhugamenn geti staðið í þessu, allur kostnaður og undirbúningur er orðinn svo mikill. En það vegur þó upp á móti að landsmótin skapa mikla samheldni hjá mönnum og allt virðist þetta leysast þegar menn snúa bökum saman og takast á við vandamálin. — Hvað finnst þér bera hæst á þessu landsmóti? — Tvímælalaust öll þau góðu afrek sem unnin hafa verið í íþróttagreinunum, frjálsíþrótta- keppnin hefur aldrei verið betri og sundíþróttin, sem á vaxandi fylgi að fagna, kom sterk frá mótinu, þau voru ófá landsmótsmetin sem féllu, það sýnir best þær miklu framfarir sem eiga sér stað. — Hvað með kostnaðarhliðina? — Mér sýnist í fljótu bragði að héraðssambandið sleppi, það verður enginn ágóöi eða lítill, en tap ætti ekki að geta orðið, við fengum að vísu færri áhorfendur og mótsgesti en búist var við, þeir urðu um 15 þúsund alls, þó var ekki gott að gera sér grein fyrir því hve margir sóttu mótið sökum þess hve því var dreift á marga staði. — Finnst þér landsmótið vera of fastmótað? — Nei alls ekki. Landsmótin eiga að vera með þessu sniði, það er eitthvað fyrir alla og er það vel. Þá setja hátíðardagskráin og kvöldvökurnar alltaf sinn svip á mótin og gera þau skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. Selfossbú- ar hafa tekið vel á móti gestum sínum og við getum verið stoltir yfir því að svo vel tókst til, sagði Guðmundur að lokum. Reiknað er með að næsta landsmót UMFÍ fari fram á svæði U.M.F.E. og þá væntanlega á Dalvík. Landsmótsblað Morgunblaðs- ins unnui Sigtryggur Sigtryggsson ‘Þórarinn Ragnarsson Helgi Daníclsson Kristinn Ólafsson. farir ber hæst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.