Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 48
AUCíLYSINGASIMINN ER: 22480 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 greiðslugetu Verðjöfnunarsjóðs Gert ráð fyrir að Seðlabankírai hækki ararðalán tilfry stihúsa — jafnhliða afnámi útflutningsbannsins Búizt við að ríkissjóður ábyrgist Fyrsta djáknavígslan frá því fyrir siðaskipti fór fram í Landakots- kirkju í Reykjavík á sunnudag. Agúst K. Eyjólfsson var þá vígður til djákna og sá Hinrik Fehen, biskup, um vígsl- una. Myndina hér tók Óli K. Mag. við það tækifæri. Sjá bls. 33. ÞESS ER jaínvel að vænta í dag, að ríkisstjórnin taki ákvörðun um að ábyrjíjast greiðslur úr frystideild Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar- ins, þannit; að sjóðurinn geti staðið við greiðslu á þeirri 15% hækkun viðmiðunarverðs sem ákveðin var frá 1. júní s.l. og gilda átti til 1. ágúst n.k. Hins vegar tæmdist sjóðurinn mikiu fyrr en nokkur átti von á og 1000 millj. kr. sem til voru í frystideildinni er ákvörðunin var tekin voru uppurin um mánaðamót júnf—júií. Ljóst er að ríkissjóður þarf því að bera ábyrgð á greiðslu 1000 milijóna kr. eða meira til að standa við greiðslubindingar sjóðsins í júli'mánuði. Jafnhliða ákvörðun Verka- mannasambandsins að fresta út- flutningsbanninu er reiknað með að Seðlabankinn kanni möguleika á að hækka afurðalánin, en afnám útflutningsbannsins var forsenda þess að ríkisstjórn og Seðlabanki teldu möguleika á að framkvæma ofangreindar aðgerðir. Stjórn Seðlabankans hefur sagt að ekki sé hægt að auka afurðalánin nema því aðeins, að útflutningur frá landinu verði örari, allt fjármagn sé bundið í birgðum í landinu. Hins vegar var Morgunblaðinu tjáð í gærkvöldi, að það væri efamál að útflutningur á fiski yrði mikið hraðari á næstu dögum eða vikum. Ástæðan væri einfaldlega sú, að framleiðsluaukningin væri orðin mjög mikil nú á stuttum tíma miðað við sama tímahil í fyrra eða í kringum 20%, myndu birgðir í landinu varla minnka mikið af þessum sökum og öll hugsanleg skip væru í flutningi á fiski frá landinu. „Þess er ekki að vænta, að það nægi, eins og ég hef oft sagt áður, að ábyrgjast eingöngu greiðslu- getu Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn- aðarins, vegna þess að einnig er nauðsynlegt að afurðalán Seðla- bankans hækki í kjölfarið. Hins vegar hefur Seðlabankinn ekki talið sig geta hækkað þau, þar sem peningar eru bundnir í útflutn- ingsvörubirgðum, sem safnast hafa mikið upp vegna útflutnings- bannsins," sagði Geir Hallgríms- son forsætisráðherra, þegar Morgunblaðið spurði hann í gær- kvöldi hvort vænta væri einhverr- ar bráðabirgðalausnar á vanda frystiiðnaðarins í dag. „Það er spurning hvaða áhrif þessi nýja samþykkt Verkamanna- sambandsins mun hafa til þess að birgðir seljist örar úr landi, svo að unnt verði að hækka afurðalánin. Þannig má draga þá ályktun að það hafi verið á ábyrgð Verka- mannasambandsins ef til stöðvun- ar frystihúsanna kemur,“ sagði forsætisráðherra ennfremur. „Ég tel þá ákvörðun Verka- mannasambandsins að hverfa frá útflutningsbanninu mjög skyn- Framhald á bls. 47 Alþýðubandalagið um frumdrög Benedikts að stjórnarsáttmála: Rammi með gati,þar sem eftir er að fylla í efnahagsúrræði Línurnar skýrast ekki í þessari viku segja alþýðubandalagsmenn Alþýðubandalagið telur að þau frumdrög að stjórnarsáttmála, sem Benedikt Gröndal, formaður Alýðuflokksins, lagði fram í gærmorgun, skýri stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðunum ekki að neinu ráði. þar sem ennþá vanti tillögur um lausn éfnahags- vanda næstu mánaða. „Þetta er rammasamningur með gati,“ sagði einn alþýðubandalags- manna, „þar sem vantar f dæmið um efnahagsvandann, sem nú er við að glíma.“ Benedikt Gröndal sagði í' samtali við Morgunblaðið í gær, að lausn efnahagsvandans væri mjög viðkvæmt mál og að hann vildi reyna að finna sam- Skrifstofustjóri Rannsókn- arlögreglunnar viðurkennir nær 3 milljón króna fjárdrátt SKRIFSTOFUSTJÓRI Rann sóknarlögreglu ríkisins, Baldvin Jóhann Erlingsson, hefur viður- kennt við yfirheyrslur, að hann hafi dregið sér tæpar 3 milljónir króna af fé hjá stofnuninni nú um nokkurt skeið. Var skrifstofu- sfjórinn í sumarleyfi erlendis, þegar grunur vaknaði um þenn- an f járdrátt og var hann handtek- inn i' fyrrakvöld við komu til landsins. Við yfirheyrslur í gær játaði hann að hafa dregið sér þetta fé og var hann í gærkvöldi úrskurð- aður í 21 dags gæsluvarðhald. Rannsóknarlögregla ríkisins ósk- aði í gær eftir því að skipaður yrði sérstakur rannsóknaraðili til að halda áfram rannsókn málsins og ákvað ríkissaksóknari að fela bæjarfógetaembættinu í Kópavogi að vinna að rannsókn málsins en skrifstofustjórinn er búsettur þar f umdæminu. Skrifstofustjórinn hóf störf hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er hún hóf sjálfstæðan skrifstofu- Framhald á hls. 47 komulagsgrundvöll „án þess að brjóta á sérstökum tillögum nú“. Lúðvík Jósepsson, formaður Al- þýðubandalagsins, sagði þó, að ljóst væri að vandinn í stjórnar myndunarviðræðunum snerist ekki si'zt um þann þátt „sem engar tillögur voru gerðar um“ og að hann tcldi sjónarmið aðila liggja fyrir „og að því fyrr, sem tillögur í efnahagsmálum eru Iagðar fram, þeim mun betra, þvi' að á þeim veltur, hvort tök eru á því, að þessir flokkar myndi ríkisstjórn eða ekki.“ Ólafur Ragnar Grímsson, for maður framkvæmdastjórnar Al- þýðubandalagsins, sagði f viðtali við Morgunblaðið f gær, að tillögur Benedikts Gröndal, sem flokkunum hefðu verið afhentar f gærmorgun, hefðu verið til um- ræðu á þingflokksfundi Alþýðu- bandalagsins í gær síðdegis. 1 dag hefur verið boðaður fram- kvæmdastjórnarfundur í Alþýðu- bandalaginu, þar sem einnig munu verða forystumenn í verka- lýðshreyfingunni. Þá hefur verið hoðaður miðstjórnarfundur í AI- þýðubandalaginu næstkomandi föstudag. „Allar þessar stofnanir fá þetta til umræðu. og mér þykir ólíklegt, að neitt endanlegt komi í ljós í þessu máli í þessari viku,“ sagði Ólafur Ragnar. Framhald á bls. 47 —f--------------------- Afram bjart fyrir sunnan SPÁÐ er enn um sinn björtu veðri á suðvesturhorni landsins að sögn Páls Bergþórssonar veðurfræðings og má búast við að þar verði nær óbreytt veður næstu 2 til þrjá daga. Hitinn í Reykjavík í gær komst hæst í 17,6 stig. Norð-austanátt er á öllu landinu en aðeins er bjart yfir á sunnanverðu landinu og kalt er sérstaklega á norðan- verðu landinu og lítið um þurrk þar. Útflutningsbaimi frestað STJÓRN Verkamannasambands íslands samþykkti í gær að beina því til aðildarfélaga sinna, að þau frestuðu fyrst um sinn fram- kvæmd útflutningsbannsins, sem staðið hefur í röska þrjá mánuði, „enda er þess vænzt að mjög bráðlega fáist full viðurkenning á því, að gengið verði til samn- inga við Verkamannasambandið á grundvelli tilboðs þess, sem sambandið lagði fram á fundi með sáttasemjara og fól í sér fulla og óskerta vísitölu á allt kaup, sem í dag er allt að 169.000 krónur dagvinnu og óskert álag samkvæmt samningum á alla yfirvinnu,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá VMSÍ. Fréttatilkynning Verkamanna- sambandsins, sem barst í gær, er svohljóðandi: „Á fundi framkvæmdastjórnar Verkamannasambands Islands í dag var samþykkt eftirfarandi áskorun til aðildarfélaga sam- bandsins: „Útflutningsbann Verkamanna- sambands íslands hefur nú staðið í röska þrjá mánuði. Bannið hefur tvímælalaust haft mikil áhrif á að knýja á um að hin ranglátu kauplækkunarlög verði afnumin. Allmargir aðilar hafa þegar samið um fullar launagreiðslur sam- kvæmt kjarasamningum eða greitt laun samkvæmt þeim. Þannig hafa allstór skörð veriö höggvin í þann múr sem átti að umlykja samtökin í krafti laganna. Framh á bls. 47

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.