Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 12

Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 Á faraldsfœti með Islenzka alpaklúbbnum: Morgunblaðið var nýverið á ferð með fimm ungum fjall- göngumönnum, félögum í ís- lenzka alpaklúbbnum. Ferð- inni var heitið í Gigjökul, einn skriðjökla Eyjafjallajökuls. — Æfingaferð þessi var sú síðasta af fjöldamörgum í undirbún- ingi þeirra fyrir þriggja vikna æfinga- og klifurferð í Ölpun- um, Sviss og Frakklandi, sem þeir hyggjast leggja upp í innan skamms. Þeir félagar íslenzka alpaklúbbsins sem taka þátt í þessari ferð eru> Ingvar Teitsson, ritari klúbbs- ins, Sveinn Sigurjónsson, Ævar Aðalsteinsson, Örvar Aðal- steinsson og fararstjórinn, Helgi Benediktsson, sem jafn- framt er varaformaður klúbbsins. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli betur en nokkur skrif, "Upphitun í Eyjafjallajökli fyrir fjallgöngur í Ölpunum því er ekki ætlunin að fjölyrða um æfingaferðina í Gígjökul, nema hvað ' félagarnir sögðu ferðina fyrst og fremst farna „til að hita upp“ fyrir Alpaferð- ina, æfa yfirferð jökla eins og þeir gerast erfiðastir, s.s. klífa bratta ísveggi, „tipla á tánum“ yfir örþunnar ísbrýr og stökkva yfir hyldjúpar sprungur. Ég notaði eigi að síður tæki- færið og spjallaði við þá félaga um fyrirhugaða ferð þeirra í Alpana og almennt um íslenzka alpaklúbbinn, sem nú er á öðru starfsári sínu. Varðandi ferðina í Alpana, sögðu þeir það hafa verið á stefnuskrá klúbbsins állt frá stofnun hans að standa fyrir ferðum þangað ef fram kæmi áhugi. — Slíkur áhugi kom fram þegar við stofnun klúbbsins í marz á síðasta ári en þá var fyrirvarinn talinn of skammur til að skipuleggja slíka ferð þá um sumarið svo að ákveðið var að slá því á frest um eitt ár, en hefja eigi að síður undirbúning fyrir ferðina hið fyrsta. Um síðustu áramót var síðan endan- lega ákveðið hvaða félagar ætluðu að taka þátt í ferðinni og var þá gerð æfingaáætlun sem æft hefur verið eftir til dagsins í dag. Síðustu vikurnar voru til að mynda farnar tvær ferðir í miðri viku og jafnan um helgar. Þegar ákveðið hafði verið á sínum tíma að fara slíka ferð, þurfti, í upphafi að leysa eitt vandamál en það var að finna góðan fararstjóra, sem hafði reynslu í ferðum þar ytra. Til happs fyrir hópinn kom fljót- lega í ljós að Helgi var tilleiðan- legur að taka starfið að sér, en hann er þaulreyndur fjallamað- ur og hefur þar að auki eytt miklum tíma við æfingar í Alpalöndunum undanfarin ár. Þetta verður í fyrsta sinn sem hinir þátttakendur hópsins eru við æfingar í Ölpunum. Þá innti ég þá eftir því hvernig ætlunin væri að eyða þessum þremur vikum þar ytra. — í upphafi er hugmyndin að dvelja nokkra daga á einu frægasta fjallasvæði Sviss, Berner Oberland og leggja þar til atlögu við nokkur fjöll, s.s. Jungfrau, Mönch og Finister- aarhorn, sem eru öll liðlega 4000 m há. Þess má og geta til gamans að til þess að komast inn á þetta fræga fjallasvæði Niðurferðín æfð... Ingvar klífur brattan ísinn . ji'- Wf í- Sveinn sýnir hér hvernig á að fara að Þegar brattar íshliðar eru klifnar... mmm Stokkið yfir sprungu...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.