Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 32
32______________________
Sovétmenn
vara Japani
við imdirritun
sáttmála við
Kínverja
Moskvu. 12. á^úst — AP
IIIN opinbera fréttastofa Sovét-
ríkjanna, Tass. varaði Japani í
dag við því að undirrita friðar- og
vináttusáttmáia við Kínverja sem
nú er unnið að í Peking, og sagði
að með því að undirrita samning-
inn gætu Japanir alvariega skert
þjóðarhagsmuni sfna. Ennfremur
gæti undirritunin hindrað fram-
gang siökunarstefnu, sagði Tass,
en 1000 orða yfirlýsing frétta-
stöðvarinnar var birt f helztu
blöðum Sovétrfkjanna f dag og er
talin túlka opinbera afstöðu
húsbændanna f Kreml.
Tass sagði að klásúla í sáttmál-
anum um samstöðu Japana og
Kínverja gegn því að einhver aðili
nái algjöru forræði í Asíu valdi
Sovétmönnum áhyggjum. „Kín-
verjar hafa fyrir löngu opinberað
að barátta þeirra gegn forræði er
beint gegn Sovétríkjunum. Við-
ræðurnar nú í Peking sýna hins
vegar enn einu sinni fram á að
Kinverjar rembast sjálfir sem
rjúpan við staurinn að ná forræði í
Suðaustur-Asíu,“ sagði Tass.
Eitt af því sem veldur Kreml-
verjum áhyggjum er að með
samningnum bætist Kínverjum
enn einn bandamaður í Suðaust-
ur-Asíu, en þar heyja veldin tvö
innbyrðis keppni um vináttu og
áhrif. í útsendingunni hvatti Tass
Japani til að spyrna fast fótum við
því að klásúlan gegn forræði yrði
sett í samninginn. Takeo Fukuda
forsætisráðherrjapan tilkynnti þó
á föstudag að viðræðurnar í
Peking hefðu orðið árangursríkar
og að löndin hefðu komið sér
saman um sáttmálann og hermdu
fréttir að orðalag umdeildu klásúl-
unnar væri í anda samþykktar
flokks frjálslyndra demókrata í
Japan um afstöðu flokksins til
deilna Sovétmanna og Kínverja.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978
sem vert er að veita athygli. Eitt
er það, að fyrir nokkrum árum fór
einhver ráðamaður höfuðborgar-
innar til Kaupmannahafnar og
fann Strikið og þótti það skemmti-
leg gata. Þá datt honum í hug að
búa líka til svona skemmtilega
götu hér heima. Það var Austur-
strætið. Það voru gerðar voða
huggulegar teikningar af hellu-
Menn uppgötvuðu þetta fljótt og
hófu að leita ráða til úrbóta.
Einhver hafði séð mann spila á
gítar á Strikinu og stakk upp á
tónlist. Það var góð hugmynd,
enda leið ekki á löngu þar til
ýmsar verzlanir við strætið tóku
að þenja hátalara með niðursoð-
inni útlenzkri músík út yfir
göngugötuna, en þegar einhver
Déskoteks-dynur
eðahjarðljóð
Það var nú meiri drottins
dýrðarinnar uppákoman,
þegar umferðarráð fann upp
umferðarbrosið. Fram að þeim
tíma var ekki hægt að ferðast svo
spönn frá rassi hér í borginni að
líf og limir væru ekki í stórhættu
vegna ökumanna, sem óku með
alíslenzkum fýlusvip um göturnar
og gerðu hver öðrum allt til miska
sem þeim var unnt með nokkru
móti. Nú er heldur en ekki annað
uppi á teningnum. Nú aka íslands
ökumenn út um allar þorpagrund-
ir með bros á vör, — og gera hver
öðrum allt til miska sem þeim er
unnt.
Þannig mætir manni nú undur-
ljúft bros þegar maður lítur
Umferðarbros
eða harðlífissvipur
bálreiður framan í ökumann
vörubíls, sem hefur svínað svo
grimmilega fyrir mann að maður
gat lesið á honum framleiðslu-
númerið á undirvagninum, vel og
vandlega, um leið og maður tróð
bremsurnar upp í hné, til að
fyrirbyggja frekari kunningsskap
við þann hinn sama undirvagn.
Þegar maður þeytir hornið að
leigubílstjóra, sem er að dudda við
það svona í róleg heitum í miðju
einstefnu-öngstræti að tína seðl-
,ana upp úr veski fordrukkins
farþega, rétt áður en leikritið
byrjar, eða bíóið, þá birtist
sömuleiðis sólbjart bros í baksýn-
isspeglinum, sem bræðir hjartað,
— og eyðileggur leikhúsmiðana.
Það veitir sannarlega ekki af að
reyna að bæta umferðarmenningu
landans, en það er því miður ekki
nóg að ökumenn keyri um allt með
bros á vör. Það skiptir tiltölulega
litlu máli fyrir gangandi eða
hjólandi vegfarenda hvort hann er
ekinn niður með bros á vör, eða
rammíslenzkum grimmdar- og
harðlífissvip.
En það er fleira tengt umferðar-
og umhverfismálum hér í borg
lögðu Austurstræti með þessum
skrýtnu trjám, sem hvergi vaxa
nema á teikniborðum arkitekta, og
fullt af fólki að ganga á hellunum.
Svo voru framkvæmdir hafnar.
Hellunum var raðað á Austur-
strætið, svolitlu af grasi og
myndastyttum komið fyrir og allt
var fullkomið. Meira að segja
fólkið vantaði ekki. Það er oft þó
nokkuð af fólki að ganga um
Austurstrætið. En gallinn er sá,
að það bara gengur. Þegar það er
búið með þessi tvö hundruð skref
er fjörið búið. Þetta er vegna þess
að það er aldrei neitt að gerast
þarna í göngugötunni og ef
eitthvað á að gerast þá er það
tilkynnt löngu fyrirfram svo allir
hafa nægan tíma til að forða sér,
eins og ég held að einhver hafi
áður bent á.
ætlaði að spila á gítar á sama stað
var hann fjarlægður umsvifalaust
af laganna vörðum og hefur slíkt
ekki verið reynt síðan. Niðursuðu-
músíkin dynur hins vegar enn á
saklausum vegfarendum, sem geta
varla talað saman nema á stöku
stað á strætinu fyrir hávaða.
Nú vil ég varpa fram þeirri
spurningu til borgaryfirvalda
hvort þessi déskoteks-dynur út úr
tízkubúðunum við Austurstræti er
leyfilegur og jafnframt hvort ekki
væri tilhlýðilegt á þessum frjáls-
ræðistímum að leyfa lifandi tón-
listarflutning í göngugötunni?
Væri til dæmis ekki mjög í anda
hins nýja meirihluta að leyfa
mönnum að blása þar í blístrur og
syngja hjarðljóð eins og geitahirð-
ar gera gjarnan í útlöndum?
- SIB.
Nýtt Nýtt
Blússur frá ítalíu og Þýzkalandi.
Glæsilegt úrval.
Glugginn
Laugavegi 49.
Galla- og flauelsbuxur
1000 — 2000 — 3000 — 3900 kr.
Skyndisala á morgun,
mánudag og þriöjudag.
Fatasalan Tryggvagötu 10.
Geymsla á kjöti
*og hólfaleiga
Tökum aö okkur geymslu á kjöti í haust. Frystum
kjöt. Leggjum áherzlu á örugga geymslu og góöa
þjónustu.
Þeir sem hafa hólf á leigu eru vinsamlega beönir
aö greiöa hólfaleiguna fyrir 15. september n.k. en
eftir þann tíma má búast viö aö hólfin veröi leigö
öörum ef leigan hefur ekki verið greidd.
Nánari upplýsingar veittar í síma 12362.
Sænsk-ísl. frystihúsiö,
Reykjavíkurborg.
REYKJAVÍK
Rakarastofan Klapparstíg, sími 12725, 14. og 18. ágúst.
AKUREYRI , ,
Jón Eövarö rakarastofa Strandgötu 6, sími 11408, 15. og 16. agust.
KEFLAVÍK
Klippotek Hafnargötu 25, sími 3428, 17. ágúst.
Mandeville
International
TAKIÐ EFTIR
Sérfræöingur
Mandeville
International
í hártoppum er
staddur hér
Hann mun fús að ræða við yður I
fullum trúnaði og án skuldbindingar
Hann mun kynna hina nýju fram
leiSslu á Mandeville International á
fisléttum hároppum.