Morgunblaðið - 13.08.1978, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.08.1978, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 Eiginkona mín + GUDRÍÐUR GÍSLADÓTTIR, Unnarbraut 5, Seltjarnarneai er látin. Finnur Guðmundsson. f + Eiginmaöur minn, (aöir okkar, tengdafaöir og afi, KARL ÞOHSTEINSSON, bakari, Hátúni 8, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 15. ágúst kl. 3. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, HREFNA INGVARSDÓTTIR, Skeióarvogi 141, verður jarösett frá Fossvogskapeliu þriðjudaginn 15. ágúst kl. 3 e.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaö, en bent er á líknarsjóö Oddfellowreglunnar og Langholtskirkju. Sigurbjörn Ólafaaon, aynir, tengdadætur og barnabörn. + Útför fööur okkar, ÞÓRARINS V. MAGNUSSONAR, frá Steintúni, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 14. ágúst kl. 1.30. Dntur hina látna. + Moðir okkar, JÓHANNA BJARNADOTTIR, Háaleitiabraut 54, er lézt 8. ágúst veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Jónfríóur Siguróardóttir, Guðjón Sigurðaaon, Rafn Siguróaaon, Sverrir Siguröaaon. Útför BJARNA EINARSSONAR, vélamíðameistara, Hrísateigi 45, Reykjavík, veröur gerö frá Fossvogskirkju miövikudagínn 16. ágúst kl. 13.30. Elísabet Þorkelsdóttir, Þorkell Bjarnason, Ása K. Oddsdóttir, Björgvin Á. Bjarnason, Kriatjana Kjartansdóttir, Ólöf H. Bjarnadóttir, og barnabörn. + Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hluttekningu við fráfall og jaðarför, KRISTJÓNU LÁRUSDÓTTUR, Reykjavíkurvegi 30, Hafnarfirði, Pétur Maack, Jóhanna Pétursdóttir, Áslaug Pétursdóttir, Írís Pétursdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jarðarför, JENS F. MAGNÚSSONAR, Guórún Guómundsdóttsr, Ingunn Jensdóttir. Sveinbjörn Gísla- son—Minning Fæddur 20. október 1897 Dáinn 29. júlí 1978 Vinur minn og frændi Svein- björn Gíslason, Eikjuvogi 8, Rvk. er látinn. Fráfall hans bar ekki óvænt að. Hann hafði lengi verið heilsuveill og síðustu dagana dvaldi hann á sjúkrahúsi og þar andaðist hann hinn 29. júlí s.l. Bálför hans fór fram 2. þ.m. Sveinbjörn var fæddur að Stekk- um í Flóa hinn 20. okt. 1897. Foreldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Filipusdóttir og Gísli Ólafsson sem þar bjuggu um áratuga skeið. Sveinbjörn var elstur barna þeirra hjóna, en systkinin sem upp komust voru fimm, þrír bræður og tvær systur. Allir eru bræðurnir nú látnir, en systurnar eru enn á lífi. Mikið áfall var það Sveinbirni þegar hann ungur og örgeðja missti bróður sinn af slysförum, sem þá var innan við tvítugsaldur. Bæirnir í Sandvíkurhverfinu áttu nokkur ítök til laxveiði í Ölfusá og var Filipus bróðir Sveinbjarnar að huga að laxalögnum í ánni en féll í ána og drukknaði. Fyrrihluta ævinnar stundaði Sveinbjörn al- menn störf til sjós og lands, en hugur hans hneigðist þó til bókarinnar og aukinnar menntun- ar, en á þeim árum var ungum og auralitlum mönnum ekki greið gangan um menntaveginn. Þó fór hann til náms í Flensborgarskól- ann í Hafnarfirði og þar var hann 1918 þegar spánska veikin gekk yfir, en af henni veiktist hann hastarlega og hlaut heilsutjón við það, sem jafnan fylgdi honum síðan. Nokkru eftir dvölina á Flens- borg hóf hann nám í múrsmíði og gekk jafnframt í Iðnskólann í Rvk. Sennilegt þykir mér að áhugi hans á þessu námi hafi komið frá Einari Sveinssyni múrarameistara, sem stóð fyrir smíði margra bygginga stórra og smárra fyrr og síðar, en við allir þrír vorum systkinasynir. I Iðnskólanum gat hann sér gott orð sem mikill námsmaður og þar kom í ljós hinn mikli áhugi hans fyrir íslenskri tungu, enda var hann afbragðs stílisti og svo var fágaður allur frágangur á ritmáli hans, að eftirtekt vakti. Eitt sinn fengu nemendur skólans það stílsefni að skrifa um íslenska hestinn. Þessu verkefni skilaði hann frá sér á þann veg, að þeir, sem um það fjölluðu í skólanum, urðu sammála um það, að fleiri mættu njóta þess en þeir og var stíllinn síðan birtur í Tímariti iðnaðarmanna. Að þessu námi loknu varð það að ráði fyrir áeggjan ráðamanna skólans, að Sveinbjörn réðst til Vestmannaeyja sem byggingar- fulltrúi. Meðan hann vann þar að þeim störfum fékk hann sig lausan frá starfinu í tvo vetur og dvaldi þá í Danmörku við framhaldsnám SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Getið þér sagt mér, hvernig við heimilismenn getum beðizt fyrir saman? Okkur langar til að gera það, sem við vitum ekki, hvernig við eigum að bera okkur að því. Akveðið einhvern tíma dagsins, þegar fjölskyldan er öll saman, t.d. við morgunverð eða um hádegið eða kvöldmat — eða á öllum þessum tímum. Ef börnin eru með, ættuð þið ekki að lesa lengi í Biblíunni, og hafið bænirnar líka stuttar. Biðjið þannig, að börnin njóti bænanna og skilji þær. Ef þið eruð söngvin og hafið hljóðfæri, gætuð þið sungið sálm. Gott er að biðja þannig, að einn fari með eina setningu í einu, og síðan endurtaki hinir á á eftir. Húsbóndinn á heimilinu getur líka leitt bænina yfir hönd allra. Guðræknisstundir hjónanna ættu að vara lengur. Þau ættu þá að biðja fyrir sjálfum sér og fyrir erfiðleikum á heimilinu, og gott er, að bæði biðji. Ritninguna má lesa á ýmsan hátt, t.d. einn kapítula á dag og þá hvert vers lesið upphátt. Það má líka láta hvern einstakan í fjölskyldunni rifja upp ritningar- staði eftir minni. Kunnur hjónabandsráðgjafi hefur sagt mér, að á löngum starfsferli sínum hafi hann aldrei hitt fjölskyldu, sem hafi beðizt fyrir saman á hverjum degi og hafi verið leyst upp. + Hjartanlegar þakkir til allra er auösýndu okkur samúö og vináttu viö fráfall og jaröarför móöur okkar, GUÐRUNAR HELGADÓTTUR, Eiríksgötu 11, Hafdís Rikarðsdóttir, Ríkey Ríkarósdóttir, Guðrún Ríkarðsdóttir, Anna Ríkarðsdóttir, Guðbjörn H. Ríkarðsson, Óakar B. Benediktsson, Bragi Steinarsson, Bragi Guömundsson, Halldór Stígason, og barnabörn. í fögum, sem snertu starf hans. Árið 1938 fluttist hann til Reykja- víkur og vann þar að iðn sinni til ársins 1943, en þá fluttist hann til Keflavíkur og setti þar á stofn pípugerð, sem hann rak í nokkur ár. Nokkur kunningsskapur var með þeim Sveinbirni og Bolla Thoroddsen, sem þá var borgar- verkfræðingur í Reykjavík. Ritaði hann bréf til Sveinbjarnar og bað hann að taka að sér stjórn pípugerðar, sem Reykjavíkurborg hefði í hyggju að koma á fót. Þetta varð að samkomulagi þeirru milli og fluttist Sveinbjörn aftur til Rvk. 1947 og hóf störf hjá Reykjavíkurborg og þar vann hann meðan heilsan entist. Sveinbjörn giftist eftirlifandi konu sinni Sigríði Vilhjálmsdóttur frá Knútsborg á Seltjarnarnesi árið 1939. Vafalaust var þessi ráðahagur mesta gæfa hans í lífinu. Sigríður reyndist honum alltaf vel en þó best þegar hann þurfti þess mest með, enda var sambúð þeirra með ágætum. Þegar hann var orðinn sjúklingur, sem þurfti umönnunar með, var kær- leiksríkur hugur hennar og hendur ávallt reiðubúnar til hjálpar. Þetta verður henni seint fullþakkað. Þau hjónin eignuðust tvær dætur, sem báðar bera svipmót góðs uppeldis. Þær eru: Björg, gift Richard Dranitzke sérfræðingi og skurðlækni í brjóstholssjúkdóm- um, þau eiga tvö börn og eru búsett í New York; og Sigurlaug gift Hilmari Skúlasyni vélvirkja hér í borg. Þau eiga tvo drengi. Þegar ég nú að lokinni samferð lít yfir farinn veg minnist ég manns, sem var vinur minn frá því að ég man fyrst eftir mér. Manns, sem var gáfaður og kíminn í kunningjahópi, en lét lítið yfir sér hversdagslega. Manns, sem bar virðingu fyrir lífinu og því, sem honum var trúað fyrir. Við sem stóðum næst Sveinbirni Gíslasyni, söknum nú vinar í stað, en megum vera þess minnug að stundum getur dauðinn verið eins og líknandi hönd fyrir þá sem þjást. Aron Guðbrandsson. Afmælis- og minning- argreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afma lis- og minningargreinar verða að berast biaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máii. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu iínubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.