Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978
41
fclk í
fréttum
+ Óperan „Hollendingurinn
fljúgandi" var fyrir
skömmu færð upp á sviðið í
hinni frægu v-þýzku óperu í
Bayruth, undir stjórn
Harry Kupfer frá A-Þýzka-
landi. Tilefnið var
Wagner-hátíðin og var
frumsýning óperunnar
hápunkturinn. Þar söng
þessi danska óperusöng-
kona, Lisbeth Balslev. Var
söng hennar mjög vel tekið.
+ Fyrir nokkrum dögum lagði þessi lamaði Japani, Yukihito Isa,
af stað í „fjallgöngu" í hjólastól sinum. Er það ætlun hans að
verða fyrstur lamaðra manna til þess að sigra tind hæsta fjalls
Japan, Fuji. sem er tæplega 3800 metra hátt. í þessa fjallgöngu
lagði hann upp í sérhönnuðum hjólastól af „Katatsumuri-gerð,"
(Snigill). Þá var 24 manna sveit röskra sveina mætt til þess að
aðstoða hinn hugdjarfa Japana, sem er 37 ára. Hann er lamaður
frá handleggjum og niður í tær. Okkur vitandi hafa ekki borizt
hingað fréttir af ferð Yukihitos upp fjallið. en hann gerði ráð
fyrir að ferðin upp í hjólastólnum myndi taka 5 daga.
Lassie sýnir dans
+ Fyrir nokkrum dögum var frumsýnd í Radio City í Bandaríkjunum myndin The
Magic of Lassie — um hundinn fræga úr kvikmyndunum. — í sambandi við
frumsýninguna var efnt til skemmtunar, en þar kom Lassie fram á fjalirnar ásamt
nokkrum fallegum dansmeyjum og sýndi dans. Þessi mynd var svo tekin á
lokaæfingunni, Lassie dansaði þar fremst.
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
bama&fþlskyldu-
Ijósmyndir
AUSrURSÍRÆTI 6 3MI12644
Frá Hofl
Norsku kollstólarnir komnir.
Einnig saumakörfur.
Prjónagarn og hannyröavörur í
miklu úrvali.
Verzlunin Hof,
Ingólfsstræti 1.
Þetta Barrokk speglasett kostar kr. 81.000,-
Þrjár aðrar gerðir frá kr. 49.000 - til 155.000-
Valhúsgögn
Ármúia 4.
Valhúsgögn