Morgunblaðið - 14.09.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
19
Menn Nkomos
flýja úr landi
Salisbury. 13. september. AP.
TVEIR háttsettir aðstoðarmenn rhódesíska skæruliðaleiðtogans
Joshua Nkomo hafa flúið land og eru nú í London að sögn talsmanns
samtakanna ZAPU í dag.
Varaforseti samtakanna, Josiah
Chinamano og áróðursstjóri
Nkomos, Willie Musarurwa, flýðu
vegna yfirstandandi aðgerða gegn
stuðningsmönnurp ZAPU að sögn
talsmanns samtakanna.
Hann sagði að Chinamano hefði
hringt frá London og sagt að hann
væri heill á húfi og mundi láta
heyra frá sér bráðlega.
Aðspurður hvers vegna tals-
menn ZAPU hefðu haldið því fram
átta klukkustundum áður að
Chinamano væri enn í Rhódesíu
sagði talsmaðurinn að þeir hefðu
ekkert viljað segja fyrr en ljóst
væri að hann væri heill á húfi.
Ræða hvort líf
sé eftir dauða
Innsbruck, 13. september. Reuter.
SEX hundruð iærdómsmenn
þinga nú í Austurríki um hvort
líf sé eftir dauðann. Meðal
þátttakenda á ráðstefnunni eru
vísindamenn, guðfrasðingar og
geðlæknar frá Vestur Evrópu og
Bandaríkjunum, en einnig er þar
fólk sem hefur dáið, samkvæmt
læknisfra“ðilegum skilgreining-
um um dauða, en verið endurlífg-
að.
A ráðstefnunni verður sérstak-
lega fjallað um þær sýnir sem fólk
hefur séð þegar það hefur legið á
banasæng sinni. Mikið samræmi
þykir í sýnum þessa fólks, en flest
hefur það séð fyrir sér látna
ættingja sem segjast komnir til að
sækja viðkomandi.
Flóðin ógna
stórri stíflu
Nýju Delhi, 13. sept. AP.
ÞÚSUNDIR manna hafa verið fluttir frá þorpum nálægt
hinni stóru Farakkastíflu í Vestur-Bengal sem er í hættu
vegna flóða í Ganges samkvæmt fréttum frá fylkishöfuð-
borginni Kalkútta.
Alvarleg flóð geta orðið ef
stíflan brestur og Mohammend
Abdul Bari menntamálaráðherra
sem er á ferðalagi á
Farakka-svæðinu segir að ástand-
ið sé alvarlegt.
Herlið hefur verið sent til
Veöur
um víða veröld
Akureyri 8 skýjað
Amsterdam 19 skýjaö
Apena 27 rigning
Barcelona 25 léltskýjaó
Berlín 17 skýjaó
BrUssel 15 heiöakírt
Chicago 28 rigning
Frankfurt 17 rigning
Genl 16 sólskin
Helsinki 15 skýjaó
Jerúsalem 29 heióskírt
Jóhannesarb 22 rigning
Kaupmannah. 15 skýjaó
Lissabon 38 heiósklrt
London 20 skýjaó
Los Angeles 24 skýjaó
Madrid 33 sólskin
Malaga 26 heióskírt
Mallorca 27 skýjaó
Miemi 34 skýjaó
Moskva 14 skýjaó
New York 23 heióskírt
Osló 16 heióskírt
París 19 sólskin
Reykjavík 11 skýjaó
Rio De Janeíro 25 sólskin
Rómaborg 22 sólskin
Stokkhólmur 15 skýjaó
Tel Aviv 29 heióskírt
Tokýó 21 skýjaó
Vancouver 18 heiósklrt
Vínarborg 16 skýjaó
Farakka þar sem vatnsborðið í
Gangesfljóti er rúmum hálfum
metra fyrir ofan hættumark. Hins
vegar segir yfirráðherra Vest-
ur-Bengals, A.K. Sen, að stíflu-
garðurinn sé ekki í hættu.
Fréttir frá svæðinu herma að
íbúar séu stöðugt hvattir til þess
að forða sér til hærri landsvæða.
Bróðir Bikos
tekinn fastur
JóhannesarborK, 13. september Reuter
LÖGREGLAN í Jóhannesarborg
handtók Kaya Biko bróðir
blökkumannaleiðtogans Steve
Biko, en hann var einn 14
ættingja leiðtogans sáluga sem
lögregla heíur handtekið síðustu
daga. Lögreglan hefur varist
allra frétta um tilgang aðgerð-
anna, en í gær var eitt ár liðið frá
dauða Bikos.
Hvíta húsið hvatti stjórnvöld í
Suður-Afríku í dag til þess að
ákæra ættingja Bíkos strax eða
láta þá lausa. I tilkynningu Hvíta
hússins sagði að handtökurnar
yrðu einungis til að gera ástandið í
landinu verra.
600 féllu
í Erítreu
Róm, 13. september. AP.
EÞÍÓPÍSKT herlið sem beitti
skriðdrekum, stórskotaliði og
flugvélum missti 600 menn
fallna, særða og týnda þegar það
gerði árangurslausa tilraun til að
ná bænum Cohayen í Erítreu
nýlega að sögn Frelsisfylkingar
Erítreu (ELF).
Eþíópíska herliðið gerði árásina
á Cohayen nálægt landamærum
Erítreu og Tigre-héraðs frá borg-
inni Mandefara um 56 km suðaust-
ur af fylkishöfuðborginni Asmara.
Flugmaður á svifdreka steypir sér til flugs fram af kletti í
Colorado í Bandaríkjunum. Kletturinn heitir „Dauði hesturinn" og
er 15.000 feta fall niður á sléttuna fyrir neðan. A þessum stað fór
heimsmót svifdrekamanna fram um helgina. Þá flaug frakkinn
Stephane Donoyer de Segonzac í gær hærra en áður hefur verið
gert á svifdreka. Með aðstoð loftfars komst hann upp í 32.720 feta
hæð yfir Mojave-eyðimörkinni í Kaliforniu. Frakkinn ætlaði upp í
38.000 feta hæð á svifdrekanum, en rifa á belg loftfarsins kom í
veg fyrir þær fyrirætlanir að sinni.
V-Þjóðverjar
tala við Assad
Bonn, 13. septembcr. Reuter.
HAFEZ Al-Assad, forseti Sýrlands,
ræddi í dag við leiðtoga tveggja
helztu stjórnmálaflokka Vest-
ur-Þýzkalands í dag að loknum
viðræðum sfnum við ráðherra
Bonn-stjórnarinnar.
Hann ræddi fyrst við Willy Brandt
fyrrverandi kanslara úr flokki
sósíaldemókrata og síðan við Franz
Joséf Strauss leiðtoga hins bæverska
arms kristilegra demókrata. Kristi-
legir demókratar hafa skorað á
Assad forseta að binda enda á
stórskotaliðsárásir á kristna menn í
Líbanon.
Assad átti óvæntan fund með
Helmut Schmidt kanslara seint í
gærkvöldi og var það annar fundur
þeirra síðan Assad kom í fimm daga
heimsókn sína á mánudaginn. Áður
hafði Schmidt látið í ljós von um að
allir aðilar deilumálanna í Miðaust-
urlöndum sýndu samkomulagsvilja.
Schmidt lýsti einnig yfir stuðningi
við viðræðurnar í Camp David.
Assad hefur manna mest gagnrýnt
viðræður Anwars Sadats Egypta-
landsforseta við Israelsmenn. And-
staða Assads hefur ekkert minnkað í
heimsókninni og hann hneykslaði
Vestur-Þjóðverja með því að gagn-
rýna gerðir einstaklinga sem hefði
veikt samstöðu Araba og ýtt undir æ
herskárri afstöðu Israelsmanna.
Stjórnin
í Portúgal
á bláþræði
Lissabon, 13. september.
STJÓRN Alfredo Nobre da Costa
í Portúgal varð fyrir nýjum
árásum einum degi fyrir at-
kvæðagreiðslur á þingi scm geta
orðið til þess að hún neyðist til að
segja af sér.
Helztu stjórnmálaflokkarnir
hafa borið fram frumvörp þar sem
stefnuskrá stjórnarinnar er hafn-
að og atkvæðagreiðslurnar fara
fram á morgun.
Sósíalistaleiðtoginn Antonío
Macedo líkti valinu á Da Costa við
það þegar hagfræðingurinn Ant-
onio Salazar, hinn látni einvaldur
var valinn forsætisráðherra fyrir
hálfri öld.
Hann kvað það andstætt lýðræði
að stjórn óháðra manna sæti að
völdum.
Sekt fyrir
misnotkun
stórmyndar
Washington. 13. september, Reuter.
KVIKMYNDASAMSTEYPAN
„Twentieth Century-Fox“ var í
gær sektuð um 25.000 Bandaríkja-
dali fyrir að nota stórmynd sína
Stjörnustríðin (,,Star-Wars“) til að
neyða kvikmyndahúseigendur til
að panta ennfremur kvikmyndir
sem ólíklegar þykja til velgengni.
Hernaðarjafnvægið
óhagstætt vestrinu
London, 13. september. AP.
ALÞJÓÐLEGA herfræðistofn-
unin í London hefur lýst
áhyggjum sínum vegna vax-
andi uppbyggingar hernaðar-
máttar kommúnistaríkjanna
og segir að vesturveldin standi
lakar að vígi á landi, sjó og í
lofti.
Stofnunin segir þó að varnir
Atlantshafsbandalagsins séu
geysiöflugar og að hvers konar
tilraun til að rjúfa þær út-
heimti meiriháttar árás.
í yfirliti stofnunarinnar um
hernaðarjafnvægið 1978—’79
segir að Rússar hafi farið langt
fram úr Bandaríkjamönnum á
árinu í fjölda kjarnorkueld-
flauga sem teflt sé fram og hvað
stærð þeirra varðar.
Áður hefur komið fram í
skýrslu vopnaeftirlitsstofnunar
bandarísku stjórnarinnar að
Bandaríkjamenn hafi yfir meira
en nægilegum fjölda kjarnorku-
vopna að ráða á næstu áratug.
Sú niðurstaða byggir á þeirri
forsendu að Bandaríkjamenn
munu hafa yfir að ráða bæði
meiri fjölda kjarnaodda og
nákvæmari kjarnaoddum en nú
og að þeir muni þar að auki taka
Cruise-eldflaugina í notkun.
Hins vegar sýnir yfirlitið um
hernaðarjafnvægið að eins og
nú standa sakir tefla Banda-
ríkjamenn fram 3.600 kjarn-
orkuflaugum miðað við 5.609
kjarnorkuflaugar sem Rússar
tefla fram. Bandaríkjamenn
ráða yfir 504 eldflaugum búnum
kjarnaoddum sem eru meira en
ein megalest en Rússar 1.670.
Yfirlitið, „Military Balance",
er talin ómissandi heimild fyrir
stjórnmálamenn og herforingja
um vígbúnaðinn í heiminum.
Niðurstöður yfirlitsins eru dap-
ur lesning fyrir vestræna hern-
aðarsérfræðinga vegna vaxandi
styrks kommúnistaríkjanna á
flestum sviðum vígbúnaðar.