Morgunblaðið - 14.09.1978, Síða 31

Morgunblaðið - 14.09.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978 31 UmHORP Umsjón: Tryggvi Gunnarsson og Anders Hansen. Nýr framkvœmda- stjóri hjá SUS STEFÁN H. Stefánsson hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri hjá Sam- bandi ungra sjálfstæðis- manna og tekur hann við því starfi af Anders Han- sen, sem lét af störfum hjá SUS fyrr í sumar. Stefán H. Stefánsson. Stefán er fæddur í Reykjavík 1943 og að afloknu gagnfræðaprófi 1960 var hann í milli- landasiglingum í tvö ár, starfaði hjá vérksmiðj- unni Vífilfell h.f. í 15 ár, framkvæmdastjóri Tré- vals h.f. var hann í eitt ár og nú síðast liðið ár hefur hann verið auglýsinga- stjóri Stefnis ásamt því að gegna ýmsum öðrum störfum á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Stefán hefur tekið þátt í margvíslegu félagsstarfi, m.a. setið í stjórn knatt- spyrnudeildar Víkings, í stjórn Junior Chamber Kópavogi, varaformaður Týs, félags ungra sjálf- stæðismanna í Kópavogi í 2 ár, hefur setið í fulltrúa- ráði sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi í 12 ár og nú formaður kappleikja- nefndar Golfsambands ís- lands. Stefán er kvæntur Jórunni Magnúsdóttur og eiga þau hjónin þrjú börn. Aukaþing SUS haldið á Þingvöllum 30. sept.-l.okt. STJÓRN Sambands ungra sjálf- stæðismanna hefur ákveðið að boða til aukaþings sambandsins dagana 30. september og 1. október og verður þingið haldið í Hótel Valhöll á Þingvöllum. Verður á þinginu einkum fjallað um fjóra málaflokkai verðbólg- una kjördæmaskipunina, skipu- lag og starf Sjálfstæðisflokksins og skipulag og starf ungra sjálfstæðismanna. Fjórar starfsnefndir vinna nú að undirbúningi þeirra fjögurra málaflokka, sem teknir verða 1 fyrir á þinginu og hefur Kjartan Jónsson á hendi formennsku í nefnd, sem fjallar um verðbólg- una, Trýggvi Gunnarsson stýrir nefnd, sem fjallar um kjördæma- skipunina, Inga Jóna Þórðardótt- ir hefur á hendi formennsku í nefnd, sem fjallar um skipulag og starf Sjálfstæðisflokksins og Fríða Proppé stjórnar nefnd, sem fjallar um skipulag og starf ungra sjálfstæðismanna. Er ætlunin að þessar nefndir ljúki störfum um miðjan september og verði álit nefndanna þá sent til allra félaga ungra sjálfstæðis- manna. Dagskrá þingsins á Þingvöllum verður með þeim hætti að það verður sett kl. 10 á laugardags- morguninn 30. september, þá gera formenn undirbúnings- nefnda grein fyrir störfum nefnd- anna, kosnar verða starfsnefndir á þinginu og þær starfa þá um daginn auk þess, sem fram fara almennar umræður. Um kvöldið verður kvöldvaka. Á sunnudag hefjast þingstörfin kl. 10.30 með því að fjallað verður um starf- semi ungra sjálfstæðismanna og tillögur þar sem afgreiddar. Eftir matarhlé verður fjallað um starf- semi Sjálfstæðisflokksins, verð- bólguna, kjördæmamálið og al- menn stjórnmálaályktun verður afgreidd. Áður en þinginu verður slitið á sunnudagskvöld flytur formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson, ávarp. „Brotalömin annars staðar en hjá áhugamönnum í flokksstarfinu” „Samband ungra sjálfstæðis- manna hefur ekki boðað oft til aukaþings. Á sfðari árum hafa ii«i þau verið tvö, það fyrra árið 1968 og hið síðara 1974. í bæði skiptin höfðu orðið ákveðin straumhvörf í stjórnmálalífinu. Nýjar aðstæður höfðu skapast,“ sagði Jón Magnússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðis- manna, er hann var spurður, hvers vegna nú hefði verið ákveðið að boða til aukaþings SUS en regluleg þing sambands- ins eru haldin annað hvert ár. . „Urslitin í bæjar- og sveitar- , stjórnarkosningunum og síðar í >• Alþingiskosningunum í sumar ■ ollu meiri breytingum en 1968 og 1974 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Meiri breyting á fylgi flokkanna hefur ekki orðið. Sjálfstæðis- menn töpuðu meirihluta í , • Reykjavík og fjórðungi fylgis síns í Alþingiskosningunum. Af þeim ■ ástæðum þurfa sjálfstæðismenn ____að endurskoða stefnu sína og skipulag, bæði ungir sjálfstæðis- menn og flokkurinn í heild. Aukaþingi SUS er ætlað það hlutverk, að vera byrjunarskrefið í þessu efni. Veröur þá meginverkefni Þingsins, að fjalla um skipulagsmál? „Á þinginu verða tekin til meðferðar skipulagsmál og al- ® menn stefnumál ungra sjálfstæð- ismanna. Pið munum fjalla um skipulagsmál og starfsemi bæði Sjálfstæðisflokksins og ungra sjálfstæðismanna sérstaklega. Einnig á að taka tii meðferðar verðbólguna og hvernig vinna Rœtt við Jón Magnússon, formann SUS eigi bug á henni, en sú viðureign skiptir mestu um það, hvernig þjóðfélag okkur tekst að skapa. Þá verður rætt um kjördæmamál, en sá málaflokkur hefur verið mikið áhugaefni ungra sjálfstæð- ismanna." Er Þá baráttan gegn bákninu búin í bili? .„Alls ekki. Árangurinn af þeirri baráttu hefur orðið sá, að fólk gerir sér betur grein fyrir því en áður, að vaxandi ríkisumsvif leiða af sér meiri skattlagningu og lakari lífskjör einstakling- anna, samt sem áður hefur báknið haldið áfram að vaxa og sú ríkisstjórn, sem nú hefur sest að völdum, ætlar sér greinilega að halda áfram á sömu braut, eins og hugmyndir um aukna skattlagningu bera glöggt vitni. Utþensla ríkisbáknsins á siðustu árum hefur kynt undir óðaverð- bólgu og ég reikna meö að niðurskurður ríkisútgjalda verði ein af þeim leiðum, sem við bendum enn einu sinni á, sem nauðsynlega forsendu til að það megi draga úr verðbólgunni. Auk þess verður komið inn á þetta baráttumál í stjórnmálayfirlýs- ingu þingsins." Nú hefur ungum sjálf- stæðísmönnum veriö leg- ið á hálsi fyrir aö hafa ekki staöiö sig sem skyldi í kosningabaráttunni, peir hafi verið í hálfgerðri stjórnarandstöðu og ekki náð til unga fólksins. Veröur petta rætt á ping- inu? „Ungir sjálfstæðismenn berj- ast fyrir þjóðfélagsbreytingum og leyfa sér því að gagnrýna þær aðgerðir, sem eru í andstöðu við grundvallarskoðanir þeirra í póli- tík, hvort sem Sjalfstæðisflokk- urinn er í ríkisstjórn eða ekki. Önnur vinnubrögð hæfa ekki. Annaðhvort starfa menn í stjórn- málum á grundvelli hugsjóna eða hagsmuna. Þetta getur út af fyrir sig farið saman. Það eru með- mæli með ungum sjalfstæðis- mönnum, að halda því fram, að þeir starfi á hugsjónagrundvelli, en skríði ekki upp eftir bakinu á forystumönnum í von um ein- hverja umbun. Það er mitt álit, að þegar svona mikið tap verður, þá hljóti brotalömin að vera annars staðar en hjá áhugamönnum í flokks- starfinu. Mér er nær að halda, að atvinnumennirnir eigi þar sinn verulega hlut að máli og tapið hafi ma.a. orsakast af því, að stefnu Sjálfstæðisflokksins var ekki fylgt nægjanlega í fram- kvæmd. Að sjálfsögðu verður þó að ræða um hvern einstakan aðila í flokksstarfinu og auka- þingið er boðað einmitt til þess að fá fram skoðanir ungra sjálf- stæðismanna á því, hvað betur megi fara, ekki hvað síst í okkar eigin starfi. Ég leyfi mér að vona, að í því efni fari fram opinskáar umræður á þinginu. Á þeim árum sem liðin eru frá mesta kosningasigri flokksins 1974 hefur það gerst, að veruleg félagaaukning hefur átt sér stað. Mun meira af ungu fólki er virkt í starfinu en áður, og ef borin eru saman árin frá 1970 til 1974 og síðan frá 1974, þá kemur í ljós, að starf SUS og stærstu félaga ungra sjálfstæðismanna er rekið af meira krafti síðara tímabilið. Sú staðreynd svarar nokkru efni fullyrðingarinnar, sem þú barst fram í Spurningunni." Því hefur verið haldið fram, aö petta aukaping sé eingöngu boöaö til að knýja fram landsfund nú í haust? JBm ■ „Um þetta hefur verið spurt. Mér þykir líklegt, að tímasetning landsfundar komi til umræðu, en verkefni aukaþingsins er miklu stærra og meira. Ég held að þessi spurning hafi ekki verið í huga stjórnarmanna í SUS, þegar þeir ákváðu að boða til aukaþings.„ Nú komið piö saman til pings og ályktið. Hvað svo? „í stjórnmálum ná menn sjaldnast öllum baráttumálum sínum fram. Barátta fyrir ein- stökum málum getur tekið lang- an tíma. Ályktun er lýsing á skoðunum þess hóps, sem hana samþykkir. Hún er veganesti í starfinu og núna verður lögð áhersla á að afla baráttumálum okkar fylgis á landsfundi flokks- ins. Þegar aukaþinginu er lokið verða fundir í kjördæmasamtök- um í öllum kjördæmum og þar verður lagt á ráðin um framgang málanna og tekin fyrir fleiri mál. Við erum komnir í stjórnaj'and- stöðu. Núna verður að bygg; a upp og móta stefnu flokksins og berjast af alefli gegn ríkisstjórn- inni. Þar verða ungir sjálfstæðis- menn að standa sig, þv annars verða ályktanir einungis pappírs- gagn. Við vitum i ð inníin tíðar verður Sjalfstæðisfiokkurinn aft- ur við völd. Þá verðiim við og flokkurinn í heilri a J vinna saman að því, að byggja ipp það sem brotið hefui verið niður og er verið að brjóta niður. Þá er tíminn til að framk\ æn a það sem við höfun: ályk.tað um.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.