Morgunblaðið - 07.10.1978, Síða 11

Morgunblaðið - 07.10.1978, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 11 Tðnlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON verkinu. Tónleikunum lauk með Tríói eftir Brahms. Það þarf ekki að ræða um það að flytjendurnir eru góðir tón- listarmenn en flutningur verksins var laus við alla listræna tiltekt og blælaus, hljómaði blátt áfram ekki fallega. Inn í þessa mynd kemur auðvitað píanóið og vandamál í stillingu þess, sérstaklega fyrir samleik með strengjum. Það mætti athuga hvort ekki sé nauðsynlegt að stilla píanó út frá þeim hljóðfærum sem leika eiga með því, því annars gæti komið upp sú staða, að t.d. klarinett væri ómögulegt að stilla eftir píanóinu og útkoma því óviðráðanlega óhrein. Jón Ásgeirsson svo, að flestum er gefinn kostur á að eignast gripina. Þetta kom mér sannarlega á óvart og gladdi mig svo, að ég verð að segja frá þessum viðburði hér í blaðinu. Eitt er víst, að hér er á ferð svo merkt framtak, að það er ólíkt meiri ástæða til að vekja athygli á því en sumum þeim sýningum, sem mað- ur er að bögglast við að koma á framfæri. Þorsteinn Thorarensen hefur unnið hér stórvirki, og ef ég veit rétt, eru 5 bækur komnar á markað hérlendis af þessum bóka- flokki. Ég hef rennt augum yfir þýðingar Þorsteins og finnst þær á stundum nokkuð sérvitringslegar, en það fer ekki milli mála, að það er kraftaverk, hverju hann kemur til skila. Þetta hlýtur að hafa verið gríðarleg vinna lyrir Þorstein, en eins og allir vita, er til þekkja, er honum ekki fisjað saman á þessu sviði. Hann á því miklar þakkir fyrir þetta verk og Fjölvi ekki síður. Það getur bókstaflega skipt sköpum um áhuga fyrir myndlist á íslandi, að fá svo frábær rit á íslenska tungu, og ég er viss um, að þeir sem byrja á þessum lestri, verða þess fljótt varir, að listasaga er meira en leiðinda tuggur um myndbyggingu, form og lit, ásamt öllum þeim orðskrípum og mærð, sem oft vill brenna við í skrifum um myndlist. Ekki eingöngu hér- lendis, heldur og annars staðar. Það voru mikil sannindi hjá Séra Árna Þórarinssyni, er hann sagði: Þegar maður talar við guðdóminn, verður maður að tala eins og við barn. Þá skilur hann sannleikann. Þessar bækur, sem ég hef verið að minnast á hér, eru einmitt skrifaðar í þessum anda. Að lokum vonast ég til, að þessari útgáfu verði haldið áfram, en þegar hafa komið út Líf og list, Goya. Rembrandts. Matisse, Manets. Duchamps. Þetta er stórkostlegur viðburður í listalífi okkar hér á íslandi. Valtýr Pétursson. Kammertónleikar Efnisskrát Milhaudi Svíta fyrir fiðlu, klarinett og píanó. Ifaydnt Tríó nr. 1 í G-dúr. Brahmst Tríó í a-moll óp. 114. Flytjendurt Paul Zukofsky fiðla. Ilalldór Haraldsson píanó. Pétur Þorvaldsson cello. Gunnar Egilsson, klarinett. Svíta eftir Milhaud er eins konar könnun á alþýðutónlist sem kjarnaefni alvarlegs tón- verks. Þarna má heyra hend- ingar úr sveitadönsum og kaffihúsatónlist listilega út- færðar, vafðar inn í umbúðir nýstárlegra tóntiltekta og kryddaðar með sakleysislegum gamaldags laglínum. Tríóið nr. 1 er sennilega meðal þekktustu kammerverka Haydns. Fyrsti kaflinn er sérlega gegnsætt verk og er erfitt að leika slíka tónlist svo vel fari. Þarna þarf að gefa gaum að ýmsum smágerðum stefjum, sem að því er virðist innihalda umfjöllunar. Að leika svona verk og gera hraðann að markmiði hefur ekkert upp á sig. Einn hljómleikagesta Pmul Zukofsky Halldór Haraldsson Pétur Þorvaldsson Gunnar Eidlsson ekkert, en þarf að fara hönd- um um með gætni, jafnt þar sem einn tónn hljómar og ofið er úr skrautlegri röð. Síðasti kaflinn var fluttur Svo, að ástæða væri til sérstakrar sagði réttilega að loknum flutningi verksins, að vel mætti vera að allar nóturnar hafi verið leiknar en hann væri farinn að heyra svo hægt og þess vegna ekki náð öllu Eldur í strætisvagni ELDUR kom upp í stærtisvagni s.l. fimmtudag. en vagninn stóð í áhaldageymslu Kópavogs. Vakt- maður hafði sett vagnana í gang' svo þeir væru heitir þegar akstur hæfist en einhverra hluta vegna varð eldur laus í vél eins vagns- ins. Slökkvilið kom á staðinn og réði niðurlögum eldsins en tölu- verðar skcmmdir urðu á vagnin- um. Bilnúmerahappdrætti Styrktarfélags vangefinna ÞESSA dagana stendur yfir út- sending á happdrættismiðum í hinu árlega bílnúmerahappdrætti Styktarfélags vangefinna. Vinningar eru 10 talsins og heildarverðmæti þeirra tæpar 20 milljónir. Aðalvinningur er bif- reið, Chevrolet Caprice Classic árg. ‘79 að verömæti um 6.200.000 kr., en auk þess eru 9 vinningar bifreiðar að eigin vali, hver að upphæð 1.500.000 kr. Vinningar happdrættisins eru skattfrjálsir. Ollum ágóða happdrættisins verður varið tíl áframhaldandi framkvæmda við heimili það, sem félagið hefur í smíðum við Stjörnugróf í Reykjaví, en það mun tilbúið rúma 25—30 vistmenn og bæta úr mjög brýnni þörf fyrir aukið dagvistarrými. Sem stendur er unnið við múrverk innanhúss, en stefnt er að því að húsið verði tilbúið undir tréverk næsta vor. Bygging þessi hefur að miklu leyti verið reist fyrir ágóða af happ- drætti félagsins, svo og framlög frá Styrktarsjóði vangefinna og Hjálparstofnun kirkjunnar. kaupa íbúð, eða stækka við þig ? IB lánakerfið auðveldar fólki þessa hluti. Mánaðarlegur sparnaður þinn tryggir rétt til lántöku. Kerfið er sveigjanlegt og ætti að falla að fjár- þörf og sparnaðargetu hvers og eins. En það krefst fyrirhyggju. Hvað þarftu mikið fé? Hvenær? Hvað geturðu sparað mikið í hverjum mánuði? Allt þetta verður þú að skoða ofan í kjölinn. Kynntu þér IB lánakerfið, ræddu við IB ráógjafana. Banki þeirra sem hyggja að framtiðinni Iðnaóarbankinn Aðalbanki og útibú MÁLVERKASÝNINGU Sigurþórs Jakobssonar lýkur á sunn dagskvöld. Sýningin er opin frá klukkan 14 til 22. Sýningin ei kjallara Norræna hússins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.