Morgunblaðið - 07.10.1978, Qupperneq 18
18
M0RGUNBLAÐ1.Ð, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978
Billy Graham
til Póllands
Varsjá. 6. október — AP
DR. BILLY Graham pródikari
kom til Póllands í dag. en hann
mun dvelja í landinu í tíu daga ok
pródika í kaþólskum kirkjum
þar. Graham hefur ekki áður
pródikað í kaþólskum kirkjum.
Við komuna til Póllands sauð-
Togari fórst
við Skotland
Abcrdecn. Skotlandi. fi októbcr. AP.
TOGARINN Grampian (ílen frá
Aberdeen í Skotlandi siikk árla í
daK undan austurströnd Skotlands
oK er óttast að sex menn af átta
manna áhöfn hafi farist.
Þeir tveir, sem komust af og var
bjargað um borð í skip sem statt var
í nágrenninu, sögðu að botnloka
hefði gefið sig og skyndilegur leki
komið að skipinu. Sögðu þeir að
togarinn, sem var 127 rúmlestir að.
stærð, hefði lagst á hliðina og sokkið
um tveimur mínútum eftir að lekans
varð vart.
ist Graham vænta þess að hann
yrði einhvers vísari um trúarlíf í
landinu. Ennfremur sagðist hann
ætla að nýta tímann til að kynna
sór stjórnarhætti og fólagslega
uppbyggingu í Póllandi.
Billy Graham kom til Póllands í
boði pólsku baptistakirkjunnar, en
til hennar teljast um 6.000 Pól-
verjar. Um 90 af hundraði Pól-
verja, en þeir eru um 35 milljónir,
eru í tengslum við kaþólsku
kirkjuna.
Graham sagði í dag að opinberir
embættismenn og leiðtogar ka-
þólsku kirkjunnar hefðu haft veg
og vanda af heimsókn sinni til
Póllands.
Svíþjóö:
Leiðtogar sænska Miðflokksins sigri hrósandi í „sigurveizlu“ sem þeir héldu á Riche Hotel eftir langa og
stranga deilu innan samsteypustjórnarinnar sem sagði af sér á fimmtudagskvöld. Talið frá vinstri.
Fálldin. Gunnar Söder og Olof Johannsson.
Veður
víða um heim
Akureyrí 4 skýjað
Amsterdam 17 skýjað
Apena 25 heiðskírt
Barcelona 19 skýjað
Berlín 16 rigning
Brussel 18 heiðskírt
Chicago 16 rigning
Franklurt 13 rigning
Genf 17 léttskýjaö
Helsinki 7 skýjað
Jerúsalem 30 heiöskirt
Jóhannesarborg 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 rigning
Lissabon 26 léttskýjað
London 17 lóttskýjað
Los Angeles 26 heiðskírt
Madríd 22 léttskíjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Míami 32 skýjað
Moskva 12 skýjað
New York 18 rígning
Ósló 8 léttskýjaö
París 16 heiðskírt
Reykjavík 8 léttskýjað
Río De Janeiro 35 léttskýjað
Rómaborg 17 léttskýjaö
Stokkhólmur 10 léttskýjaö
Tel Aviv 27 léttskýjað
Tókýó 18 skýjað
Vancouver 17 léttskýjað
Vínarborg 13 skýjað.
Þingforseti tilnefnir eftir-
mann Fálldins á mánudag
Stokkhólmi. 6. október. AP.
ÞEGAR'Thorbjörn Falldin
hafði afhent lausnarbeiðni
ríkisstjórnar sinnar sagði
Henry Allard, forseti
sænska þingsins, að hann
skýrði ekki frá því fyrr en
á mánudag hvern hann
hygðist tilnefna sem for-
sætisráðherra.
„Þingið mun svo taka
afstöðu til tillagna minna,
en vart er að vænta tíðinda
í þeim efnum fyrr en á
fimmtudag í fyrsta lagi,“
sagði Henry Allard.
Kunnugir telja að mestar líkur
séu á því að Allard stingi upp á
Ola Ullsten, aðstoðarforætisráð-
herra í stjórn Fálldins, til að veita
næstu stjórn forystu. Ullsten vildi
ekkert láta hafa eftir sér í þessum
efnum eftir viðræður við Allárd í
dag.
Ullsten vildi heldur ekkert segja
um samsetningu væntanlegrar
stjórnar, en á blaðamannafundi á
fimmtudagskvöld sagði hann að
hyggilegt væri að koma á sterk-
ustu stjórn sem möguleiki væri á
án þátttöku jafnaðarmanna. Gosta
Bohman leiðtogi hægrimanna
lagði og til á fimmtudag að komið
yrði á „sterkri tveggja flokka
stjórn án þátttöku jafnaðar-
rnanna."
Þegar Thorbjörn Fálldin afhenti
lausnarbeiðni fyrir ráðuneyti sitt
sagði hann, að það hefði orðið
stjórninni að aldurtila að Ullsten
og Bohman hefðu fellt tillögu hans
um að efnt yrði til þjóðaratkvæðis
um stefnuna í kjarnorkumálum.
Leiðtogarnir þrír fjölluðu nær
daglega frá 8. september um hvort
tvö kjarnorkuver skyldu starf-
rækt, en í síðustu viku tilkynntu
þeir að ákvörðun yrði frestað þar
til nákvæmar rannsóknir á berg-
STJÓRN ísrael gaf ekki
neina skýringu í dag á árás
herskipa á hverfi múham-
eðstrúarmanna í Beirút, en
talið er að ísraelsmenn
hafi með sprengjuárásinni
viljað vara Sýrlendinga við
frekari árásum á umsetin
hverfi kristinna hægri-
manna í höfuðborg Líban-
ons.
Sprengjuárás ísraels-
manna var gerð á sama
tíma og friðargæzlusveitir
Sýrlendinga í Líbanon
héldu uppi mestu árásum
sem um getur á hverfi
grunni væntanlegra geymslustaða
úrgangsefna hefðu farið fram.
Litið var á þessa niðurstöðu sem
málamiðlun og að ágreiningurinn
yrði lagður á hilluna, í bráð a.m.k.
En Fálldin, sem vill leggja niður
öll kjarnorkuver í Svíþjóð innan
tíu ára, hélt þófinu áfram og lagði
til ákveðinn yrði lokunardagur tíu
hægrimanna. Margir
spyrja nú þeirrar spurn-
ingar hversu langt ísraels-
menn séu reiðubúnir að
ganga til aðstoðar hægri-
mönnum sem hafa verið
hliðhollir ísrael.
Öryggis- og varnarmálanefnd
ísraelsþings kom saman i dag til
að ræða ástandið í Líbanon, en
talsmenn stjórnarinnar neituðu að
segja nokkuð um atvikið. Það
hefur hins vegar vefið yfirlýst
stefna stjórnarinnar að Israels-
menn muni koma í veg fyrir, að
samfélagi kristinna hægrimanna í
Líbanon verði útrýmt. Hingað til
hafa ísraelsmenn þó forðast meiri
háttar þátttöku í átökum hægri
kjarnaofna eða að efnt yrði til
þjóðaratkvæðis um framtíðar-
stefnu þjóðarinnar í orkumálum.
Ullsten og Bohman gátu ekki fellt
sig við þessar tillögur og sögðu í
opinberri tilkynningu að þeir væru
ekki reiðubúnir að binda sig við
langtímastefnu í orkumálum að
svo stöddu.
manna og sýrlenskra friðargæzlu-
sveita í Beirút þar sem slíkt gæti
leitt til beinna átaka Sýrlands og
ísraels.
Það voru ísraelsk blöð sem
skýrðu frá árás ísraelsmanna í
Beirút, og áreiðanlegar heimildir
hermdu að varðskip hefðu skotið
um eitthundrað sprengjum á
svæði við ófullgerð hótel í hverfi
múhameðstrúarmanna. Heimildir
þessar sem ekki vildu láta nafns
síns getið, sögðu að hótelið hefði
verið bækistöð hryðjuverkamanna,
og að árás ísraelsmanna hefði
verið gerð í hefndarskyni fyrir
tilraunir palestínskra hryöju-
verkamanna fyrra laugardag til að
gera árás á hafnarborgina Eilat.
Utvarpið í Israel skýrði frá því í
dag að kristnir hægrimenn í
suðurhluta Líbanons hefðu lokað
Sprengjuárásir ísraelskra varðskipa á Beirút:
ísraelsmenn gefa
engar skýringar
Tel Aviv. Beirút. 6. okt. — AP
Flugritinn úr flugvélinni sem fórst vió Svalbaróa:
Rannsókn hefst 12. október
með eða án nærveru Rússa
Ósló. 6. októbcr. Frá Jan Erik Laure frcttamanni Mbl.
NORSK stjórnvöld hafa ákveðið að bíða ekki lengur
eftir því að sovésk stjórnvöld tilkynni fulltrúa sinn
við rannsóknina á flugritanum úr sovésku flugvél-
inni sem fórst við Svalbarða í lok ágúst sl. og verður
„svarti kassinn“ af því tilefni opnaður fimmtudag-
inn 12. október næstkomandi til rannsóknar. Hefst
rannsóknin á flugritanum samdægurs, með eða án
hjálpar sovéskra sérfræðinga, að því er fréttamaður
Mbl. hefur eftir áreiðanlegum heimildum.
Sovéski sendiherrann í Ósló,
Y. Kirichenko, hefur afhent
Knut Frydenlund utanríkisráð-
herra formleg mótmæli Sovét-
stjórnarinnar við þeirri fyrir-
ætlan Norðmanna að rannsaka
flugritann. Var sendiherranum
tilkynnt í dag að rannsóknar-
nefnd flugslysa hæfi rannsókn á
flugritanum 12. október. Reikn-
að er með að rannsóknin verði
tímafrek, að því er fram kom í
dag í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins um rannsóknina.
í mótmælum Sovétmanna
sem sendiherrann afhenti
Frydenlund leggja Sovétmenn á
það áherzlu að ákvörðun Norð-
manna sé ólögleg og aðeins til að
spilla samskiptum Sovétríkj-
anna og Noregs. Utanríkisráðu-
neytið vísaði mótmælum Sovét-
manna á bug og sagði í til-
kynningu ráðuneytisins að það
væri í samræmi við þjóðarrétt
að Norðmenn rannsökuðu flug-
ritann úr sovésku flugvélinni
sem fórst við Svalbarða, svo að
varpa mætti ljósi á ástæðurnar
fyrir slysinu.
Blaðamaður Aftenposten varð
á vegi Kiriehenko sendiherra
fyrir utan norska utanríkisráðu-
neytið þegar sendiherrann var
að koma frá því að afhenda
mótmæli stjórnar sinnar. Sagði
blaðamaðurinn fréttamanni
Mbl. að sendiherrann hefði verið
snúðugur og æstur og ekki viljað
svara neinum spurningum
blaðamannsins.
öllum leiðum sem liggja að stöðv-
um friðargæzlusveita Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) á svæðinu í mót-
mælaskyni við athafnaleysi SÞ
varðandi átökin í Beirút.
Moshe Dyan utanríkisráðherra
ísraels gagnrýndi Sýrlendinga
harðlega fyrir aðgerðir þeirra i
Líbanon skömmu áður en hann
hélt áleiðis til höfuðstöðva SÞ í
New York í gær. Dayan sagðist
ekki telja að ástandið í Líbanon
hefði áhrif á viðræður Israels og
Egyptalands um friðarsamkomu-
lag, en viðræður þessar hefjast í
næstu viku. Bandaríkjamenn hafa
hins vegar hvatt alla aðila til að
sýna stillingu og hafa hemil á
aðgerðum sínum af ótta við að
átök milli Sýrlendinga og ísraels-
manna kynnu að stefna árangrin-
um af viðræðunum í Camp David í
alvarlega hættu.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu hafa að minnsta kosti eitt
þúsund manns látið lífið og 1,700
særst í átökum sýrlenzkra friðar-
gæzlusveita og kristinna hægri-
manna í Líbanon frá því í febrúar
s.l.