Morgunblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978 Halldóra Bjarna- dóttir ráðkggur Islend- ingum á 105 ára afmœli smu: Ljósm. E.Pá. „IÆSA GiJÐAR HÆKLIR TALA vm GOTTFÓLK” HeiÖurskonan HalldóraBjarnadóttir er 105 ára i dag. Þar er hún i fararbroddi íslendinga i lífshlaupinu. Svo langt er hún komin þar fram úr jm sem venjulegt er, ad tölvutækni nútimans nær henni ekki. Tölvan, sem reiknar allt okkar bardús, slær út vid 100 ára aldur, og stjórnaöi þvi, ad Halldóru var sent bréfum aÖ nú œtti hún aÖ byrja i umferöarskóla ungra vegfarenda. Þótt enginn núlifandi íslendingur hafi nád aldri Halldóru, þá eru nokkrir snertispöl á eftir. íslendings- ævin hefur lengst um W ár miöaö viÖ fæöingu á síöustu 120 árum og ná bæöi karlar og konur hérá landi lengri aldri en aörar þjóöir, sem á skrá eru. 16 íslendingar munu vera 100 ára eöa yfir þaÖ á þessu ári, skv. þjóöskrá, þar affimm karlar. (Sjá lista hér á síöunni). Hæstum aldri á íslandi náöi María Andrésdóttir frá Stykkishólmi, sem lést rúmlega 106 ára gömulfyrir 13 árum. Langt er samt frá því að það séu árin ein, þótt mörg séu, sem setja Halldóru Bjarnadóttur í sérflokk. Þegar undirritaður blaðamaður hitti hana að máli í tilefni afmælisins fyrir nokkrum dögum norður á Blönduósi, var Ijóst að vísan, sem Sigurður Nordal orti til hennar áttræðrar í októbermánuði fyrir 25 árum, á enn við: IIcilI þér Halldóra. Illínfóstra og vatnsdælska valkyrja vörður þjóðrækni. íslands hollvættir. enn þig geymi. húna sem björk brcnnandi 1 anda. Halldóra minnti vissulega á beinvaxna, granna björk, þar sem hún sat í stólnum sínum, fíngerð og nett, með hvítt hárið snyrtilega upp sett, og penna í hönd. Hún fer á fætur á hverjum degi og skrifar bréf til vina sinna í Kanada, þar sem hún á ættingja, í Noregi, þar sem hún var kennari í Voss í mörg ár og á gamla nemendur, og á íslandi, þar sem hún á góða vini frá miklu starfi, er hún árum saman var óþreytandi ferðalangur um land allt, stofnaði kvenfélög, kenndi heimilisiðnað, setti upp sýningar og ritstýrði Hlín. Halldóra hefur alltaf verið dugleg að skrifa bréf. Fram yfir 100 ára aldur var hún óþreytandi að hvetja okkur blaðamenn í hvers konar þjóðlegum málum og heim- ilisiðnaði. Nýlega fékk hún frá Akureyri 1000 umslög með prent- uðu nafni sínu á og varð að orði: — Nú þarf ég að fá fallegan pappír, úr því ég er búin að fá svo góð umslög! Sem bendir til þess að ekki ætli Halldóra að hætta bréfaskriftum í bráð. Hún hand- skrifar bréf sín, enda ritvélin hennar gamla orðin safngripur. Venjulega fer Halldóra á fætur á morgnana og sezt í stól. Hún lærbrotnaði skömmu eftir 100 ára Ég er Þakklát guði og Þeim sem eru að hugsa um mig. afmælið og gengur lítið síðan. Fyrir hádegi fer hún aftur upp í rúm og borðar hádegisverð sitj- andi upp í rúminu. Þá fær hún sér hádegisblund. Og síðan fer hún aftur fram úr síðdegis og stundum um kvöldmatarleytið. Halldóru verður aldrei misdæg- urt. Heilsufarið er gott umfram eðlilega ellihrörnum, og hún tekur engin lyf utan vítamín. Sjónin er svo góð að hún les bækur. Það eina, sem bagar þessa 105 ára gömlu konu er heyrnin, sem farin er að láta sig. Því fundum við fljótt það ráð að skrifast á stuttum orðsendingum, okkur báðum til hægari verka. Það hentaði vel, Halldóra hefur aldrei verið fyrir óþarfa málalengingar. Hún svarar með stuttum, eldsnöggum setning- um og meiningunni þjappað saman. Þar hefur ellin engu breytt. Bréfin hennar voru alltaf orðspör sem símskeyti. — Élín Pálmadóttir? Blaða- maður á Morgunblaðinu! Ertu komin, góða, sagði Halldóra með hýru brosi, þegar ég kom til hennar einn daginn, þar sem hún sat og var að skrifa bréf. Ekkert hik, þótt við hefðum ekki sést síðan á 100 ára afmæli hennar. — Já, ég er að skrifa bréf á þennan gula pappír, sagði hún til skýringar. Vinum mínum! Halldóra sagði að sér liði vel. Það færi ákaflega vel um hana þarna á Héraðshælinu á Blöndu- ósi. Allir væru svo fjarska góðir við sig. — Ég er þakklát guði og þeim, sem eru að hugsa um mig, sagði hún. Svo er ég þakklát fyrir að fá að vera á þessu góða heimili og í þessu góða húsi. Læknar og hjúkrunarfólk segja að Halldóra hafi aldrei neinar kvartanir fram að færa, þegar komið er á stofugang. Sjálf kveðst hún borða vel, allt sem hana langi í, og drekki kaffi, eins og hún hefur alltaf gert. Og hún fær sér glas af víni á kvöldin, þegar hún á það og vel stendur á. — Hvað viltu nú, þegar þú ert 105 ára gömul, ráðlegga ungum Islendingum, Halldóra? — Lesa góðar bækur. Tala við gott fólk, skrifar hún um hæl. Mundi ég breyta einhverju ef ég gæti? Nei, nei, betta er allt gott.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.