Morgunblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978 Einar Kári Sigurðs- son í Háholti-Minning Fæddur 21. september 1944 Dáinn 1. október 1978 Þær eru margar minninfíarnar, sem sækja á, þejjar góður vinur er kvaddur og mörg orðin, sem vert væri að segja, en erfiðara reynist að festa þau á blað á stundu sem þessari þegar við nú kveðjum Kára að loknu starfi hans okkar á meðal. Efst í huga verður þó þakklæti fyrir samveruna, því honum tókst með lífi sínu að gera þá sem honum kynntust að betri mönnum. Einar Kári var sonur hjónanna Phlenar Stefánsdóttur og Sigurðar Einarssonar í Reykjavík. Hann var fæddur 21. september 1944 og var því aðeins 34 ára þegar hann lést. Þótt aldurinn væri ekki hár hafði hann skilað meira verki en margur honum helmingi eldri. Hann lauk námi frá Bændaskólan- um á Hvanneyri, var einnig rafvirki að mennt og stundaði þá iðn bæði í Reykjavík og heima í sinni sveit. Kári var kvæntur Margréti Steinþórsdóttur frá Hæli og áttu þau þrjú börn, Steinþór Kára, Sigurð og Birnu. Þau stofnuðu heimili sitt í Reykjavík en hugur þeirra beggja stóð ætíð til búskap- ar og fyrir nokkrum árum keyptu þau jörðina Háholt í Gnúpverja- hreppi og hófu þar búskap. Það var ekki auðhlaupið fyrir ung hjón að koma á fót bústofni og hýsa jörð eins og hér þurfti og kom sér vel fyrirhyggja Kára, sem of fátíð er ungurQ mönnum. Honum hafði hlotnast happdrættisvinningur á þeim árum er fæstum verður hugsað til framtíðaröryggis og láta hverjum degi nægja sína þjáning, en þennan vinning notaði hann til kaupa á íbúð. Sú ákvörðun reyndist nú happadrjúg þótt miklu þyrfti við að bæta. Voru þau hjón samhent í því og eru umskiptin orðin mikil og uppbygging jarðar- innar á þessum fáu árum nær algjör. Það hefur verið gestkvæmt í Háholti og undrar það engan sem Kára kynntist. Það var sama hvar hann fór, hann var vinsæll hvort sem var af verkum sínum eða félagsskap, glaðvær maður og þótti ætíð betra að menn hittust, blönduðu geði og gleddust saman. Hans naut víða við og öðlaðist jafnan álit og traust. Hestamaður var hann góður og hlaut viður- kenningu fyrir bæði hér heima og erlendis. Glöggskyggni hans á skepnur var þó ekki aðeins bundin við hesta. Hún kom sér vel þegar + Eiginmaöur minn og faöir okkar. SIGURDUR INGIMUNDARSON, forttjöri, andaöist á Landspftalanum fimmtudaginn 12. október. Karítas Guömundsdóttir og börn. t Móöir okkar, HALLDÓRA ÓLAFSDÓTTIR, Drápuhltö 45, lést í Borgarspítalanum þann 12.10. Ólafur Guómundsson, Arnlaugur Guómundsson. Guórún Guömundsdóttir, t SVEINN JÓNSSON, Irá Landamótum, Vestmannaeyjum, andaöist aö Vífilsstööum 12. október. Vandamenn. t Ástkær sonur okkar og bróöir, JÓN HAUKUR STEINÞÓRSSON, Staöarvör 2, Grindavík, er lést 8. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvooskirkju þriöjudaginn 17. október kl. 10.30. Jóhanna Pátursdóttir, Steinpór Þorvaldsson, systkíni og aórir vandamenn. t Innilegar þakkir til allra, sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför, BODIL PLESNER JÓHANNSSON, Laufvangi 3, Hafnarfiröi. Björgvin Jóhannsson og synir Halldóra og Jóhann Vilhjálmsson. t Hjartans þakkir sendum viö vinum og vandamönnum nær og fjær sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför, JÓNU SIGRÍÐAR GUDMUNDSDÓTTUR, Lækjargötu 6, Akureyri. Jóngeir Magnússon, börn hinnar látnu og aörir aðstandendur. bú var sett saman í Háholti og hafin svínarækt. Er sá stofn talinn með því bezta sem þekkist hér- lendis. Mörgum, sem nú hugsa til Kára, verður sjálfsagt efst í huga sú glaðværð og þokki, sem frá honum stafaði. En okkur, sem þekktum hann meir, verður ekki síður hugstætt æðruleysi það og þrek sem hann sýndi þegar á reyndi. Það þarf mikinn kjark til að láta ekki hugfallast þegar slík veikindi steðja að sem þau er Kári átti við að stríða. Margir gefast upp þegar kraftinn þrýtur til að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hafin er, en aldrei örlaði á uppgjöf hjá Kára. Hann var alltaf fullur starfslöngunar og hr^tt í fram- kvæmd umbótum og stóð í stór- verki heima fyrir þegar hann varð að hverfa af landi brott til að leita sér lækninga vestan hafs. Ekki var hann óstuddur í þeirri baráttu þótt fjarri væri heimili sínu. Síðustu mánuðina dvaldist hann að mestu hjá Stefáni bróður sínum og konu hans, sem búsett eru í Bandaríkjunum. Magga og for- eldrar Kára voru honum einnig við hlið og samheldni þeirra og fórnfýsi var fagurt að reyna. Þeirra framlag og annarra, sem lagt hafa til hjálp sína veittu honum þá vissu að því, sem huga hans stóð næst, fjölskyldu hans og lífsstarfi var borgið þótt hans nyti ekki lengur við. Við kveðjum Kára með kærri þökk fyrir samveruna og vonum að Möggu gefist eftir sem áður sá kjarkur og æðruleysi, sem hún hefur sýnt þessa síðustu, erfiðu tíma. Með samúðarkveðjum til Möggu og barnanna, Ellenar, Sigurðar og systkinanna. Drífa og Gestur. Einar Kári var fæddur í Reykjavík. Sonur hjónanna Ellen- ar Stefánsdóttur og Sigurðar Einarssonar. Einar Kári ólst upp í Reykjavík, en hugur hans hneigð- ist aila tíð til sveitarinnar og var hann einstakur dýravinur. Snemma beindist áhuginn til hestanna og hann var ekki aldinn að árum þegar hann eignaðist sinn fyrsta hest. Enda voru hestar og hestamennska honum svo í blóð borið að fáa man ég honum snjallari á því sviði. Sem hugur stóð til varð Kári búfræðingur frá Hvanneyri. En þar sem dýrt er ungum manni að hefja búskap með tvær hendur tómar þá hóf hann nám í rafvirkjun og lauk hann sveinsprófi í þeirri iðngrein. Um þetta leyti kvnntist Einar Kári eftirlifandi konu sinni Margréti Steinþórsdóttur frá Hæli í Gnúp- verjahreppi. Þau stofnuðu heimili í Reykjavík og bjuggu þar um tíma, en alltaf stóð hugurinn út í sveitina og þegar þau fréttu af því að Háholt í Gnúpverjahreppi væri laust til ábúðár, var strax slegið til og jörðin keypt. Þarna var þeirra vettvangur. Einar Kári féll inn í bændasam- félagið eins og hann væri þarna borinn og barnfæddur. Þeim tókst að byggja Háholt þannig að til fyrirmyndar er. í dag er til moldar borinn, frá Stóra Núpskirkju í Gnúpverja- hreppi, góður drengur. Fallinn í blórna lífsins frá þrem ungum börnum og eiginkonu. Kári var aðeins rúmlega 34 ára, þegar hann var héðan burt kallaður, eftir löng og þung veikindi. Kynni mín af Kára voru mjög náin, leit ég hann ávallt sem son minn og einstakan vin, og man ég hann alia tíð sem sérstakan mannkostamann og tryggan vin okkar hjónanna. Ljúft er að minnast á kveðjustund allra fundanna sem við áttum saman með honum og félögunum góðu, sem alltaf stóðu saman á hverju sem gekk. Að þurfa að sjá á bak ungum manni í blóma lífsins, þá ævistarf- ið rétt er að hefjast, er óskiljan- legt. Upp í hugann kemur spurn- ing, hvers vegna hann? Það getur verið sárt að sætta sig við dóm drottins. Þó er það huggun í harmi, að allt, sem stóð í mann- legu valdi var gert til þess að Kára mætti auðnast lengra líf og seint gleymist kærleikur Stefáns í garð bróður síns í veikindum hans. Slíkur bróðurkærleikur er svo einstakur að aldrei verður full- þakkað eða til jafnað. Allt þetta og allra þeirra fjölmörgu sem lagt hafa fram bæði fjármuni og hlýhug í veikindum Einars Kára, ber að þakka og minnast á kveðjustund. Að endingu þessara fátæklegu orða í garð góðs vinar vildi ég flytja kveðju frá félögunum góðu, þeinr Snorra, Hilmari, Auðunni og Haraldi. Við vottum Margréti og börnunum ungu, þeim Steinþóri Kára, Sigurði og Birnu, okkar dýpstu hluttekningu og samúð við fráfall Einars Kára. Pétur Hjálmsson. Einar Kári Sigurðsson var fæddur 21. september 1944, en lést 1. október sl. Hann var sonur hjónanna Ellen- ar Stefánsdóttur og Sigurðar Einarssonar. Kári ólst upp í Reykjavík, en var mikill sveita- maður í sér. Kára kynntist ég fyrst, er hann hóf búskap í Háholti vorið 1973. Hann var skarplegur, snotur maður og skemmtilegur. Kári var rnikill búmaður og duglegur. A þessum fimm árum sem hann bjó, var hann búinn að byggja hlöðu, fjárhús og hesthús. Honum féll aldrei verk úr hendi, alltaf sívinn- andi, ósérhlífinn, vinnuhraði mik- ill og allt hans handbragð til fyrirmyndar, snyrtimenni svo af bar. En Kári bjó ekki einn í Háholti. Arið 1969 kvæntist hann Margréti Steinþórsdóttur frá Hæli og eign- uðust þau þrjú börn. Maggíf er mjög heilsteypt og greind kona. Það hefði staðið í einhverri það sem hún er búin að afreka, að stunda mann sinn veikan og eins að hugsa um börn og bú. Hún var stoð hans og stytta, alltaf svo glaðleg og létt í lund. Þau hjón voru mjög samhent um að gera allt sem best úr garði. Þau hafa mikið misst, Magga mín og börnin, en minningin um góðan eiginmann og föður vermir hugann því að Kári var mikill heimilisfaðir. Guð styrki þau og blessi. Ekki datt mér í hug er ég kvaddi Kára vin minn 2. janúar sl. að ég ætti ekki eftir að sjá hann aftur, en þeir sem Guðirnir elska deyja ungir. Maður verður að sætta sig við það, þótt það sé erfitt. Hafi Kári þökk fyrir allt. Guð blessi minningu hans. Bjarney Guðrún Björgvinsdóttir. Jenný Esther Jensen — Kveðja Fædd 31. marz 1923. Dáin 10. ágúst 1978. Ég get ekki látið hjá líða að minnast vinkonu niinnar, enda þótt liðinn sé nokkur tími frá andláti hennar og jarðarför. Jenný Esther Jensen var fædd í Neskaupstað 31. marz 1923. For- eldrar hennar voru Sigríður Sím- onardóttir frá Hellisfirði og Nils Hagerup Jensen frá Abornes í Noregi. Esther var tvíburi. Tví- burabróðir hennar er Georg hét, dó aðeins fárra vikna gamall. Þrjár systur átti Esther, Jónu sem búsett er í Re.vkjavík, Ernu sem giftist til Bandaríkjanna, dáin fyrir nokkrum árum og hálfsystur í Noregi, Gerd Jensen. Þegar Esther var fárra ára gömul fluttist fjölskylda hennar frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar þar sem hún ólst upp. Arið 1943 fluttist Esther með foreldrum sínum og s.vstrum til Fáskrúðs- fjarðar og hefur að mestu verið búsett þar síðan. Ári eftir að hún kom á Fáskrúðsfjörð missti hún móður sina. Hinn 28. september 1946 giftist Esther Kristjáni Stefánssyni og eignuðust þau fjögur börn; Jens; Þóru, gifta Hermanni Steinssyni, eiga þau dóttur er Esther heitir; Ingvar, sem kvæntur er Hallgerði Hlöð- versdóttur, þau eiga tvö börn; og Guðfinnu sem trúlofuð er Gunnari Geirssyni. ViðÆsther vorum á líkum aldri og góðar vinkonur. En er hún fluttist frá Seyðisfirði, skildust leiðir og viö sáumst sjaldan. Svo er það fyrir þremur árum að leiðir okkar iágu saman á ný, er ég kom á Fáskrúðsfjörð og dvaldi þar um nokkurra mánaða skeið. Þá fann ég best hve trygg hún var og góð, og vildi allt fyrir mig gera. Sjaldan hef ég komið á heimili og þekkt til fjölskyldu er var eins samhent og fjölskvlda Estherar var. Esther var vel gefin og fróð, en sú kona sem mest var heima við. Hún var fremur dul. Síðari ár var hún oft lasin, en bar það svo vel að okkur samferðafólki hennar hugkvæmdist ekki að við fengjum ekki að hafa hana lengur hjá okkur. Að endingu færi ég Esther vinkonu minni kæra þökk fyrir allt. Hjartanlegar samúðarkveðjur sendi ég manni hennar, börnum, litlu barnabörnunum og systur hennar. Helga Sigurðardóttir. Afmœlis- og minningar- greinar ATIIYGLI skal vakin á því. að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein. sem birtast á í miðvikudagsblaði. að berast i síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.