Morgunblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978
21
Korchnoi vann frábæran
sigur — og jafnaði metin
Hanif Galombek
Morgun blaöiö
„NÚ þegar staðan er
5—5 er það aðeins happ-
drætti hvor vinnur,“
sagði Viktor Korchnoi
áskorandi Karpovs um
heimsmeistaratitilinn í
skák eftir að honum
hafði tekist að leggja
Karpov að velli í 31.
einvígisskákinni og jafna
þar með metin. Árangur
Korchnois að undan-
förnu hefur verið hreint
og beint ótrúlegur, hann
hefur fengið 3V2 vinning
úr síðustu íjórum skák-
um og hlýtur því að
teljast sigurstranglegri.
Sigur áskorandans í
31. skákinni var einstak-
lega sannfærandi. Hann
fékk örlítið betra enda-
tafl eftir byrjunina og
fór sér síðan hægt við
uppbyggingu stöðunnar
án þess þó að slaka
nokkru sinni á klónni.
Þegar skákin fór í bið
hafði hann síðan mjög
verulegar vinningslíkur,
sem hann nýtti sér siðan
til fullnustu í
framhaldinu.
Korchnoi var að vonum
hress í bragði eftir þenn-
an frækilega sigur. „Ég
mun halda áfram að berj-
ast,“ sagði hann meðal
annars. Þegar hann var að
því spurður hvort hann
myndi tefla til vinnings í
32. skákinni með svörtu
svaraði áskorandinn: „Því
skyldi ég ekki láta mér
nægja jafntefli."
Báðir keppendur verða
greinilega að endurskoða
baráttuaðferðir sínar.
Karpov á ekki lengur
sigurinn vísan, hann hef-
ur reyndar ekki einn
einasta vinning í forskot
lengur Korchnoi þarf ekki
að berjast lengur af krafti
örvæntingarinnar, honum
hefur tekist að jafna
metin, sem er í sjálfu sér
frábært afrek gegn Kar-
pov, sem ungur að árum
Biðstaðan
var jafntefli
Nú hofur þetta undraverða
heimsmeistaraeinvígi náð al-
gjiiru hámarki. Andstætt öllum
kenningum hefur áskorandinn.
Victor Korchnoi, jafnað leikinn
og hefur hvor skákmaður fimm
vinninga. en sá vinnur einvígið
sem fyrr verður til að vinna
skák héðan í frá.
Þegar 31. skákin fór í bið leit
staða Korchnois út fyrir að vera
öllu betri. En aðstoðarmönnum
hans var mikiii vandi á höndum.
Margar leiðir virtust leiða til
vinnings, en þegar grannt var
skoðað virtist jafntefli þó öllu
fremur blasa við. Vandræðin
voru þau að Korchnoi þurfti að
fórna tveimur peðum til að bæta
stöðu sína, en með þeirri fórn
leyndist sú hætta að mannfæðin
á borðinu leiddi til jafnteflis. Og
skákin var eftir allt rakið jafn-
tefli.
En heimsmeistarinn gerði
hverja skyssuna af annarri strax
eftir að kempurnar hófu taflið að
nÝju og staða hans var gjörtöpuð
eftir nokkra leiki. Fimmtugasti
leikur hans var t.d. afleikur.
Hann hafði ekki átt að fara með
hrókinn af heimareitum sínum og
einnig var 57. leikur hans alvar-
legur afleikur. Karpov lék 14 leiki
til viðbótar en honum hefði verið
fyrir beztu að gefa skákina öllu
fyrr.
Það var athyglisvert að Karpov
lék öllu hraðar en Korchnoi þrátt
fyrir stöðu hans og þegar yfir
lauk hafði hann notað 1V4
klukkustund skemur til umhugs-
unar en Korchnoi.
Korchnoi hefur nú unnið eitt
mesta afrek í sögu einvígjanna
um heimsmeistaratitilinn í skák.
Hann hefur breytt stöðunni úr
5—2 Karpov í vil í 5—5. Ég álít að
Karpov sé það miður sín eftir
hrakfarir sínar að undanförnu að
hann fresti 32. skákinni (sém
tefla á í dag) til þriðjudags. Það
kæmi mér a.m.k. ekki á óvart.
- a4, 64. Hxf6 - Hf4,
65. Hxh6 - a3
(Eftir 65. - Hxf5, 66.
Hh7+ - Kb8, 67. Kb6 er
svartur kominn í mátnet).
66. Ha6+ - Kb8, 67.
IIxa3 - Hxf5, 68. Hg3 -
Hf6, 69. Hg8+ - Kc7, 70.
Hjí7+ - Kc8, 71. Hh7 og
Karpov gafst upp. Að öllu
forfallalausu verður
næsta skák tefld á morg-
un. Þá hefur Karpov hvítt.
peðum sínum á miðborð-
inu, auk þess sem hann
hefur nægan tíma).
- He8, 50. Hd2!
(Þarna stendur hrókur-
inn mjög vel að baki
peðsins).
- He4(?),
(Hrókurinn hefur lítið
erindi á miðborðið. Virk-
ari vörn var 50. — Hel,
jafnvel þó að eftir 51. a6!
- bxa6, 52. Ha2 eigi
svartur í vök að verjast).
51. Kb4 - Ke8,
52. a6!
(Lykilleikurinn í áætlun
hvíts. Þessi snjalla peðs-
fórn skapar greiða leið
fyrir hvíta kónginn inn í
svörtu herbúðirnar).
- cxd5, 56. Hxd5+ —
Kc8, 57. Hd3!
(Korchnoi leitar að
annarri opinni línu fyrir
hrók sinn svo að hann geti
skákað á 8. reitaröðinni).
— a5, 58. Hg3 — b3
(Taflmennska heims-
meistarans er byrjuð að
einkennast af örvæntingu
og það bætir ekki úr skák.
Ef nú 59. Hxb3? ? Þá
Hb4+ og svartur vinnur).
59. Kc6 - Kb8, 60.
Hxb3+ - Ka7, 61. Hb7+
- Ka6, 62. IIb6+ - Ka7,
63. Kb5
(Svörtu peðin falla nú
hvert á fætur öðru).
— bxa6, 53. Ka5 — Kd7,
54. Kb6 - b4, 55. d5!
(Hvítu mennirnir eru
báðir frábærlega staðsett-
ir og nú myndar Korchnoi
sér frípeð. Þó að hann sé
peði undir geta úrslitin nú
ekki orðið nema á einn
veg).
Margeir Pétursson
skrifar um 31.
einvígisskákina
47. — gxf5, 48. gxf5 —
IIg8, 49. Kc3
(Svartur á einnig mjög
erfitt um vik eftir 49. d5!?
eins og ég stakk upp á í
blaðinu í gær. Leikur
Korchnois er þó við nán-
ari athugun mun örugg-
ari, þar sem hvítur heldur
hinum tveim samstæðu
Hvítt« Viktor Korchnoi
hefur verið talinn einn
öruggasti skákmaður
allra tíma. Allt frá því að
skákferill Karpovs hófst
hefur hann aldrei orðið að
þola þrjá ósigra í fjórum
skákum í röð. Það hlýtur
því að verða mjög erfitt
fyrir hann að hrista af sér
slenið, þó að hann hafi
nóg af aðstoðarmönnum
til þess að stappa í sig
stálinu.
Sífellt fjölgar í sovézka
hópnum í Baguio. í gær
bættist í hópinn sjálfur
íþróttamálaráðherra
Sovétríkjanna, Viktor
Ivonin. Hann kom rétt
áður en Karpov gaf 31.
skákina. Hann og Se-
bastionov, forseti sovézka
skáksambandsins hafa
komið gagngert til Baguio
til þess að fagna sigri með
heimsmeistaranum en ef
heldur sem horfir verða
þeir fremur í hópi syrgj-
enda en sigurvegara að
einvíginu loknu.
Svart* Anatoly Karpov
Skák