Morgunblaðið - 14.10.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978
37
lokinni sýningu á Close
encounters, en það er þessi falska
lífsKÍeði sem kviknar af voninni
um að þessir atburðir gerist.
Einar YnK'i Majtnússon."
• Tilviljana-
kenndar
mælingar
Hér fer á eftir stutt bréf þar
sem fjailað er um ratsjármælingar
löKreglunnar:
„Einhver Loki skrifar í Alþýðu-
blaðið sl. miðvikudag og gerir að
umtalsefni ratsjármælingar
lögregiunnar og telur hann að hún
eigi t.d. ekkert erindi með radar-
inn eða rasjána á Keflavíkurveg-
inn, því hann sé hvort eð er svo
góður að þar megi iáta bílana
spretta úr spori eins og þeir
margir séu byggðir til. Þetta má
að nokkru leyti til sanns vegar
færa, en hitt verður samt sem áður
að hafa í huga, að því er ég tel, að
mælingar og eftirlit veita vissu-
lega það aðhald sem nauðsynlegt
er í umferðinni.
Loki Alþýðublaðsins segir
staðreyndina þá, að venjulegt fólk
efist um að mælingar lögreglunn-
ar séu skipulagðar nokkuð og
tilviljanakennt sé hvort mælt sé
uppi í sveit eða í bænum t.d. á
hættustöðum, helzt þar sem koma
megi ökumönnum sem mest á
óvart til að hala inn aura í
einhverja sjóði. An þess að ég viti
það nieð vissu, leyfi ég mér að
draga þessar fullyrðingar í efa, því
áreiðanlega eru mælingarnar
skipulagðar eitthvað og sama
hugsun hlýtur að liggja að baki
mælingum hvort sem er á Kefla-
vikurvegi eða á Hringbraut í
Reykjavík, nefnilega sú að veita
ökumönnum aðhald og koma í veg
fyrir að ekið sé glæpsamlega hratt.
Bent er á í skrifum Loka, að
fyrirbyggjandi aðgerðir seu það
sem koma skuli og samstarf
lögreglu og almennings í meira
mæli en nú er sé æskilegast.
Vissulega er það rétt, en má ekki
líka benda á það og spyrja þeirrar
spurningar hvort ekki sé rétt að
eina málið sem ökumenn og
ökuþórar skilja er þegar talað er
til þeirra gegnum budduna, ef svo
mætti að orði komast. Menn hugsa
yfirleitt sem svo að allt sé nú í
lagi, en gleyma því að slysin gera
ekki boð á undan sér og meðan
mjög margir ökumenn virða ekki
reglur um hraðatakmörk meira en
nú er, hlýtur það að teljast mjög
eðlileg ráðstöfun af hálfu lög-
reglunnar að hún fylgist með
ökuhraða á hinum ýmsu stöðum í
Reykjavík og nágrenni, en fyrirr
byggjandi aögerðir þyrftu vissu-
lega að vera fyrir hendi í meira
mæli en nú er.
Okumaöur."
Þessir hringdu . . .
nokkrir dýrkendur þessara tveggja
einræðishérra þó sérstaklega
Stalíns. Ég fullyrði ekki að svo sé,
en hefi óljósan grun um að það
gæti verið. Ég er ekki á móti
neinum trúarbrögðum, en ég er
lútherstrúar og trúi því á Guð
okkar. Hann hefur verið mér
styrkur og stoð, en ef einhver sem
er annarrar trúar og veit um meiri
mátt en þann sem ég trúi á, þá að
sjálfsögðu á hann eða hún að trúa
á þann mátt. Að endingu íslandi
allt, lifið heil og sæl.
• Er nokkur
til svars?
Sveinn Sveinssoni
„Er ekki búið að umtúrna
hugsjónum Lenins og Engeis og
Marx? Þessar spurningu verður
sennilega ekki svarað, fremur en
spurníngunni sem lögð var fyrir 60
þingmenn, en ekkert svar barst
svo ég viti til.
Mannréttindi eru mikilvæg. Mér
finnst að allir menn eigi að hafa
fullan rétt til hvers sem vera skal
og engum manni sé heimilt að
hefta frjálsræði annarra manna,
ekki einu sinni rnenn sem eru
valdamiklir. Ekki einræðisherrar,
páfar eða trúarleiðtogar, hvar á
heimskringlunni sént þeir eru. Það
undrar ntig stórkostlega að fólk
skuli vera til, sem dáð hefur Hitler
og Stalín og dáir þá jafnvel dauða,
aðra eins hörntung og þeir leiddu
yfir heintinn allan. Ennþá meira
undrar mig ef tilfellið er, að á
Alþingi Islendinga sitji nú í dag þó
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Tékkóslóvakíu í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Prandstctters. sem hafði
hvítt og átti leik, og Jankovecsi
27. Dxbfi! og svartúr gafst upp.
Eftir 27... Dxb6, 28. Hd7+ er
staða hans töpuð hvort sem að
hann leikur 27 ... Ke8, 28. He7+ —
Kd8, 29. Hdl+ eða 27... Kg8, 28.
f7+ - Kh8, 29. Bg7+! - Kxg7, 30.
f8=D mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
rí
Leikhúskjallarinn
Leikhútgestir,
byrjiö
Imkhústeröina
hjé okkur.
Kvöldveröur frá kl.
18.
Boröpantanir
í síma 19636.
Skuggar leika til kl. 2. Spariklæðnaður.
Stórdansleikur
að Borg — Grímsnesi
í kvöld kl. 10—2.
Aðeins Þetta eina sinn.
Hinir storkostlegu
Dúmbó og Steini
á ferö sinni um landið.
Sætaferöir frá Umferöar
miöstööinni og öllum
helztu byggöarkjörnum
Suöurlandsins.
Nýja
„Dömufríiö“
í hávegum haft.
Missiö ekki af stórdansleik ársins á
Suöurlandi. Dúmbó.
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær:
□ Hverfisgata 4—62
□ Laugavegur 1—33
□ Úthlíö
Vesturbær:
□ Miöbær
□ Reynimelur 1—56
□ Nesvegur 40—82.
Uppl. í síma 35408
JWergmsfcMtóitb