Morgunblaðið - 27.10.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978
7
r
Niöurfelling
eöa veruleg
leiörétting
Geir Hallgrímsson, for-
maöur Sjálfstæðisflokks-
ins, kraföist Þess á
Alþingi í fyrradag, að
þingnefnd sú, sem fær
bráðabirgöalög ríkis-
stjórnarinnar til meðferð-
ar, fari rækilega ofan í
kjöl ákvæða um eigna-
skattsauka og viðbótar-
tekjuskatt líðandi árs.
Meginkrafan væri sú, að
Þessi umdeilda sköttun
yröi felld niður en til vara
að Þeir vankantar yrðu
lagaðir, sem ranglátastir
væru.
Eignaskattsaukinn hef-
ur í mörgum tilfellum
komið hastarlega við elli-
lífeyrisÞega, sem búa viö
mjög takmarkaöa tekju-
öflun en eiga skuldlausa
eöa skuldlitla húseign,
eftir langa starfsævi.
Þessi skattauki kemur og
illa við mörg fyrirtæki,
rýrir eiginfjárstöðu
Þeirra, sem Þýðir aukna
lánsfjáreftirspurn og
spennu á peningamark-
aöi. Sá stuðningur, sem
útflutningsfyrirtæki áttu
að sækja í gengislækkun,
er tekinn aftur í formi
n
sköttunar, sem á ný veik-
ir rekstrarstöðuna og
eykur enn á Þrýsting um
nýja gengislækkun.
Geir Hallgrímsson
sagði afturvirkan tekju-
skattsauka siðferðilega
rangan. Fólk og fyrirtæki
hefðu gert ráðstafanir í
fjármálum og fjárfest-
ingu, miðaö við tekjur og
í trausti á gildandi
skattalög. Afturvirkur
tekjuskattur á síðustu
mánuðum árs, sem færði
enn meira fjármagn frá
almenningi til ríkissjóðs
en fólk og fyrirtæki hefðu
reiknað með í fjárráöstöf-
unum sínum, kemur Því
mjög illa við Þúsundir
skattborgara. Nauðsyn-
legt er að skattborgarinn
geti hverju sinni — í
ákvarðanatöku um eigin
fjármál — treyst gildandi
skattalögum en fái ekki
óvænta bakreikninga í
höfuöið.
Böggull
fylgir
skammrifi
Geir Hallgrímsson
sagöi fyrrum stjórnar-
andstöðuflokka hafa
svikíð glamuryrðið um
„samningana í gildi“, svo
sem ýmis viöbrögð laun-
Þegafélaga bæru vitni
um. Aö Því marki sem
staðið hefði veriö viö
Þettatloforð fylgdi bögg-
ull skammrifi, Þ.e. að
binda ætti grunnkaup og
tilhögun veröbóta í heilt
ár. Þessi skilyrði hefðu
ekki fylgt fyrri kröfum um
„samningana í gildi“. Þá
var aldrei sagt að „gildis-
töku“ fylgdi binding
grunnkaups í heilt ár.
Raunar var látið að Því
Geir
Hallgrímsson
liggja að launakostnaður
skipti litlu í verðbólgu og
vanda atvinnuvega.
Vísitöluleikur núver-
ándi stjórnarflokka kem-
ur fram í Því að greiða
niður vörur, sem vega
Þyngra í vísitölu en út-
gjöldum almennings, en
hækka vörugjald á öðr-
um, er vega létt eða alls
ekkert í vísitölu en Þeim
mun Þyngra í heimilis-
haldi.
Endurskoðun vísitölu-
kerfis er nauðsynlegur
undanfari verðbólgu-
hjöðnunar. Í Því efni
hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn samstöðu með
AlÞýðuflokki og Fram-
sóknarflokki. Sú sam-
staða nær hins vegar
ekki til allra stjórnar-
flokkanna. Geir Hall-
grimsson sagði Sjálf-
stæðisflokkinn vilja
stuðla að stöðugleika
kaups og kaupgildis
krónunnar og tryggja
launþegum hæstu mögu-
leg laun um Þjóðhags-
visitölu í samræmi við
staðreyndir Þjóðar-
búskaparíns hverju sinni.
Aögeröirnar
hafa gjör-
samlega
mistekizt
Geir sagði niður-
greiðslur geta verið
nauðsynlegar. Þær
mættu Þó aldrei fara yfir
Þau mörk aö Þær
skekktu valfrelsi í eftir-
spurn eða leiddu til halla
á ríkissjóði. Núverandi
niðurgreiðslur valda slík-
um halla ríkissjóðs í ár;
velta verðbólguvandan-
um yfir á ríkissjóðinn,
eins og Ólafur Jóhannes-
son hefur orðað Það. Þær
hafa Því, eins og bráða-
birgðaráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í heild, auk-
iö á vandann tn ekki
leyst hann.
Geir Hallgrímsson
sagði Ijóst, aö kaup-
gjaldsvísitala hækkaði
um 10 til 12% 1. desem-
ber nk., miðað við út-
reikninga í endaðan
nóvember, prátt fyrir vísi-
töluleik stjórnarflokk-
anna. Aögerðir ríkis-
stjórnarinnar hafa pví
engan árangur borið. Þær
hafa mistekizt í megin-
atriðum. Aögeröír sem
áttu að skapa tóm til að
snúast gegn verðbólgu
og efnahagsvanda, hafa
aukið hvort tveggja. Og
spurningin, sem brennur
á vörum pjóöarinnar, er
sú, hvort samStaða sé í
stjórnarliði um gerö fjár-
laga og kjarapróun kom-
andi árs, en petta tvennt
kann aö ráða úrslitum
um, hvort Þjóðin gengur
til góðs götu komandi árs
— eða í glötunarátt.
1 2
1. loöfóöruö brún og Ijós kr. 19.500,-
2. loöfóðruð svört og ryöbrún kr. 19.900.-
3. loöfóöruö svört kr. 16.900-
4. sparistígvél brún kr. 31.600.-
Einnig ótai aörar tegundir
af kuldastígvélum nýkomin.
3 4
Opiö á morgun laugardag til kl. 12.
Karlmanna-nælonúlpur
vattstungnar, kr. 8.450,-
Mittisúlpur karlmanna og unglingastæröir frá kr. 6.400,-
Gallabuxur kr. 2.975., 3.975.- og 4.935-
Teryienebuxur frá kr. 4.0007-
Peysur, skyrtur, nærföt. sokkar o.fl. ódýrt.
Opiö föstud. til kl. 7 og laugard. til kl. 12.
Andrés Skólavörðustíg 22
Undursamlega jörð,
mynd þína hefur mig lengi
langað til að mála.
Þannig kemst Jón úr Vör að orði
í Þessari nýju bók, sem er
tíunda Ijóðabókin hans. Og Þó að hann segi af sínu alkunna
yfirlætisleysi að sín fátæklegu orð dugi ekki í myndina, þá er
Það hans dómur en ekki okkar. Þvi aó Þeir fletir jarðar og
mannlífs sem hann hefur dregið upp í Ijóðum sínum
gegnum árin eru ekki einungis skýrir og fagrir,
heldur einnig svo sérstæðir og
persónulegir að ekkert annað
líkist Þeim.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 16 — Sími 19707
Skemmuvegi 36, Kópavoai — Sími 73055
Dúnmjúkar sængur meö DACRON HOLLOFIL
fyllingu, sem veldur byltingu í gerö rúmfatnaöar.
15% aukiö rúmmál miöaö viö þunga.
Meöal kostanna:
* Stórbætt einangrunargildi
* Aukin mýkt
* Bælast ekki
* Léttar
* Lyktarlausar
* Valda ekki ofnæmi
* Loga ekki af vindlingaglóð
* Þvottekta
Sæng stærö 140x200 cm kr. 14.000.—
Koddi stærö 50x70 cm kr. 5.900.—
Sængurfataefni í glæsilegu úrvali.
Vörumarkaðurinn hf.
Vefnaðarvörudeild Ármúla 1A
Sími 86113.