Morgunblaðið - 27.10.1978, Side 11

Morgunblaðið - 27.10.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978 11 Vökufundur um skipan prófdómara við Háskólann „Skipan^ prófdómara við Háskóla íslands,“ er yfir- skrift fundar sem mennta- málanefnd Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta, gengst fyrir á morgun. Á fundinum verður rætt um gkipan prófdómara við yfir- ferð prófa í Háskólanum. Framsöguræður flytja þeir Halldór Guðjónsson kennslu- stjóri, Jónatan Þórmundsson prófessor, Valgeir Pálsson laganemi og Steingrímur Ari Arason viðskiptafræðinemi. Að framsöguerindum lokn- um verða almennar umræður og fyrirspurnir. Fundurinn, sem er öllum opinn, fer fram á morgun klukkan 14 í stofu 101 í Lögbergi. Ólafur Jóhannesson forsætisrádherra: Árangurinn í ríkisfjármálum 1979 byggist hins vegar á því, hvern veg verður staðið að fjár- lagagerð þess árs, svo og af þróun kjaramála í þjóðfélaginu. í þessum málaflokkum ræðst það, hvort það tóm, sem bráðabirgðaaðgerðirnar skapa, nýtist til að snúast gegn verðbólgunni með raunhæfum ráðum og árangri. Hátíð í Hall- grímskirkju í kvöld kl. 20.30 verður minnst 304. ártíðar síra Hallgríms Péturs- sonar með hátíðarguðsþjónustu í Hallgrímskirkju. Þar mun séra Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup á Akureyri, prédika og Manuela Wiesler leika einleik á flautu. Messusöngur verður með þeim hætti, sem tíðkaðist þá er síra Hallgrímur söng helgar tíðir í Hvalsnesi og Saurbæ, og sálmarn- ir sem sungnir verða eru allir eftir hann. Kór Hallgrímskirkju syng- ur, organisti er Antonio Corveiras. Frá kl. 20 mun hann leika á klukkuspil og orgel kirkjunnar verk eftir þekkta höfunda. Að guðsþjónustu lokinni verður tekið á móti samskotum til kirkjubygg- ingarinnar. Fulltrúar BHM á fundi með forsætis- ráðherra FULLTRÚAR Bandalags háskólamanna gengu á miðvikudag á fund forsæt- isráðherra ólafs Jóhannes- sonar og báru honum ályktanir hins almenna fundar BHM, sem getið var í Morgunblaðinu. Fulltrú- arnir, sem gengu á fundi ráðherra voru Jónas Bjarnason, formaður BHM, Jón Hannesson, for- maður launamálaráðs BHM, og Guðríður Þor- steinsdóttir, framkvæmda- stjóri BHM. Jónas Bjarnason sagði að á fundinum hefðu þau þrjú lagt áherzlu á að vísitöluþakið yrði numið úr gildi og þau hafi lýst áhyggjum sínum af því að há- skólamenn væru nú eini hópur þjóðfélagsins, sem byggi við stöð- uga kauplækkunarsamninga. Kváðust þau seint trúa því að alþingismenn staðfestu bráða- birgðalög ríkisstjórnarinnar með slíku misrétti. Jónas kvað BHM stefna að fundi með fjármálaráðherra, Tómasi Árnasyni, um kjarasamninga BHM. Um það hvort bandalagið léti verða af hótunum sínum um vinnustöðvanir — sagði Jónas, að það færi allt eftir viðbrögðum Alþingis við staðfestingu bráða- birgðalaganna og hvort Tómas Árnason Jéði máls á nýjum samningaviðræðum við bandalagið. Ástæöurnar eru margar. Viö getum nefnt hin frábæru mynd og tóngæöi Philips. Líka mætti nefna.aö tækiö er sérstaklega einfalt í notkun. Kostir Philips VCR kerfisins koma best í Ijós á litsjónvarpstækjum meö stórum skermum en það er sú gerö er flestir Evrópubúar kjósa. Philips kerfiö er þaö eina á markaönum í dag, sem hannað er í Evrópu fyrir evrópska litsjónvarpskerfiö. Philips myndsegulbandiö hentar öllum. Þaö hentar vaktavinnufólki, sjómönnum og öllum öörum, sem ekki geta sest niöur viö sjónvarpiö hvenær sem er. Fjölskyldur í fjölbýlishúsum geta sameinast um tæki og sent út t.d. barnatíma á laugardagsmorgnum. Philips myndsegulbandiö er stillanlegt þrjá sólarhringa fram í tímann og sjálfvirkni tryggir vel heppnaöa upptöku. Viöhald Philips myndsegulbandsins er auk þess einfaldara en annarra sambærilegra tækja. Þess vegna kaupa flestir Philips myndsegulband. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 „Mcr íinnst þetta algjör fjar- stæða scm Sjómannasambandið virðist nú ætla að gera að baráttumáli sínu — að banna loðnuveiðar í desembcr,“ sagði Gísli Jóhannesson. skipstjóri á Jóni Finnssyni. í samtali við Mbl. Gísli sagði, að röksemdir for- svarsmanna Sjómannasambands- ins um hættuna í desember ættu ekki við nein rök að styðjast." „Reynsla mín þessi ár sem sumar- loðnuveiðin hefur verið stunduð er sú að nóvember sé jafnvel verri mánuður en desember með tilliti til veðurs og að mjög vafasamt sé að gera nokkurn greinarmun á desember og janúarmánuði í þessum efnum,“ sagði Gísli. Gísli sagði ennfremur, að miðað við þá reynslu sem þegar væri fengin þá teldi hann of mikið gert úr hættunni sem sögð væri vere samfara þessum veiðum og t.d. þyrfti yfirleitt ekki að sigla langt til suðurs til að komast í hlýrri sjó ef um ísingu væri að ræða. „Þetta eru allt orðnir yfirbyggðir og traustir bátar,“ sagði Gísli,“ og þetta eru orðnir það góðir sjómenn sem stunda loðnuveiðar, að þeir kunna alveg að sjá fótum sínum forráð." Þá vakti Gísli einnig athygli á því, að loðnuveiðarnar á þessum tíma skiptu einnig miklu máli fyrir afkomu loðnusjómanna, því að einmitt í desember og janúar væri verðið bezt á loðnunni. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra. í desembermánuði Fjárlagagerð og kjara- þróun ráða urslitum Verðbólguvandanum að hluta til velt yfír á ríMssjóðinn Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra sagði á Alþingi sl. miðvikudag, er bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar komu til fyrstu umræðu í formi frumvarpa til staðfestingar á þeim, að þau hefðu verið gerð í samráði við samtök launþega. Hér væri um að ræða bráðabirgða- ráðstafanir, bæði til að mæta bráðum vanda útflutnings- atvinnuvegs og skapa tóm til að móta nýja og heildstæða efnahagsstefnu stjórnvalda, þar sem horft væri til lengri tíma. Forsætisráðherra sagði þær ráðstafanir, sem nú hefði verið hrundið i framkvæmd, fela í sér tilraun til að rjúfa vítahring verðbólgu og víxlhækkana, sem hagkerfið hafi klemmst í, og haft í för með sér sívaxandi rekstrar- erfiðleika undirstöðuatvinnuvega þjóðarbúsins, þann veg að horft hefði til rekstrarstöðvunar og atvinnuleysis. Þá sagði forsætisráðherra að gripið hefði verið til niður- greiðslna, til að hemja víxlhækk- anir. í þessari gjörð felist geysi- mikil fjárhagsbyrði fyrir rikis- sjóðinn. Hluta af verðbólguvand- anum hafi verið breytt í ríkisfjár- málavanda. Ný skattheimta á þessu ári, ásamt samdrætti í ríkisútgjöldum, nægi ekki til að mæta þessum útgjaldaauka ríkis- sjóðs á árinu. Hins vegar dreifist skattheimta, skv. hinum nýju bráðabirgðalögum, yfir á tvo fyrstu mánuði nýs árs (1979). Áherzla verður lögð á að ná ríkissjóðsjöfnuði fyrir árslok næsta árs. Loðnuskipstjóri: Fjarstæða að banna loðnuveiðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.