Morgunblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.10.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978 Axel Jónsson: Fjármál Kópa- vogskaupstaoar Athugasemd við dylgjur Þjóðviljans sl. laugardag KVARTMÍLUKLÚBBURINN gongst fyrir kvartmílukoppni á laugardag á nýrri braut klúbbsins við Alverið í Straumsvík. Hafa framkvæmdir við fyrrnefnda braut staðið yfir í rúmt ár og síðan hún var malbikuð í lok september hefur verið unnið að því að lagfæra kringum hana og girða af. Keppnin á laugardag hefst kl. 14 ef veður leyfir, en brautin verður að vera þurr. Keppt verður í fjórum flokkum og verður því einn sigurvegari í hverjum flokki. Tölvuvæðing hjá Sveit- arsjóði Gerðahrepps Garði 26. okt. SVEITARSJÓÐUR Gerðahrepps hefir sett alla skuldunauta sína í tölvuform. Að sögn sveitarstjóra Þórðar Gíslasonar er þetta gert til hagræðingar við innheimtu og nú er verið að senda út tilkynningar til gjaldenda um stöðu þeirra á greiðslum til sveitarsjóðs. Þá eru og gerðar þær breytingar, að héðan í frá verða reiknaðir 3% dráttarvextir á mánuði eins og lög segja til um og tíðkast í öðrum sveitarfélögum. Fréttaritari. Lýst eftir ökumanni og vitnum í Þjóðviljanum 21. október er á forsíðu grein sem ber fyrirsögnina: Rikisstjórnin heimilar 200 millj. kr. lántöku. I undirfyrirsögn stendur: Hrikalegur viðskilnaður bæjar- stjórnarmeirihluta Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar. Hér er gróflega hallað réttu máli og vil ég því bera fram nokk.rar athugasemdir. Það er rétt sem fram kemur í greininni að leitað var til ríkisstjórnarinnar um milligöngu við úrlausn aðsteðj- andi fjárhagsvanda bæjarins og að ríkisstjórnin fór fram á það við Seðlabankann að hann lánaði 200 milij. kr. í þessu skyni. Það er ekki. nýtt að þurft hafi að taka fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar til endurskoðunar síðar á árinu, slíkt hefur oft gerst þau 16 ár, sem ég hef verið í bæjarstjórn. Á miklum verðbólgutímum eins og í ár er þetta óhjákvæmilegt. Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var gert ráð fyrir 28% verðbólgu, sem síðan er 40% eða meir. Fjárhagsvandi Kópavogs, sem og flestra sveitarfélaga, sem ég þekki til, er ávallt mikill á sumarmánuðum, miklar fram- kvæmdir í gangi en tekjur ekki innkomnar að sama skapi. Framlag jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna er eini verð- tryggði tekjustofn þeirra í dag, þau verða því illa úti þegar' verðbólgan er mikil. í bæjarstjórn Kópavogs höfum við oft undanfarin ár staðið andspænis vandamálum í þessu efni, án þess að við sjálfstæðis- menn sæjum ástæðu til að gera meira úr vandanum á opinberum vettvangi en ástæða var til, en einbeittum okkur í þess stað að lausn hans. Hófsemi gætt við gerð fjárhagsáætlunarinnar Fjárhagsáætlun yfirstandandi Axel Jónsson bæjarfulltrúi árs var samþykkt á fundi bæjar- stjórnar 24. febr. s.l. að upphæð rúmlega 2000 millj. kr. Til undirbúnings hennar var vandað m.a. með því að áætla tekjur varlega, gera ekki ráð fyrir nema 160 millj. lánum, sem þá voru vís og tilheyrðu fasteigna- kaupum. Lækkun lausaskulda um 80 millj. kr. Þetta kom til góða við endurskoðun fjárhagsáætlunar- innar, sem gerð var 18. ágúst s.l., þá var m.a. hægt að hækka tekjur um 30 millj. kr. og leita á um frekari lántökur. Engum þarf að koma á óvart að við endurskoðun fjárhagsáætlunar hafi þurft að fresta nokkrum áður áætluðum framkvæmdum vegna verðlagsþróunarinnar. Þrátt fyrir það varð þó niðurstaða endur- skoðunarinnar sú, að heildarfjár- upphæð til framkvæmda var hækkuð um 61 millj. kr. og í heildarniðurstöðu var þá fjárvönt- un að upphæð 159 millj. kr. sem ekki getur talist há tala miðað við heildarupphæð og þróun verðlags- mála í ár. Hverjar voru þá tillögur þeirra alþýðubandalagsmanna við af greiðslu f járhagsáætlunarinnar í febrúar f vetur? kunna máski einhverjir að spyrja. Ef farið hefði verið að þeirra tillögum þá hefði fjárvöntunin verið um 60 millj. kr meiri. Þessa var hvergi getið í umgetinni Þjóðviljagrein s.l. laugardag. MIÐVIKUDAGINN 18. október sl. varð það atvik á mótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu í Ilafnarfirði að rauðri Volks- wagcnbifreið var ekið af Lækjar- götunni inn á Reykjanesbrautina í veg fyrir aðra Volkswagen- bifrcið, G-1905. Ökumaður síðarnefnda bílsins reyndi að forðast árekstur en við það missti hann stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum, að hún skall á ljósastaur og skemmd- ist mikið auk þess sem ökumaður og farþegi slösuðust. Bifreiðin, sem ók af Lækjargötunni, hvarf af vettvangi og er ökumaðurinn beðinn að gefa sig fram við Rannsóknarlögregluna í Hafnar- firði svo og vitni, sem gætu bent á um hvaða bifreið þarna var að ræða. Beinttil Baltimore Washington Með tilkomu áætlunarflugs til Baltimoreflugvallar víkkar enn leiðanet okkar. BWI (Baltimore Washington International Airport) er nýlegur alþjóðlegur flugvöllur milli stór- borganna Baltimore og Washington. BWI flugvöllur þjónar báðum borgunum í senn. Þaðan er aðeins 50 mínútna akstur til Washington og 20 mínútna akstur til Baltimore. Stöðugar bílferðir eru til og frá flugvellinum, svo biðin er engin. Frá BWI eru framhaldsflug um öll Bandaríkin og víða um heim. Flogið verður til Baltimore/ Washington einu sinni í viku, á föstudögum kl. 17.45 og til baka á laugardögum kl. 21.00. Fjölgun áætlunarstaða er liður í víðtækari og betri þjónustu við lands- menn. flucfélac LOFTLEIDIR ÍSLAJVDS BaltimoreWashington Intemational Airport Þessi nýja flugleið er enn einn ávinningurinn af sameiningu okkar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.