Morgunblaðið - 27.10.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1978
15
Dollarakreppan
magnast stöðugt
London, 26. okt. — Reuter.
DOLLARINN riðaði enn á
alþjóðagjaldeyrismörkuðum
og seldist enn lægra verði en
nokkru sinni og neikvæð
viðbrögð við áætlun Carters
Veður
víða um heim
Akureyri 14 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Apena 21 heiðskírt
Bertín 11 skýjað
Rrilesel12 rigníng
Chicago 15 skýjað
Frankfurt 15 rigning
Genf 10 poka
Helsinki 4 heiöskírt
Jóhannesarb. 12 skýjað
Kaupmannah. 10 sólskin
Lissabon 25 sólskin
London 18 skýjað
Los Angeles 23 skýjað
Madríd 22 heiðskírt
Malaga 21 léttskýjað
Miami 27 skýjað
Moskva 7 skýjað
New York 16 skýjað
Ósló 10 heiðskírt
Palma, Mallorca 20 léttskýjað
París 17 skýjað
heykjavtk 10 súld
Róm 11 heiðskírt
Stokkhólmur 10 skýjað
Tel Aviv 28 skýjað
Tokyó 22 skýjað
Vancouver 11 heiðskírt
Vínarborg 13 skýjað
ATHUGID: Upplýsingar um
Palma og Malaga fást milli kl. 13
og 14.30 í kortadeild Veðurstofu
Islands, sími: 86000.
forseta um baráttu gegn
verðbólgunni urðu stöðugt
meira áberandi.
Gull hækkaði að sama
skapi í verði annan daginn í
röð og var skráð á 233.70
dollara únsan í London.
Verð dollarans lækkaði. í 1.7610
mörk í Frankfurt og í 178.50 yen í
Tokyo. Hvort tveggja er algert met
og verð dollarans gagnvart yeni
hefur lækkað um helming á sjö
árum.
Dollarakreppan hefur staðið
samfleytt síðan í fyrrahaust en
versnaði til muna í gær þegar
mikil óánægja fylgdi í kjölfar
áætlunar Carters. Óánægjan staf-
ar af því að áætluninni er ekki
gert ráð fyrir skammtímaráð-
stöfunum til þess að bjarga
dollaranum. Áætlunin nær til
langs tíma og hennar hefur verið
beðið lengi.
Dollarinn hefði lækkað jafnvel
ennþá en raun varð á ef ekki hefði
komið til geysimikill stuðningur
frá seðlaþönkum Japana og
Evrópuþjóða.
Hins vegar fékk Carter í dag
mikilvæga stuðningsyfirlýsingu
frá bankastjóra bandaríska seðla-
bankas, William Miller, sem sagði
að áætlun Carters gerði ráð fyrir
samstilltu og viðvarandi átaki til
að berjast gegn verðbólgunni.
Yfirlýsingin er talin mikilvæg
vegna þes, að Carter verður að
hafa góða samvinnu við seðla-
bankann ef áætlunin á að bera
árangur.
Miller sagði, að ef verkalýðs-
hreyfingin og kaupsýslumenn
styddu áætlun Carters gæfist
svigrúm til að uppræta verðbólg-
Þetta gerðist
1973 — Gæzlusveitir SÞ koma
til Kaíró til að koma á vopna-
hléi.
1967 — Aldargömul landa-
mæradeila Bandaríkjanna og
Mexíkó leyst.
1966 — SÞ binda enda á
umboðsstjórn Suður-Afríku í
Suðvestur-Afríku.
1956 — Frakkar og Þjóðverjar
semja um Saar.
1951 — Egyptar rifta banda-
lagssamningi við Breta frá 1936
og samningi frá 1899 um Súdan.
1922 — íbúar Suður-Rhódesíu
hafna sameiningu við Suður-Af-
ríku í þjóðaratkvæðagreiðslu.
1911 — Þjóðverjar hörfa frá
Póllandi.
1861 — Bretar innlima dem-
antasvæðin við Kimberle.v, Suð-
ur-Afríku.
1870 — Uppgjöf Frakka í Metz
fyrir Prússum.
1857 — Herganga Garibaldis til
Rómar hefst.
1806 — Napoleon tekur Berlín
herskildi.
1789 — Tilraun Frakka til
innrásar í Irland út um þúfur.
1676 — Zurawna-friðurinn:
Tyrkir fá hluta Pódólíu og
Úkraínu frá Pólverjum.
1651 — Bretar ná Limerick,
írlandi, eftir iangt umsátur.
1523 — Árásarleiðangur Eng-
lendinga í Frakklandi út um
þúfur.
Afmæli dagsins. Theodore
Roosevelt, bandarískur forseti
(1859-1919).
Innlent. Halldóri Laxness veitt
bókmenntaverðlaun Nóbels
1955. — Upptökudagur Guö-
mundar biskups góða Arasonar
1315. — D. Hallgrímur Péturs-
son 1671. — Síra Jón Halidórs-
son í Hítardal 1736. — Þórður
próf. Jónsson í Hítardal 1670. —
Alþingisk^sningar (leiða til
stofnunar íhaldsflokksins) 1923.
— Flóðbylgja veldur stórtjóni
norðanlands 1934. — Þrír farast
í snjóflóð á Flateyri 1934. — F.
Emil Jónsson 1902.
Orð dagsins. Það sem við sjáum
fer aðallega eftir því þvað það er
sem við leitum aö — John
Lubbock, enskur stjörnufræð-
ingur (1803-1865).
Ola Lllsten
Falldin
Olof Palme
Eldhúsumrædur í sænska þinginu:
Stjórn Ullstens
vill hærri fjöl-
skyldufrádrátt
Stokkhólmi. 26. okt. 1978.
Frá Önnu Bjarnadóttur,
íréttaritara Mbl.
ELDHÚSUMRÆÐUR hófust í
sænska þinginu á miðvikudag
með ræðum formanna flokk-
anna. Síðan tóku aðrir þing-
menn til máls, en búizt er við að
60—70 þingmenn taki þátt í
umræðunum, sem standa fram á
fimmtudagskvöld eða 24—26
tíma. Ola Ullsten, formaður
Frjálslynda flokksins, hóf um-
ræðurnar og flutti sína fyrstu
almennu ræðu í þinginu sem
forsætisráðherra.
Ullsten gerði grein fyrir
ráðstöfunum, sem stjórn hans
vill gera til að auka atvinnu og
tekjur í landinu, en tillögurnar
verða lagðar fram í frumvarpi
stjórnarinnar eftir nokkrar vik-
ur.
Ráðstafanirnar eru fóglnar í
því að auka þá peninga, sem fólk
hefur milli handanna. Stjórnin
vill hækka fjölskyldufrádrátt
um 240 s. kr. eða upp í 2.500 s.
kr. á barn og fella niður skatt
láglaunaðra örorku- og lífeyris-
þega. Einnig vill stjórnin vísi-
tölubinda skattstigann og setja
þak á jaðarskattinn en ákvörðun
um það verður tekin í samráði
við verkalýðsfélögin.
Stjórn Fálldins gerði frum-
drög frumvarpsins og því er lítil
andstaða gegn ráðstöfunum í
borgarflokkunum og jafnaðar-
menn hafa verið samþykkir
þeim í stórum dráttum. Olof
Palme, formaður Jafnaðar-
mannaflokksins, sagði þó í ræðu
sinni í gær, að fjölskyldufrá-
drátturinn þyrfti að hækka um
500 s. kr. á barn.
Umræður flokksformannanna
snerust að miklu leyti um fall
síðustu Stjórnar og stuðning við
hina nýju. Palme sagðist vera
samþykkur mörgu í ræðu Ull-
stens en saknaði orða um
atvinnuleysið. Palme sagði, að
jafnaðarmenn væru tilbúnir að
taka þátt í þeirri ábyrgð að
stjórna landinu, en að flokkur-
inn hefði engin loforð gefið um
stuðning við stjórnina. Hann
lofaði þó stuðningi flokksins við
ráðstafanir sem minnka félags-
legan mismun og ríkisskuldir.
Palme veittist hart að Mið-
flokknum og íhaldsflokknum.
Af ræðu hans að dæma verður
Miðflokkurinn höfuðand-
stæðingur jafnaðarmanna í
kosningunum í september á
næsta ári.
1 ræðu sinni lagði Gösta
Bohman, formaður íhalds-
flokksins, áherzlu á þann mis-
mun, sem er á borgaraflokkun-
um og Jafnaðarmannaflokkn-
um. Hann sagði, að íhalds-
flokkurinn myndi styðja stjórn
Frjálslynda flokksins, ef
málefni hennar yrðu í anda
borgaraflokkanna, sem fengu
meirihluta í síðustu kosningum.
Hins vegar yrði Ihaldsflokkur-
inn í stjórnarandstöðu, ef
stjórnin sæktist sífellt eftir
stuðningi jafnaðarmanna.
Thorbjörn Fálldin, formaður
Miðflokksins, sagði um
stjórnarslitin að innan Frjáls-
lynda flokksins hefðu ætíð verið
klíkur, sem stefndu að því að
koma flokknum í þá stöðu sem
hann hefur nú í sænskum
stjórnmálum. En hann sagði, að
vegna þess hversu örugg staða
stjórnar Frjálslynda flokksins
væri í þingjnu væri ekki rétt að
flokkur eins og Miðflokkurinn
væri í venjulegri stjórnarand-
stöðu. Og því myndi flokkurinn
dæma hvern málaflokk fyrir sig.
Fálldin lét ekki uppi, hvernig
flokkur hans mun greiða at-
kvæði þegar skattafrumvarp
stjórnarinnar veerður lagt fyrir
þingið.
Gallup:
Fylgið streymir til
Verkamannaflokksins
Lundúnum — 26. okt. —
Reuter
Verkamannaflokkurinn
yröi áfram við völd í Bret^
landi ef efnt yrði til þing-
Enn safna Víetnamar liði
við landamæri Kambódíu
Washington, 26. október — AP.
VÍETNAMAR hafa sent 10 til 15
þúsund manna liðsauka að landa-
mærum Kambódíu, að þvi er
áreiðanlegar heimildir í
Washington herma. Þannig er
áætlað að Víetnamar hafi samtals
um 100 þúsund manna lið, sem er
reiðubúið að láta kné fylgja kviði
innan landamæranna, en megnið
af þessu liði er enn sem komið er
á víetnömsku landsvæði, enda
þótt Víetnamar hafi á sínu valdi
nokkur landamærasvæði og séu
þar komnir inn f Kambódíu,
samkvæmt sömu heimildum.
Þurrkatímabil fer nú í hönd í
Indókína, og telja stjórnmálaskýr-
endur horfur á að Víetnamar séu
að búa sig undir stórsókn gegn
Kambódíuher á næstu vikum.
Fæstir eru þeirrar skoðunar að
Víetnamar hyggist halda langt inn
í Kambódíu, heldur ætli þeir að
útkljá með hervaldi ágreining
þann, sem um langt skeið hefur
ríkt um yfirráð yfir tilteknum
landamærahéruðum. Víst er talið
að Sovétstjórnin hafi á síðustu
mánuðum sent upp undir þúsund
tækni- og efnahagsmálaráðgjafa
til Víetnams til viðbótar þeim þrjú
þúsund, sem þar voru fyrir, en
ekki er talið að sovézkum
hernaðarráðgjöfum hafi fjölgað
þar að ráði að undanförnu, að því
er heimildarmenn innan banda-
rísku leyniþjónustunnar telja.
kosninga nú, að því er niður-
stöður Gallupkönnunar gefa
til kynna. Niðurstöðurnar
benda til þess að fylgið hafi
sópazt að Verkamanna-
flokknum að undanförnu, og
að flokkurinn hafi nú fimm
og hálft prósent fram yfir
íhaldsflokkinn, sem er helzti
stjórnarandstöðuflokkurinn.
í september benti skoðuna-
könnun til þess að íhalds-
flokkurinn stæði mun betur
að vígi en Verkamannaflokk-
urinn og mundi í kosningum
fá nægilegt fylgi til að taka
við stjórn landsins, en James
Callaghan lýsti því þá yfir að
engar kosningar yrðu haldn-
ar að sinni, — Verkamanna-
flokkurinn hefði ekki hugsað
sér að gefast upp og renna af
hólmi, heldur halda áfram
baráttu sinni gegn verðbólg-
unni. Telja má að þessi
yfirlýsing forsætisráðherr-
ans hafi miklu ráðið um
úrslit Gallupkönnunarinnar
nú.
Af þeim, sem þátt tóku í
könnuninni, styðja 66%
launahækkanatakmörkun
stjórnarinnar, um leið og
sama hlutfall lýsir yfir andúð
sinni á stefnu verkalýðs-
félaga, sem krefjast meiri
launahækkana en 5%, og
69% telja andstöðu verka-
lýðsfélaganna við stjórnar-
stefnuna í verðlags- og launa-
málum „ósanngjarna".
Aukakosningar fara fram í
tveimur kjördæmum í dag. í
báðum kjördæmunum vann
Verkamannaflokkurinn sæti
af íhaldsflokknum í síðustu
kosningum.